Morgunblaðið - 22.05.2004, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 22.05.2004, Qupperneq 22
AKUREYRI 22 LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ  Ársalir- fasteignamiðlun  Ársalir- fasteignamiðlun  Nýttu þér áratuga reynslu okkar og traust í fasteignaviðskiptum Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali. Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5 105 Rvk 533 4200 FORNÁM - Alhliða undirbúningur fyrir nám í hönnun og listum á æðra skólastigi Myndlistaskólinn á Akureyri ehf. býður upp á hnitmiðað 39 eininga nám í sjónlistum veturinn 2004-2005. Námið er skipulagt með hliðsjón af aðalnámskrá framhaldsskóla og í því felst listrænn og tæknilegur undirbúningur fyrir framhaldsnám á sviði myndlistar og hönnunar. Umsókn um skólavist þarf að berast skólanum fyrir 24. maí nk. ásamt umbeðnum gögnum og tilskyldum fjölda eigin myndverka. Sérstök inntökunefnd fjallar um umsóknir og ákvarðar um inntöku. Við inntöku er tekið tillit til fyrra náms og starfsreynslu. Auk þess eru innsend verk umsækjenda metin af inntökunefnd skólans. Miðað er við að umsækjandi hafi lokið a.m.k. 104 einingum í framhaldsskóla eða hliðstæðu námi sem inntökunefnd metur gilt. Inntökunefnd áskilur sér rétt til að boða umsækjendur til viðtals dagana 26. maí til 31. maí, telji hún ástæðu til. Fagurlistadeild-myndlist. Nám í fagurlistadeild er fjölþætt, þriggja ára sérhæft nám sem veitir starfsmenntun í frjálsri myndlist. Nemendur fá nauðsynlega þjálfun og tilsögn sem gerir þá hæfari til að takast á við ólík viðfangsefni og fjölbreyttar aðferðir í listsköpun sinni. Listhönnunardeild-grafísk hönnun. Í grafískri hönnun er lögð áhersla á tækniþekkingu og frumlega framsetningu hugmynda. Á þremur árum öðlast nemendur yfirgripsmikla þekkingu og þjálfun í faginu sem gerir þá hæfa til að fást við krefjandi verkefni á sviði hönnunar fyrir prentmiðla eða margmiðlun. Nemendur útskrifast að loknu þriggja ára námi í sérnámsdeildum með því að vinna lokaverkefni innan sérgreinarinnar og skrifa rannsóknarritgerð. Með prófskírteini fylgir skrá um námsárangur nemenda allan skólaferilinn ásamt umsögn prófdómara um lokaverkefni. Námseiningar: 90 Myndlistaskólinn á Akureyri - Kaupvangsstræti 16 - Pósthólf 39 - 602 Akureyri http://www.myndak.is/ - info@myndak.is SÉRNÁMSDEILDIR Umsóknarfrestur um skólavist er til 24. maí 2004. Allar nánari upplýsingar veittar í síma 462 4958 Myndlistaskólinn á Akureyri auglýsir inntöku nýrra nemenda fyrir skólaárið 2004-2005 Lokatónleikar| Útskriftar- tónleikar Davíðs Þórs Helgasonar verða í sal Tónlistarskólans á Ak- ureyri að Hvannavöllum 14 á morg- un, sunnudaginn 23. maí kl. 16. Á efnisskrá tónleikanna eru m.a. verk eftir H. Eccels, D. Ellis, og K.von Dittersdorf. Kennari Davíðs síð- ustu árin hefur verið Gunnlaugur Torfi Stefánsson. Meðleikari á tón- leikunum er Helena Guðlaug Bjarnadóttir píanóleikari. Aðgang- ur að tónleikunum er ókeypis og all- ir velkomnir. KRISTJÁN Þór Júlíusson, bæjar- stjóri á Akureyri, sagði að hug- myndir um snjóframleiðslu í Hlíð- arfjalli hefðu ekki verið ræddar innan bæjarkerfisins. „Mér finnst þetta þannig mál að það þurfi mjög ítarlega skoðun og að gera þurfi vandlega úttekt áður en teknar verða einhverjar ákvarðanir. Á þessu stigi er ég því ekki tilbúinn að játa því eða neita að í þetta skuli ráðist,“ sagði bæjarstjóri. