Morgunblaðið - 22.05.2004, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 22.05.2004, Qupperneq 18
ERLENT 18 LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ BANDARÍSKA dagblaðið The Washington Post birti í gær frá- sagnir þrettán fyrrverandi fanga af pyntingum í Abu Ghraib-fangelsinu í Írak og sex áður óbirtar myndir þar sem bandarískir hermenn sjást pynta og niðurlægja fanga. Fang- arnir fyrrverandi segja meðal ann- ars að hermennirnir hafi neytt þá til að borða mat úr klósettunum og að konur í bandarísku herlögreglunni hafi gælt við kynfæri þeirra. The Washington Post segir að eiðsvarnar yfirlýsingar fanganna séu á meðal gagnanna sem notuð verða fyrir herrétti í máli sjö banda- rískra hermanna sem hafa verið ákærðir fyrir illa meðferð á föngum í Abu Ghraib. Fangarnir voru yf- irheyrðir frá 16. til 21. janúar, skömmu eftir að Bandaríkjaher hóf fyrstu rannsókn sína á málinu. Beittir kynferðislegu ofbeldi The Washington Post kveðst hafa fengið hundruð óbirtra mynda af pyntingunum og birti sex þeirra í gær. Talsmaður bandaríska varnar- málaráðuneytisins segir að mynd- irnar sem blaðið birti eða lýsti virð- ist vera svipaðar og hundruð mynda sem bandarískum þingmönnum voru sýndar fyrr í mánuðinum. Á myndunum sjást meðal annars fangar hnipra sig saman fyrir fram- an hunda sem ógna þeim. Á öðrum myndum sjást fangar neyddir til að fróa sér og fangaverðir sjást berja þá og beita kynferðislegu ofbeldi. Ennfremur var föngum ógnað með byssum. Á einni myndanna, sem The Washington Post birti, sést einn fanganna, sem virðist vera útataður í saur, neyddur til að ganga í beinni línu með hettu fyrir höfðinu fyrir framan fangavörð með kylfu. Neyddir til að ganga eins og hundar Í 65 síðna vitnisburði fanganna fyrrverandi segjast þeir hafa verið neyddir til að borða mat úr klósett- unum og að konur í herlögreglunni hafi gælt við kynfæri þeirra. „Þau neyddu okkur til að ganga eins og hundar á höndunum og hnjánum,“ sagði einn fanganna. „Og við þurftum að gelta eins og hundar, ef við hlýddum ekki börðu þau okk- ur fast í andlitið og bringuna án mis- kunnar. Að því loknu fóru þau með okkur í klefana okkar, fjarlægðu dýnurnar og helltu vatni á gólfið, létu okkur síðan liggja á maganum og sofa á gólfinu með poka yfir höfð- inu. Þau tóku myndir af öllu saman.“ Einn fanganna kveðst hafa orðið vitni að því að túlkur Bandaríkja- hers hafi nauðgað 15–18 ára pilti sem hafi æpt af sársauka. Annar fangi segir að nokkrir hermenn hafi nauðgað einum fanganna með pípu- laga fosfórljósi. Einn túlka Banda- ríkjahers í Abu Ghraib-fangelsinu hefur verið ákærður fyrir að auð- mýkja fanga kynferðislega, að því er The Wall Street Journal skýrði frá í gær. Blaðið hafði eftir bandarískum embættismanni að túlkurinn hefði aðstoðað við að niðurlægja þrjá fanga sem hefðu verið „naktir, hand- járnaðir hver við annan og látnir vera í kynferðislegum stellingum“. Ekki kom fram hvort þetta er túlkurinn sem er sakaður um að hafa nauðgað unglingnum. Hundruð fanga í Abu Ghraib- fangelsinu voru látin laus í gær og nokkrir þeirra sögðust hafa sætt illri meðferð bandarískra fangavarða. Þeir voru fluttir í þrettán rútum eft- ir að ákveðið var að leysa 472 fanga úr haldi. AP Bandarískur