Morgunblaðið - 22.05.2004, Síða 16

Morgunblaðið - 22.05.2004, Síða 16
ERLENT 16 LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ SPÆNSKIR verkamenn setja upp stóra mynd af Felipe krónprins Spánar og unnustu hans Letiziu Ortiz í heimabæ hennar Ovideo í Asturias-héraði á Spáni, en þau verða gefin saman með viðhöfn í Madrid í dag. Mikið er um dýrðir á Spáni vegna brúðkaupsins en þetta er fyrsta konunglega brúðkaupið í landinu í 98 ár. Gífurleg öryggisgæsla er í Madrid en rétt rúmlega tveir mán- uðir eru liðnir frá hryðjuverkunum í borginni þar sem tæplega 200 manns létu lífið. Leitizia, sem er blaðamaður og sjónvarpsfréttakona, er fráskilin en hún var áður gift bókmenntafræði- kennara. Hún er sögð afar dugleg, ákveðin og hafa munninn fyrir neð- an nefið og virðist njóta mikilla vin- sælda meðal Spðánverja því að þrír af hverjum fjórum segjast ánægðir með val krónprinsins. Gagnrýnisraddir hafa þó einnig heyrst, sumir telja kostnaðinn við brúðkaupið óviðunandi en aðrir telja óforsvaranlegt á tímum jafn- réttis að Felipe skuli erfa krúnuna en ekki Elena elsta systir hans því samkvæmt stjórnarskránni skal hann tekinn fram yfir systur sína þar sem hann er karlmaður. Sósíalistar, sem nú hafa meiri- hluta á spænska þinginu, hafa gagnrýnt þetta mjög og hyggjast breyta lögunum þannig að kynin hafi jafnan rétt til þess að erfa krúnuna. Reuters Undirbúa konunglegt brúðkaup SEVARA Nazarkhan var áður í stúlknahljómsveit sem var svar Úsbekistans við Kryddpíunum en hefur söðlað um og einbeitir sér nú að því að vekja athygli heimsbyggð- arinnar á aldagömlum þjóðsöngvum sem kenndir eru við Silkiveginn. Hefur hún fengið mikið lof í Evrópu og Bandaríkjunum fyrir ástar- og tregasöngva sína eftir að rokk- stjarnan Peter Gabriel hreifst af henni og tók hana upp á arma sína. Nazarkhan var boðið á tónlistar- hátíð í Bretlandi árið 2000 sem gesti en þegar annar tónlistarmaður for- fallaðist var hún beðin á síðustu stundu að koma fram. Hún gat að- eins æft sig í 20 mínútur með hljóð- færaleikurum, sem fengnir voru til að spila með henni, en hún stóð sig svo vel að Peter Gabriel fór til henn- ar baksviðs eftir tónleikana og bauðst til að gefa út plötu með söngvum hennar. „Þetta var eins og í ævintýr- unum,“ sagði Nazarkhan. Fyrsta platan hennar á alþjóð- legum markaði, „Yol Bolsin“, var gefin út fyrir rúmu ári. Gagnrýn- endur gerðu góðan róm að plötunni og Nazarkhan ferðaðist um Evrópu og Bandaríkin í fyrra, kom fram á tónleikum Gabriels. Hún var sæmd tónlistarverðlaunum breska ríkis- útvarpsins BBC, World Music Aw- ard, 9. mars og hyggst fara í tón- leikaferð um Evrópu í sumar. Blanda af þjóðlagahefðum Mið-Asíuþjóða Nazarkhan, sem er á þrítugsaldri, leikur á hefðbundið strengja- hljóðfæri, dútar, sem svipar til lútu, er með tvo strengi og langan og mjó- an háls. Eftir að hún hætti í stúlknapopp- sveit, sem naut vinsælda í Úsbek- istan, ákvað hún að fara eigin leiðir í tónlistinni. Hún lýsir söngvum sín- um sem blöndu