Morgunblaðið - 28.06.2004, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 28.06.2004, Qupperneq 8
FRÉTTIR 8 MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Heimsk þjóð, Stúfur litli, vill hvorki björgunarbát né Libby’s. Neysluútgjöld heim-ilanna hafa hækk-að um rúm 52% frá árinu 1995 á sama tíma og meðalstærð heimilanna hefur minnkað úr 2,82 ein- staklingum í 2,68. Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 28%. Hefur þetta vakið athygli en þessar stað- reyndir má lesa úr niður- stöðum rannsóknar á út- gjöldum heimilanna fyrir árin 2000–2002, sem Hag- stofa Íslands framkvæmir og birti niðurstöður í skýrslu í síðustu viku. Úr- taksrammi rannsóknarinnar var ís- lenskir og erlendir ríkisborgarar á aldrinum 18–74 ára sem skráðir eru í þjóðskrá og eiga lögheimili á Ís- landi. Fjöldi heimila sem lentu í úr- takinu var 1.222 á ári en árinu er skipt í 26 tveggja vikna búreikn- ingstímabil, sem eru nákvæmar skráningar allra heimilisútgjalda, og var svarhlutfall tæp 55% sem gerði í það heila 1.907 heimili. Af þeim voru 513 talsins einstaklings- heimili eða rúmur fjórðungur þeirra að vegnu meðaltali. Heimili einhleypra eru hlutfalls- lega flest á höfuðborgarsvæðinu eða 29,5% heimila en rúmlega 22% utan þess. Hæst er hlutfall heimila hjóna/sambýlisfólks með börn, 42,4%, í öðru þéttbýli. Sambærileg tala fyrir höfuðborgarsvæði er 34,4% og dreifbýli 39,3%. Símaþjónusta er meðal þeirra út- gjaldaliða sem hafa aukist hlutfalls- lega mest hjá heimilunum frá árinu 1995 og er það aðallega vegna þeirrar aukningar sem hefur orðið á farsímaþjónustu. Hlutfall matar og drykkjarvöru í heimilisútgjöld- um hefur minnkað, úr 17,4% í 15,9%, en hlutur húsnæðis, hita og rafmagns hefur hækkað úr17,9% í 20,1% af heildarútgjöldunum. Breytt fjölskyldumynstur Stefán Ólafsson, prófessor í fé- lagsfræði, segir ljóst að sama þróun eigi sér stað í íslensku samfélagi og hefur verið erlendis varðandi breytt fjölskyldumynstur, þ.e. fjölgun einmenningsheimila bæði meðal eldri borgara og yngra fólks. Þessi þróun hafi einnig átt sér stað í nágrannalöndum okkar en byrjað miklu fyrr og sé þar af leiðandi gengið lengra. Breyting á fjöl- skyldumynstrinu hefur helst þróast í þéttbýliskjörnum og nútímalegum stórborgum og eigi þ.a.l. einna helst við höfuðborgarsvæðið hér á landi, þó að það sé ekki algilt er mynstrið sterkast á þeim svæðum. Sérstak- lega hefur þetta verið rannsakað í borgarfræðum þar sem þetta mynstur er skoðað í einstökum borgum, en ekki hefur verið mikið skrifað um breytt fjölskyldumynst- ur eitt og sér hérlendis nema þá helst í tengslum við aðra þætti. Stefán bendir hinsvegar á að Ís- lendingar séu nokkuð á eftir þróun- inni sem á sér stað í löndunum í kringum okkur. Hann nefnir sem dæmi að ungt fólk býr t.a.m. lengur í foreldrahúsum og skýrist það m.a. af því að húsnæði er rúmgott og því fari ungt fólk seinna af stað til þess að stofna sitt eigið heimili. Einnig spili inn í vanþróaður leigumarkað- ur sem ýti undir það að fólk búi lengur heima við miðað við ná- grannalönd okkar. Í skýrslunni kemur fram að um 80% heimila, eða 1.524, búa í eigin húsnæði á móti 20%, eða 383 heimili, sem búa í leiguhúsnæði. Í samsvarandi könn- un frá 1995 bjuggu um 78% í eigin húsnæði. Á þeim 1.907 heimilum sem tóku þátt í rannsókninni bjuggu 5.883 einstaklingar eða um 2,05% af þjóðinni. Fram kom að heimili í dreifbýli séu stærri en í þéttbýli. Rannsóknin sýndi að 3,04 einstaklingar bjuggu að meðaltali á heimilum í dreifbýli, 2,81 einstak- lingar í öðru þéttbýli og 2,57 á höf- uðborgarsvæðinu. Börnum fækkar