Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1973, Blaðsíða 18

Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1973, Blaðsíða 18
fætur. Fjandinn hafi það! Þetta er sjóðandi! — Hvað er að herra minn? — Oh....oohh! stundi Lovico og glennti upp augun og munninn, sem mest hann gat. — ögn af vatni, vatnssopa, sagði nú knæpumaðurinn. Hérna fáið yður vatnssopa. — Buxurnar minar! vældi Paolino og horfði á þær. Hann dró upp vasaklút dýfði einu horninu niður i vatnsglasið og tók að nudda blettinn af kappi. Hvað sem öllu leið, féll honum vel að finna til gufunnar á skálduðu lærinu. Hann breiddi úr blautum vasa- klútnum, en fölnaði jafnskjótt upp er hann leit á hann, fleygði skildingum á veitingaborðið og snaraðist úr. En hann var ekki fyrr kominn fyrir hornið á sundinu, við aðalgötuna, en hann rakst á Petella skipstjóra. Komið þér sælir! Þér hér? — Já. Ég ... ég.... stamaði Paolino Lovico, sem fannst hann vera búinn að missa sinn siðasta blóðdropa. Ég... ég... fór snemma á fætur ... og — Fóruð að fá yður göngu i morgun- svalanum? sagði Petella og lauk við setninguna fy.rir hann. Hamingjusami maður. Engin 1 vandræði... engar áhyggjur.. frjáls! Ógiftur maðurinn! Lovico horfði fast i augu honum, til þess að komast að þvi, hvort... Já ... Það var þesslegt ,,, Sú staðreynd, að skepnan var kominr. á flakk svona snemma, og svona yggldur og ólmur á svipinn...þýddi það, að hann hefði enn rifizt við konu sina i gærkvöldi. — Ég myrði hann! hugsaði Lovico með sér, svei mér ef ég drep hann ekki! Honum tókst nú samt að svara, og brosa kurteislega um leið. — Nú, ég sé ekki betur en að þér séuð lika. .. — Ég drundi Patella. Hvað? — Þér lika....snemma á fótum....... — Já, svo. Þér undriBt, að sjá mig svo snemma á fótum? Ég hefi átt slæma nótt, prófessor góöur. Það er kannski vegna hitans...ég veit ekki— — Hvaö, gátuö þér ekki... gátuð þér ekki sofið vel? Ég svaf alls ekkert. Petella hækkað röddina bálvondur. Þér skiljið, að þegar ég get ekki sofið, ekki einu sinni blundað, þá verð ég úfinn i skapi. — En afsakið.... hvaða sök ........ stamaði Lovico og skalf eins og hrisla en reyndi samt að brosa. A nokkur annar sök á þvi, ef ég mætti spyrja? — Nokkur annar? spurði Petella undrandi. Hvernig i ósköpunum ætti það að vera öðrum að kenna? — Nú, þér sögðust hafa orðið reiður. Reiður við hvern? Við hvern eruð þér að deila, þegar heitt er i veðri? — Ég verð reiður við sjálfan mig, við veðrið, við alla, sagði Petella. Mér verður þungt um andardráttinn. Ég er vanur sjónum. Og hvað þurrlendið snertir prófessor einkum að sumar- lagi, þá þoli ég það ekki. Ég þoli ekki þurrlendið, með öll sin hús.. veggi og kvenfólk. — Ég drep hann, muldraði Lovico, svei mér ef ég geri það ekki! Hann brosti samt ögn og hélt áfram. — Svo yður geðjast heldur ekki að kvenfólki? — Tja, kvenfólk.... Já, sannast að segja, að þvi er mig snertir kvenfólk. Þér vitið að skip mitt fer sina leið, og ég hefi ekkert af kvenfólki að segja langtimum saman. Ég tala ekki um nú orðið, siðan ég tók að eldast. En þegar ég var ungur — Jú, eiginlega hneigðist ég heldur að þvi i þá daga. En af einu get ég hælt mér. ... ég hefi alltaf haft stjórn á sjálfum mér. Þegar mér sýnist, ber ég mig eftir þvi, en annars læt ég það alveg sigla sinn sjó — Alltaf? (Ég drep hann). — Alltaf, þegar mér sýnist — þér skiljið. Með yður er þetta á allt annan veg, ha? Þér látið auðveldiega ánetjast? Svolitið bros, eða ending feimnislegt augnatillit — er ekki svo? Hérna, segið mér nú eins og er. Lovico nam staðar, horfði beint framan i hann og sagði: — A ég að segja yður sannleikann? Jæja þá, ef ég ætti konu... — Nú, við erum ekki að tala um konur.Hvað koma þær þessu máli við? Ég sagði kvenfólk, kvenfólk! Og Petella fór að skellihlæja. — Eru ekki konur kvenfólk? Hvað ætli þær séu annað. — Ójú, rétt er það. Þær eru auðvitað kvenmenn .... stundum! En þér eruð ekki enn búinn að fá yður konu, og ég vona, yðar vegna, að þér eignist aldrei konu. Konur sjáið þér... — Hann tók nú um handlegginn á Lovico og lét dæluna ganga. Lovico titraði af kviða er hann virti fyrir sér andlit skipstjórans tók eftir þvi, hvað augun voru þrútin og neðan við þau voru bláir baugar. Hann hugsaði sem svo, að ef til vill liti hann svona út, vegna þess, að hann hefði orðið andvaka... ef til vill... En þvi brá fyrir við og við hjá honum, i einu og einu orði, já ekki laust við að svo gæti verið að ... að vesalings konunni væri borgið. En þar á milli fylltist hugur hans kviða og auk heldur örvæntingu. Þetta kvalræði ætlaði engan endi • að fá þrællinn vildi stöðugt halda áfram og fór með hann allar götur meðfram höfninni. Loksins sneri hann við og hélt heim á leið. — Ég skil ekki við hann, hugsaði Lovico með sér, ég fer heim með honum, og ef hann hefir brugðizt skyldu sinni, þá verður þetta siðasti dagur okkar allra. Hann var svo haldinn af þessum grimmdaráformum, svo gagntekinn af hatursfullum tilfinningum, aðhann vissi hvorki upp né niður, þegar hann kom fyrir götuhornið og varð litið heim að húsi Petella — og sá hangandi á snúrunni við gluggann — drottinn sæll og góður! einn... tvo ...þrjá... fjóra... fimm vasaklúta. Nefið á honum grettist, munnurinn stoo gai- opinn og hann snarsvimaði af fagnaðarvimunni, sem á hann kom, svo nærri lá, að hann næði ekki andanum. — Hvað er að? hrópaði Petella og studdi hann, svo hann dytti ekki. — Kæri skipstjóri! sagði Lovico, blessaðir verið þér, þakka yður fyrir, þakka yður kærlega! Æ....það hefir verið mér sú einstök ánægja ....þessi...þessi...yndislega morgun- ganga...en ég er þreyttur.......alveg uppgefinn....eg er hreint að velta út af. Þakka yður, þakka yður hjartan- lega, skipstjóri. Verið þér sælir og góða ferð! Sælir! Þakka yður fyrir! Petella var ekki fyrr kominn inn i hús sitt en Lovicotók til fótanna niður götuna, hrópandi og kallandi af fögnuði. Með breiðu brosi og gleði- ljóma í augum breiddi hann úr hendinni, öllum fimm fingrunum, framan i hvern mann, sem hann mætti. Endir. Sunnudagsblað Tímans óskar gjarnan eftir vel rituðum frásögnum frá liðinni tíð um minnisverða og sérstæða atburði. Handrit þurfa að vera vélrituð Sunnudagsblað Timans 426

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.