af þjóðlagahefðum Mið-Asíuþjóðanna með votti af poppáhrifum. Þetta er tónlist Silkivegarins, fornu verslunarleiðarinnar milli Kína og Evrópu. Söngvarnir minna á einfaldari tíma, þegar ástin var höfð í hávegum – en fólk þurfti samt oft að sætta sig við lífsförunaut sem foreldrarnir völdu. Sungið um ást og kvöl „Söngvarnir eru um ást, trú, tryggð – og kvöl, kvöl, kvöl,“ segir hún. „Þetta er ekki bara einföld ást. Þetta er ást eins og hún var í hjört- um fólksins fyrir mörgum árum þeg- ar allt var hefðbundnara.“ Nazarkhan reynir stundum að út- skýra merkingu söngvanna á tón- leikunum en segir að hún hafi oft séð áheyrendur gráta þótt þeir skilji ekki eitt einasta orð. Hrífur áheyrend- ur með söngvum Silkivegarins Tashkent. AP. AP Úsbekíska söngkonan Sevara Naz- arkhan æfir sig á dútar í Tashkent, höfuðborg Úsbekistans. ’Söngvarnir eru um ást,trú, tryggð – og kvöl, kvöl, kvöl.‘ KANADA og Danmörk berjast nú um yfirráð lítillar eyðieyju undan ströndum Grænlands. Vopnin sem þeir nota eru fánar og þjóðar- snafsar. „Hans-eyja er dönsk,“ segja Danir en í síðasta leiðangri danska strandgæsluskipsins Vædderen norður í höf fór áhöfnin í land, dró Dannebrog að húni og skildi síðan eftir flösku af Gammel Dansk til handa Kanadamönnunum. Þeir eru hins vegar alfarið ósammála. „Hans-eyja er kanadísk,“ segja Kanadamennirnir. Þegar Danirnir komu síðast til eyjunnar höfðu þeir dregið kanadíska fánann að húni og skilið eftir flösku af kan- adísku viskíi, að því er fram kemur í norska dagblaðinu Vårt Land. Jørgen Wæver Johanson, ráð- herra í grænlensku heimastjórn- inni, hefur aðeins eitt um þessa deilu að segja: „Eyjan tilheyrir Grænlandi.“ Hann segir að Græn- lendingar hafi samt sem áður ekki í hyggju að draga grænlenska fán- ann að húni á Tartupaluk eins og eyjan heitir á grænlensku. Snýst um hugsanlegar olíulindir Eyjan er í raun klettur sem liggur á Naressundi á milli Græn- lands og Ellesmere-eyju og er 1,3 ferkílómetrar að flatarmáli. Hún hefur verið bitbein landanna tveggja allt frá 1973 en þá ákváðu þjóðirnar að vera ósammála um hvar mörkin á milli landanna ættu að liggja á hafinu. Í Kanada vilja margir að þjóðin geri sig breiða á svæðinu m.a. vegna olíulinda á hafsbotninum. Þá telja margir að vegna gróðurhúsaáhrifa og hlýn- andi loftslags á norðurheimskaut- inu og þar af leiðandi minni hafíss, muni siglingaleiðin um sundin á milli landanna opnast meira en áð- ur og þá sé mikilvægt að hafa yf- irráð yfir henni. Hægt væri að leysa deiluna um Hans-eyju með því að leita til Alþjóðadómstólsins í Haag. En hvorug þjóðin hefur slíkt í hyggju. „Kostnaðurinn við að höfða slíkt mál er of mikill mið- að við verðmæti eyjunnar,“ segir Peter Taksøe-Jensen, skrifstofu- stjóri í danska utanríkisráðuneyt- inu. Kanada og Danmörk berjast um yfirráð yfir eyðieyju Vopnin eru fánar og þjóðarsnafsar SAMIÐ hefur verið um endurnýjun búnaðar í ratsjárstöðinni í Thule á Grænlandi. Danskir og grænlenskir embættismenn sögðu á fimmtudag að