Morgunblaðið - 22.05.2004, Blaðsíða 39
MESSUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 39
Ferming í Skálholtskirkju sunnudaginn
23. maí kl. 14. Prestur sr. Rúnar Þór Eg-
ilsson. Fermd verða:
Agnes Erlingsdóttir,
Hverabraut, Laugarvatni.
Ísak Örn Guðmundsson,
Böðmóðsstöðum, Laugardal.
Signý Eva Auðunsdóttir,
Hrísholti, Laugarvatni.
Sigurður Orri Hafþórsson,
Torfholti 14, Laugarvatni.
Sigurveig Mjöll Tómasdóttir,
Hrísholti 8, Laugarvatni.
Ferming í Ísafjarðarkirkju sunnudaginn
23. maí kl. 14. Prestur sr. Magnús
Erlingsson. Fermd verða:
Anna Portia Specker,
Sundstræti 26.
Erla Pálsdóttir,
Tangagötu 14.
Hafþór Atli Agnarsson,
Móholti 10.
Katerína Inga Antonsdóttir,
Sundstræti 28.
Katrín Fríða Þorkelsdóttir,
Urðarvegi 2.
Sigurjón Hallgrímsson,
Brautarholti 14.
Telma Björk Sörensen,
Fagraholti 8.
Ferming í Safnkirkjunni í Árbæ sunnudag-
inn 23. maí kl. 11. Prestur Guðný Hall-
grímsdóttir. Fermdur verður:
Hlynur Erlendsson,
Álakvísl 53, Reykjavík.
Ferming í Bræðratungukirkju sunnudag-
inn 23. maí kl. 11. Prestur sr. Þórhallur
Heimisson.
Fermdur verður:
Sveinn Halldór Skúlason,
Bröttukinn 6, Hafnarfirði.
Ferming í Skálholtsdómkirkju laugardag-
inn 22. maí kl. 14.
Prestur sr. Egill Hallgrímsson.
Fermdur verður:
Daníel Viðar Sigurjónsson
Vesturbyggð 5, Biskupstungum.
Ferming í Péturskirkju, Akureyri, laugar-
daginn 22. maí kl. 15.
Fermd verða:
James Earl C. Tamidles
Brúarlandi, Akureyri.
Malgorzata K.Molenda
Dalbakka 7, Seyðisfirði.
Daniela Velo,
Kárahnjúkum, Egilsstöðum.
Fermingar
Morgunblaðið/RAX
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Kór
Áskirkju syngur. Organisti Kári Þormar.
Prestur sr. Karl V. Matthíasson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Athugið breyttan messutíma en í sumar
verða messur kl. 11. Organisti Guð-
mundur Sigurðsson. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Kirkju-
göngudagur Súðvíkingafélagsins. Sr.
Jakob Ágúst Hjálmarsson prédikar. Org-
anisti er Kjartan Sigurjónsson. Dómkór-
inn syngur. Djákna- og prestsvígsla kl.
14. Biskup Íslands vígir cand. theol.
Gunnar Jóhannesson til embættis sókn-
arprests í Hofsós- og Hólaprestakalli,
Skagprfd., og Dagný Guðmundsdóttur,
djákna, til þjónustu á Vífilsstaðaspítala.
Séra Dalla Þórðardóttir, prófastur, lýsir
vígslu. Vígsluvottar auk hennar: Dr. Sig-
urbjörn Einarsson, séra Ragnar Fjalar
Lárusson, séra Þór Hauksson, Nanna
Guðrún Zoëga, djákni, séra Hans Mark-
ús Hafsteinsson, sóknarprestur, og Þór-
dís Ásgeirdóttir, formaður Djáknafélags
Íslands.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Furugerðiskórinn syngur undir stjórn Ing-
unnar Guðmundsdóttur. Kirkjukór Grens-
áskirkju syngur. Organisti Reynir Jón-
asson. Samskot til kirkjustarfsins.
Ólafur Jóhannsson.
GRUND DVALAR- OG HJÚKRUNAR-
HEIMILI: Guðsþjónusta kl. 10.15. Ein-
söngur Þórunn Lilja Vilbergsdóttir. Org-
anisti Kjartan Ólafsson. Sr. Baldur Rafn
Sigurðsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr.
Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði Páls-
syni. Organisti verður Hörður Áskelsson
og hópur úr Mótettukór syngur. Sögu-
stund verður fyrir börnin. Einnig syngur
Stefanskórinn frá Uppölum, sem hér er í
heimsókn.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Organ-
isti Douglas A. Brotchie. Sr. Helga
Soffía Konráðsdóttir.
