Morgunblaðið - 28.06.2004, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.06.2004, Blaðsíða 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2004 13 Barmmerki við öll tækifæri Fyrir fundi, ráðstefnur og ættarmót Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is Barmmerkin fást í mörgum litum sem bjóða upp á flokkun ættartengsla þegar ættarmót er haldið. Snúrur í hangandi merki Vörunr. 1033 Vörunr. 1020 K Vörunr. 1025 K Vörunr. 1018 K Hægt er að velja á milli þess að hafa snúru, hangandi klemmu eða klemmu og nælu á baki bammerkis. Prentum á barmmerkin ef okkur eru send nöfnin í Excel skjali. Pappírinn kemur rifgataður í A4 örkum, fyrir þá sem vilja prenta sjálfir. Stærðir á barmmerkjum. Vörunúmer hæð* breydd 1018 K 3,5 7,5 cm 1020 K 4,5 7,5 cm 1025 K 6 9,5 cm 1033 6,5 9,5 cm 560 6000 | landsbanki.is Banki allra landsmanna Í SL EN SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S L BI 2 49 06 0 6/ 20 04 Í SL EN SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S L BI 2 49 06 0 6/ 20 04 Landsbanki Íslands hf. Skráningaryfirlýsing - júní 2004 Skráningarlýsingin er gefin út vegna tveggja hlutafjárhækkana sem átt hafa sér stað í Landsbanka Íslands hf. Hlutafé Landsbankans var hækkað um 654.296.379 krónur að nafnverði þann 28. ágúst 2003 og var hækkunin skráð í Kauphöll Íslands hf. þann 5. september 2003. Þann 12. mars 2004 var hlutafé hækkað um 600.000.000 krónur að nafnverði og var hið nýja hlutafé skráð í Kauphöll Íslands hf. þann 23. mars 2004. Þar sem hlutafé Landsbankans hefur verið hækkað samtals um meira en sem nemur 10% af heildarhlutafé á síðastliðnum 12 mánuðum ber bankanum að gefa út skráningarlýsingu samkvæmt 1. gr. a-lið 3. tl. viðauka IV við reglugerð nr. 434/1999. Allt útgefið hlutafé Landsbankans er skráð á Aðallista Kauphallar Íslands undir auðkenninu LAIS. Skráningarlýsing liggur frammi hjá Landsbankanum, Hafnarstræti 5, 3. hæð, 155 Reykjavík, sími 560-6000. Einnig má nálgast skráningarlýsingu á vef Landsbankans www.landsbanki.is ● ÞÖRF virðist á átaki til að ná metnaðarfullum útgjaldamark- miðum fjárlaga, að því er fram kemur í nýútkomnum Hagvísum Seðlabankans. Þar segir að útgjöld ríkisins hafi á fyrstu fjórum mánuðum ársins vaxið um rúmlega 2% umfram verð- lag, en í fjárlögum fyrir árið 2004 hafi verið stefnt að um það bil 3% lækkun útgjalda miðað við fjáraukalög fyrir síðasta ár. Þessar hlutfallstölur miðast við útgjöld með bókhalds- leiðréttingum en án vaxta. Ef aðeins er leiðrétt fyrir breyt- ingum á bókun ríkisútgjalda og vextir hafðir með hafa gjöldin lækkað örlítið að raungildi. Meira en öll lækkunin stafar af lækkun vaxtagjalda, að því er segir í Hag- vísum. Í Morgunkorni greiningardeildar Íslandsbanka segir að minna að- hald í ríkisfjármálum en stefnt hafi verið að í fjárlögum muni valda því að aukinn þungi hagstjórnarinnar muni hvíla á herðum Seðlabank- ans og því muni þurfa að hækka stýrivexti meira en ella. Þörf á átaki í ríkisútgjöldum ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● VEFPÓSTÞJÓNUSTA