Morgunblaðið - 22.05.2004, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 22.05.2004, Qupperneq 50
DAGBÓK 50 LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. ein- takið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Mannamót Bólstaðarhlíð 43. Handavinnusýning kl. 13–17. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraun- seli, Flatahrauni 3. Handverkssýning kl. 13–17. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Dansleikur í kvöld kl. 20, Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Hvern virkan dag kl. 9–16.30 fjölbreytt dag- skrá. Hvassaleiti 56–58. Handverkssýning verður sunnudaginn 23. og mánudaginn 24. maí kl. 13–17, kaffi og meðlæti. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 laugardagsmorgna frá Gjábakka. Krummakaffi kl. 9. Sunnuhlíð Kópavogi. Söngur með sínu nefi á laugardögum kl. 15.30. Íbúar, aðstand- endur og gestir vel- komnir. Bókmenntaklúbbur Hana-nú. Félagar í Bókmenntaklúbbi Hana-nú flytja dag- skrá um skáldið SJÓN í Þjóðmenning- arhúsinu á morgun, sunnudaginn 23. maí, kl. 14. Stjórnandi Ásdís Skúladóttir. Flutningur tekur 40 mínútur. Ferðaklúbbur eldri borgara Rangárþing – söguferð 25. maí, merkir staðir þar skoðaðir. Skráning hjá Hannesi í síma 892 3011. Eldri borgarar athugið! Ég hef séð um akstur og umsjón á ferðum hjá Félagi eldri borgara sl. 10 ár en vil taka það fram að ég er hættur akstri fyrir félagið. Stofn- aður hefur verið Ferðaklúbbur eldri borgara og er hann með ýmsar ferði í boði. Allir eldri borgarar eru velkomnir í ferðir hjá Ferðaklúbbnum. Allar uppl.um klúbb- inn hjá Hannesi Há- konarsyni í síma 892 3011. Félagsstarf SÁÁ. Loka-dansleikur fé- lagsstarfs SÁÁ verður í Ásgarði, Glæsibæ og hefst hann kl. 22. Ellimálaráð Reykja- víkurprófastsdæma og Ellimálanefnd þjóðkirkjunnar efna til orlofsdvalar fyrir eldri borgara á Löngumýri í júní. Boðið er til fimm daga dvalar í senn. Skráning og nánari upplýsingar eru veitt- ar á skrifstofu Elli- málaráðs f.h. virka daga í síma 557 1666. Gigtarfélagið. Leik- fimi alla daga vik- unnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufu- tími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. GA-Samtök spilafíkla. Fundaskrá: Þriðjud: Kl.18.15, Sel- tjarnarneskirkja, Sel- tjarnarnesi. Miðvikud: Kl. 18, Digranesvegur 12, Kópavogur og Eg- ilsstaðakirkja, Egils- stöðum. Fimmtud: Kl. 20.30, Síðumúla 3–5, Reykjavík. Föstud: Kl. 20, Víðistaða- kirkja, Hafnarfirði. Laugard: Kl.10.30, Kirkja Óháða safn- aðarins, Reykjavík, og Glerárkirkja, Ak- ureyri. Kl.19.15 Selja- vegur 2, Reykjavík. Neyðarsími: 698 3888 Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 að Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA- samtakanna. Oa-samtökin. Átrösk- un/Matarfíkn/Ofát. Fundir alla daga. Upplýsingar á www.oa.is og síma 878 1178. Ásatrúarfélagið, Grandagarði 8. Opið hús alla laugardaga frá kl. 14. Kattholt. Flóamark- aður í Kattholti, Stangarhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. kl. 14–17. Leið 10 og 110 ganga að Katt- holti. Fífan, Dalsmára 5 í Kópavogi, tart- anbrautir eru opnar almennu göngufólki og gönguhópum kl.10– 11.30 alla virka daga. Blóðbankabíllinn. Ferðir blóðbankabíls- ins: sjá www.blod- bankinn.is. Í dag er laugardagur 22. maí, 143. dagur ársins 2004. Orð dagsins: Þeir, sem búa til goða- líkneski, eru hver með öðrum hégóminn einber, og dýrind- issmíðar þeirra eru að engu liði. Vottar slíkra guða sjá eigi og vita eigi, til þess að þeir verði sér til skammar. (Jes. 44, 9.)     Í grein hér í blaðinu sl.laugardag skrifaði Sigurður G. Guðjónsson, forstjóri Norðurljósa, m.a. um viðtal við Magn- ús Ragnarsson, sjón- varpsstjóra Skjás eins, sem birtist í blaðinu í síð- ustu viku: „Það vekur hins vegar athygli að Morgunblaðið hafði ekki samband við Norðurljós til að fá upplýsingar um hvort það væri rétt að Norðurljós keyrðu upp innkaupsverð á dag- skrárefni, svo notuð sé millifyrirsögn blaðsins sjálfs. Þessi vinnubrögð Morgunblaðsins eru á skjön við góða siði blaða- manna.