Morgunblaðið - 22.05.2004, Page 36

Morgunblaðið - 22.05.2004, Page 36
UMRÆÐAN 36 LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ V inur minn er mjög undarlegur maður. Hann er nefnilega ekki hvítur, sem þýðir að hann breyt- ir ekki um lit reglulega eins og við sem köllum okkur hvít. Hann býr í fjarlægu landi þar sem fólk kann enga mannasiði. Hann sit- ur á gólfinu þegar hann borðar og notar jafnvel ekki hnífapör. Hann er leiðsögumaður í frum- skógi. Hann vinnur ekki 14 tíma á dag þótt hann sé fullhraustur og hann telur ekki einu sinni tímana sem hann vinnur. Hann gengur í þau störf sem þarf að ganga í. Óvæntir hlutir raska aldrei ró hans. Hann pirrar sig t.d. ekki á því að þurfa að labba heim og ná í eitthvað sem hann gleymdi. Hann stundar ekki auðsöfnun, já og gefur eða lánar jafnvel pen- ingana sína. Ef hann á eitthvað mat- arkyns býður hann með sér. Ef hann er veikur rýkur hann ekki til læknis og heimtar pillur heldur fer til móður sinnar sem er sérfræð- ingur í náttúrulækningum. Hann er trúaður og heldur því jafnvel fram að það sé gott að biðja fimm sinnum á dag. Ég ber hag þessa vinar míns fyrir brjósti og þar sem ég til- heyri hinum þróaða hvíta kyn- stofni ákvað ég að veita honum ráðleggingar. Svo að ég skrifaði honum bréf. Elsku vinur minn, Þar sem ég veit að þú þráir eðlilegt líf hef ég ákveðið að að- stoða þig eftir fremsta megni. Ég er nú einu sinni með kenn- arapróf og finnst gaman að miðla þekkingu minni. Það fyrsta sem þú ættir að læra eru almennir borðsiðir. Í fyrsta lagi þarftu að borða við borð. Svo ættirðu að læra að borða með hnífi og gaffli. Það er ekki sér- lega flókið og án efa miklu snyrtilegra. Mér þykir einnig vert að benda þér á að hætta að smjatta og sötra því það er jú alvitað að það er hin mesta ókurteisi. Kláraðu alltaf af disknum þínum og ef þú getur ekki klárað hugsaðu þá um öll fátæku börnin í Afríku sem fá ekki neitt að borða. Þeim líður án efa betur ef þú borðar þig pakksaddan. Af því að ég er góður vinur þá tala ég við þig af hreinskilni og ég geri ráð fyrir að þú kunnir að meta það. Til þess að halda heilsu er mikilvægt að þú skiljir að þessar grasalækningar eru hreinasta bull. Ég get sent þér pillur hvenær sem er. Þær eru þróaðar af miklum sérfræð- ingum og apótekarar þurfa há- skólanám til þess að skilja þetta allt saman. Ekki rekur mig minni til að móðir þín sé með slíkt próf. Ég sendi með bréfinu pillur við eftirfarandi kvillum: Hausverk, beinverk, svefnleysi, depurð, risvanda og ógleði. Varðandi fjármálin þín þá verður þú að hætta að lána hverjum sem er peninga. Þetta fólk er að misnota þig. Þú ættir heldur að safna og fjárfesta. Þegar þú ert búinn að eignast nóg af peningum geturðu farið að slappa af og njóta lífsins. Elsku vinur, Allah er ekki til. Það er vísindalega sannað að heimurinn varð til með Mikla- hvelli og allt hitt er tilviljun. Eina sem múslimar gera er að skipuleggja hryðjuverk í nafni Allah. Þetta er snarruglað lið upp til hópa og allar rannsóknir sýna fram á að fólk treystir múslimum síður. Hugaðu ávallt um hvað er best fyrir viðskiptin og mundu að það skiptir öllu máli að hafa rétt fyrir sér. Ef þú ætlar að ná langt verðurðu að hætta að eyða öllum þessum tíma í bænir og læra að skipu- leggja þig betur. Teldu tímana sem þú vinnur og farðu fram á launahækkun vegna ábyrgðar og aukinnar viðveru. Í hvert skipti sem þú talar við viðskiptavin skaltu skrifa það hjá þér. Tími er peningar og þú þarft peninga til að verða einn af þeim stóru. Hugsaðu alltaf fram í tímann. Um morgundaginn, hinn