Morgunblaðið - 28.06.2004, Page 26

Morgunblaðið - 28.06.2004, Page 26
MINNINGAR 26 MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Sveinn Jónassonfæddist í Banda- gerði í Glerárþorpi hinn 16. maí 1924. Hann lést á Dvalar- og hjúkrunarheim- ilinu Grund hinn 19. júní síðastliðinn. For- eldrar hans voru Jón- as Sveinsson, f. 4.12. 1873, d. 29.3. 1954, ættaður frá Litla-Dal í Húnaþingi, en síðar bóndi í Bandagerði, og Ingibjörg Val- gerður Hallgríms- dóttir, f. 9.5. 1888 í Flögu í Hörgárdal, d. 26.4. 1984. Þau eignuðust þrjú börn auk Sveins. Þau eru: Sverrir, látinn, Hallgerður, látin, og Áslaug. Einnig áttu þau hálfsystur, Sig- urlaugu Margréti, látin, sem Jón- as átti með fyrri konu sinni Björgu Björnsdóttur, f. 1862, d. 1934, frá Háagerði í Húnaþingi. Fyrri kona Sveins var Brynhildur Ólafsdóttir frá Brekku í Glerár- þorpi. Börn þeirra eru: Guðrún Sóley, Björg, Jónas, Víg- lundur, lést tveggja ára, Víglundur Jó- hann, Sverrir Hall- grímur, látinn, Sig- urveig og Hafdís. Brynhildur og Sveinn slitu samvist- um. Barn Sveins með Ásgerði Ásmunds- dóttur er Ásmundur. Síðari kona Sveins er Unnur Guð- mundsdóttir, f. 7.7. 1924, frá Kvígindis- felli í Tálknafirði. Sveinn var um langt árabil sjó- maður á togurum Útgerðarfélags Akureyrar, aðallega á Svalbak. Hann fluttist til Reykjavíkur 1968 og starfaði um tíma hjá Olíufélag- inu Esso en rak síðan sendiferða- bifreið um 20 ára skeið. Útför Sveins verður gerð frá Neskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku pabbi. Kynslóðir koma, kynslóðir fara, hvert æviskeiðið af öðru á enda runnið og eftir stöndum við hnípin og ráðþrota með trega í hjarta. Þá er alltaf erfitt þegar ein- hver nákominn kveður þennan heim, jafnvel þótt dauðinn komi sem líkn í löngu stríði. Þannig varð okk- ur systkinunum við er þær fregnir bárust að þú værir allur, það var svo óraunverulegt, enda þótt við hefðum vitað lengi að hverju stefndi. Minn- ingarnar sóttu á og við reikuðum í huganum aftur til bernskunnar þeg- ar allir dagar voru bjartir og sólríkir og við hoppuðum parís og lékum í slagbolta daginn út og inn. Þá kom ósjaldan fyrir að þú slóst í hópinn, pabbi minn, og við vorum heldur en ekki roggin að eiga svona ungan og hressan pabba sem sló helmingi lengra en stóru strákarnir. Þú varst líka viljugur að hjálpa okkur að hlaða upp áramótabrennu á hverj- um gamlársdegi ef þú varst ekki á sjónum. Já, þú varst svo sannarlega ungur og hress í þá daga og ná- grannakrakkarnir sögðu oft: „Hann Sveinn í Bandagerði er fínn karl sem kann að búa til flott snjóhús.“ Þú varst einstaklega laginn við að hæna að þér börn og þess nutu barnabörnin í ríkum mæli, og voru börn Bjargar daglegir gestir hjá ykkur Unni, seinni konu þinni. En lífið er sjaldan án áfalla. Árið 1947 drukknaði Sverrir einkabróðir þinn aðeins 25 ára og þú hlaust sár sem aldrei greri, enda voruð þið mjög samrýndir. Það var þó huggun harmi gegn að skömmu seinna eign- uðust þið mamma annan Sverri. Ár- ið 1989 varð annað áfall í þínu lífi þegar nafni þinn, sonur Bjargar systur, fórst í hörmulegu slysi. Það högg var þungt en þú stóðst það af þér eins og annað mótlæti. Smátt og smátt fór samt að halla undan fæti og þú þurftir að selja bílinn og hætta að vinna. Það var þér erfitt, enda ekki þinn lífsstíll að sitja heima og spjalla við konuna allan daginn. Þú gast samt keyrt ennþá og þið komust ferða ykkar sjálf. Þegar því lauk kom Sverrir bróðir ykkur til hjálpar, út- réttaði allt og var ykkar önnur hönd ef á þurfti að halda. Það var því reiðarslag fyrir ykkur bæði þegar hann féll skyndilega frá skömmu fyrir jól árið 2001. Þá fyrst brotn- aðir þú að fullu, og varst ósáttur við að fá ekki að fara í stað Sverris enda hnignaði nú heilsu þinni ört. Á síð- asta