Morgunblaðið - 28.06.2004, Page 37

Morgunblaðið - 28.06.2004, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2004 37 Nýjasta og mest spennandi myndin um Harry Potter með íslensku tali. Stórkostlegt ævintýri fyrir alla fjölskylduna sem enginn má missa af! Ráðgátur leysast, leyndarmál verða uppljóstruð.  Kvikmyndir.com  Ó.H.T Rás2  DV  HL Mbl KRINGLAN Kl. 5.30 m. ísl. tali og 8.30 m. ensku tali. Tom Hanks er einhver útsmogn- asti, klárasti, færasti og mest heillandi afbrotasnillingur sem nokkru sinni hefur REYNT að fremja glæp aldarinar! Kvikmyndir.is AKUREYRI Kl. 10. AKUREYRI Sýnd kl. 5 islenskt tal og 6 enskt tal. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5 og 8 islenskt tal og kl. 6 enskt tal. Með hinum eina sanna og ofursvala Vin Diesel. Geggjaaður hasar og magnaðar tæknibrellur. ÁLFABAKKI Kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 3.45 OG 5.50. KRINGLAN Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 KEFLAVÍK Kl. 8 og 10.15 ÁLFABAKKI Kl. 4, 6 og 8. AKUREYRI Kl. 8. B.i. 14. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 10. B i 12  SV MBL  Kvikmyndir.com  Ó.H.T Rás2  DV  HL Mbl AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10. V I N D I E S E L V I N D I E S E L Með hinum eina sanna og ofursvala Vin Diesel. Geggjaaður hasar og magnaðar tæknibrellur. Nýjasta og mest spennandi myndin um Harry Potter með íslensku tali. Stórkostlegt ævintýri fyrir alla fjölskylduna sem enginn má missa af! Ráðgátur leysast, leyndarmál verða uppljóstruð. UNDERGROUND • INGÓLFSTORGI BRESKA poppstjarnan David Bowie var lagður inn á sjúkrahús í Þýskalandi en hann var með klemmda taug. Bowie neyddist því til að af- boða komu sína á tónlistarhátíð um helgina, að því er skipuleggjendur hennar greindu frá. Bowie, 57 ára, lauk atriði sínu á Hurri- cane-hátíðinni í bæn- um Scheessel í N- Þýskalandi á föstudagskvöld en kvart- aði síðan undan sárum verk í öxl. Hann var meðhöndlaður á sjúkrahúsi í bæn- um og lá inni yfir nóttina. Bowie varð síðan að afboða komu sína á Southside-hátíðina í Neuhausen ob Eck í S-Þýskalandi, en þar komu m.a. fram PJ Harvey og hljómsveitin The Cure. Þá varð Bowie að hætta að syngja og spila á tónleikum í Prag í Tékklandi á miðvikudag vegna verks í öxl …    LEIKKONAN Helena Bonham- Carter og leikstjórnn Tim Burton eign- uðust son á dögunum. Þetta er fyrsta barn þeirra hjóna en þau kynntust við gerð kvikmyndarinn- ar Apaplánetan sem Burton leikstýrði og Bonham-Carter fór með hlutverk í. Parið býr í sam- liggjandi húsum og steig nýverið það skref í sambandinu að setja hurð á milli húsanna til að auðvelda heimsóknir þeirra á milli. „Ég veit ekki hvort við giftum okkur nokkurn tímann. Mér finnst það róm- antísk tilhugsun að eiga óskilgetið barn með honum og búa í næsta húsi við hann,“ sagði Bonham-Carter í blaða- viðtali á dögunum aðspurð um búsetu- fyrirkomulag þeirra. Fólk folk@mbl.is SENDIHERRA Íslands í Svíþjóð, Svavar Gestsson, og Guðrún Ágústs- dóttir sendiherrafrú héldu tvö boð á þjóðhátíðardaginn síðasta. Í því fyrra var mikið af fólki úr diplómata- heiminum, sem og Svíar og Íslend- ingar. Boðið var upp á fisk og lamba- kjöt, s.s. íslenskar kræsingar sem féllu vel í kramið. Um 350 manns voru í fyrra boðinu. Í því seinna voru um 50 manns, mest fólk úr sænsku viðskiptalífi svo og fulltrúar frá öllum helstu fjölmiðlum Svía og tímaritum með mikla útbreiðslu. Þetta er liður í starfi Svavars að kynna land og þjóð og skapa sambönd. Starf hans skilar örugglega árangri, en það sést m.a. á því að um 20 þúsund Svíar munu fara til Íslands í sumar. Boðin voru haldin í samstarfi við Flugleiðir. Svavar var mjög ánægður með daginn, en sendi- ráðið í Stokkhólmi var eina sendiráð Íslands sem hélt svona boð í tilefni þjóðhátíðardagsins. Þjóðhátíð í sænska sendiráðinu Ljósmynd/Gunnar Hólmsteinn Frá vinstri: Helga Þóra Eiðsdóttir framkvæmdastjóri, Kalle Byström, sölu- stjóri Flugleiða í Svíþjóð, Karen Österbye, yfirmaður almannatengsla, Svavar Gestsson og Guðrún Ágústsdóttir. Stokkhólmi. Morgunblaðið. Í FYRRA fóru Íslendingar mikinn á Hróars- keldu. Björk lokaði hátíðinni á aðalsviði hátíð- arinnar, þ.e. í appelsínugula tjaldinu, og Sigur Rós lék í því næststærsta, Arena, sem var troð- fullt og stemningin eftir því. Þá lék Ske á hinu svonefnda „Camping Scene“, sviði sem er í gangi frá mánudegi til miðvikudags á tjaldsvæðinu, þá þrjá daga fyrir hátíð sem fólk er að streyma að. Hafdís Huld söng einnig með bresku sveitinni FC Kahuna og gusgus gerði allt brjálað í