Morgunblaðið - 27.05.2004, Síða 1
STOFNAÐ 1913 144. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Spáð í
boltann
Þorsteinn Joð fer yfir EM-leiki
dagsins hjá RÚV Fólkið
VIÐSKIPTI | Breytingarnar eru tækifæri Tækni Össurar vekur athygli
Rösk og ákveðin, jafnvel um of ÚR VERINU | Mikil aukning fiskneyslu
Bleikjan er hollur og góður fiskur Tók próf í Lónsdýpinu
FORSETI Rússlands, Vladímír Pútín, vísar
á bug ásökunum um að hann beiti stjórnhátt-
um einræðisherra og heitir því að bæta kjör
landsmanna. Í ræðu sem sjónvarpað var um
allt Rússland í gær frá Marmarasalnum í
Kreml gaf hann í skyn að aðrar þjóðir væru
nú farnar að óttast
Rússa vegna þess að
þeir væru á ný orðnir
öflugir. Því væri
reynt að sverta
stjórnarfarið með
áróðri.
„Ekki vilja allir í
heiminum fást við
sjálfstætt, öflugt og
sjálfsöruggt Rúss-
land,“ sagði forset-
inn. „Oft er sagt að
við séum með ein-
ræðistilburði. Ég vil
af því tilefni lýsa því yfir að ekki verður gerð
nein grundvallarbreyting á stjórnmálastefn-
unni,“ sagði Pútín og uppskar fagnaðarlæti.
Hann sagði að Rússar myndu halda fast í
gildi lýðræðisins en virtist senda dulbúna
hótun til sjálfstæðra mannréttindasamtaka
sem gagnrýnt hafa stjórnvöld. Sagði hann
þúsundir slíkra hópa hafa meiri áhuga á að
næla sér í styrki frá erlendum aðilum eða
innlendum stórfyrirtækjum en gæta hags-
muna þjóðarinnar. „Þeir geta ekki bitið
höndina sem fæðir þá,“ sagði hann.
Tvöfalda landsframleiðslu fyrir 2010
Forsetinn hét því að beita sér fyrir betra
húsnæði á viðráðanlegu verði og umbótum á
sviði menntunar og heilsugæslu. Hagvöxtur
var 7,3% í Rússlandi í fyrra, ekki síst vegna
hækkandi olíuverðs á heimsmörkuðum.
Sagði Pútín að líkur bentu til að hægt yrði að
tvöfalda landsframleiðsluna fyrir árið 2010,
stefnt væri að því að minnka verðbólgu úr
12% í 3% næstu tvö árin og jafnframt sagði
hann að einkafyrirtæki ættu að geta fjárfest
í endurnýjun á olíu- og gasleiðslum. Hingað
til hefur Pútín talið að olíuiðnaðurinn ætti að
vera algerlega undir yfirstjórn ríkisvaldsins.
Hann lagði áherslu á að efnahagsgrund-
völlurinn væri enn of ótraustur. Enn lifðu um
30 milljónir Rússa undir fátæktarmörkum.
„Við erum ekki sátt við kjörin sem fólk býr
við. Vöxturinn þarf að vera meiri en annars
staðar í heiminum.“
Pútín Rússlandsforseti
Einræðis-
ásökun-
um vísað
á bug
Moskvu. AFP, AP.
Pútín í ræðustól í gær.
Viðskipti og Úr verinu í dag
Unglingar hysji upp um sig
Baton Rouge. AP.
ÞINGIÐ í bandaríska sam-
bandsríkinu Louisiana felldi í
gær með 54 atkvæðum gegn 39
tillögu demókratans Derrick
Shepherds um bann við að fólk
láti buxnastrenginn vera neðar
en velsæmismörk leyfi.
Í tillögunni var kveðið á um
að ólöglegt væri að sýna sig á
almannafæri í buxum þar sem
sæist í „nærbuxur … eða skapa-
hár, rassskoru eða kynfæri“.
Shepherd vildi að brotlegum
yrði refsað með þriggja daga
fangelsi eða sekt er næmi 175
dollurum, rúmlega 12.000 ísl.
kr. Hann lét hróp og hlátrasköll
margra annarra þingmanna
ekki slá sig út af laginu og sagði
að ungir menn sem gengju
þannig til fara væru að reyna að
apa eftir klæðaburði fanga.
Hann sagði að menn hlytu að
geta fundið betri fyrirmyndir.
„Hvernig stendur á því að
þegar þetta ríki vill koma á
meiri siðsemi eru viðbrögðin
hlátur, háð og brandarar?“
spurði hann. Samþingmaður
hans, Danny Martini sagði að
lögin myndu valda því að Louis-
iana yrði „að athlægi um landið
allt“.