“ Hér er einhver mis- skilningur á ferðinni. Morgunblaðið lítur al- mennt svo á, að viðtöl séu trúnaðarmál á milli blaðsins og viðmæland- ans þangað til þau birt- ast í blaðinu. Ef Morg- unblaðið birti t.d. aldrei yfirlýsingar Sigurðar G. Guðjónssonar um menn og málefni nema hafa fyrst samband við þá, sem ummæli hans beind- ust að, til að spyrja hvort hann hefði rétt fyrir sér eða menn væru honum sammála, yrði hann tæp- lega sáttur við það. Hitt er svo annað mál að um- mæli Magnúsar voru bor- in undir Sigurð eftir að þau höfðu birzt og hann svaraði þeim í blaðinu. Það eru eðlileg vinnu- brögð.     Annað dæmi um aðmenn virðast sjá eitt- hvað út úr fréttum Morg- unblaðsins, sem þar er ekki að finna, er ummæli Birgis Guðmundssonar á morgunvakt RÚV sl. þriðjudag um tölvupóst, sem formaður Blaða- mannafélags Íslands sendi frá sér. Birgir sagði: „[…] síðan var þetta birt á laugardaginn í Morgunblaðinu sem að, og með mjög sérkenni- legum hætti, það var sem sé gert tortryggilegt og síðan þannig að það var ekkert sagt hvað þetta var, maður hélt að þetta væri einhver sko yfirlýs- ing frá blaðamannafélag- inu eða eitthvað slíkt.“ Lesendum til glöggv- unar skal rifjað upp að fyrirsögn umræddrar fréttar var: „Formaður Blaðamannafélagsins sendir áskorun til fjöl- miðlafólks: „Látið öllum illum látum“. Inngangur fréttarinnar var þannig: „Starfsmönnum á sumum fjölmiðlum barst í gær tölvupóstur frá Róbert Marshall, fréttamanni á Stöð 2 og formanni Blaðamannafélags Ís- lands, þar sem hann hvetur til þátttöku í und- irskriftasöfnun undir áskorun á forseta Íslands að undirrita ekki fjöl- miðlafrumvarp forsætis- ráðherra. Tölvupóst- urinn, sem sendur er af netfanginu marshall- @press.is, er svohljóð- andi:“ Svo birtist tölvu- pósturinn orðrétt og í heild. Lesendur geta dæmt hver fyrir sig hvort þetta sé „sér- kennilegt“ eða reynt að gera málið tortryggilegt. STAKSTEINAR Góðir siðir blaðamanna Víkverji skrifar... Víkverji brá sér í bíó í vikunni ogsá Tróju þar sem Brad Pitt fer með aðalhlutverkið. Myndin var ekkert stórvirki, en fín samt og mik- ið fyrir augað. Víkverja þótti Brad standa sig með eindæmum vel í hlut- verki Akkilesar, en viðurkennir þó fúslega að þrönga leðurpilsið og lík- amsburðir Brads skiptu töluverðu máli. Eftir að hafa séð Brad í pilsinu vonar Víkverji sannarlega að pils eins og það sem Bradinn skrýddist í myndinni komist í tísku. Eftir að hafa horft á allt of marg- ar myndir þar sem naktir kvenlík- amar virðast vera það sem helst nær athygli tökumanna þótti Víkverja það ákveðinn léttir að hafa blóði at- aðan og olíuborinn efri líkama Brads fyrir augunum. Fyrir vikið varð Trója hið mesta augnayndi. x x x Víkverja þykir það miður þegarfólk dæmir aðra eftir útliti. Hins vegar sér Víkverji ekkert að því að dást að því sem fallegt er, eins og til dæmis Brad Pitt og David Beck- ham. Í því felst enginn dómur. Lengi vel hafði Víkverji myndir af Beckham á vinnubásnum sínum. Vinnufélagi Víkverja lét þau orð eitt sinn falla að Víkverji virtist heltek- inn af útliti fólks. Þar sem Víkverji kannaðist ekki við þessa áráttu benti félaginn á myndirnar af Beck- ham og þóttu þær greinilega vera sönnun þess. x x x Það er útbreiddur misskilningurað það að þykja manneskja fal- leg þýði að maður þurfi að hafa skoðun á því hvernig hún er innrætt. Að mati Víkverja er rangt að tengja þetta tvennt saman. Þótt Víkverja þyki mikið til þess koma að sjá myndir af fáklæddum fótboltasnill- ingi með demantseyrnalokka þá segir það ekki neitt um það hvort Víkverji er upptekinn af útliti eða ekki. Nú þekkir Víkverji hvorki Brad né Beckham sérstaklega og getur því alls ekki sagt til um hvern mann þeir hafa að