Morgunblaðið - 27.05.2004, Blaðsíða 22
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Úr
bæjarlífinu
Ánægjuleg vandamál | Sótt hefur verið
um lóðir fyrir 46 íbúðir á Hvanneyri í
Borgarfirði. Um er að ræða verktaka sem
hyggjast ýmist leigja íbúðirnar út eða
selja.
Í Bændablaðinu kemur fram að Krist-
jón Benediktsson byggingameistari hefur
sótt um lóðir fyrir 24 íbúðir í parhúsum á
þessu ári og 10 á næsta ári. Hyggst hann
leigja íbúðirnar út. Þá hafa PJ-byggingar
ehf. falast eftir lóðum fyrir 12 íbúðir í
parhúsum sem fara til sölu á almennum
markaði.
Bændablaðið hefur eftir Sveinbirni Eyj-
ólfssyni, oddvita Borgarfjarðarsveitar, að
margir vilji flytja til Hvanneyrar. Bygging
íbúðarhúsnæðis muni auðvelda uppbygg-
ingu staðarins sem miðstöðvar fræðslu og
rannsókna í landbúnaði. Verið er að deili-
skipuleggja byggingasvæðið og gatnagerð
er framundan. Haft er eftir Sveinbirni að
fólksfjölgun fylgi ánægjuleg vandamál og
vísar til fjárfestinga sem sveitarfélagið
þurfi að ráðast í vegna uppbygging-
arinnar.
Nýr oddviti | Gústaf Jökull Ólafsson á
Reykhólum var kjörinn nýr oddviti Reyk-
hólahrepps til eins árs á síðasta fundi
hreppsnefndar. Egill Sigurgeirsson á
Mávavatni var endurkjörinn varaoddviti.
Gústaf Jökull kemur í stað Málfríðar Vil-
bergsdóttur á Hríshóli sem í apríl óskaði
eftir lausn í eitt ár frá störfum í hrepps-
nefnd af persónulegum ástæðum og þar
með oddvitastörfum. Fram kom í bréfi
hennar til hreppsnefndar að hún treystir
sér ekki til að gegna þeirri ábyrgð sem felst
í að starfa í hreppsnefnd.
Hreinsunardagarstanda nú yfir íStykkishólmi og
lýkur á morgun. Skipulags-
og byggingarnefnd bæj-
arins hvetur alla íbúana til
að leggja hönd á plóginn og
hjálpast að við að halda
Hólminum snyrtilegum.
Starfsmenn áhaldahúss
fara um og fjarlægja garða-
úrgang og rusl í pokum
sem standa við lóðarmörk.
Eftir ábendingu Um-
hverfishóps Stykkishólms
réðust nemendur í 8. og 9.
bekk grunnskólans í það
dag einn í vikunni að
hreinsa Fúlutjörn sem er
andapollur í útjaðri bæj-
arins. Fjöldi ónýtra bíl-
dekkja og annað drasl sem
setti ljótan svip á annars
fallegan stað var fjarlægt.
Þá fjarlægðu bæjarstarfs-
menn tank úr tjörninni, að
því er fram kemur á vef
Náttúrustofu Vesturlands.
Fúlatjörn
hreinsuð
Jón Sigurðsson íLundi á Völlumdvelur nú löngum
stundum yfir sauðburði,
eins og víðar er um þess-
ar mundir. Jón situr eins
og kóngur í ríki sínu á
garðabandi í hlöðunni í
Lundi þar sem komið hef-
ur verið fyrir haganlega
og vel smíðuðum sauð-
burðarstíum.
Jón rekur félagsbú í
Lundi ásamt Jóni Gunn-
ari syni sínum, og er það
eitt afurðahæsta bú
landsins og hefur einu
sinni verið hæst yfir land-
ið hvað afurðir varðar
samkvæmt skýrsluhaldi
sauðfjárræktarfélaganna
og var þá með með tæp
þrjátíu og sjö kíló af kjöti
eftir kind. Frjósemi fjár-
ins er einnig mikil í Lundi
og eru þeir feðgar með
liðlega tvö lömb fædd eft-
ir vetrarfóðraða á.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Kóngur í ríki sínu
Friðrik Stein-grímsson varðfimmtugur á dög-
unum og hélt hlöðuball í
ferðamannafjósinu í Vog-
um, en þangað mættu á
þriðja hundrað manns.
Hann skrifaði í gestabók-
ina:
Ég á tuginn sjötta senn
sigli eins og gengur
verð þá eins og elstu menn
sem ekkert muna lengur.
