Morgunblaðið - 27.05.2004, Page 64
ÍÞRÓTTIR
64 FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLENSKI landsliðshópurinn í
knattspyrnu kemur saman til
æfinga í Manchester í dag – til
undirbúnings fyrir leiki gegn
Japan á sunnudaginn og Eng-
landi laugardaginn 5. júní.
Japanar komu til Manchester
á mánudaginn og hófu und-
irbúning sinn fyrir leikinn
gegn Íslandi á þriðjudag. Það
á að byrja að rigna í Man-
chester á morgun og er spáð
rigningu þar um sveitir fram í
næstu viku, jafnvel lengur.
Sven Göran Eriksson, landsliðs-
þjálfari Englandinga, verður ekki
með sína menn við æfingar í rign-
ingunni – hann er með enska lands-
liðshópinn í sól og sumaryl við æf-
ingar á eyjunni Sardiníu. Enski
landsliðshópurinn kemur á ný til
Englands um helgina, en England
og Japan mætast í Manchester á
þriðjudaginn kemur.
Englendingar æfa
í sólinni á Sardiníu
Michael Owen fagnar sigri á David
James og Wayne Rooney í smá-
bílakappakstri á Sardiníu.
Shaquille O’Neal og KobeBryant voru atkvæðamestir
heimamanna með 22 stig en
O’Neal tók einnig 17 fráköst. Kev-
in Garnett var stigahæstur í liði
Minnesota með 22 stig og Wally
Szczerbiak skoraði 21 stig. Leik-
menn Lakers tóku fljótt forystu í
leiknum og eftir að þeir komust yf-
ir 15:13 létu þeir forystuna aldrei
af hendi. Lakers var níu stigum yf-
ir í hálfleik en þegar fjórði leik-
hluti hófst munaði aðeins fimm
stigum á liðunum. Minnesota náði
ekki að brúa bilið og Lakers sigu
fram úr og sigruðu að lokum nokk-
uð örugglega.
Ráðist að O’Neal
Leikmenn Minnesota brugðu á
það ráð að brjóta stöðugt á Shaq-
uille O’Neal í síðari hálfleik í von
um að hann myndi misnota flest
vítaskot sín. O’Neal hitti úr 8 af 22
vítaskotum sínum en hann tók 19
þeirra í síðari hálfleik. „Vítanýt-
ingin er ekki góð hjá mér en ég
mun aldrei misnota öll vítaskotin,“
sagði O’Neal eftir leikinn.
Flip Saunders, þjálfari Minne-
sota, sagði að Minnesota myndi
halda áfram að brjóta stöðugt á
O’Neal ef það myndi auka líkurnar
á því að Minnesota sigraði í einvíg-
inu. ´
Kevin Garnett var ekki sáttur
við spilamennsku sína í leiknum.
„Ég lék alls ekki vel. Ég einbeitti
mér að varnarleiknum en eftir að
það voru dæmdar nokkrar villur á
mig náði ég mér ekki á strik,“
sagði Garnett.
Gary Payton, leikstjórnandi
Lakers, spilaði ágætlega en hann
var mjög slakur í fyrstu tveimur
leikjunum gegn Minnesota. Payton
skoraði 18 stig og gaf níu stoð-
sendingar.
Stöðugt brotið á
Shaquille O’Neal
LOS Angeles Lakers vann sigur á Minnesota Timberwolves á
heimavelli – 100:89 – í þriðja leik liðanna í úrslitum Vesturdeildar
NBA í körfuknattleik í fyrrinótt. Lakers er 2:1 yfir í einvígi liðanna en
liðið sem vinnur fyrr fjóra leiki leikur til úrslita um NBA-titilinn.
Næsti leikur liðanna fer fram í nótt í Los Angeles.
Jón heldur utan á fimmtudaginnásamt Guðmundi Karlssyni
landsliðsþjálfara, en hann hefur
jafnframt þjálfað
Jón síðan hann
flutti heim frá Sví-
þjóð í lok síðasta
árs. Þetta verður í
fyrsta sinn síðan samstarfi Jóns
Arnars við Gísla Sigurðsson þjálf-
ara lauk eftir ólympíuleikana í
Sydney fyrir fjórum árum sem Jón
Arnar hefur þjálfara með sér á
mótið í Götzis. „Það verður mikill
styrkur í því að hafa Guðmund
með, bæði til aðstoðar á mótinu og
eins til þess að sjá hvað þarf að
bæta. Eins veit ég að það verður
forvitnilegt fyrir Guðmund að
koma á þetta stóra mót í þessu
glæsilega umhverfi, það á örugg-
lega margt eftir að koma honum á
óvart,“ segir Jón Arnar sem segir
að þeir staðir séu vandfundnir sem
þægilegra sé að keppa á en mótið í
Götzis. Þar setti hann einmitt nú-
verandi Íslandsmet í tugþraut,
8.573 stig, fyrir sex árum.
Jón Arnar hefur þegar náð bæði
A- og B-lágmarki til þátttöku á ól-
ympíuleikunum í Aþenu. A-lág-
markið er 8.000 stig en B-lágmark-
ið 300 stigum lægra. Hann náði
tilskildu lágmarki í fyrrasumar.