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu sl. fimmtudag, telur Guð- mundur Karl Jónsson, forstöðu- maður skíðasvæðisins í Hlíðar- fjalli, það grundvallaratriði til framþróunar fyrir skíðasvæðið að þar hefjist snjóframleiðsla sem allra fyrst. Með snjóframleiðslu væru yfirgnæfandi líkur á að hægt væri að opna skíðasvæðið á svip- uðum tíma ár hvert og það skipti miklu máli að geta opnað fyrir jól. Guðmundur Karl hefur gert skýrslu um snjóframleiðslu í Hlíð- arfjalli – möguleika og tækifæri en skýrslan var unnin fyrir stjórn VMÍ. Kristján Þór sagði að skýrslan gæfi grófa mynd af málinu en að allt of mörgum spurningum væri ósvarað. Hann sagði tímabært að ræða málið innan bæjarins og jafnframt að bera saman aðra kosti. Akureyrarbær rekur öll mannvirkin í Hlíðarfjalli en Vetr- aríþróttamiðstöð Íslands tekur þátt í stofnkostnaði á móti bænum, að sögn Kristjáns Þórs. Bæjarstjóri um snjófram- leiðslu í Hlíðarfjalli Of mörgum spurn- ingum ósvarað Tónleikar| Signý Sæmundsdóttir söngkona og Þóra Fríða Sæmunds- dóttir halda tónleika í Dalvík- urkirkju mánudaginn 24. maí kl. 20.30. Efnisskráin er fjölbreytt og ætla þær að flytja lög eftir danska tónskáldið Peter Heise, finnsku tón- skáldin Merikanto og Y. Kilpinenn ásamt íslenskum söngperlum fyrir hlé. Eftir hlé flytja þær sig til Evr- ópu og flytja ljóðasöngva eftir J. Brahms, frönsku listakonuna Paul- ine Viardot og ljóðasöngva eftir Franz Liszt. Rannsóknardagur| Rannsókn- ardagur hjúkrunar á Akureyri verð- ur haldinn í dag laugardag, frá kl. 9 til 16. Fjöldi rannsókna verður kynntur, bæði nemenda og kennara en þar má nefna kynningu á rann- sókn á vanrækslu og tilfinningalegu og andlegu ofbeldi gegn börnum, kynningar varðandi reynslu foreldra af því að vera viðstaddir svæfingu barna sinna, að ná aftur bata eftir skurðaðgerð eftir skamma dvöl á sjúkrastofnun, sem er reynsla margra í dag og reynsla hjúkr- unarfræðinga af því að annast sjúk- linga með verki. Þá eru rannsóknir sem varða deildarstjóra og starfs- anda á deildum, rannsóknir sem varða hjúkrunarfræðinga í ýmsum aðstæðum t.d. erlenda hjúkr- unarfræðinga, hjúkrunarfræðinga að starfi í stríði og hjúkrunarfræðinga á landsbyggðinni. Þá eru mjög athygl- isverðar rannsóknir kynntar sem varða mæður/foreldra geðfatlaðra barna, t.d. rannsókn á reynslu mæðra sem eiga börn með einhverfu og reynslu foreldra af landsbyggð- inni sem eiga barn/ungling með geð- ræn vandamál. Þá eru kynntar rann- sóknir um heimahjúkrun og skyndihjálp. Einnig eru rannsóknir kynntar um þróun á heilsu og líðan kvenna fyrir og eftir offituaðgerð, um áfallastreitu meðal sjúkraflutn- inga- og slökkviliðsmanna og viðhorf einstaklinga til hjúkrunar. Þá er at- hyglisverð kynning á rannsókn á draugaverkjum eftir útlimamissi. Rannsóknardagurinn er öllum opinn. NORÐURORKA hefur nú hafið könnun á því að flytja heitt vatn frá Hjalteyri og yfir fjörðinn til Greni- víkur. Verkfræðiskrifstofa Norður- lands gerði hagkvæmniathugun á hitaveitu í Grýtubakkahreppi og í skýrslu sem var til umfjöllunar á fundi sveitarstjórnar í vikunni kem- ur fram að sá kostur að koma upp