búist væri við því að stöðin yrði hluti af varnarkerfi Bandaríkja- manna gagnvart langdrægum eld- flaugum. Grænlendingar kröfðust þess að fá að koma að ratsjármálinu en Bandaríkjamenn höfðu farið fram á það við Dani að leyfi yrði veitt til að endurnýja búnaðinn í stöðinni vegna áforma um eldflaugavarnir. Munu Grænlendingar því undirrita samn- inginn ásamt fulltrúum danskra stjórnvalda og bandarískra. Fyrir liggur samþykki af hálfu græn- lensku heimastjórnarinnar og þings heimamanna. Samkomulag í þá veru náðist á miðvikudagskvöld. Nú þarf að bera samninginn undir danska þingið. Josef Motzfeldt, sem fer með ut- anríkismál í grænlensku heima- stjórninni, sagði að Grænlendingar litu svo á að um væri að ræða upp- færslu á ratsjársamningnum við Bandaríkjamenn frá árinu 1951. Framvegis yrðu Grænlendingar hluti af viðræðunefnd Dana og myndu þeir því taka fullan þátt í því samráði sem fram færi á vettvangi varnarmála. Fáni Grænlands myndi jafnan blakta við Thule-stöðina við hlið hins danska og banadaríska. Að auki yrði fastafulltrúi heimastjórn- arinnar að störfum í Thule við hlið dansks starfsbróður síns. Ekki er gert ráð fyrir að Banda- ríkjamenn greiði fyrir afnot af stöð- inni í Thule. Samkvæmt þeim áformum sem liggja fyrir í Bandaríkjunum er gert ráð fyrir að tíu skotpöllum gagneld- flauga verði komið upp við Fort Greeley í Alaska. Þetta eldflauga- kerfi verður m.a. tengt Thule-stöð- inni. Gert er ráð fyrir að ratsjárkerf- in fylgist með hugsanlegum eldflaugaskotum óvinveittra ríkja og safni saman og miðli upplýsingum um flug þeirra. Þannig á að verða unnt að reikna út flugleið eldflauga- óvinarins og granda þeim með gagn- flaugum. Varnarkerfi þetta á rætur sínar að rekja til geimvarnaráætlun- ar þeirrar sem Ronald Reagan Bandaríkjaforseti kynnti á fyrri hluta níunda áratugar liðinnar aldar. Samningar hafa tekist um Thule-stöðina Verður hluti af eldflaugavarnarkerfi Bandaríkjamanna Kaupmanahöfn. AP. RÚSSNESKA fjármálaeftirlitið greindi frá því í gær að Tsjúkotka- hérað, sem stjórnað er af milljarða- mæringnum Roman Abramovítsj, væri gjaldþrota. Var fullyrt að sann- anir hefðu fundist, sem vísuðu til fjármálamisferlis. Tsjúkotka-hér- að er í norðaustur- hluta Rússlands og skuldar nú um 320 milljónir Bandaríkjadala. Áætlaðar tekjur héraðsins nema 135 milljónum dala og að sögn Sergei Ryabúkhín hjá fjármálaeftirlitinu táknar það að hér- aðið sé í raun gjaldþrota. Ryabukhín segir að rannsókn fjár- málaeftirlitsins hafi leitt í ljós að þrátt fyrir bágborna fjárhagsstöðu hafi olíufyrirtækið Sibneft, að mestu í eigu Abramovítsj, fengið skattaafslátt sem næmi 472 milljónum Bandaríkjadala. Roman Abramovísj, sem er land- stjóri í Tsjúkotka og aðaleigandi enska knattspyrnufélagsins Chelsea, er annar ríkasti maður Rússlands. Auðæfi hans eru metin á 12,5 millj- arða Bandaríkjadala, skv. viðskipta- tímaritinu Forbes. Vændur um mis- ferli Moskvu. AP. Abramovítsj

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.