daginn og daginn þar á eftir. Gerðu kostnaðaráætlun og rekstr- aráætlun og helst eins margar áætlanir og þú getur. Þú verður líka að hætta að bjóða fólki í mat. Það er ekki fjárhagslega hagkvæmt. Sérstaklega þar sem þetta fólk býður þér aldrei. Þegar þú ferð með hópa fólks í gegnum frumskóginn verðurðu að passa þig. Ef eitthvað kemur upp á gæti fólkið kært þig. Um daginn fórum við í kvöldsiglingu að skoða dýrin í skóginum. Það er sérlega góð viðskipta- hugmynd en þú verður að út- færa hana betur. Þið siglduð bara í myrkrinu með eitthvert vasaljós. Það er hreint út sagt vítavert gáleysi. Þú ættir að nota dýptarmæli, GPS- staðsetningartæki og últra- ljóskastara. Aðeins þannig get- urðu komist öruggur á leið- arenda. Það þýðir ekkert að stóla alltaf á skynfærin enda eru þau ekki þróuð af sérfræðingum. Þótt þú haldir að trén og fjöllin segi þér hvar þú ert þá geta þau haft rangt fyrir sér. Ég held, kæri vinur, að það sé nokkurra breytinga þörf í fjöl- skyldulífinu hjá þér. Það er und- arlegt að fjölskyldan skuli alltaf sofa í flatsæng á gólfinu. Börnin þurfa að fá sérherbergi. Það er svo mikilvægt að virða rými ein- staklingsins. Nú og ef þér fer að ganga illa með samskipti við börnin og makann og fleira er um að gera að fara til sálfræð- ings eða í einhver mannbætandi samtök. Þar geturðu lært að lifa einn dag í einu og bætt sam- skipti þín við fjölskylduna. Þá geturðu lagt áherslu á fjöl- skyldufundi og sameiginlegar samverustundir. Reyndu samt að hafa þetta allt saman eins skilvirkt og mögulegt er. Ég gæti haldið lengi áfram en ég ætla að láta staðar numið hér. Ég hlakka til að heyra hvernig þetta gengur hjá þér. Bestu kveðjur, Halla. Vinur minn hefur enn ekki svarað mér. Ætli hann geri sér enga grein fyrir hvað hann gæti átt miklu betra líf? Menningar- kennsla Ég ber hag þessa vinar míns fyrir brjósti og þar sem ég tilheyri hinum þróaða hvíta kynstofni ákvað ég að veita hon- um ráðleggingar. VIÐHORF Eftir Höllu Gunnarsdóttur hallag@mbl.is UNDANFARNAR vikur hefur margt einkennilegt komið fram í umræðum um fjölmiðlafrumvarpið. Þannig sagði Davíð Oddsson for- sætisráðherra ekki alls fyrir löngu að sem betur fer væru flokksmálgögnin dauð. Sem betur fer – sagði hann. Þetta eru í hæsta máta ein- kennileg ummæli af forsætisráðherra í lýð- ræðisríki eða hvaða sérstaka gagn felst í því að ekki skuli gefin út pólitísk málgögn lengur? Miklu skilj- anlegra hefði verið, í ljósi þess að forsæt- iráðherrann segist berjast fyrir fjöl- breytni á fjölmiðlamarkaði, að hann hefði sagt: Því miður eru engin pólitísk málgögn lengur í landinu. Pólitísk málgögn, í bland við aðra útgáfu, þykja yfirleitt vitn- isburður um blómstrandi lýðræði og séu þau bönnuð þykir það sem von er hinn versti verknaður, og valdhafar sem það gera úthrópaðir – þeir þoli ekki gagnrýni og aðhald pólitískra fjölmiðla. Margir virðast trúa því eins og nýju neti að „ópóli- tískir“ fjölmiðlar séu nú í landinu og á þeim sé stunduð og svokölluð „óháð og fagleg“ blaðamennska, sem sé nú aldeilis eitthvað annað en bullið í pólitísku miðlunum. Og satt er það að tengsl fjölmiðlanna við flokka eru ekki jafn augljós og áður, en eru þeir óháðari og svo miklu vandaðri að það ætti að vera sérstakt fagnaðarefni fyrir ráð- herra sem vill fjölbreytni í fjöl- miðlun, að pólitískir fjölmiðlar skuli vera útdauðir? Dauði flokksblaða Flokkstengdu blöðin dóu eitt af öðru vegna hallarekstrar, en ára- tugum saman hafði tekist að halda þeim úti að langmestu leyti með eigin aflafé, áfskriftum og auglýs- ingum, en því til