geyma. Að ætla að dæma um þeirra innri mann væru fordómar. En Víkverja þykir það ekkert til að skammast sín fyrir að dást að fagurri ásjónu strákanna. Það er ekkert slæmt við það að njóta þess að horfa á Brad Pitt í þröngu leðurpilsi, brynjaðan í bak og fyrir. Af þessari ástæðu telur Víkverji það skelfilega þróun að í fegurð- arsamkeppnum sé nú líka „tekið til- lit til persónuleika“ keppenda. Er það betra? Ef Víkverji lenti t.d. í fimmta sæti í slíkri keppni, ætti hann þá að túlka úrslitin á þann veg að hann sé með fimmta besta kar- akterinn á svæðinu? Og ef hann lenti í neðsta sæti, er hann þá með „versta“ persónuleikann? Persónu- einkenni koma útliti ekki við, að mati Víkverja. Þess vegna leyfir hann sér að dást að útliti Brads og Beckhams, án fordóma. Brad Pitt er augnayndi að mati Víkverja. Hljóðbækur og aðrar bókmenntir MIKIÐ er það skemmti- legt að hlusta á snældur hljóðbóka heima við, lán- aðar hjá Borgarbókasafni Reykjavíkur. Það eru eink- anlega Íslendingasögurnar sem mér þykir fróðlegast að hlusta á, svo sem Njáls saga, Egils saga Skalla- grímssonar og Laxdæla saga, sem fjallar um skóg- armenn, illræðismenn og vígamenn í hernaði, og sögusviðið víðfeðmt og stígandi atburðarás og grimmileg örlög og krydd- aður texti. Væri ekki kjörið og sjálfsagt að leggja áherslu á að kvikmynda þessar sögur til sýningar í Bandaríkjunum, þar sem þeir eru svo hrifnir af manndrápum? Sýna þyrfti á hvern hátt menn eru vegnir og aflimaðir, út í ystu æsar tæknilega, og þegar menn eru háls- höggnir t.d. Af þessu myndi Kaninn áreiðanlega hafa mikla skemmtun, þar sem þeir eru svo morðóðir í kvikmyndum sínum; það er gefið mál. Njálssaga ku vera í vinnslu til kvik- myndunar og síðan fleiri fornsögur, og þá ekki síst Vínlandssögur sem jafn- framt myndi verða sýnt um allan heim. Þetta yrði milljarðamarkaður um glæsta kappa og hetjur víkingasagnanna. Og sög- urnar meistaralega upp- byggðar og stíll allur mik- ilfenglegur og kraftmikill. Eins og að framan segir, þá hefi ég mikið yndi af hlustun á snældur þessara hljóðbóka frá Borgarbóka- safninu, sem á þakkir skil- ið fyrir útlán þessara bóka- tegunda. Páll G. Hannesson, Ægisíðu 86, R. Hvar er hægri slagsíðan? ÉG er einn af þeim sem hlusta á Spegilinn í RÚV eftir fréttir á kvöldin. Efn- istök og val á viðmælend- um er með ólíkindum og pólitísk sýn stjórnenda skín svo hressilega í gegn að hlustendum mörgum verður óglatt. Ósvífinn pistill Helgu Völu í síðustu viku um afmæli ríkis- stjórnarinnar var með því- líkum ólíkindum að ætla mætti að hún væri að fara að sækja um starf hjá ein- hverjum af Baugsmiðlum. Mér er spurn, hvar er þessi hægri slagsíða á rík- isfjölmiðlunum sem svo mjög er rædd? Ég hefði gjarnan viljað sjá vitræna umfjöllun um það á opin- berum vettvangi. Fyrir okkur sem hneigj- umst til hægri er í fá skjól að venda þessa dagana og fer þeim mjög fækkandi eins og einsleitnin er orðin á frjálsum fjölmiðlum í dag. Er lausnin kannski hægri Spegill í hálftíma fyrir fréttir, þar sem stjórnendum hans í dag virðist fyrirmunað að gæta hlutleysis í framsetning? Steinþór. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 útgjöld, 8 þrautir, 9 vesæll, 10 óvild, 11 harma, 13 blóðsugan, 15 kjökra, 18 urga fram og aftur, 21 gagn, 22 gam- ansemi, 23 ávinningur, 24 leika á. LÓÐRÉTT 2 mjólkurafurð, 3 nauti, 4 óhreinkaði, 5 mergð, 6 guðs, 7 fall, 12 megna, 14 mánuður, 15 næð- ing,16 dögg, 17 ilmur, 18 vinna, 19 fjáður, 20 forar. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 fegin, 4 kelda, 7 lemur, 8 múgur, 9 núa, 11 ræna, 13 barr, 14 fossa, 15 hagl, 17 krók, 20 ann, 22 káf- ar, 23 aftur, 24 rýrar, 25 tærar. Lóðrétt: 1 fælir, 2 gaman, 3 norn, 4 káma, 5 lygna, 6 akrar, 10 únsan, 12 afl, 13 bak,15 hákur, 16 gæfur, 18 ritar, 19 kórar, 20 arar, 21 naut. Krossgáta  Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.