Morgunblaðið - 28.06.2004, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 28.06.2004, Blaðsíða 23
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2004 23 BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is NÝLEGA var þess getið fjálglega í fjölmiðlum, að Íslendingar hefðu tekið að sér stjórn flugvallarins í Kabúl í Afghanistan. Þar á svo- nefnd íslensk friðargæsla að sjá um framkvæmd mála og sjálfur Halldór Ásgrímsson utanrík- isráðherra var mættur á staðinn til að hefja formlegheitin upp í efstu hæðir. Allt fór fram með hinni mestu prýði og talibanar létu hvergi á sér kræla, enda hafa þeir kannski vitað að Íslendingar væru mættir til leiks. Á myndum sem fylgdu fréttum af þessum mikilfenglega út- þensluatburði íslensks framtaks, sást gjörla að íslensku frið- argæsluliðarnir voru í stríðs- felubúningum, og með byssur og önnur nauðsynleg friðarskilríki hangandi utan á sér, að ógleymd- um íslenska fánanum, ísaumuðum á múnderinguna. Einhverjum kann að hafa fundist sem þessir fórnfúsu menn hefðu getað verið klipptir út úr venjulegri tímarits- grein um bandaríska sér- sveitamenn, en það er mesti mis- skilningur að hugsa þannig – þetta voru áreiðanlega ekta Ís- lendingar. Og til þess að fyr- irbyggja enn stærri misskilning, skal það tekið fram, að menn verða að skilja það nú til dags, að það tekur enginn lengur mark á friðargæsluliði sem er óvopnað og í hvítum klæðum eða með rauðan kross í farteskinu. Menn verða að vera alvopnaðir og í stríðsbún- ingi, svo að fólk fáist til að trúa því að þeir séu tilbúnir í stríð fyr- ir friðinn. Og af þessum augljósu ástæðum voru umræddir Íslend- ingar, friðargæsluliðarnir okkar, fulltrúarnir frá hinu herlausa Ís- landi, klæddir eins og aðstæður heimtuðu. Og talibanarnir skildu þetta alveg rétt – þeir héldu sig því fjarri herlegheitunum og eng- in hryðjuverk voru framin til að spilla hinni hátíðlegu athöfn á flugvellinum í Kabúl. Íslending- arnir stóðu fyrir sínu. Það verður áreiðanlega ekki erfitt að koma íslensku sérsveit- unum í gang þegar þar að kemur. Æfður mannafli ætti þá vafalaust að geta verið fyrir hendi. En þó óttast ég að það yrði Bjarnar- greiði við íslenska lýðveldið og eyjuna okkar hvítu, að koma slíku fargani af stað. En varðandi skrautsýninguna á flugvellinum í Kabúl, er ég tals- vert búinn að velta því fyrir mér hvað hefði getað gerst, ef Halldór okkar Ásgrímsson hefði verið klæddur á sama hátt og frið- argæsluliðarnir hans? Gallinn var nefnilega sá að hann var, af einhverjum und- arlegum ástæðum, borgaralega klæddur. Ég held að það hljóti að hafa verið alvarleg mistök. Stríðsherrar eins og hann og Davíð eiga náttúrulega að vita hvernig þeir eiga að klæða sig við svona tækifæri. Það skiptir auð- vitað höfuðmáli að kunna að dressa sig upp með stæl, eins og Megas, málsins besti vinur, myndi eflaust orða það. Það er völlur á Halldóri Ás- grímssyni við ýmis tækifæri og hefði hann staðið þarna á vell- inum, klæddur á þann hátt sem ætti að hæfa íslenskum stríðs- herra í byrjun 21.aldar, gæti ég vel ímyndað mér að talibanarnir hefðu gert sér grein fyrir því að þeir ættu enga möguleika á sigri þaðan í frá! Kannski hefði Halldór getað tryggt endanlegan frið í Afganist- an, ef hann hefði kunnað að klæða sig eftir aðstæðum á þessu sögulega augnabliki ? RÚNAR