viðbótar fengu blöðin yfirleitt mikinn stuðning frá aðstandendum sínum. Um tíma fengu þau auk þess nokkurn styrk frá ríkinu. Nú segja auðvitað þeir sem trúa blint á markaðinn að blöð sem lifa ekki af samkeppnina eigi bara að deyja sínum drottni, hinir hæfu komist af, og blöð sem eng- inn viji kaupi eiga engan rétt á að lifa – og alls ekki með stuðningi ríkisins. Ég veit að sönnu ekki hve útbreidd blöðin voru, en ég býst við að hið sama eigi við um þau öll að hlutfall þeirra sem keyptu þau hafi lækkað jafnt og þétt þótt út- breiðsla þeirra í eintökum héldist nokkurn veginn óbreytt. Þannig var Þjóðviljinn alltaf seldur í innan við 10.000 eintökum þótt þjóðinni fjölgaði. Ég hef ekki haldbærar töl- ur um hve margir hafa lesið hann að staðaldri, en væntanlega er ekki fráleitt að reikna með að tveir lesi hvert ein- tak. Gróflega reiknað gæti þetta verið u.þ.b. 10% af Íslendingum á „dag- blaðsaldri“ um þessar mundir, sem er auðvit- að harla lítið sam- anborið við Frétta- blaðið og Morgun- blaðið. Alþýðublaðið hafði, a.mk. síðustu ár- in, talsvert minni út- breiðslu, en eftir því sem ég kemst næst hefur Tíminn líklega verið í svip- aðri stöðu og Þjóðviljinn. Síðustu ár Þjóðviljans lækkuðu auglýsingatekjurnar jafnt og þétt, stundum meira að segja í allstórum stökkum og fjölgun áskrifenda síð- ustu misserin dugði ekki til að bæta það mikla tekjutap upp. En hvers vegna lækkuðu auglýsinga- tekjurnar? Fyrir því eru í grundvall- aratriðum tvær ástæður. Í fyrsta lagi er miðill með svo litla út- breiðslu ekki jafn vænlegur fyrir auglýsendur og stærri miðlarnir. Á sama tíma fjölgaði miðlum með fleiri útvarps- og sjónvarpsstöðvum og tímaritamarkaður óx. Í öðru lagi féllu auglýsingatekj- urnar af pólitískum ástæðum. Mörg fyrirtæki auglýstu alls ekki í blaðinu af þeim sökum og sum hættu að auglýsa vegna umfjöll- unar blaðsins um tiltekin mál. Sagt með öðrum: Auglýsendur réðu ör- lögum blaðsins. Nú geta menn auðvitað sagt að við höfum gefið út svo vont blað að hvorki áskrifendur né auglýsendur hafi viljað það. Enginn getur verið dómari í eigin sök, en ég held að Þjóðviljinn hafi oftast verið ágæt- lega læsilegt blað, oft með fjöl- breyttu efni, en það var enginn vafi á í hvaða liði hann var. Svo geta menn spurt af hverju það ætti að vera sérstakt fagnaðarefni fyrir forsætisráðherrann að slíkir fjöl- miðlar skuli vera dauðir. Tortryggni Enginn þarf að vera hissa á því að markmið Davíðs Oddsonar með fjölmiðlafrumvarpinu séu tor- tryggð. Úr því að hann er sér- staklega lukkulegur með að vera laus við pólitísku blöðin ætti hann þá ekki að vera beinlínis hamingju- samur ef hann losnaði við „Baugs- miðlana“? Það er reyndar mjög trúlegt, eins og orðakiptin hafa verið, en breytir hins vegar engu um nauðsyn þess að settar séu reglur sem takmarki samþjöppun á fjölmiðlamarkaði. Ef ráðherrann flytur frumvarpið af geðvonskunni einni saman verður bara að hafa það, málið er jafn brýnt og nauð- synlegt hver sem flytur það og í hvers konar skapi viðkomandi er. Stuðningsmenn og andstæðingar frumvarpsins virðast sammála um eitt: Verði frumvarpið að lögum mun það takmarka samþjöppun á fjölmiðlamarkaði en hörðustu and- stæðingarnir bæta við að þau muni drepa tiltekna fjölmiðla – þá fjöl- miðla sem forsætisráðherra er illa við. Ekki verður séð að nógu hald- bær rök hafi verið færð fyrir því að fjölmiðlar í eigu Baugs muni ekki lifa einhver eigendaskipti af, þótt núverandi eigendur og stjórn- arandstaðan haldi þessu fram. Á hinn bóginn er fullkomlega eðlilegt að eigendurnir taki til allra varna