Morgunblaðið - 22.05.2004, Side 53

Morgunblaðið - 22.05.2004, Side 53
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 53 ÍSLENSKA landsliðið í handknatt- leik vann lið Túnis 30:28 í fyrsta leik sínum á fjögurra landa móti sem fram fer í Belgíu. Íslenska liði náði undirtökunum strax í byrjun og var þremur til fjórum mörkum yfir allan leikinn. „Við erum mjög ánægðir með leikinn. Túnismenn hafa verið að leggja Egypta og það sýnir að þeir eru með sterkt lið,“ sagði Einar Þorvarðarson aðstoð- arlandsliðsþjálfari í samtali við Morgunblaðið í gær. „Við lékum flata vörn allan leik- inn og hún gekk mjög vel. Túnis- menn prófuðu ýmislegt, flata vörn, 5-1 vörn og 3-3 líka en okkur tókst að leysa þetta allt saman með ágæt- um,“ sagði Einar. Staðan í leikhléi var 16:12 fyrir Ísland og sá munur hélst meira og minna allt til loka, það var aðeins á endasprettinum sem Túnis tókst að minnka muninn, en sigurinn var ekki í hættu. Ásgeir Örn Hall- grímsson fór mikinn í sókninni og gerði tíu mörk. Að sögn Einars átti Kristján Andrésson góðan leik, var sérlega öflugur í vörninni. Björgvin og Birkir Ívar skiptu með sér leikn- um í markinu, léku sinn hálfleikinn hvor, og vörðu 7–8 skot hvor um sig að sögn Einars. Danir og Serbar áttust við í hin- um leiknum og höfðu Serbar betur, 28:26. Danir náðu fjögurra marka forystu í síðari hálfleik en Serbar náðu að snúa leiknum sér í hag. Túnismenn lagðir með tveggja marka mun FÓLK  MAGNÚS Ólafsson, knattspyrnu- maður úr Haukum, er genginn til liðs við 1. deildarlið Njarðvíkur. Magnús varð Íslandsmeistari með KR árið 2002 og lék þá átta leiki með Vesturbæjarliðinu í úrvals- deildinni. Árið áður skoraði hann 24 mörk fyrir Hauka og varð marka- kóngur 2. deildar.  SPÆNSKA knattspyrnustórveld- ið Real Madrid hefur fest kaup á argentínska varnarmanninum Walt- er Samuel frá Roma á Ítalíu. Talið er að Spánverjarnir greiði um 1.800 milljónir króna fyrir Samuel, sem hefur skrifað undir fimm ára samn- ing við þá. Hann hefur verið í röðum Roma frá árinu 2000.  HEIMSLIÐ kvenna í knattspyrnu sigraði heimsmeistaralið Þýska- lands, 3:2, í sýningarleik sem háður var á Stade de France í París í fyrradag. Það voru sænsku stúlk- urnar Malin Moström og Viktoria Svensson og Mercy Akide frá Níg- eríu sem skoruðu fyrir heimsliðið en Birgit Prinz og Kerstin Garefrekes gerðu mörk Þýskalands. Áhorfend- ur á leiknum voru 41 þúsund en hann fór fram á undan karlaleik Frakklands og Brasilíu, afmælisleik FIFA, sem endaði 0:0.  STJÓRN Liverpool virðist ekki hafa áhuga á að halda Gerard Houll- ier í starfi knattspyrnustjóra félags- ins. Enskir fjölmiðlar túlka við- bragðaleysi stjórnarinnar við síendurteknum fregnum um brott- hvarf Houlliers sem staðfestingu á því að þeir leiti að arftaka hans. Al- an Curbishley, sem hefur stýrt Charlton með frábærum árangri í níu ár, er nú talinn efstur á óskalista stjórnarmanna Liverpool en einnig eru nefndir til sögunnar þeir Jose Mourinho hjá Porto, Martin O’Neill hjá Celtic og Rafael Benitez hjá Valencia.  ARGENTÍNSKI varnarleikmað- urinn Gabriel Heinze, sem leikur með París St. Germain, er sagður á leiðinni til Manchester United, sem er tilbúið að greiða um 800 millj. ísl. kr. fyrir hann.  ÞÁ er líklegt að Alan Smith, mið- herji Leeds, gangi til liðs við Man- chester United á næstu dögum. Everton, Newcastle og Middles- brough vilja einnig fá þennan 24 ára leikmann til sín, en Smith er spennt- astur fyrir United.  SÆNSKI landsliðsmaðurinn Hen- rik Larsson vonast til að hann kveðji Celtic með sigurleik. „Það er draumur minn að leggja Dunferm- line að velli og kveðja með bikar- meistaratitli,“ sagði Larson, sem hefur skorað 240 mörk í 314 leikjum með Celtic á sjö keppnistímabilum með liðinu. Dunfermline hefur að- eins tvisvar orðið bikarmeistari í Skotlandi – síðast 1968 er liðið lagði Hearts að velli og 1961, þegar liðið lagði Celtic. Þátttaka Millwall í þessum úrslita-leik er mikið ævintýri, hvort sem er fyrir leikmennina eða hina dyggu stuðningsmenn þess sem sjaldan eru fleiri en 10 þúsund á leik. Liðið hafn- aði í 10. sæti 1. deildarinnar í vetur, á þriðja tímabili sínu þar eftir að liðið vann 2. deildina vorið 2001. Frá því þetta litla Lundúnafélag fékk inn- göngu í deildakeppnina árið 1920 hef- ur það leikið í neðri deildunum þrem- ur, ef undanskilin eru tvö tímabil, frá 1988 til 1990, þegar það komst óvænt í hóp þeirra bestu og hélt sér uppi eitt ár en féll eftir það.  