Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1973, Blaðsíða 20

Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1973, Blaðsíða 20
/■ Fyrst skulum við rifja upp tvær gamlar vorvisur, sem sjaldan verða of oft kveðnar, en það skal játað, að höfundar eru ókunnir, en gaman væri að fá linu, ef einhver vissi þá með sannindum. Fjalls úr hliö og fögrum dal fargast viða snærinn. Hrindir kviöa úr sinnusal sunnan þýöi biærinn. Nú er úti hláka hlý, hiti, dögg og vindur. Fönnin bráönar fjöllum i, fiilast allar kindur. Það er mikill siður á mannþing- um — og var þó meiri — að láta vis- ur fljúga um bekki. Á kennaraþing- um hefur jafnan verið mikið visna- flug svo sem vel hæfir. Hér skulu rifjaðar upp nokkrar gamlar visur frá þingi barnakennara, en þvi miður vantar nú æskilegar tilefnis- skýringar. Þessi er eftir Stefán Jónsson, rithöfund og kennara, sem marga visuna kvað i glöðum hópi: Margir verða að færa fórn frekar cn þeir hugðust, og um sæti í sambandsstjórn sumum vonir brugöust. Eftirfarandi visa Gunnars M. Magnúss, rithöfundar og kennara, er að likindum svarsending til Stefáns: Stefán féll, þá fór á kreik, en frami titt meö árum vex, - og nú á að kjósa á nýjan leik nítján hundruð — fjórir — sex. Ef til vill er eftirfarandi visa Steinþórs Guðmundssonar, kenn- ara, ort um eigin afdrif e.t.v. i sömu stjórnarkosningu: Ég reiknast'pi lengur radikal, en rifst á stjoHiarfundum. Samt haföi ég af.hið háa val, þótt hallaöist flcytan stundum. Þá sendi Stefán Jónsson Ingimar Jóhannessyni kennara og vini sin- um eftirfarandi skeyti á kennara- þingi: Sjá mátti á þing þar þrekna menn og stóra. Þó er ávailt Ingimar einn á borö viö fjóra. Ingimar svaraði á þessa leið: Stefán er ei stór að sjá, stenzt þó raun viö hverja þrá. Hefur sá af miklu aö má, mun þvi lengi rita og spá. Stefán sendi og stjórn Samb. isl. barnakennara eitthvert sinn þetta gamanskeyti og minntist, sem i öfugmæli, Arngrims Jónssonar, skólastjóra, sem kunnur var að prúðmennsku i orði: Stjórnin hefur stríöa lund, styrjöldin fær þrifizt: Arngrimur kom ekki á fund, ailt um þaö var rifizt. Loks er svo ein visa eftir Kristján Sigurðsson kennara, ef til vill eins konar yfirlit um þessar visna- skylmingar: Þótt viö heyrum brandabrak býst ég viö aö allir standi. Alvanir viö oröaskak eru menn i þessu iandi. t siðasta þætti voru birtar nokkr- ar visur eftir Guðnýju Arnadóttur, húsfreyju i Skógum i Reykjahverfi i S.-Þing. Hér koma einar þrjár til viðbótar, og er fyrst árnaðarósk á merkisafmæli: Bráöum hefst þinn bezti tugur, bjart er yfir þinni sveit. Ætiö samur öölingshugur efii þig i framaleit. Hér er heilræðavisa eftir Guðnýju: Haföu á þér haröa gát, hugsaöu vel i tima. Ýmsir hafa oröiö mát fyrir óaðgæzlu sína. Og að lokum er þessi visukveðja frá Guðnýju: Ef mér leyföi auönan hér einhverju aö ráöa, skyldi gæfan gefa þér guli i lófa báöa. Þessi sýnishorn af kveðskap hús- freyjunnar i Skógum, visum, sem orðið hafa til yfir pottum, prjónum, gólfþvotti eða þvottabala, eru góð mynd af þýðingu stökunnar i lifi manneskjunnar i dagsins önn —- jafnvel enn á vorum dögum. Að siðustu er hér ein visa eftir Skúla heitinn Þorsteinsson, náms- stjóra, ástavisa til ferskeytlunnar: Þegar reyndist leiöin löng og lág var gleöisólin, i ferskeytlunnar fræga söng fundu margir skjólin. Látum þetta nægja i dag. Gnúpur. 428 Sunnudagsblað Tímans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.