sem þeim eru tiltækar, meðal ann- ars þessara, en ekki er víst að allt sem þeir segja (fremur en aðrir) standist nákvæma skoðun. Séu Norðurljós í góðum rekstri munu finnast kaupendur, markaðurinn mun sjá um það. Því er líka haldið fram að stórlán bankanna séu í uppnámi, verði frumvarpið að lög- um, og svo er að sjá að einhverjir lífeyrissjóðir eigi tvo milljarða hjá Norðurljósum. En eiga hagsmunir banka að ráða almennum reglum um eignarhald á fjölmiðlum? Hvaða lífeyrssjóðir hafa lánað Jóni Ólafssyni tvo milljarða? Eða eru þetta ný lán? Skuldin getur varla verið óinnheimt lífeyrisiðgjöld, því þau eru varin af ábyrgðasjóði launa. Grundvallaratriði Málið allt hefur valdið slíku upp- námi að í fyrsta skipti í sögu lýð- veldisins eru nú marktækar líkur taldar á að forsetinn muni synja lögum staðfestingar. Eins og að- dragandinn er þýðir þetta að for- setinn hefur stigið út úr embættinu Geðvonska eða fjölmiðlalög til þjóðarinnar Helgi Guðmundsson fjallar um fjölmiðlafrumvarpið ’Málið allt hefur valdiðslíku uppnámi að í fyrsta skipti í sögu lýð- veldisins eru nú mark- tækar líkur taldar á að forsetinn muni synja lögum staðfestingar. ‘ Helgi Guðmundsson SKÖMMU eftir að bók mín um Jón Þorláksson forsætisráðherra kom út, birtist nafnlaust lesenda- bréf í DV, þar sem sagt var, að ég hefði þar stuðst við vinnu nemenda minna án þess að geta þess. Ég hringdi í ritstjórann og benti á, að í eftirmála þakkaði ég sérstaklega fjölda nafngreindra nemenda, sem hefði skrifað ritgerðir undir minni umsjón eða að mínu frumkvæði. Blaðið bað mig afsökunar. Þor- valdur Logason heimspekinemi endurtekur þessar ásakanir hér í blaðinu 21. maí. Hann getur þess ekki, að hann sneri sér til sumra þeirra nemenda, sem nafngreindir eru í eftirmála mínum (og sumra ekki), með fyrirspurnum um, hvort ég hefði ekki hagnýtt mér ritgerðir þeirra ósæmilega. Sá nemandi, sem Þorvaldur nafngreinir sér- staklega í grein sinni hér í blaðinu, Ármann Þorvaldsson, sendi hon- um svar við fyrirspurn hans í tölvupósti 5. mars síðast liðinn. Svarið hljóðaði svo: „Sæll Þorvaldur og takk fyrir póstinn. Mér finnst þetta vera á misskilningi byggt hjá þér, a.m.k. var ég mjög ánægður með sam- starfið við Hannes á sínum tíma. Ástæðan fyrir því að ég skrifaði um borgarstjóratíð Jóns Þorláks- sonar var sú að ég var að leita að ritgerðarefni á sama tíma og Hannes var að skrifa ævisögu Jóns Þorlákssonar. Ég var þá í sagn- fræðinámi en tók áhugaverða kúrsa hjá Hannesi í stjórnmála- fræði og kynntist honum í gegnum þá. Hann benti mér á ritgerðarefn- ið og það varð í raun samstarfs- verkefni þar sem hann benti mér á ýmsar heimildir sem ég vissi ekki um og hann gat auðvitað nýtt rannsóknarvinnu sem ég vann við ritun sinnar bókar. Reyndar var Þór Whitehead umsjónarmaður með ritgerð minni en Hannes var mér ekki síður hjálplegur. Ég hef ekki bókina hans og ritgerðina mína fyrir framan mig en ég las bókina á sínum tíma og minnist þess ekki að mér hafi á neinn hátt þótt óeðlilega staðið að málum. kv. Ármann.“ Ég hef engu við þetta að bæta. Þorvaldur hafði bersýnilega allar upplýsingar, sem hann þurfti, áður en hann skrifaði grein sína. Hann kaus að veita lesendum Morgun- blaðsins þær ekki, heldur hafa uppi um mig dylgjur og getsakir. Ef Þorvaldur biður mig afsökunar á frumhlaupi sínu, eins og DV gerði á sínum tíma, þá er ég hins vegar reiðubúinn til að láta málið niður falla. Hannes Hólmstein Gissurarson Óskað eftir afsökunarbeiðni Höfundur er prófessor í stjórnmálafræði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.