LANDSPÍTALI HÁSKÓLASJÚKRAHÚS:
LANDAKOT: Guðsþjónusta kl. 11.30. Sr.
Ingileif Malmberg.
LANGHOLTSKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur séra Jón Helgi Þórarinsson. Org-
anisti Ólafur W. Finnsson. Félagar úr Kór
Langholtskirkju leiða söng. Kaffisopi eft-
ir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
20. Kór Laugarneskirkju leiðir safnaðar-
sönginn undir stjórn Gunnars Gunnars-
sonar. Barnagæsla við messur sumars-
ins verður í höndum Hildar Eirar
Bolladóttur sunnudagaskólakennara.
Messukaffi Sigríðar kirkjuvarðar bíður
svo allra í safnaðarheimilinu að messu
lokinni. Kl. 20: Í stað hefðbundinnar
guðsþjónustu verða tónleikar Kristjáns
Kristjánssonar (KK) sem bera yfirskrift-
ina „Ljós af ljósi“. Gunnar Gunnarsson
organisti mun leika með í nokkrum lög-
um auk þess sem Bjarni Karlsson prest-
ur mun flytja ‘örvekju’ út frá Guðspjalli
dagsins. Barnagæsla verður í höndum
Hildar Eirar Bolladóttur sunnudagaskóla-
kennara. Molakaffi og djús Sigríðar
kirkjuvarðar bíður svo allra í safnaðar-
heimilinu að tónleikum loknum.
NESKIRKJA: Messa kl. 11. Kirkjukór
Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur
Þórhallsson. Prestur sr. Örn Bárður
Jónsson. Kaffi, djús og spjall í safn-
aðarheimilinu eftir messu. Vorferð
barnastarfsins kl. 11. Farið frá Nes-
kirkju með rútu í Sandgerði. Fræðasetr-
ið skoðað. Grill, leikir og söngur. Allir
velkomnir!
SELTJARNARNESKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Kvartett Seltjarnarneskirkju syng-
ur. Organisti er Pavel Manasek. Prestur:
Sigurður Grétar Helgason.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Gúllasguðsþjón-
usta kl. 11 með þátttöku norænna
æskulýðsfullrúa.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Minningar-
guðsþjónusta klukkan 14. Minning-
arguðsþjónusta um þá sem látist hafa
af völdum alnæmis.
Eftir guðsþjónustu er kirkjugestum boð-
ið til kirkjukaffis í safnaðarheimilinu.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Kirkjukórinn syngur ásamt kirkjugestum.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl. 11. Að-
alsafnaðarfundur Breiðholtssóknar verð-
ur eftir messu að loknum léttum máls-
verði.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl 11. Prest-
ur sr. Magnús B. Björnsson. Organisti
Örn Falkner. Kór Digraneskirkju A hópur.
Léttar veitingar í safnaðarsal að messu
lokinni (kr. 500). Sjá nánar: www.digra-
neskirkja.is.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta í
Grafarvogskirkju kl. 11. Séra Lena Rós
Matthíasdóttir prédikar og þjónar fyrir
altari. Kór Grafarvogskirkju syngur. Org-
anisti: Hörður Bragason.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Svavar Stefánsson,
organisti Lenka Mátéová, kór kirkjunnar
leiðir söng. Kaffi og ávaxtasafi í safn-
aðarheimilinu eftir messu.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Kór kirkj-
unnar syngur og leiðir safnaðarsöng
ásamt Sofiemyr, norskum kirkjukór, und-
ir stjórn Jóns Ólafs Sigurðssonar og
Bernt Nordset. Við minnum á bæna- og
kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18 og opið
hús á fimmtudag kl. 12 (sjá einnig í
www.hjallakirkja.is). Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Kór Kópavogskirkju syngur og leiðir
safnaðarsöng. Organisti Julian Hewlett.
Boðið verður upp á kaffi að lokinni
guðsþjónustu. Sr. Ægir. Fr. Sigurgeirs-
son.
LINDASÓKN Í KÓPAVOGI: Helgistund kl.
20 í Safnaðarheimilinu að Uppsölum 3.
Allir velkomnir!
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Sr.
Bolli Pétur Bollason prédikar. Kór Selja-
kirkju leiðir söng. Organisti Jón Bjarna-
son.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmára 9,
Kóp.: Samkomur alla laugardaga kl. 11.
