Morgunblaðið - 27.05.2004, Blaðsíða 35
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2004 35
ÞEIR sem nærast á brjóstamjólk
sem ungbörn eiga síður á hættu að
fá hjartasjúkdóma, að því er bresk
rannsókn hefur leitt í ljós, en nið-
urstöðurnar eru birtar í lækna-
tímaritinu Lancet. Rannsóknin var
gerð á 200 unglingum sem höfðu
sem ungbörn tekið þátt í rannsókn
á fæðu ungbarna og sýndi því sam-
anburð, að því er fram kemur á vef
BBC.
Niðurstöðurnar eru að þau sem
fengu brjóstamjólk sem ungbörn
höfðu minna af slæmu kólesteróli í
líkamanum en þau sem fengu nær-
ingu úr pela sem ungbörn. Ungling-
arnir voru orðnir 13–16 ára þegar
þeir voru rannsakaðir aftur.
Dr. Atul Singhal, sem fór fyrir
vísindamönnunum, segir í greininni
í Lancet að niðurstöðurnar bendi til
þess að brjóstagjöf hafi mjög góð
áhrif á hjarta- og æðakerfið til
lengri tíma litið. Og vísindamenn-
irnir benda á að það geti verið
vegna þess að brjóstabörn vaxi
hægar en pelabörn, þar sem hraður
vöxtur í frumbernsku hefur áhrif á
líf barnsins og getur aukið líkur á
hjartasjúkdómum og offitu.
HEILSA
Góð áhrif
brjósta-
mjólkur á
hjartað
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
GULLSMIÐIR í versluninni Gull-
kistunni við Frakkastíg hafa nú bú-
ið til glænýja skúfhólka í tilefni af
aldarafmæli heimastjórnarfálkans.
Skúfhólkar, sem gerðir eru úr
silfri, eru notaðir á skotthúfur upp-
hluta og peysufata.
Dóra Jónsdóttir verslunareig-
andi segir algengt að búnir séu til
minjagripir tengdir ákveðnum at-
burðum í sögunni. „Sérstakir skúf-
hólkar voru t.d. búnir til í tilefni
þúsund ára byggðar á Íslandi til
minningar um konungskomuna
1874 og fálkaminjagripir voru
gerðir árið 1921 þegar Kristján X
kom til Íslands þegar rafstöðin við
Elliðaárnar var tekin í notkun.“
Þegar Ísland fékk heimastjórn
árið 1904 var gert sérstakt skjald-
armerki með íslenska fálkanum á
bláum fleti sem notað var allt til
ársins 1944 er Íslendingar fengu
sjálfstæði. Þá voru einnig búnir til
skúfhólkar með fálkamynd og því
þótti, að sögn Dóru, tilvalið að
koma með nýja skúfhólka núna í til-
efni aldarafmælis fálkans, en þeir
kosta 12.500 og 14.000 krónur í
versluninni.
„Það er mikill áhugi fyrir ís-
lensku þjóðbúningunum og þar með
er áhugi fyrir öllu búningasilfri.
Tuttugustu aldar nútíma upphlut-
urinn er algengastur nú til dags.
Svo koma peysufötin og aðrir eldri
búningar.“
HANDVERK |Aldarafmæli
Skúfhólkar: Á skotthúfur.
Morgunblaðið/Ásdís
Dóra Jónsdóttir: Verslunareigandi.
Fálkar í skúfhólkum
Bankastræti 3
sími 551 3635
www.stella.is
SNYRTIVÖRUR
Nýja kremlínan
„Golden Caviar“
frá BIODROGA