TVÆR Boeing 747-200-þotur flugfélagsins
Atlanta munu fljúga með ólympíueldinn um
allan heim, og hefst leiðangurinn í Aþenu í
Grikklandi hinn 2. júní.
Davíð Másson, framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssviðs Atlanta, staðfesti að samningur
um flutning ólympíueldsins hefði verið gerður,
en hann vildi ekki gefa upp hver samnings-
upphæðin væri. Leiðangurinn mun standa í
rúman mánuð, frá 2. júní til 9. júlí, og á þessum
tíma munu þoturnar fljúga til 35 borga. Í
fyrsta áfanga verður flogið frá Aþenu til Ástr-
alíu. Þaðan fer eldurinn til Bandaríkjanna,
Kína, Indlands, Norður-Afríku, Suður-
Ameríku, aftur til Bandaríkjanna, til Evrópu,
og endar heimsreisan hinn 9. júlí í Aþenu, þar
sem leikarnir fara fram. Davíð segir að það sé
mikill heiður fyrir Atlanta að fá þetta verk-
efni. Áhafnir Atlanta munu manna vélarnar á
flugtímanum, auk flugvirkja og flugumsjón-
armanna, alls rúmlega 40 manns.
Eldurinn verður fluttur í fjórum kössum og
er það skilyrði sett að ef eldurinn slökknar
þarf að fljúga til Aþenu til að kveikja hann aft-
ur. Alls fylgja eldinum um 200 manns, frétta-
menn og starfsmenn ólympíuhreyfingarinnar,
sem dreifast á flugvélarnar tvær. Önnur vélin
hefur verið innréttuð sem lúxusvél.
Flugfélagið Atlanta mun flytja ólympíueldinn um allan heim
Fljúga með eldinn til 35 borga
Búið er að merkja vélar Atlanta fyrir flugið.
FLUTNINGASKIPIÐ Hernes
sem strandaði í innsiglingunni í Þor-
lákshöfn um miðjan dag í gær náðist
á flot rétt eftir kl. 23 í gær, og virtist
stýri skipsins eitthvað skaddað eftir
strandið. Skipverjar voru ekki í
hættu.
Skipið er 5.000 lestir og var með
6.000 tonn af vikri um borð. Það tók
niðri á leið út úr höfninni í Þorláks-
höfn og sat fast á sandbotni. Varð-
skipið Týr kom á staðinn um kl. 20,
og kallað var á lóðsbát frá Vest-
mannaeyjum, sem kom um svipað
leyti. Lóðsbáturinn reyndi að draga
skipið á flot á níunda tímanum, og
var ekki óskað eftir aðstoð varð-
skipsins. Lóðsinn náði ekki að halda
í skipið á móti vindi og brimi og rak
það upp í brimgarð sem verið er að
leggja austan við bryggjuna.
Þá var óskað eftir aðstoð varð-
skipsins, sem kom tóg í skipið rétt
fyrir kl. 23, og var skipið að því búnu
dregið út og losnaði kl. 23.18. Háflóð
var á strandstað á þeim tíma. Að
sögn sjónarvotta mátti ekki miklu
muna að skipið færi út fyrir brim-
garðinn og upp í sandfjöru sem er
austan við höfnina. Heimamenn
fjölmenntu á bryggjuna og voru
þeir í kallfæri við sjómennina um
borð. Þeir voru komnir í flotgallana
og þó þeir virtust skelkaðir sýndu
þeir æðruleysi sitt með látbragði
vegna tungumálaörðugleika
Vikurflutningaskipið Hernes strandaði í innsiglingunni við Þorlákshöfn
Varðskip dró skipið af
strandstað í gærkvöldi
Morgunblaðið/Júlíus
Strekkingsvindur var á strandstað og talsvert brimaði á skipið þegar það var komið upp í brimgarðinn.
NÝ LÖG um varnir gegn mengun hafs og stranda munu gera Landhelgisgæslunni kleift að meta aðstæður við
skipsströnd, og grípa inn í jafnvel þótt skipstjóri í sjávarháska eða útgerð skips hafi ekki beðið um aðstoð.
Lögin taka gildi 1. október nk. og gefa þau Landhelgisgæslunni heimild til að grípa inn í mál þar sem
ströndum stafi bráð hætta af mengun. Í því felst að taka stjórn á skipi sé fyrirmælum Landhelgisgæslunnar
ekki fylgt, sér í lagi ef skipið er fullt af olíu, segir Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar.
Ný lög gefa gæslunni auknar heimildir