Bænastund alla þriðjudaga kl. 20. Bibl-
íufræðsla allan sólarhringinn á Útvarpi
Boðun FM 105,5.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ: Sam-
koma á morgun kl. 16. Niels J. Nielsen
frá Færeyum er í heimsókn 22. og 23
mai. Í þessum sambandi verður kvöld-
vaka laugardaginn kl. 20.30. Söngur,
tónleikur, happdráttur o.a. Sunnudaginn
kl. 20.30 verður samkoma.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Kl. 19.30 bæna-
stund, kl. 20 hjálpræðissamkoma. Ás-
laug Haugland stjórnar. Sr. Gísli Jón-
asson talar.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Vatnsendabletti
601: Sunnudaginn 23. maí er samkoma
kl. 14. Sigrún Einarsdóttir talar. Lofgjörð
og fyrirbænir. Tvískipt barnastarf fyrir
1–6 ára og 7–12 ára á samkomutíma.
Kaffi og samfélag eftir samkomu. Nán-
ari upplýsingar á www.kefas.is.
KFUM og KFUK v/Holtaveg:
Samkoma kl. 17 í umsjá Kristilegs stúd-
entafélags. Vitnisburðir ungs fólks. Létt
skemmtiatriði við allra hæfi Kynning á
stjórn KSF. Mikill söngur og tónlist.
FÍLADELFÍA: Almenn samkoma kl.
16.30. Ræðumaður Jón Þór Eyjólfsson.
Gospelkór Fíladelfíu leiðir í söng.
Fyrirbæn í lok samkomu. Barnakirkja á
sama tíma. Miðvikudaginn 26. maí kl.
20 er bænastund. Bænastundir alla
virka morgna kl. 6. filadelfia@gospel.is
www.gospel.is.
VEGURINN: Fjölskylduskemmtun kl. 11,
þetta er síðasta samveran á þessum
vetri, leikir, grill. Bænastund kl. 19.30.
Almenn samkoma kl. 20, Ragna Björk
Þorvaldsdóttir predikar, lofgjörð, fyrir-
bænir og samfélag eftir samkomu í
kaffisalnum. www.vegurinn.is, þar er
hægt að senda inn bænarefni og sjá ýt-
arlegri dagskrá.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti,
dómkirkja og basilíka: Sunnudaga:
Messa kl. 10.30. Messa á ensku kl.
18. Alla virka daga: Messa kl. 18.
Kirkjan er öllum opin á daginn frá kl. 8
til 18.30. Maímánuður er settur sér-
staklega undir vernd heilagrar Maríu
meyjar og tileinkaður henni. Haldin er
bænastund á hverjum mánudegi og mið-
vikudegi kl. 17.40.
Reykjavík, Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11. Laugardaga:
Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga:
Messa kl. 18.30.
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl.
16. Miðvikudaga kl. 20
Hafnarfjörður, Jósefskirkja:
Sunnudaga: Messa kl. 10.30.
Miðvikudaga: Messa kl. 18.30.
Karmelklaustur:
Sunnudaga: Messa kl. 08.30.
Virka daga: Messa kl. 8.
Keflavík, Barbörukapella, Skólavegi 38:
Sunnudaga: Messa kl. 14.
Alla fimmtudaga: Rósakransbæn kl. 20.
Stykkishólmur, Austurgötu 7:
Alla virka daga: Messa kl. 18.30.
Sunnudaga: Messa kl. 10.
Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11.
Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18.
Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16.
Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.
Akureyri, Kaþólska kirkjan, Péturs-
kirkja, Hrafnagilsstræti 2:
Laugardaga: Messa kl. 18. Sunnudaga:
Messa kl. 11.
BRÆÐRATUNGUKIRKJA: Fermingar-
guðsþjónusta í Brautarholtskirkju kl. 11.
Prestur sr. Þórhallur Heimisson.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl.
11 guðsþjónusta. Kór Landakirkju syng-
ur undir stjórn Guðmundar H. Guðjóns-
sonar. Prestur sr. Fjölnir Ásbjörnsson.
MOSFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Prestur: Sr. Ragnheiður Jónsdóttir.
Kirkjukór Lágafellssóknar.
Organisti: Jónas Þórir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Karl V.
Mattíasson. Organisti: Antonía Hevesi.
Kór Hafnarfjarðarkirkju leiðir safnaðar-
söng.
VÍDALÍNSKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11. Garðakórinn, kór
eldriborgara í Garðabæ, leiðir almennan
safnaðarsöng undir stjórn Kristínar Pjet-
ursdóttur, kórstjóra.