ári fluttuð þið Unnur bæði á Grund og þar andaðist þú sáttur með frið í hjarta. Elsku Unnur, við systkinin vottum þér okkar dýpstu samúð og þökkum þér fyrir allt. Elsku pabbi, við óskum þér Guðs blessunar í nýjum heimkynnum með ást og þökk. Loks eftir langan dag lít ég þig, helga jörð. Seiddur um sólarlag sigli ég inn Eyjafjörð. Ennþá á óskastund opnaðist faðmur hans. Berast um sólgyllt sund söngvar og geisladans. Áfram og alltaf heim inn gegnum sundin blá. Guðirnir gefa þeim gleði sem landið sjá. Loks eftir langan dag leit ég þig, helga jörð. Seiddur um sólarlag sigli ég inn Eyjafjöð. (Davíð Stef.) Guðrún, Björg, Jónas, Víglundur og Hafdís. Elsku afi minn. Þá er komið að kveðjustund og þó svo það sé sárt að horfa á eftir þér, þá gleðst ég líka, því þú ert frjáls. Hugur minn leitar til baka í æsku mína þar sem ótal minningar um þig eru að finna. Ég man alltaf hversu gott var að sitja í fangi þínu, þar var ég örugg. Fyrir mér varstu alltaf stóri sterki afi sem gat gert alla hluti. Oft fór ég með þér og Unni í bíltúr og keyptum ís. Þið voruð dugleg að leyfa mér að þvælast með ykkur á ferðalögum og þú, afi minn, varst alltaf tilbúinn að ærslast með mér. Ég man svo vel jólaböllin sem ég fór á með ykkur. Ég beið svo spennt í sparifötunum eftir ykkur og þú, afi, sagðir alltaf hvað ég væri fín og falleg. Já, afi minn, þú gast látið mig trúa því að ég væri falleg prinsessa. Ég er þakklát fyrir að börnin mín skyldu fá að kynnast þér og njóta þeirrar góðmennsku frá þér sem ég þekkti svo vel. Börnin voru alltaf spennt að hitta afa Svein því þá var farið á rúntinn á sendlanum og keyptur ís, og auðvitað áttirðu alltaf súkkulaði í vasa þínum. Þú varst duglegur að segja þeim sögur frá gömlu góðu dögunum og oftar en ekki varst þú aðalsöguhetjan. Þeim fannst þú svo flottur afi eða „cool“ eins og þau segja. Þú varst greiðagóður og þekktir marga og enn fleiri þekktu þig. Þú dæmdir aldrei aðra sem varð á í lífinu enda búinn að reyna ýmislegt sjálfur. Þú komst til dyr- anna eins og þú varst klæddur og lést annarra manna álit þig engu varða. Þú og hún Unnur þín áttuð fallegt heimili sem var ávallt opið og gott að heimsækja. Þó að sumt hafi mátt betur fara, var lífsganga þín auðug og litrík, þú áttir nóg fyrir þig og þína, varst hreinn og beinn og sáttur við þitt. Ég og fjölskylda mín þökkum þér fyrir allt og óskum þér góðrar ferð- ar. Minning þín mun lifa í hjörtum okkar. Vertu sæll að sinni, elsku afi. Unnur mín, ég bið góðan guð að styrkja þig. Vaktu, minn Jesú, vaktu í mér. Vaka láttu mig eins í þér: Sálin vaki þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. (Hallgr. Pét.) Guð geymi þig. Kveðja. Borghildur og fjölskylda. Það eru margar minningar sem koma upp í hugann þegar ég hugsa um hann afa minn. Þegar ég var yngri bjó ég úti á landi þannig að samband okkar einkenndist fyrst og fremst af ferðalögum hans út á land eða okkar til Reykjavíkur. Afi og Unnur tóku alltaf jafn vel á móti mér þegar ég kom í heimsókn, bæði þegar ég var lítil með mömmu og pabba og einnig þegar ég varð eldri og fékk að gista hjá þeim í ferðum mínum í borgina. Eftir að ég flutti til Reykjavíkur var ég það heppin að fá að kynnast þeim báðum betur. Það má segja að afi hafi verið með hreinskilnari mönnum. Hann hafði afskaplega ákveðnar skoðanir og var ófeiminn við að láta þær í ljós. Fyrst þegar ég fór að keyra í borginni var ég frekar kvíðin því ég hafði aldrei ekið í jafn mikilli um- ferð. Þá sagði afi við mig: „Þórunn mín, þetta er ekkert mál, þú skalt bara ganga út frá því að þú sért eina manneskjan sem kannt að keyra og þú skalt vara þig á öllum hinum.