á heimilum Í skýrslunni kemur einnig fram að börnum á heimilum fækkar frá því 1995 en út frá hagfræðilegum skýringum voru þá að meðaltali 1,11 barn á heimili en nú hefur fjöldinn lækkað í 0,98 barn á hvert heimili. Vegin meðalstærð heimilis var 2,68 einstaklingar, tæplega 1 barn og 1,7 fullorðnir. Megi útskýra þessa þróun m.a. með tilliti til hækkandi menntunarstigs hér- lendis. Hjúskaparform breytist bæði vegna þess og vegna annarra ástæðna, fólk bæði giftir sig síðar og eignast börn síðar þannig að barneignaraldurinn hækkar. Stefán segir að ef litið sé til bandarísks samfélags sé þessi þró- un mjög afgerandi með fjölgun ein- staklingsheimila, ekki síst í mið- borgarumhverfi. Þróunin sé hægari á Norðurlöndunum en öll í þessa áttina sem og á Íslandi. Angi nútímavæðingarinnar Að því hvað snertir ungt fólk sé þetta partur af breyttum sambúð- arformum, meiri menntasókn og samskipti kynjanna séu að breyt- ast. Hvað eldra fólk varðar nefnir hann að lífslíkur fólks séu að aukast, sérstaklega hjá konum þó að karlar hafi verið að sækja á í því tilliti. Meiri tilhneiging sé í þá átt að eldra fólk lifi á eigin vegum í eigin íbúðum t.a.m. þjónustuíbúðum, sem auðveldar því að geta búið eitt lengur, í stað þess að þurfa t.d. að flytjast inn á stofnanir eða til barnanna sinna. Þetta sé því einn af öngum nútímavæðingarinnar. Þetta séu margir samspilandi þætt- ir sem komi að þessu breytta fjöl- skyldumynstri. Fréttaskýring | Breytingar á íslenskri heimilisgerð Meðalstærð heim- ila hefur minnkað Fjórðungur heimila einstaklings- heimili og börnum fækkar Stefán Ólafsson Í núgildandi lögum um vísitölu neysluverðs nr. 12/1995 segir að Hagstofan skuli eigi sjaldnar en á fimm ára fresti gera athugun eða rannsókn á útgjöldum heim- ilanna. Samfelld rannsókn á út- gjöldum heimilanna hófst í jan- úar árið 2000. Fyrri rannsóknir kölluðust neyslukannanir en nafninu var breytt árið 2000 í rannsókn á út- gjöldum heimilanna sem er með svipuðu sniði og neyslukann- anirnar voru. Rannsókn á út- gjöldum heimilanna jonpetur@mbl.is INGIBERGUR Einarsson, starfs- maður Flugumferðarstjórnar í Vestmannaeyjum, varð nýlega var við æðarkollu á flugbrautinni í Eyjum. Hafði hún útbúið sér hreiður við brautarljós. Engin hætta á ferðum „Þær hafa oft verið nálægt brautunum en þetta er í fyrsta skipti sem við verðum varir við hreiður inni á brautinni. Hún er mjög spök og hreyfir sig ekki þótt flugvélarnar séu að lenda við hana,“ sagði Ingibergur og bætti við að engin hætta stafaði af þeim. Önnur kolla kemur í heim- sókn og fær vatn „Það er önnur sem kemur í heimsókn þegar það er þurrt og fær vatn hjá okkur, hún einfald- lega bíður fyrir utan þangað til við skrúfum frá.“ Æðarkolluhreiður á flugbrautinni í Eyjum Hreyfir sig ekki þótt flugvélarnar séu að lenda Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson RÆTT verður um nánara samstarf Íslands og Malaví á sviði félagsmála á fundi Árna Magnússonar félags- málaráðherra og forystumanna Malaví í heimsókn félagsmálaráð- herra til landsins, sem hófst í gær. Árni mun m.a. eiga fund með dr. Bingu wa Mutharika, nýkjörnum forseta Malaví, og opna nýja sendi- skrifstofu Íslands í Lilongwe, höfuð- borg landsins. Árni mun einnig kynna sér fram- gang félagslegra verkefna sem Ís- lendingar hafa unnið að í Malaví í heimsókn sinni til landsins og vígja skólabyggingu fyrir 1.200 börn, sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur reist í Msakaþorpi. Félagsmálaráðherra heimsækir Malaví Auka á sam- starf í fé- lagsmálum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.