Organisti: Jóhann Baldvinsson. Við at-
höfnina þjónar sr. Hans Markús Haf-
steinsson. Mætum vel og syngjum sam-
an og gleðjumst í Drottni.
KRÝSUVÍKURKIRKJA:
Messa kl. 14. Sætaferð frá Hafnarfjarð-
arkirkju kl. 13.05.
Upprisu, altaristöflu Krýsuvíkurkirkju,
komið fyrir á sínum stað. Prestur: Sr.
Gunnþór Þ. Ingason. Forsöngvari: Arnar
Þór Viðarsson. Gítarleikari: Bjarki Gunn-
laugsson. Meðhjálpari: Magnús Sigurðs-
son. Sveinshús opið eftir messuna.
Opnun myndlistarsýningarinnar „Fuglar í
myndum“. Kaffi og kökur í boði á vægu
verði.
ÍSAFJARÐARKIRKJA: Messa og ferming
kl. 14. Kór Ísafjarðarkirkju syngur undir
stjórn Huldu Bragadóttur. Sóknarprest-
ur.
AKUREYRARKIRKJA: Æðruleysismessa
kl. 20.30. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir
og sr. Elínborg Gísladóttir. Um tónlistina
sjá Eiríkur Bóasson, Óskar Pétursson og
Stefán Ingólfsson. Kaffi í Safnaðarheim-
ili að lokinni messu.
GLERÁRKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Arn-
aldur Bárðarson þjónar. Félagar úr Kór
Glerárkirkju syngja, Samkór Hornafjarð-
ar kemur í heimsókn, organisti: Hjörtur
Steinbergsson. Léttar kaffiveitingar í há-
degi. Aðalsafnaðarfundur kl. 13.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Laug-
ardaginn 22. maí klukkan 14 hátíðar-
samkoma í tilefni af 100 ára afmæli
starfsins á Akureyri. Ræðumaður ofursti
Miriam Fredriksen. Mikill söngur, meðal
annars gospelkór undir stjórn Óskars
Einarssonar, barna og unglingahópar
syngja. Einsöngur kafteinn Miriam Ósk-
arsdóttir, tvísöngur majórar Anne Maríe
og Harold Reinholdtsen. Sunnudaginn
23. maí klukkan 11 almenn samkoma í
umsjá yfirmanna hjálpræðishersins á Ís-
landi, majórs Önnu Maríu og Harolds
Reinholdtsens.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa kl. 11.
Barna- og Kammmerkór Biskupstungna
syngur ásamt Táknmálskórnum. Sr.
Miyako Þórðarson þjónar með sóknar-
presti, sr. Agli Hallgrímssyni. Organisti:
Hilmar Örn Agnarsson. Sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11, súpa
og brauð að lokinni messu. Morguntíð
sungin þriðjudag til föstudags kl. 10
kaffisopi á eftir. Foreldramorgnar mið-
vikudaga kl. 11.
HVERAGERÐISKIRKJA:
Héraðsfundur Árnesprófastsdæmis
sunnudaginn 23. maí, guðsþjónusta í
Hveragerðiskirkju kl. 11.
Foreldramorgnar í Hveragerðiskirkju hefj-
ast að nýju þriðjudaginn 7. september
kl. 10.
Guðspjall dagsins: Þeg-
ar huggarinn kemur.
( Jóh. 15).
Morgunblaðið/Sverrir
Grundarfjarðarkirkja
Afi minn, Gunnar
Björnsson bifreiða-
smíðameistari, var
fæddur á Vakursstöð-
um í Vopnafirði 21. maí
1904. Hann lést 19.
desember 1996.
Í dag 21. maí hefði
hann orðið 100 ára.
Langar mig að minnast
þessa merka manns
með örfáum orðum.
Foreldrar hans voru
Björn Pálsson gull-
smiður og bóndi og
Rannveig Nikulásdótt-
ir. Bjuggu þau fyrst á
Vakursstöðum en fluttu síðar í Ref-
stað í Hofsárdal í Vopnafirði. Al-
systkini afa voru Margrét f. 1907 og
Karl, f. 1908, d. 1980. Hálfsystkini
afa eru öll látin, en ein hálfsystir
hans flutti til Vesturheims og eru af-
komendur hennar búsettir í Kanada.