varmadælu við holu sí landi Grýtu- bakka telst vart fýsilegur. „Það voru uppi hugmyndir um að setja varmadælu við holuna og hita vatnið þaðan upp og leiða það svo hingað út eftir, en nú er komið í ljós að það þykir vart gerlegt,“ sagði Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri í Grýtubakkahreppi. Hún sagði að því hefði nú verið ákveðið að skoða hvort leiða mætti heita vatnið yfir fjörðinn, sjóleiðina frá Hjalteyri. Hús í hreppnum eru hituð upp með rafmagni, „en við höfum mikinn áhuga fyrir að fá hingað hitaveitu,“ sagði Guðný. Heitt vatn yfir fjörðinn? UM þessar mundir eru eru 100 ár liðin síðan Hjálpræðisherinn hóf formlegt starf á Akur- eyri og hefur starfsemin haldist óslitin þennan tíma. Hjálpræðisherinn rak um tíma gesta- og sjómannaheimili í Laxa- mýri við Strandgötu og hefur í áratugi staðið fyrir peningasöfnun fyr- ir jólin til handa þeim sem minna mega sín. Megin áhersla Hjálp- ræðishersins hefur þó alla tíð verið lögð á boð- un fagnaðarerindisins um Jesú Krist, bæði fyrir börn og full- orðna. Öflugt barna- og æskulýðsstarf hefur einkennt starf Hjálpræðishers- ins á Akureyri undanfarna áratugi og stendur sú grein starfsins í miklum blóma um þessar mundir, segir í frétt frá Hjálpræðishernum á Akureyri. Tímamótanna verður minnst á af- mælishátíð í dag laugardaginn 22. maí í sal Hjálpræðishersins að Hvannavöllum 10. Þar kemur fram gosp- elkór undir stjórn Óskar Einarssonar, en kórinn er skipaður ungu fólki sem sækir eða hefur sótt unglingafundi Hjálp- ræðishersins. Þá kemur einnig fram kór skipað- ur börnum sem sækja fundi Hersins. Sérstakir gestir af- mælishátíðarinnar verða Anne Marie og Harold Reinholdtsen, yfirforingjar Hjálpræð- ishersins á Íslandi og fyrrum flokksstjórar á Akureyri og Miriam Fredriksen, aðalritari Hjálp- ræðishersins í Noregi, Íslandi og Fær- eyjum. Afmælishátíðin hefst kl. 14. og eru allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Þess má einnig geta að gospel- kórinn syngur nokkur lög á Glerár- torgi klukkan 13 í dag. Hjálpræðisherinn á Akureyri 100 ára Miriam talar á samkomu Miriam Fredriksen HÚSFYLLIR var í Íþróttahöllinni á Akureyri sl. fimmtudag þegar Fim- leikaráð Akureyrar lauk vetr- arstarfinu með vel heppnaðri fim- leikasýningu. Mikill fjöldi barna á ýmsum aldri sýndi listir sínar á gólfinu í Íþróttahöllinni og for- eldrar, systkini og aðrir aðstand- endur þeirra fylltu áhorfendabekk- ina og skemmtu sér vel. Eftir að allir hópar höfðu flutt sitt atriði komu allir þátttakendur út á gólfið og var þeim vel fagnað fyrir skemmtilega sýningu. Morgunblaðið/Kristján Vel fagnað: Fimleikakrökkunum og þjálfurum þeirra var vel fagnað að lokinni vel heppnaðri sýningu. Vel heppnuð fimleikasýning Tónleikar| Karlakór Dalvíkur lýk- ur vetrarstarfi sínu í dag laug- ardag, með tónleikum í Dalvík- urkirkju og hefjast þeir kl. 16. Stjórnandi kórsins er Guðmundur Óli Gunnarsson og verða flutt m.a. fjögur lög eftir hann á þessum tón- leikum, þar af frumflutningur á einu þeirra. Hin þrjú hafa verið flutt af kórnum á leiksýningum Leikfélags Dalvíkur á Svarfdæla- sögu. Einsöngvari á tónleikunum verður Óskar Pétursson og píanó- leikari Daníel Þorsteinsson.         
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.