Metro- pol-tjaldinu, vin dans- og raf- tónlistar. Annað er upp á teningnum í ár. Fulltrúar Íslendinga eru aðeins tveir. Gísli, sá sem er á mála hjá EMI og gefur út fyrstu breiðskífu sína á þess vegum í september komandi, leikur á tjaldsvæðissvið- inu fyrrgreina á þriðjudegi. Hann kemur þó einnig fram á aðalhátíð- inni ásamt danska plötusnúðinum DJ Talkback. Hinn Íslendingurinn er Ozy, raftónlistarmaður með rætur í íslenska Thulegenginu, og leikur hann í Ballroomtjaldinu, sem einnig er þekkt sem heimstónlistartjaldið. Reyndar er hann ekki auglýstur á opinberri heimasíðu hátíðarinnar einhverra hluta vegna. Ozy eða Örnólfur Thorlacius hefur verið bú- settur erlendis um hríð og gefið út nokkrar plöt- ur, m.a. undir merkjum hinnar stórtæku og virtu þýsku tæknóútgáfu Force Inc. Þetta er allt og sumt en ég efast ekki um að þessir tveir eigi eftir að halda merki landans hátt á loft. Í þessari eklu er þó affarasælast að sölsa Færeyinginn Teit undir sig, líkt og gert hefur verið með Eivöru Páls, og tala um hann eins og Tinu Turnes, Howard Jones, Saga, Kevin Ayers, Rush, Stevie Nicks, Chris De Burgh, Suzanne Vega (í miklu uppáhaldi hjá Teiti), Waterboys og mörgum fleiri). Platan var jafnframt tekin upp með stjörnustóði af leiguspilurum, t.a.m. bassa- leikurunum Pino Palladino, trymblinum Matt Chamberlain og fjöl-hljóðfæraleikaranum Pat- rick Warren en þeir hafa spilað með listamönn- um eins og Erykuh Badu, Eric Clapton, Peter Gabriel, Elton John, David Bowie, Garbage, Van Morrison og áfram má telja. „Áhrif mín spretta að mörgu leyti úr þjóðlaga- tónlist,“ segir Teitur og ekki að undra en þjóð- lagatónlistin er afar nálæg öllu færeysku tónlist- arlífi. „Og ég er líka mjög upptekinn af og áhugasamur um lagasmíðaferlið sjálft. Auk þess hef ég spilað djass í gegnum tíðina og er mjög hrifinn af hvernig hægt er að nálgast aðra tónlist með því að hafa djassinn sem útgangspunkt.“ Teitur er rólegur gagnvart þeirri yfirvofandi bransastarfsemi sem nú fer í hönd, segist vera búinn að gefa út plötu sem hann trúi á og til þessa a.m.k. hafi vist hans hjá Universalrisanum verið góð. Teitur hefur enda fengið frábæra dóma fyrir plötuna sína og er svo komið að hún er seld í pakka með plötu Damien Rice á Ama- zon. Teitur er núna á tónleikaferðalagi um Evr- ópu og er með band með sér sem er skipað þeim Mads Andersen og Mikael Blak (Clickhaze, Ei- vör Pálsdóttir). Íslending. Þetta „rán“ verður þó ekki eins alvar- legt í ljósi þess að mamma Teits er hálfíslensk og þaðan kemur nafnið hans. Teitur spilar á föstudaginn í Pavilion-tjaldinu klukkan 19.00, sem er fínasti tími, og tjaldið er aukinheldur það þriðja stærsta. Tónlist frá degi eitt Teitur, sem fullu nafni heitir Teitur Lassen, hefur um hríð verið á mála hjá Universal í Bandaríkjunum og nýverið kom út langþráð breiðskífa hans, Poetry and Aeroplanes. Það sætir engri tilviljun að Teitur er kominn svona langt. Greinarhöfundur sá hann spila í fyrra á Prix Føroyar og varð mjög hrifinn (færeyska út- gáfan af Músíktilraunum sem Teitur vann árið 1997 með poppsveitinni Mark No Limits. Þar samdi hann öll lögin auk þess að leiða sveitina). Einlæg söngvaskáldstónlist, óhemjuþroskuð líkt og Teitur ætti að baki fimm plötur og hefði marga fjöruna sopið á leiðinni (Teitur er 26 ára í dag). Nöfn eins Jeff Buckley, David Gray, Rufus Wainright og Ed Harcourt skutu upp kolli, jafn- vel Damien Rice. Teitur segist alla tíð hafa verið heillaður af tónlist, allt síðan hann rak fyrst augu í hljóðfæri. Hann hefur enga menntun hlotið en segist alla tíð hafa vitað að hann myndi starfa við tónlist, hvort heldur í aðal- eða aukastarfi. „Það var svo þegar ég bjó í Kaupmannahöfn að fólk fór að taka eftir mér, en ég spilaði dálítið á börum og klúbbum. Það endaði með því að ég skrifaði undir hjá Universal árið 2002.“ Teitur segist hafa fengið þann tíma sem hann þurfti til að liggja yfir plötunni, semja og þróa sig áfram. Platan var svo gerð með hinum fræga upptökustjóra Rupert Hine (hefur unnið með Hróarskelda 2004 | Teitur frá Færeyjum spilar Heitur Teitur Íslenskir listamenn eru lítt áberandi á Hróarskeldu þetta árið en Færeyingur einn spilar þar á kjörtíma. Arnar Eggert Thorodd- sen, sem er á leið utan á hátíðina, ræddi við Teit Lassen, sem ný- verið gaf út sína fyrstu breiðskífu á vegum risans Universal. Teitur Lasson. TENGLAR ...................................................................... www.teitur.com www.roskilde-festival.dk arnart@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.