Í vísnaúrvali Ragnars
Inga Aðalsteinssonar frá
Vaðbrekku, „Ekki orð af
viti“, sem kom út á dög-
unum, yrkir hann um
prest, sem á í nokkrum
vandræðum með að muna
eftir smáatriðum sem
fylgja starfinu. „Við vor-
um að velta þessu fyrir
okkur eitt sumarið þegar
óvenjuheitt var í veðri,“
segir Ragnar Ingi og bæt-
ir við:
Hann er klerkur á heims-
mælikvarða
með kirkjunnar afstöðu harða.
Þó að minnið sé valt,
samt hann veit þetta allt, –
Það er verst ef hann gleymir
að jarða.
Af gleymsku
pebl@mbl.is
Fagridalur | Fíflarnir eru fljótir að opna sig
þegar sólin fer að skína og eru túnin sem gull-
slegin þessa dagana. Þótt fíflarnir séu hvorki
bændum né garðeigendum til annars en ama er
ekki hægt að segja annað en þeir séu fallegir
þar sem þeir vaxa í stórum gulum breiðum á
túnunum fyrir austan Vík í Mýrdal. Hekla
Björt Birkisdóttir naut þess til fulls að hoppa
og leika sér í fíflabreiðunni í góða veðrinu þeg-
ar hún kom í heimsókn á bæ í sveitinni.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Hekla Björt í gullnu túni
Leikur
MEGINNIÐURSTAÐA skýrslu um
menningarhús í Vestmannaeyjum er sú að
menningarhúsi verði komið upp í salthúsi
Ísfélags Vestmannaeyja hf. á horni Kirkju-
vegar og Strandvegar. Jafnframt að gerð
verði glerbrú yfir í hraunið þar sem komið
verði upp gosminjasafni neðanjarðar.
Andrés Sigmundsson, formaður bæjar-
ráðs, kynnti skýrsluna á blaðamannafundi í
vikunni og er sagt frá málinu á vef Frétta í
Eyjum. Fleiri hugmyndir eru reifaðar, þar
á meðal varðandi Höllina og nýbyggingu á
Stakkagerðistúni. Stefnt er að því að nefnd
um byggingu menningarhúss komi saman
til fundar í byrjun júní.
Ægir Páll Friðbertsson, framkvæmda-
stjóri Ísfélagsins, sagði við Fréttir að fé-
lagið hefði ekki fengið neitt tilboð í húsið en
forsvarsmenn fyrirtækisins væru reiðu-
búnir að athuga málið. „Við erum tilbúnir
að skoða sölu, bæði á salthúsinu og Imex-
húsinu. Við erum einnig opnir fyrir við-
ræðum varðandi fleiri hús, við eigum fullt
af fermetrum í Eyjum.“
Menning
í salthúsi
Ísfélagsins
RÚMENSKI píanóleikarinn Aladár Rácz
verður með tónleika í sal Borgarhólsskóla á
Húsavík föstudaginn 28. maí kl. 20, undir yf-
irskriftinni: „Dansar síð-
ustu alda“. Aðgangur er
ókeypis. Flutt verða
verk eftir Bach, Mozart,
Beethoven, Chopin,
Lizt, Stravinsky, Bart-
ók, Benjamin, Brubeck
og Sveinbjörn Svein-
björnsson. Sama efnis-
skrá verður flutt á tón-
leikum í Salnum í
Kópavogi hinn 3. júní og
síðan líka í Færeyjum í sumar.
Aladár Rácz er fæddur í Rúmeníu. Hann
stundaði nám í píanóleik við Georges
Enescu-tónlistarskólann í Búkarest en
framhaldsnám við Tónlistarháskólana í
Búkarest og Búdapest. Hann hefur leikið á
tónleikum víðs vegar um heiminn, leikið inn
á geisladiska og unnið til verðlauna fyrir
píanóleik í alþjóðakeppnum. Frá árinu 1999
hefur Aladár starfað sem tónlistarkennari
við Tónlistarskóla Húsavíkur, leikið með
ýmsum kórum og söngvurum á og einleik
með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.
Píanótónleikar
á Húsavík
Aladár Rácz
píanóleikari.
♦♦♦
Mínstund frett@mbl.is
Einbreiðum brúm fækkar | Brúar-
vinnuflokkur hefur að undanförnu unnið að
lagfæringu einbreiðra brúa í Öræfum. Sett
hafa verið ný brúargólf á Skaftafellsá,
Svínafellsá, Virkisá, Gljúfurá, Hólá og Stigá
og er því verki að verða lokið.
Suðurverk ehf. lauk um síðustu helgi að
setja hólk í Heiðarlækinn sem er spölkorn
sunnan við vegamótin í Skaftafell og með
þeirri framkvæmd hvarf ein af mörgum
einbreiðum brúm í Öræfum. Reynir Gunn-
arsson hjá Vegagerðinni segir í frétt á Sam-
félagsvef Hornafjarðar að vegafram-
kvæmdum í Öræfum verði væntanlega
lokið fyrir hvítasunnu.
HÉÐAN OG ÞAÐAN