KRISTJÁNSSON, Bogabraut 21, 545 Skagaströnd. Íslensk friðargæsla í stríðsformi Frá Rúnari Kristjánssyni: JAFNINGJAFRÆÐSLAN er fræðslu- og forvarnarverkefni fyr- ir ungt fólk. Jafningjafræðslan var stofnuð af ungu fólki árið 1996 og hefur verið starfandi síðan. Jafningja- fræðslan hefur þó þróast mikið á þeim tíma og tekið stöðugum breytingum enda mikilvægt að vera í takt við tíðarandann. Í dag er unnið að fræðslustarfi á meðal ungs fólks allan ársins hring, auk þess sem staðið er fyrir vímulausum uppákomum og út- gáfu fræðsluefnis. Byggt er á hugmyndafræðinni „ungur fræðir ungan“ og í fræðslustarfinu er unnið út frá hugtakinu sjálfsmynd. Að verkefninu kemur ungt fólk á aldrinum 17–25 ára sem hefur fengið þjálfun til þess að stýra umræðum um málefni sem eru of- arlega í huga ungs fólks í dag. Af hverju sjálfsmynd? Sjálfsmynd má skilgreina sem þær hugsanir einstaklingsins sem snúa að honum sjálfum. Hugtakið felur því í sér alla þá þætti sem greina hann frá öðrum og móta hann sem persónu að hans mati. Sjálfsmyndin er að mótast alla ævi og því á sjálfsmyndarumræða jafnt erindi til allra. Eitt af mark- miðum Jafningjafræðslunnar er að styrkja einstaklinginn sem per- sónu og hvetja hann til þess að takast á við erfiðar aðstæður á já- kvæðan hátt, án þess að nota vímuefni sem lausn á vandamálum. Lykillinn að því er bætt sjálfs- mynd. Sterk sjálfsmynd stuðlar að aukinni velgengni og vellíðan og er því besta veganestið sem ungt fólk getur fengið út í lífið. Með því að styrkja sjálfsmyndina er unnið að forvörnum gegn óábyrgri áfeng- isneyslu, vímuefnaneyslu, ótíma- bæru brottfalli úr skóla, óábyrgri kynlífshegðun, ofbeldi o.fl. Jafningjafræðslan á ferð og flugi Jafningjafræðslan starfar að mik- ilvægu málefni – forvörnum unga fólksins. Okkur er mikið í mun að vekja þjóðina til umhugsunar um okkar málefni. Jafningjafræðslan stendur því fyrir skemmtilegum uppákomum í sumar. 26. júní nk verður árleg götuhátíð Jafningja- fræðslunnar haldin í miðbæ Reykjavíkur, nánar tiltekið á Lækjartorgi. Hvetjum við alla til þess að taka þátt í gleðinni með okkur. DILJÁ MIST EINARS- DÓTTIR, leiðbeinandi í Jafningja- fræðslunni, Hverafold 142, 112 Reykjavík. Jafningjafræðslan Frá Diljá Mist Einarsdóttur: Diljá Mist Einarsdóttir FORSÍÐUFRÉTT Morg- unblaðsins á kjördag vakti mikla athygli. Þar skýrði blaðið les- endum sínum frá því í tveggja hæða stríðs- fyrirsögn að nú yrðu auð atkvæði birt sér- staklega í fyrsta sinn. Ljóst er að Morg- unblaðið var með þessu að hvetja kjós- endur til að setja auð- an seðil í kjörkassann og tók þar með rammpólitíska af- stöðu. Fréttin í „frétt“ Morgunblaðsins um auðu atkvæðin er ekki merkileg, og við eðlilega fréttavinnslu hefði hún lent í undirfyrirsögn eða til dæmis í eindálki á baksíðu. Reynd- ar eru áhöld um það hvort „frétt“ Morgunblaðsins var rétt eða ekki. Auð atkvæði hafa alltaf verið talin sérstaklega, þótt oft séu þau flokk- uð með ógildum atkvæðum við kynningu talna á kosninganótt. Heimildarmaður blaðsins, Þórunn Guðmundsdóttir, fulltrúi Sjálfstæð- isflokksins í kjörnefnd í Reykjavík- urkjördæmi norður, virðist ann- aðhvort ekki vera vel að sér um þær reglur og venjur sem hafa gilt við talningu atkvæða eða þá að ónákvæm- lega er eftir henni haft. En þetta er aukaatriði. Aðalatriðið er það að með „fréttinni“ brýtur Morgunblaðið mikilsverða reglu við blaðaútgáfu – reglu sem það hefur sjálft margsinnis sett fram sem eigið boðorð: Að skoðanir ritstjóra og þarmeð blaðsins komi fram í sérstökum ritstjórn- argreinum, en fréttaflutningur all- ur sé faglegur og ekki í neinum tengslum við pólitík ritstjórans. Morgunblaðið hefur að sjálf- sögðu fullan rétt til að taka af- stöðu til þjóðmála, til að beita sér gegn tilteknum frambjóðanda í forsetakosningum, til að hvetja fólk til að skila auðu eða sitja heima. Nú blandar blaðið hins- vegar saman pólitík og fréttaflutn- ingi á grófari hátt en lengi hefur tíðkast. Með því er það að svindla á lesendum sínum – og lítilsvirðir um leið sína eigin starfsmenn, sem eru flestir hverjir færir og virtir fagmenn. Nú á Morgunblaðið tvo kosti. Annar er að hverfa opinberlega frá eigin reglu um að blanda ekki saman fréttum og pólitík. Hinn er að biðjast afsökunar. Morgunblaðið svindlar Mörður Árnason skrifar um forsetakosningarnar ’Nú á Morgunblaðið tvokosti. Annar er að hverfa opinberlega frá eigin reglu um að blanda ekki saman fréttum og pólitík. Hinn er að biðjast afsök- unar.‘ Mörður Árnason Höfundur er alþingismaður. ENN rita lærðir menn ólærðar greinar um nytsemi orkuútflutn- ings um sæstreng frá Íslandi. Virðist mönnum þá ganga það eitt til að gera lítið úr málm- framleiðslu á Íslandi, en enn eimir eftir af hinum geysihörðu umræðum þessa efnis á dögum Viðreisn- arstjórnarinnar á 7. áratug 20. aldar. Er stundum vitnað til Noregs í þessu sam- bandi, sem er mesta málmútflutningsland Evrópu. Noregur er tengdur Danmörku um sæstrengi á botni Skagerak og við Svíþjóð um há- spenntar loftlínur. Um þessar tengingar selur Noregur ódýra af- gangsorku í góðum vatnsárum og kaupir tiltölulega dýra orku, þeg- ar orku- eða aflskortur er í Nor- egi. Aldrei hefur komið til mála í Noregi að reisa virkjanir til að flytja forgangsorku til útlanda. Friðun vatnsfalla Þó að Norðmenn hafi aðeins virkj- að um 70% af því, sem hagkvæmt er talið af vatnsafli þar í landi, standa þeir samt frammi fyrir orku- og aflskorti. Virkjunarleyfi fást ekki vegna gamall og nýrra friðunarákvæða og nýting- artakmarkana. Ágreiningur er líka um hvort leyfa á að reisa í Noregi jarðgaskynt orkuver. Á meðan flytja Norðmenn inn raforku, sem framleidd er í dönskum og pólsk- um kolakyntum verum. Þannig snýst umhverfisverndarstefna iðu- lega upp í andhverfu sína, þegar hnattræn sjónarmið verða afskipt. Hérlendis hefur nú komið fram tillaga um að fara inn á braut frið- unar vatnsfalla með því að fella Jökulsá á Fjöllum alfarið inn und- ir þjóðgarð norðan Vatnajökuls. Með vísun til stöðu virkjanamála í Noregi er hætt við að slík ráð- stöfun mundi takmarka möguleika komandi kynslóða til auðlindanýt- ingar á þessu svæði. Þingeyj- arsýslurnar eru svo ríkar að vatnsafli og jarðvarma að duga mun til framleiðslu vetnis á alla bíla, skip og flugvélar Íslendinga í vetnissamfélagi framtíðarinnar. Jarðvarminn einn mundi ekki duga til, heldur þyrfti að beizla orku Jökulsár á Fjöllum að ein- hverju leyti. Með víðsýni að leið- arljósi við land- og auðlindanýt- ingu gætu Þingeyjarsýslurnar orðið eins konar orku- miðstöð samgöngu- tækja framtíðarinnar. Húsavík yrði þá út- skipunarhöfn vetnis, þaðan sem því yrði dreift á hafnirnar um- hverfis landið. Engu