“ Þessu ráði hef ég ávallt fylgt síðan og reyni að vera eins varkár í um- ferðinni og ég get. Afi seldi mér líka fyrsta bílinn sem ég eignaðist, brúna Volkswagen Jettu. Bíllinn reyndist alveg ágæt- lega en þegar árin liðu fór ýmislegt að gefa eftir. Ég held að afa hafi alltaf fundist það vera á sína ábyrgð að bíllinn væri í lagi þannig að hann var óþreytandi að keyra með mér út um allan bæ ef eitthvað þurfti að laga í honum. Afi minn á alltaf eftir að lifa í minningu minni og fjölskyldu minn- ar. Megi Guð vera með honum. Mínar innilegustu samúðarkveðj- ur fara til Unnar, pabba og föð- ursystkina minna. Megi Guð gefa ykkur styrk í sorginni. Þórunn Brynja Jónasdóttir. SVEINN JÓNASSON ✝ Ásta G. Ísleifs-dóttir fæddist á Akureyri 22. mars 1914. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum 17. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ísleifur Odds- son, f. 1874, d. 1958, bryggjusmiður frá Ytri-Skógum undir Eyjafjöllum, og Þór- finna Bárðardóttir, f.1876, d. 1957. Syst- kin hennar voru: Katrín, f. 1904, d. 1928, Bárður, arkitekt, f. 1905, d. 2000, en hann var kvæntur Unni Arnórsdóttur píanókennara, og María, f. 1915, húsmóðir, var gift Gerald Almy sem nú er látinn. Ásta lauk skyldu- námi frá barnaskól- anum á Akureyri og stundaði síðar nám við Kvennaskólann í Reykjavík. Á Akur- eyri vann hún um árabil í hannyrða- verslun Ragnheiðar Björnsson en eftir að hún flutti til Reykja- víkur árið 1955 vann hún við verslunar- störf hjá Sambandi íslenskra samvinnu- félaga. Ásta var ógift og barnlaus. Ásta verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Orð Jesú „yfir litlu varstu trúr“ áttu vel við Ástu. Hún sinnti öllum sínum verkum af einstökum heiðarleika og vand- virkni. Umhyggja hennar fyrir for- eldrum hennar var þeim er til þekktu ljós og við fylgdumst með því hvað hún vildi systkinum sínum vel. Sást það best á því að í hverri viku fram á níræðisaldur skrifaði hún systur sinni í Bandaríkjunum. Um- hyggja Ástu fyrir okkur, bróðursyni hennar og konu hans og sérstaklega dætrum okkar var mjög mikil. Í þau tíu ár sem hún bjó í okkar húsi höfð- um við daglegt samneyti við hana og var gagnkvæmur ávinningur af ná- býlinu. Hún fékk með því það skjól og samneyti sem hún leitaði eftir, en á móti liðsinnti hún okkur. Blíða hennar við dætur okkar og það ör- yggi sem það skapaði þeim ungum að hún var alltaf til staðar var mikils virði. Líf Ástu var í föstum skorðum. Þótt okkur þætti það fábrotið miðað við greind hennar og gjörvuleika var hún sátt við líf sitt. Hver dagur virt- ist öðrum líkur en það veitti henni öryggi og festu sem hún lagði mikið upp úr. Hún sat sjaldnast auðum höndum og hugurinn var virkur. Hún hafði mikinn áhuga á frétta- tengdu efni svo og sögu þjóða og heimsatburðum. Hún las mikið og skipti þá engu hvort málið var ís- lenska eða enska. Hún var vandvirk, velvinnandi og handlagin og lágu hannyrðir vel fyrir henni. Hún undi því almennt hag sínum vel. Stundum urðu sterk orðaskipti einkum vegna ólíkra viðhorfa kyn- slóða til nýtingar hluta. Engir hlutir skyldu helst keyptir, föt skyldu bætt og stöguð og börn áttu að eiga örfá leikföng, þannig hafði hún alist upp. En slík orðaskipti stóðu stutt því hún var réttsýn og sá eftir því ef hún lét orð falla sem særðu. Síðustu ár æv- innar þurfti Ásta meiri stuðning og síðar hjúkrun en við höfðum aðstæð- ur til að veita henni. Hún fluttist þá í þjónustuíbúð og bjó síðustu árin á Droplaugarstöðum. Náin samfylgd Leifs við Ástu spannaði um 50 ár og Vilborgar um 35 ár. Nærvera við Ástu var því stór hluti af lífi okkar. Guð blessi minningu Ástu G. Ís- leifsdóttur. Leifur og Vilborg. Kvatt hefur hinstu kveðju mág- kona mín Ásta Gyðríður Ísleifsdótt- ir. Hún var fædd og uppalin á Ak- ureyri og átti þar góða bernsku og uppvaxtarár í hópi systkina og frændfólks. Fundi okkar bar saman