Afi ólst upp í Vopnafirði. Hélt
hann síðan til Reykjavíkur og lærði
húsasmíði. Starfaði hann við smíðar
og vann m.a. við byggingu Landspít-
alans. Kreppa fyrirstríðsáranna
samhliða örri þróun í bíliðnaði og
samgöngum, varð til þess að afi
sneri sér að bifreiðasmíði. Hann öðl-
aðist meistararéttindi sem bifreiða-
smiður við löggildingu greinarinnar
og stofnaði árið 1942, ásamt fjórum
félögum sínum HF. Bílasmiðjuna en
fljótlega bættist sá fimmti við og
starfræktu þeir fyrirtæki sitt í nær-
fellt 40 ár. Afi var einn af stofnfélög-
um síns stéttarfélags og sat í stjórn
Félags bifreiðasmiða og varð seinna
formaður og heiðursfélagi. Auk þess
sat hann í stjórn Landsambands iðn-
aðarmanna í áraraðir. Afi hefur svo
sannarlega verið frumherji og at-
hafnamaður. Eins langt aftur og ég
get munað var afi Gunnar með börn-
unum á jólaböllum, í Sjálfstæðishús-
inu, Hótel Borg og í sal Frímúra-
reglunnar. Afi var mjög glæsilegur,
klæddur í kjól og hvítt, hljómsveit að
spila og gott í poka, þessar skemmt-
anir voru með ævintýraljóma. Hann
afi var lítið fyrir ærsl okkar
barnanna, það vissum við en hann
var góður hlustandi og hafði gaman
af að svara spurningum okkar þegar
við eltumst. Kom það því oftast í hlut
ömmu að hafa ofan af fyrir okkur,
með lestri eða föndri.
Afi Gunnar og amma, Margrét
Björnsdóttir, f. 25. maí 1902, d.
2.maí 1981, giftu sig 7. janúar 1932.
Amma var einnig Vopnfirðingur.
Foreldrar hennar voru Þórarinn
GUNNAR
BJÖRNSSON
Björn Stefánsson frá
Teigi og Margrét Katr-
ín Jónsdóttir. Afi
Gunnar og amma Mar-
grét eignuðust tvö
börn, Rannveigu, f.
1935, og Þórarin Björn,
f. 1938. Afkomendur
þeirra eru nú orðnir 24
og von er á tveimur síð-
ar á árinu. Amma og afi
bjuggu öll sín búskap-
arár í Reykjavík,
lengst af í húsinu sem
afi byggði á Langholts-
vegi 186. Þaðan eigum
við barnabörnin góðar
minningar ekki síst úr garðinum
með öllum blómunum og berjunum
sem gott var að smakka á.
Afi var mikill áhugamaður um
ræktun og útivist. Ber sumarhús
þeirra við Elliðavatn þess glöggt
merki, þar sem áður var grár melur
er nú gróið land með öllum mögu-
legum trjám og plöntum. Bústaður-
inn var sem þeirra annað heimili.
Hvenær sem færi gafst var farið upp
í land, hugað að gróðrinum eða dytt-
að að húsinu Báðir þessir staðir bera
samheldni og vinnusemi þeirra
hjóna glöggt merki. Til alls var
vandað og okkur börnunum kennd
rétt umgengni við hluti og náttúru.
Nýtur fjölskyldan þess enn að fara
upp að Elliðavatni og njóta kyrrð-
arinnar og náttúrunnar, örstutt frá
erli borgarinnar.
Áhugamál afa fyrir utan ræktun
voru stangveiði , skotveiði og ferða-
lög, bæði innanlands og utan. Veiddi
hann lax í landsins helstu laxveiði-
ám, en árnar í Vopnafirði og Elliða-
árnar voru fastir liðir á sumrin. Afi
bauð síðan allri fjölskyldunni í ný-
veiddan lax í borðstofunni á Lang-
holtsveginum. Sögur af veiddum og
óveiddum löxum fylgdu afa alla tíð.
Þegar afi Gunnar var fluttur að Dal-
braut og ellin farin að láta til sín
taka var alltaf hægt að brydda upp á
laxasögum og þá lifnaði hann allur
við. Ferðalög suður á bóginn voru
vinsæl hjá ömmu og afa, þau ferð-
uðust einnig mikið um Ísland. Sterk
tengsl við frændfólk í Vopnafirði
voru ræktuð og börnin og barnabörn
dvöldu í Vopnafirði í sveit. Sólin var
þeirra og minningar tengdar sól og
sumri eru sterkastar í minningunni.
Kærar þakkir fyrir allar samveru-
stundirnar. Minning Gunnars
Björnssonar og Margrétar Björns-
dóttur lifir.
Jónína Þórarinsdóttir.
ALDARMINNING