Morgunblaðið - 28.06.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ENDURKJÖRINN FORSETI
Ólafur Ragnar Grímsson var end-
urkjörinn forseti Íslands til næstu
fjögurra ára í kosningum sem fram
fóru á laugardag. Hann hlaut 90.662
atkvæði, eða 85,6% gildra atkvæða.
Alls skiluðu 20,7% þeirra sem mættu
á kjörstað auðu atkvæði. Mótfram-
bjóðendur Ólafs hlutu mun minna
fylgi, Baldur Ágústsson hlaut 12,3%
gildra atkvæða og Ástþór Magn-
ússon 1,9%. Á kjörskrá voru 213.553
manns.
Alls voru 27.627 auð atkvæði.
Aldrei fyrr hafa svo mörg auð at-
kvæði verið talin í kosningum á Ís-
landi. Forystumenn stjórn-
málaflokkanna túlka niðurstöðu
kosninganna á ólíkan hátt.
Samstaða á fundi NATO
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir leiðtogafund Atlantshafs-
bandalagsins sem hefst í Istanbúl í
dag mjög þýðingarmikinn. For-
sætisráðherra og Halldór Ásgríms-
son utanríkisráðherra sitja fundinn
fyrir Íslands hönd. Davíð segir að
spenna hafi verið innan NATO en að
nú sé að skapast samstaða og sátt
um aðgerðir gagnvart Saddam
Hussein í Írak. „Nú virðist vera að
skapast heilmikil samstaða og sátt
um að þær aðgerðir þurfi ekki leng-
ur að ræða í sjálfu sér,“ segir hann.
Óeining sauðfjárbænda
Formaður Landssamtaka sauð-
fjárbænda, Jóhannes Sigfússon, seg-
ir að búvörusamningurinn valdi því
m.a. að það ekki sé eining meðal
sauðfjárbænda. Segir hann þá
komna í tvær fylkingar. Um fimmtíu
fulltrúar sitja aðalfund Lands-
samtaka sauðfjárbænda sem hófst í
gær. Stendur hann yfir í tvo daga.
Kosið í Kanada
Þingkosningar fara fram í Kanada
í dag og benda skoðanakannanir til
þess, að Frjálslyndi flokkurinn, sem
verið hefur við völd í tíu ár, muni
missa þingmeirihluta sinn. Líklegast
er talið að enginn flokkur nái meiri-
hluta og að minnihlutastjórn verði
mynduð.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Minningar 24/27
Viðskipti 13 Hestar 28
Erlent 14/15 Dagbók 30/31
Minnstaður 16/17 Listir 32/33
Daglegt líf 18 Fólk 34/37
Umræðan 19/23 Bíó 34/37
Bréf 23 Ljósvakar 38
Forystugrein 20 Veður 39
* * *
Kynning – Morgunblaðinu í dag fylgir
auglýsingablaðið „Esso-mótsblað-
ið“.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnar-
fulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkj-
ustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að leið-
togafundur Atlantshafsbandalagsins sem hefst í
Istanbúl í dag sé mjög þýðingarmikill. Forsætis-
ráðherra og Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra sitja fundinn fyrir Íslands hönd.
Heilmikil samstaða virðist vera að skapast
„Þetta er mjög áhugaverður leiðtogafundur
NATO fyrir margra hluta sakir. Bandalagið hef-
ur verið stækkað og fleiri þjóðir eru að koma inn
með formlegum hætti. Í annan stað hefur verið
spenna innan Atlantshafsbandalagsins. Þótt
flestar þjóðir bandalagsins hafi stutt aðgerðir
gagnvart Saddam Hussein og í Írak voru all-
margar og stórar þjóðir í andstöðu við þær að-
gerðir. Nú virðist vera að skapast heilmikil sam-
staða og sátt um að þessar aðgerðir þurfi ekki
lengur að ræða í sjálfu sér. Nú sé verkefnið að
tryggja þá lýðræðisþróun, sem innrásin var for-
senda fyrir að gæti skapast, þ.e. að koma Sadd-
am Hussein frá. Komin er beiðni frá forsætisráð-
herra Íraks um aðstoð Atlantshafsbandalagsins
og ég tel víst að bandalagið taki vel í þá beiðni, að
minnsta kosti að verulegum hluta til,“ segir
Davíð.
Forsætisráðherra segir líka margt benda til
þess að það sé að verða meiri sátt á milli Banda-
ríkjamanna og Evrópumanna.
– Hver er afstaða íslenskra stjórnvalda til
þessarar beiðni forsætisráðherra Íraks?