Alls eru 30 keppendur skráðir til
leiks í tugþrautinni og nærri því
annar eins fjöldi í sjöþraut kvenna
sem keppt er í samhliða. „Það eru
óvenjumargir keppendur að þessu
sinni og það helgast af ólympíu-
leikunum í sumar. Margir eiga eft-
ir að ná lágmarki og vilja freista
þess að ná því sem fyrst til þess að
geta hafið undirbúning fyrir leik-
ana. Ég man að á síðasta ólympíu-
ári voru 34 keppendur í tugþraut-
inni í Götzis sem nú er háð í
þrítugasta sinn.
Meðal þeirra sem keppa við Jón
á mótinu eru margir þeirra sem
hann hefur glímt við á helstu stór-
mótum síðustu ára. Má þar nefna
heimsmethafann Roman Sebrle frá
Tékklandi, heimsmeistarann Tom
Pappas frá Bandaríkjunum, ólymp-
íumeistarann Erki Nool frá Eist-
landi, fyrrverandi heimsmethafa
frá Tékklandi, Tomás Dvórák,
Ungverjana Attila Zsivoczky og
Zsolt Kürtösi, Þjóðverjann Sebast-
ian Knabe, að ógleymdum Rúss-
anum Lev Lobodin sem er aldurs-
forseti þrautinnar ásamt Jóni en
báðir eru þeir fæddir 1969. „Við
verðum þarna gömlu mennirnir, ég
og Lobodin, og reynum að fylgja
þeim yngri eftir,“ sagði Jón Arnar
í gamansömum tón.
Jón Arnar segist reikna með að
keppa á einu tugþrautarmóti til
viðbótar fyrir ólympíuleikana, það
er alþjóðlega mótið í Ratingen í
Þýskalandi 26. og 27. júní en
helgina á undan verður hann í eld-
línunni með íslenska landsliðinu í
Evrópubikarkeppninni sem fram
fer á Laugardalsvelli. „Síðan tek
ég þátt í landsmótinu í júlí, ætli að
það verði ekki síðasta stóra mótið
sem ég tek þátt í fyrir ólympíu-
leikana í Aþenu, ég reikna með
því,“ segir Jón Arnar sem hefur
sett sterkan svip á landsmót und-
anfarinn hálfan annan áratug, enda
verið sigursæll.
„Nú er Götzis-mótið framundan
og ég fer til þess með jákvæðum
huga og hyggst reyna að gera mitt
besta. Það er alveg ljóst að þetta
verður skemmtilegt mót, það er
alltaf gott að keppa í Götzis,“ segir
Jón Arnar Magnússon tugþraut-
armaður að lokum.
Morgunblaðið/Golli
Jón Arnar Magnússon verður enn og aftur á ferðinni í Götzis í Austurríki.
Tugþrautarkappinn Jón Arnar Magnússon keppir í
tugþraut í ellefta sinn í Götzis í Austurríki um helgina
„Alltaf gott að
keppa í Götzis“
„ÉG HEF það mjög fínt en við verðum að sjá til hvað gerist þegar á
hólminn verður komið. Ég hef lagt talsvert inn í vetur með stífum
æfingum,“ segir Jón Arnar Magnússon, Íslandsmethafi í tugþraut
úr Breiðabliki, sem keppir um helgina á alþjóðlega tugþrautar-
mótinu í Götzis í Austurríki. Þetta verður í ellefta sinn sem Jón tek-
ur þátt í mótinu og svo kann að fara að það verði jafnframt í það síð-
asta þar sem Jón hefur í hyggju að rifa seglin að loknum ólympíu-
leikunum í Aþenu í sumar.
Eftir
Ívar
Benidiktsson
OPNA CARLSBERG MÓTIÐ!
á Svarfhólsvelli 29. maí 2004
Leikfyrirkomulag: Texas Scramble
Skráning á golf.is/gos eða í síma 482 3335
Verðlaun fyrir 4 efstu sætin
Golfklúbbur Selfoss
OPNA KYNNISFERÐAMÓTIÐ
Laugardaginn 29. maí
PUNKTAKEPPNI MEÐ OG ÁN FORGJ.
hámarksforgj. karlar 24. konur 28.
Ræst út kl.8:00 - 15:00
GLÆSILEG VERÐLAUN Í BOÐI
Nándarverðlaun á 16. braut í fyrsta höggi
og á 18. braut í öðru höggi.
Skráning á www.golf.is og í síma 421 4100
1.sæti með forgj.
Flug fyrir einn á einhvern af áfangastöðum Icelandair í Evrópu
2.sæti með forgj.
Flug f. tvo á einhvern af áfangastöðum Fluglélags íslands.
3.sæti með forgj. Gisting f. tvo á Nordica hótelinu.
1.sæti án forgj.
Flug fyrir einn á einhvern af áfangastöðum Icelandair í Evrópu.
2.sæti án forgj. Bílaleigubíll frá bílaleigu Flugleiða Hertz í tvo daga.
3.sæti með forgj. Gisting f. tvo á Nordica hótelinu.