Microsoft, Hotmail, mun seinna í sumar ganga í hóp þeirra vefpóstfyrirtækja sem auka munu geymslupláss notenda. Geymslupláss gjaldfrjálsrar þjón- ustu verður 250 megabæt í stað 2 megabæta nú. Gegn greiðslu má auka plássið í tvö gígabæti. Blake Irving, varaforstjóri og yf- irmaður netþjónustudeildar fyrirtæk- isins, segir notendur hafa mun meiri áhyggjur af ruslpósti og ör- yggi tölvupósts en af geymsluplássi og í næsta mánuði mun Microsoft styrkja veiruvarnarþjónustu sína. Þessar aðgerðir Hotmail eru svar við svipuðum hækkunum á geymsluplássi hjá öðrum, s.s. Yahoo, í kjölfar frétta um að Google ætli að bjóða upp á ókeypis vefpóst undir heitinu Gmail. Þar á gjald- frjálst geymslupláss að vera 1 gíga- bæt. Munu notendur Gmail þó þurfa að samþykkja að þeim verði birtar auglýsingar sem valdar verða með orðaleit í tölvupóstskeytum. Meira geymslupláss hjá Hotmail FIMMTÁN milljónir manna fóru í gegnum gesta- talningarkerfi Peocon í íslenzkum verzlunum, verzlanamiðstöðvum og á fleiri opinberum stöðum á síðasta ári. Það samsvarar því að 55-faldur fjöldi Íslendinga hafi farið gegnum myndavélar og taln- ingarnema fyrirtækisins á árinu en Peocon mælir nú fólksflæði við um 100 innganga hjá 50 aðilum á landinu. „Þetta er mikil aukning í umsvifum hjá fyrirtæk- inu,“ segir Einar Sigvaldason, framkvæmdastjóri Peocon. „Fyrirtækið byrjaði að mæla fólksflæði í verzlunum og verzlunarmiðstöðvum í október 2001 þegar Smáralind opnaði og við erum mjög ánægð með það hvað íslenzk fyrirtæki og stofnanir virðast móttækileg fyrir að nýta sér þessa tækni til að betrumbæta reksturinn hjá sér.“ Einar segir að ýmsar upplýsingar megi vinna úr gestatölunum og nefnir sem dæmi að síðastliðið sumar hafi 40–60% fleiri gestir komið að jafnaði í verzlanir á Íslandi á rigningardögum heldur en á sólardögum. Nýlega gengu Peocon og Norvik, eignarhalds- félag Byko, frá samningi um uppsetningu á búnaði til gestatalningar í Húsgagnahöllinni, Elko og fleiri sérvöruverzlunum félagsins. Meðal annarra við- skiptavina Peocon eru verzlanamiðstöðvarnar Smáralind, Glæsibær og Húsgagnahöllin og verzl- anakeðjurnar Hagar, Next, Skífan, BT, Office 1, Sony Center, Noa Noa, Zara, Top Shop, Miss Sel- fridge, Útilíf, Debenhams, Samkaup, Nettó, Krón- an, Intersport, Bodum og Elko. Einar segir að sífellt fleiri aðilar sem ekki séu í verzlun vilji fá óháðan aðila til að mæla fyrir sig flæði gesta um húsakynni sín. „Þetta eru þá staðir þar sem almenningur er gestkomandi,“ segir Ein- ar og nefnir íþrótta- og sýningarhallir eins og Smárann í Kópavogi og Egilshöll sem noti kerfið, söfn og menningarstofnanir, Perluna, Leifsstöð, World Class heilsumiðstöð í Laugum, Upplýsinga- miðstöð ferðamanna og nú síðast Nýorku en Peo- con hefur gert ýtarlegar mælingar á flæði farþega í strætisvögnum með sérstakri hliðsjón af því hvernig vetnisstrætisvagnar koma út í samanburði við aðra. Upplýsingar á Netinu eða með MMS Myndgreiningarbúnaðurinn frá Peocon skilar nýjustu gestatölum á Netið á sólarhringsfresti