er líkara en gagnrýni á gerð miðl- unarlóna hérlendis dragi dám af að- stæðum erlendis, þar sem fólk er sums staðar flutt nauðung- arflutningum af lóns- stæðum, menning- arverðmæti fara á kaf, eða skóglendi lendir undir vatni. Það er þó mat margra, að öll miðl- unarlón á Íslandi hafi heppnazt vel, þau auðgi umhverfi sitt og auki fjölbreytni náttúrunnar, þeg- ar öllu er á botninn hvolft. Þó að allt það vatnsafl og gufu- afl, sem nú er talið hagkvæmt að virkja á Íslandi, verði beizlað, mun innan við 5% af miðhálendinu (=40 000 km2 ) lenda innan „áhrifasvæðis“ virkjana, þ.e.a.s. miðlunarlóna og mannvirkja. Verndar-, útivistar- og beitarsvæði mun þá nema yfir 90% af miðhá- lendinu. Það hlýtur þess vegna að vera svigrúm fyrir hendi til að leyfa virkjunartilhögunum framtíð- arinnar að fara í lögformlegt um- hverfismat, þegar áform vakna um slíkt. Andvirði orkuvinnslu vegna vetnisframleiðslu framtíðarinnar verður ekki minna en núverandi andvirði eldsneytisinnflutnings eða um 20 milljarðar kr. á ári. Það jafngildir tekjum af 200 þús. er- lendum ferðamönnum, en megnið af þeim tekjum brennur hins veg- ar upp í eldsneytiskaupum og fjár- magnskostnaði vegna farartækja, sem þarf til að flytja þá til lands- ins og á skoðunarstaði innanlands. Iðnaðar- uppbygging Á síðastliðnum 10 árum hefur að tilstuðlan Alþingis fyrir frum- kvæði ríkisstjórnar verið lyft Grettistaki við iðnvæðingu lands- ins. Uppbygging orkukræfs iðn- aðar hefur á þessu tímabili knúið hagvöxt, sem á sér vart sinn líka í Evrópu vestan landamæra Rúss- lands. Við það að nota raforku frá íslenzkum orkuverum til álfram- leiðslu á Íslandi, verður til virð- isauki innanlands, sem jafngildir hærra orkuverði en nemur heild- söluverði raforku í Evrópu hingað til og líklega um ókomna tíð. Með stækkun ESB og vandræðum Evr- ópusambandsins við að uppfylla Kyoto-samkomulagið eru vindar nú teknir að blása kjarn- orkuverum í vil á ný. Finnar hafa þar riðið á vaðið og ákveðið að reisa 1.500 MW kjarnorkuver til viðbótar kjarnorkuverum, sem fyrir eru í Finnlandi. Stofnkostn- aður kjarnorkuvers, sem hannað er samkvæmt öryggisstöðlum ESB, er á bilinu 1.500–2.000 USD/ kW, og nemur fjárfestingarhlutinn um 70% af kostnaðarverði. Reikn- að heildarkostnaðarverð raforku frá slíku kjarnorkuveri er 36 mill/ kWh eða um 2,6 kr/kWh. Stofn- kostnaður kolakyntra raforkuvera er aðeins um 1.000 USD/kW og gaskyntra enn lægri. Þess vegna má ætla, þrátt fyrir koltvíildis- skatt í framtíðinni, að meðal heild- söluverð frá orkuveri í Evrópu sé og verði undir 36 mill/kWh miðað við núverandi verðlag. Hins vegar má ætla að kostn- aðarverð íslenzkrar raforku sem komin væri um sæstreng til Evr- ópu og tilbúin til afhendingar inn á stofnkerfi þar, muni nema tvö- földu meðaltals kostnaðarverði frá orkuverum Evrópu eða yfir 60 mill/kWh. Það hníga þess vegna öll rök til þess fyrir Íslendinga að virkja orkuauðlindir sínar jafnt og þétt og að nýta þær innanlands til framleiðslu útflutningsvara. Iðnaðarumsvifin knýja hagvöxtinn Bjarni Jónsson fjallar um efnahagsmál ’Það hníga þess vegnaöll rök til þess fyrir Ís- lendinga að virkja orku- auðlindir sínar jafnt og þétt og að nýta þær inn- anlands til framleiðslu útflutningsvara.‘ Bjarni Jónsson Höfundur er verkfræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.