hermaður heldur í hund sem ógnar fanga í Abu Ghraib-fangelsinu í Írak. Er þetta ein af sex myndum sem The Washington Post birti í gær og sýna hrottafengna og niðurlægjandi meðferð á íröskum föngum. Fleiri myndir af pynting- unum birtar Skýrt frá hrollvekjandi vitnisburði fyrrverandi fanga í Írak Washington, Abu Ghraib. AFP, The Washington Post. Algjör vinslit hafa nú orðiðmeð Ahmed Chalabi, leið-toga Íraska fram-kvæmdaráðsins, og Bandaríkjamönnum og kannski ekki vonum fyrr. Ljóst er, að hann hafði ríkisstjórn George W. Bush að ginn- ingarfífli í langan tíma og fullyrð- ingar hans um gereyðingarvopnin og væntanlega ánægju Íraka með innrásina voru bara skáldskapur. Þar fyrir utan er hann sakaður um mikla spillingu og nú stendur yfir rannsókn á því hvort hann hafi njósnað fyrir erlend ríki, til dæmis Íran. Bandarískir og íraskir hermenn réðust inn á skrifstofu Chalabis á fimmtudag og höfðu þaðan með sér ýmis gögn, tölvur og skjöl. Brást Chalabi við með því að lýsa yfir, að þar með væri öllum samskiptum hans við framkvæmdaráðið og her- námsyfirvöldin lokið. Chalabi sagði á blaðamannafundi í fyrradag, að hann væri tryggasti bandamaður Bandaríkjanna í Írak og teldi framkvæmdaráðið nauðsyn- legt að ráðast gegn sér, þá sýndi það vel í hvaða stöðu það væri gagnvart þjóðinni. Á fundi í gær fordæmdi ráðið aðförina að Chalabi og lýsti allri ábyrgð á hendur Bandaríkja- mönnum. Þeir segja hins vegar, að hún hafi verið að frumkvæði Íraka sjálfra. Uppspuni, spilling og njósnir Chalabi hefur verið í miklu afhaldi í Washington og hann og samtök hans, Íraska þjóðarráðið, hafa feng- ið um 25 milljónir ísl. kr. mán- aðarlega frá Bandaríkjastjórn, meira en 2,4 milljarða kr. alls. Fyrir fjórum dögum tilkynnti hins vegar bandaríska varnarmálaráðuneytið, að þessum greiðslum yrði hætt. Ástæðurnar fyrir því eru margar:  Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í viðtalsþætti við NBC-sjónvarpsstöðina um síð- ustu helgi, að upplýsingar um fær- anlegar efna- og lífefnaverksmiðjur í Írak hefðu verið vísvitandi rangar en þær voru komnar frá Chalabi þótt Powell nefndi það ekki sér- staklega. Þessar verksmiðjur voru ein aðalröksemd Powells fyrir inn- rás í Írak á frægum fundi í örygg- isráðinu.  Bandaríska leyniþjónustan grun- ar Chalabi um að hafa stundað njósnir fyrir erlend ríki, einkum Ír- an, en hann er sjíti og hefur mikil tengsl í Íran. Stendur nú yfir rann- sókn á því máli en sagt er, að upplýs- ingarnar, sem lekið var, hafi aðeins verið á vitorði mjög fárra manna í framkvæmdaráðinu. CBS- sjónvarpsstöðin fullyrti í gær, að Chalabi hefði sjálfur afhent Írön- unum upplýsingarnar.  Bandarískir embættismenn segja, að Chalabi hafi haft afskipti af rannsókn á misferli innan Samein- uðu þjóðanna varðandi leyfilega olíu- sölu Saddams Husseins og samtök hans eru sökuð um að hafa makað krókinn á enduruppbyggingu í Írak, einkanlega gjaldmiðilsskiptunum. Þeim var nefnilega falið að brenna gömlu Saddam-seðlana en mikið af þeim er ennþá í umferð, sumir „dá- lítið brunnir“. Þá eru Chalabi og samtök hans sökuð um að hafa látið greipar sópa um ríkiseignir og notið þess, að Chalabi er fjármálaráð- herra framkvæmdaráðsins. Ýmsar yfirlýsingar Chalabis að undanförnu hafa auk þessa