Millwall hefur aðeins þrisvar kom- ist í undanúrslit keppninnar, síðast árið 1937, og var þá fyrsta liðið úr þriðju efstu deild sem náði svo langt.  Ekkert félag hefur aftur á móti unnið enska bikarinn jafn oft í 132 ára sögu hans og Manchester United, sem hampaði honum í 10. skipti vorið 1999. United jafnar í dag met Arsenal í fjölda úrslitaleikja, leikur til úrslita í 16. skipti.  Roy Keane, fyrirliði Manchester United, leikur í dag sinn sjötta úr- slitaleik í keppninni en hann hefur náð sér af meiðslum í læri og verður örugglega með. Ryan Giggs spilar sinn fimmta úrslitaleik.  Dennis Wise, spilandi knatt- spyrnustjóri Millwall, er eini leikmað- ur 1. deildar liðsins sem hefur leikið úrslitaleik í bikarnum. Hann tók við bikarnum fyrir hönd Chelsea sem fyr- irliði vorið 2000, og varð líka bikar- meistari með félaginu árið 1997 og með Wimbledon árið 1988. Wise get- ur spilað sinn fimmta úrslitaleik í dag og gæti orðið fyrsti leikmaðurinn í sögunni sem verður bikarmeistari með þremur félögum.  Manchester United og Millwall hafa aðeins einu sinni áður mæst í bikarkeppninni og það eru liðin 52 ár síðan. Manchester United vann þá, 1:0, en spilað var á The Den, heima- velli Millwall í hafnarhverfi London.  Millwall hefur alveg losnað við að mæta úrvalsdeildarliðum í keppninni til þessa og er aðeins fimmta liðið í sögu bikarsins sem kemst í úrslita- leikinn án þess að spila við lið úr efstu deild. Síðast gerðist það vorið 1953 og þá átti Bolton í hlut, rétt eins og 1926, en West Ham (1923) og Blackpool (1948) léku sama leik.  Árangur Millwall hefur þegar tryggt félaginu sæti í UEFA-bikarn- um, sama hvernig fer í dag. Man- chester United fer í forkeppni Meist- aradeildar Evrópu svo sæti bikarmeistaranna í UEFA-bikarnum er í höndum Millwall, sem aldrei hef- ur áður komist í Evrópukeppni.  Þetta er 123. úrslitaleikurinn í elsta knattspyrnumóti heims, sem hóf göngu sína árið 1872 en lá niðri á með- an heimsstyrjaldirnar geisuðu á síð- ustu öld. Wanderers sigraði Royal Engineers, 1:0, í fyrsta úrslitaleikn- um á Kennington Oval leikvanginum vorið 1872. Af þeim félögum sem enn eru við lýði varð Blackburn fyrst til að verða bikarmeistari, árið 1884.  Jeff Winter dæmir leikinn í Car- diff í dag og er þetta kveðjuleikur hans. Winter er orðinn 48 ára og þarf því að draga sig í hlé. Reuters Dennis Wise, knattspyrnustjóri og leikmaður Millwall, fagnar hér sigrinum á móti Sunderland ásamt markverðinum Andy Marshall – í undanúrslitaleik á Old Trafford í Manchester. Millwall vonast eftir kraftaverki Úrslitaleikur Manchester United og Millwall í enska bikarnum í Cardiff í dag ÞAÐ er heldur betur ólíku saman að jafna þegar litið er á liðin tvö sem mætast í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu á Millenium-leikvanginum í Cardiff í dag. Manchester United-menn, fimmtánfaldir enskir meistarar, tífaldir bikarmeistarar og tvívegis Evrópumeistarar, taka á móti Millwall sem aldrei hefur leikið bik- arúrslitaleik og aðeins spilað tvö ár í efstu deild í 119 ára sögu sinni. Ekki þarf að fjölyrða um hvort liðið þykir sigurstranglegra en flestir telja að hreint kraftaverk þurfi að eiga sér stað til að Millwall skáki stjörnum prýddu liði Manchester United og hampi bikarnum eftirsótta. Reuters Roy Keane, fyrirliði Manchester United. ÓLÖF María Jónsdóttir, kylf- ingur úr Keili, komst auð- veldlega áfram af fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir Opna bandaríska golfmót kvenna á miðvikudaginn. Ólöf María lék völlinn í Houston í Texas á 75 höggum og lenti í 4.–7. sæti en 23 af 64 komust áfram á næsta stig, og það síðasta, en það verður 13. júní í Bloomingdale Michigan. Þar ætlar hún sér að tryggja sér rétt til að spila á Opna bandaríska mótinu. Ólöf María hitti ellefu flat- ir, úr upphafshöggum sínum hitti hún tíu brautir og notaði 33 pútt. Völlurinn sem leikinn var að þessu sinni var langur og erfiður og fékk Ólöf María tvisvar skramba eftir að hafa slegið í vatn. Ólöf María á Opna bandaríska

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.