þar sem vinna má með þær á ýmsan hátt og keyra sam- an við aðrar rekstrarupplýsingar. Peocon notar bæði innrauða tækni og tölvusjón í talningum sínum en tæknin er byggð á 18 ára reynslu Vaka DNG af fiskatalningu. Peocon hefur nýlokið hönnun á öryggiseftirlitskerfinu Peopro- tector sem viðbót við talningarkerfið. „Það þýðir að hægt verður að samnýta myndavélar, vélbúnað og lagnir til að ná fram bæði flæðismælingum og ör- yggisvöktun,“ segir Einar. Peoprotector skynjar t.d. ef taska er skilin eftir í flugstöð í meira en 10 mínútur, eða ef aðskota- hlutur kemur í mynd sem á að vera auð að nóttu til. Forritið stillir þá á upptöku og sendir mynd eða myndskeið af atburðinum í stjórnstöð, eða á MMS- formi í GSM-síma hjá næsta öryggisverði. 60% koma í verzlanir á rigningardögum Ýmsar upplýsingar að hafa úr gestatalningarkerfi Peocon, sem taldi 15 milljónir manna á síðasta ári Morgunblaðið/Ásdís Verzlað í votviðri Fleiri skila sér í verzl- anamiðstöðvar á rigningardögum en í sólskin- inu, samkvæmt talningu Peocon. IMG Gallup hefur fengið gæðavott- un samkvæmt alþjóðlega gæða- staðlinum ISO 9001. Gæðavottunin tekur til allrar starfsemi IMG Gall- up en unnið hefur verið að henni síðastliðin þrjú ár. Mikið hagræði er af gæðakerfi í fjölbreyttri starfsemi IMG Gallup, að því er segir í til- kynningu. „Það stuðlar að betri þjónustu við viðskiptavini, áreið- anlegri upplýsingum og betri vöru.“ Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, afhenti IMG Gallup viðurkenningu til staðfest- ingar á gæðavottuninni og sagði vel skilgreinda verkferla og notkun gæðakerfa mikilvæga í skipulagi og stjórnun nútímafyrirtækja. Í nú- tímaviðskiptum geri menn sér grein fyrir því að gæðastjórnun og inn- leiðing vottaðra gæðakerfa sé fyrst og fremst fjárfesting í framtíðinni. Hafsteinn Már Einarsson, for- stöðumaður Gallup, segir mark- miðið með vottun vera margþætta. Hún skili sér bæði til fyrirtækisins og viðskiptavina en snúi einnig að þeim fjölmörgu svarendum sem IMG Gallup leitar til á hverju ári. „Ávinningur fyrirtækisins liggur í bættum vinnubrögðum, skýrum vinnuferlum og rekjanleika í gegn- um heildarferlið. Viðskipavinir njóta ávinnings í formi áreið- anlegra upplýsinga sem unnar eru af sérmenntuðu og hæfu starfsfólki með bestu aðferðarfræði sem völ er á. Síðast en ekki síst njóta svar- endur trúnaðar og réttrar með- ferðar á persónuupplýsingum.“ Byggt er á gæðastaðlinum ISO 9001 og stöðlum Gallup Int- ernational, sem IMG Gallup er aðili að, en stefnt er að því að öll aðild- arfyrirtæki Gallup International verði komin með vottun á árinu. Út- tekt á gæðakerfinu var í höndum Vottunar hf., sem er í eigu hags- munaaðila í iðnaði, sjávarútvegi, verslun og þjónustu. IMG Gallup fær gæðavottun Viðurkenning Valgerður Sverrisdóttir , iðnaðar- og viðskiptaráðherra, af- henti Hafsteini Má Einarssyni, forstöðumanni IMG Gallup, viðurkenningu til staðfestingar á gæðavottuninni. Vottun hf. gerði úttekt á gæðakerfinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.