farið fyr- ir brjóstið á Bandaríkjamönnum en hann hefur til dæmis sakað þá um að halda aftur af fullveldisréttindum væntanlegrar bráðabirgðastjórnar. Þá hefur hann barist hart gegn ný- legum ákvörðunum bandarískra herforingja um að slaka á banni við samstarfi við fyrrverandi foringja í her Saddams. Það var raunar fyrir áeggjan Chalabis og gegn ráðleggingum Joes Garners, fyrirrennara Pauls Bremers, landstjóra Bandaríkjanna í Írak, að Bremer ákvað að reka alla „baathista“, stuðningsmenn Sadd- ams, úr opinberu starfi. Var Chalabi fengið það verkefni. Sagði hann upp 60.000 starfsmönnum, þar af 30.000 kennurum, og allt í einu voru 400.000 hermenn atvinnulausir. Ekki er ólíklegt, að ein af afleið- ingum af vinslitunum við Chalabi verði sú, að gömlu „baathistarnir“ verði nú boðnir velkomnir. Hefur Bremer raunar gert það nú þegar að því tilskildu, að þeir hafi ekki brotið neitt sérstakt af sér. „Skiptir ekki máli“ Chalabi hefur verið að safna glóð- um elds að höfði sér í nokkurn tíma og sem dæmi má nefna, að yfirlýs- ingar hans í viðtali við blaðamann Daily Telegraph í Bagdad í febrúar féllu ekki í góðan jarðveg hjá ýmsum bandarískum embættismönnum. „Við erum misskildar hetjur,“ sagði hann. „Einræðisherrann Saddam er fallinn og Bandaríkjamenn eru í Bagdad. Það, sem sagt hefur verið hingað til, skiptir ekki lengur máli.“ Ljóst er, að Ahmed Chalabi, leiðtogi íraska framkvæmdaráðsins, hefur dregið Banda- ríkjastjórn á asnaeyrunum í langan tíma með röngum upplýsingum og er að auki sakaður um margvíslega spillingu. Þá er hann grunaður um að hafa njósnað fyrir erlend ríki. Uppáhaldið sem féll í ónáð AP Ahmed Chalabi með fjölskyldumynd, sem hann segir hafa verið skemmda er hermenn réðust inn á skrifstofu hans síðastliðinn fimmtudag. Bagdad, Washington. AP, AFP. MYNDIR af Saparmurat Niyazov, forseta Túrkmenist- ans, sem hangið hafa uppi víða í Ashgabat, höfuðborg landsins, voru skyndilega teknar niður í gær og stytta af forsetanum, sem staðið hef- ur framan við innanríkisráðu- neytið, hvarf einnig. Talsmaður borgarstjóra Ashgabats sagði í gær, að nú giltu þær reglur, að myndir af forsetanum skyldu ekki vera í opinberum byggingum, held- ur veggspjöld með pólitískum skilaboðum. Niyazov minntist þó ekkert á þetta í athöfn sem hann stýrði í gær þegar ný pappírsverksmiðja var tekin í notkun. Skrifstofa borgarstjórans sagði, að í stað myndanna af forsetanum kæmu myndir úr þjóðlífinu og tilvitnanir í ræð- ur og heimspekileg skrif for- setans en bækur Niyazovs eru skyldulesning í skólum og á vinnustöðum í Túrkmenistan. Stjórnarfarið hefur í sí- auknum mæli einkennst af einræði og persónudýrkun. Árið 1999 var Niyazov lýstur forseti fyrir lífstíð og faðir allra Túrkmena (Túrkmen- bashi) og myndir af honum voru hengdar upp á flestum byggingum í miðborg Ashgab- ats og í verslunum, skólum og opinberum byggingum um landið allt. Ein kenning um mynda- hvarfið var sú, að með opnun pappírsverksmiðjunnar hefði verið ákveðið að veggspjöld og myndir yrðu héðan í frá aðeins prentuð á pappír sem þar væri framleiddur. Emb- ættismenn hafa hins vegar ekki viljað gefa neinar skýr- ingar. Forseta- myndir fjarlægðar Asghabat. AFP.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.