skömmu eftir að ég giftist bróður hennar Bárði. Við hjónin heimsótt- um tengdaforeldrana á Akureyri og börnin okkar þrjú voru ætíð með í för. Áttu þau mörg yndisleg sumur saman fyrir norðan og var Ásta frænka oft betri en enginn til að lið- sinna þeim. En tíminn heldur áfram og börn stækka, þroskast og verða sjálfstæð- ari. Árið 1955 flutti Ásta með for- eldrum sínum til Reykjavíkur og settust þau að í lítilli íbúð í húsi okk- ar að Reynimel. Foreldrar hennar önduðust bæði þremur árum eftir að þau fluttu og var Ásta þá áfram bú- andi hjá okkur á Reynimel allt þar til Leifur sonur okkar tók að sér að annast hana. Hún varð Leifi og Vil- borgu konu hans mikil hjálparhella við að annast barnagæslu og aðstoð við heimilið. Eftir tíu ára vist hjá þeim hjónum hrakaði heilsu Ástu og fékk hún þá vist, fyrst í þjónustuíbúð við Vitatorg en síðar á Droplaugar- stöðum. Dvaldi hún síðustu árin á þessum stöðum þar sem mjög vel var um hana séð. Ásta hafði mjög stórt skap en var heiðarleg í öllu og stóð við sitt. Hún átti ekki samleið með öllum og gust- aði oft í kringum hana. Ég sé margt gott í okkar samveru, og bið þess að hún eigi góða tíð í nýjum híbýlum og með nýju fólki. Ég sé allt það besta sem við áttum saman í fögru ljósi. Unnur Arnórsdóttir. Elsku afasystir okkar, hún Ásta, er látin. Frá því að við fjölskyldan fluttum heim til Íslands árið 1983 bjó hún hjá okkur á Reynimelnum, en þar hafði hún líka áður átt heimili, þá hjá afa Bárði og Unni ömmu. Minn- ingarnar um Ástu eru margar og góðar frá báðum tímabilum. Oft var laumast til Ástu og þeginn blöndudjús eða þunnt neskaffi með mikilli mjólk og miklum sykri, spil- aður kleppari eða spjallað. Hún var sérlega hagsýn húsmóðir, þó að heimilið hennar væri lítið og hún byggi alla tíð ein. Hún var sparsöm og úrræðagóð, sat á handklæðunum og pressaði þau þannig og bakaði lummur úr graut. En Ásta skilur líka eftir sig marg- víslega arfleifð hjá okkur systrum. Til dæmis var það Ásta sem kenndi Margréti að prjóna þegar hún var fimm ára og tók undir stolt hennar þegar hún kláraði fyrsta röndótta dúkkutrefilinn, sem var ýmist svo fast prjónaður að varla var hægt að beygja hann eða svo laust að stór göt mynduðust milli lykkja. Hún kynnti okkur fyrir sagógrjónagrautnum, sem núna er uppáhaldið hans Mána sonar Margrétar (snjógrautur!) og Júlía, dóttir Ingu, fær bráðum að bragða. Og það var Ásta sem átti draumráðningabókina góðu, geymda í gömlum appelsínugulum plastpoka – nýtnin í hámarki að sjálfsögðu – sem varð til að kveikja ævarandi áhuga Ingu á draumum. Það er ekki hægt að minnast Ástu án þess að tala aðeins um tengsl hennar við Ameríku. Maja systir hennar fluttist ung til Bandaríkj- anna með manni sínum, og Ásta dvaldi nokkrum sinnum hjá henni um skeið. Það var gaman að skoða með henni albúm með myndum af þessum fjarlægu frændum og frænkum, sem voru svo kunnugleg þrátt fyrir að við hefðum aldrei hitt þau. Frá Ameríkunni kom Ásta líka með mat með framandi nöfnum, bixiemat, french toast og cinnamon toast, og bækurnar sem hún las voru að mestu doðrantar, því þykkari því betri, á ensku. Ásta var stór hluti af lífi okkar, þó að síðustu árin hafi aldurinn færst yfir hana. Við minnumst hennar með hlýju og þakklæti fyrir allt sem hún gerði fyrir okkur, og var okkur. Inga María og Margrét María. ÁSTA G. ÍSLEIFSDÓTTIR Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, stjúp- faðir, tengdafaðir og afi, JÓHANN GÍSLASON lögfræðingur, Kvistalandi 16, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykja- vík, þriðjudaginn 29. júní kl. 10.30. Áslaug Brynjólfsdóttir, Kristján Þorvaldz, Jóhann Jóhannsson, Sigríður Jóhannsdóttir, Þuríður Jóhannsdóttir, stjúpbörn, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.