Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1973, Blaðsíða 22

Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1973, Blaðsíða 22
Kirkiuþáttur Framhald af bls. 427 I Þingeyjarþingi ,tók trú önund- ur, er átti heima i Reykjadal, göfugmenni, sonarsonur Grenjaðar landnámsmanns, er fyrstur bjó á Grenjaðarstað. önundur var kall- aður ,,hinn kristni”. I Eyjafirði skiptust menn mjög með og móti boðendum kristinnar trúar. Rammur andstæðingur var Héðinn frá Svalbarði, en Hlenni i Saurbæ varð foringi kristinna manna i Eyjafirði. Eyjólfur á Möðruvöllum, faðir Guðmundar rika og Einars Þveræings, lét primsignast, og snérist mjög á sveif með kristnum mönnum, og kristnin festi rætur. Mestan ávöxt mun kristniboð þeirra Þorvalds og Friðriks hafa borið i Skagafirði. A Eilifsfelli i Laxárdal bjó föðurbróðir Þorvalds, Atli hinn rammi, merkur höfðingi. Þar dvöldu kristniboðarnir og voru þar allir skirðir. Þangaö hafa og margir komið til þess að hlýða á boðskap þeirra. Að Asi i Hjaltadal bjó Þorvarður Spak-Böðvarsson. Liklegt er talið, að hann hafi verið skirður af Frið- riki. Einnig eru sagnir um það, að Þorvarður hafi trú tekið á Eng- landi. Þorvarður var einn af fremstu höfðingjum hér á landi á þessum dögum. Hann reisti kirkju á bæ sinum 984. Mun það vera fyrsta kirkja, sem reist er á Is- landi. En kirkja reis einnig i Holti i Kólgumýrum i Húnaþingi, þar sem maður bjó er Máni hét. Friðrik biskup skirði hann. Máni varði ævi sinni til þess að hjálpa fátækum og bágstöddum. Var hann kallaður hinn kristni. Aðrar af fyrstu kirkj- um i landinu má nefna kirkjurnar á Kirkjubæ á Siðu, Esjubergi á Kjal- arnesi, Vestmannaeyjum og Þing- völlum. Um framhald á samstarfi þeirra Þorvalds og Friðriks biskups er það að segja, að þeirra leiðir skildu. — Þorvaldur vó menn þá er ortu niðið um þá félaga. Það likaði biskupi stórilla. Kristnisaga getur þess um Friðrik, að hann hafi verið maður sannheilagur. Hann fór suð- ur til Saxlands, en Þorvaldur var f kaupferðum eftir þetta um iangt skeið. Hann vitjaði helgra staða og fór til Jórsala. Þorvaldur víðförli varð siðar frægur um Austurlönd. Starfaði hann þar áfram að kristin- dómsmálum. Hann setti á stofn klaustur. — Sennilegt er, að Þor- valdur hafi á timabili veitt forstöðu kristniboði i Rússlandi, enda komu jafnan f ljós hinir góðu eiginleikar hans, heit trú, vitsmunir og aðrir mannkostir. Það er loks af Þor- valdi að segja, aö hann andaðist í klaustrinu, sem hann hafði stofnað á Valdaihæðum, skammt frá Pal- ozk i Rússlandi. Árið 1981 verða komin rétt þús- und ár frá þessari fyrstu kristni- boðsferð. Upphaf kristnisögunnar má rekja til trúboðsumdæmisins þýzka, og til hins húnvetnska æsku- manns, en siðar kom til afskipta norska konungsvaldsins. Það er vel þess virði, að þess sé minnzt.þegar menn fyrir þúsund árum héldu fyrst uppi ljósi kristinnar trúar, ljósi kærleika, miskunnar og menningar i Norðlendingafjórð- ungi og hvar sem það ljós þá kvikn- aði i hinni fyrstu kristniboðsferð til Islands. Margt hefir á þessari löngu ferö gegnum aldirnar farið úrskeiðis og kirkjunnar menn ekki reynzt sem skyldi. Ekki vil eg draga dul á það. Útgefandi: Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Heigason, Tómas Karlsson, Andrés Kristjánsson (ritstjóri Sunnudagsbiaðs Timans). Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif- stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif- stofur I Bankastræti 7 — afgreiðslusimi 12323 — auglýsinga- simi 19523. Aðrar skrifstofur: simi 18300. Askriftagjald 300 kr. á mánuöi innan lands, I lausasölu 18 kr. eintakið. Blaðaprent h.f. -i En hitt vil eg fullyröa, að með komu þeirra Þorvalds viðförla og Friðriks biskups var farin ferð og ruddur vegur, sem varð til heilla og blessunar fyrir islenzka þjóð, er hún bar gæfu til að taka hinn kristna sið og hafna þeim heiðna. — Kærleiks og friðarboðskapur kristninnar var þess megnugur að breyta grimmum vikingum I frið- sama borgara, þó að stundum yrði hið frumstæöa vikingseðli sterk- ara. — Þegar nær dregur þúsund ára kristni á Noröurlandi, skyldum vér hugleiða á hvern hátt vér get- um bezt minnzt þess og stutt það kristniboð, sem þeir Þorvaldur og Friörik tóku höndum saman um að efla. Pétur Sigurgeirsson. Sandor Kovac Framhald af bls. 418 sem heillaöi hann einna mest utan ætt- lands að sjálfs han sögn, og sem hann átti minningar um sem glöddu hann til æviloka. Siðasta bréfið frá Sandor Kovacs til min er dagsett 21. ágúst 1969. Hann var þá nýkominn heim frá Finnlandi, þar sem hann var á alþjóðaþingi erperant- ista i boði bróður sins, sem er búandi þar i landi. Sú ferð á fornar slóðir varð hans siöasta i þessu lifi. Um jól 1969 fékk ég bréf frá frú Helenu Kovacs. Ég vissi hvaða fregn það hafði að færa mér oopnað. Sandor Kovacs andaðist 11. des- ember 1969, 63 ára að aldri. Haraldur Guðnason Lausn ó 16. krossgátu A N/V / H O I í/t l a r '7<v m a Jr o / t? A L. AU Ð > T A F L P i r fi ra H 'A R Á) K N A C A \< M KÆ iZ A A R 5 A O R /< / AT /j S/UU U M I L TR E F & T>0 L A í T A K K A >< /Q A F * K £ l $ F / T U '4 L A I TKAFA 4 RhR N N'o F R A 5 A R CrU MA N £ I N aT T TANIA' K I N N A R A A R C A 4 R G A R 'O © A N 'ON N U N U H'OJ) A N£P A N ? A N T Afl R 'OA K R A __RAKiL/\R APTaBAR 430 Sunnudagsblað Tímans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.