„Við teljum að það sé sjálfsagt og eðlilegt að
Atlantshafsbandalagið taki jákvætt í beiðni af
þessu tagi. Við höfum lagt okkar af mörkum til
að mynda í Afganistan, m.a.s. þannig að það er til
þess tekið að lítil þjóð eins og okkar hafi lagt það
mikið af mörkum og tekið að sér jafnerfið verk-
efni og við höfum gert í Kabúl og áður í Pristina.“
Nýr þáttur hafinn í samstarfinu
Halldór Ásgrímsson sótti í gær fund varn-
armálaráðherra NATO. Hann segir að á þeim
fundi hafi fyrst og fremst verið rætt um end-
urskipulagningu heraflans, og einnig um hvernig
hraðlið Atlantshafsbandalagsins gæti tryggt að
kosningar í Afganistan gætu farið vel fram.
Halldór segir að á leiðtogafundinum í Istanbúl
verði lögð mikil áhersla á að ná niðurstöðu um að
veita Afganistan nægilega hjálp. „Það verður
fundur með Karsai, forseta Afganistans, á þriðju-
daginn og bandalagið verður að geta svarað fyrir
um það hvernig það hyggst tryggja að kosning-
arnar geti farið fram með eðlilegum hætti.
Síðan verður fjallað um málefni Íraks, og það
er komin samstaða um að Atlantshafsbandalagið
taki þátt í þjálfun hersins og lögreglunnar, og
það má segja að þar með sé hafinn nýr þáttur í
samstarfinu um Írak. Með þessu hafa allar
bandalagsþjóðirnar samþykkt að standa að þess-
um málum, á grundvelli samþykktar Sameinuðu
þjóðanna, og þeirri staðreynd að Írakar eru sjálf-
ir að taka við sínum málum. Mér finnst að menn
séu núna hættir að tala mikið um fortíðina og líti
til framtíðar og það er mikilvægt að líta fyrst og
fremst til hennar,“ segir Halldór.
Framkvæmdastjóri NATO minnti
á Ísland á fundi með Bush
„Ég átti stutt samtal við framkvæmdastjóra
Atlantshafsbandalagsins fyrir fundinn, og hann
var þá nýkominn af tvíhliða fundi með Bush for-
seta. Við áttum við hann mjög gagnlegar við-
ræður á Íslandi um daginn, og ég veit að hann
minnti á Ísland á þessum fundi, sem ég tel að
hafi verið mjög mikilvægt, og við erum honum
þakklátir fyrir,“ sagði utanríkisráðherra.
Forsætisráðherra og utanríkisráðherra sitja leiðtogafund NATO í Istanbúl
Mikil samstaða virðist
vera að skapast um Írak
SAMBAND ungra framsóknar-
manna samþykkti á landsfundi sín-
um um helgina ályktun um að hefja
eigi aðildarviðræður við Evrópusam-
bandið.
Í ályktuninni segir m.a. að þótt
EES-samningurinn hafi í meginat-
riðum nýst íslenskum hagsmunum
vel og leitt til mikilla hagsbóta í þágu
einstaklinga og fyrirtækja hafi hann
ekki þróast nægilega í takt við þær
breytingar sem orðið hafa á sam-
starfi Evrópuríkja á þessu tímabili.
Svo segir í ályktuninni:
„Því telur þing SUF að það þjóni
hagsmunum Íslands að hefja nú þeg-
ar vinnu við samningsmarkmið með
aðild að ESB í huga […]. Huga þarf
sérstaklega að hagsmunum Íslend-
inga í landbúnaðar- og sjávarútvegs-
málum.“ Jafnframt segir að án við-
unandi niðurstöðu úr samnings-
viðræðum leggist SUF alfarið gegn
inngöngu í ESB.
Áherslubreyting
Matthías Imsland, formaður Fé-
lags ungra framsóknarmanna í
Reykjavík suður, segir að ályktunin
sé ákveðin áherslubreyting og orða-
lag hennar mun skýrara en fyrri
ályktanir sambandsins um Evrópu-
mál.
„Fyrri ályktanir SUF hafa kveðið
á um að hefja eigi undirbúnings-
vinnu um samningsmarkmið Íslands
en ekki að hefja eigi aðildarviðræð-
ur.“
Samband ungra framsóknarmanna
Vill hefja viðræð-
ur um ESB-aðild
SUMARHÁTÍÐ færeyskra daga fór fram í
Ólafsvík um helgina, í sjötta sinn. Var dag-
skráin með fjölbreyttu sniði að venju, jafnt fyr-
ir börn sem fullorðna. Mikil áhersla var lögð á
að kynna menningu Færeyja, eins og nafn dag-
anna ber með sér. Gestir gátu til að mynda
bragðað á skerpukjöti, frikadellum og rast-
kjöti.
Helga Braga var meðal gesta og sýndi maga-
dans, Örvar Kjartansson spilaði á harmonikku
og Maggi mjói úr Latabæ skemmti yngstu kyn-
slóðinni. Þá spilaði Klakabandið á bryggjuballi
og í félagsheimilinu Klifi fór fram dansleikur
með færeysku hljómsveitinni Róbert og fé-
lögum.
Morgunblaðið/Alfons
Vel heppnaðir færeyskir dagar