Lesbók Morgunblaðsins - 14.06.2003, Síða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 14.06.2003, Síða 5
Ef við lítum til framvindunnar í þínum ferli er augljóst að þér hafa alltaf fylgt mjög sterk höfundareinkenni. Finnst þér sjón- deildarhringurinn í þinni sköpun hafa víkkað með aldrinum eða ef til vill frekar skerpst á þrengra sviði? „Ég held að það hafi ekki orðið nein grundvallarbreyting á því hvernig ég vinn. Auðvitað er ég reyndari og veit betur hvað ég ræð við – loksins,“ segir Rúrí brosandi. „En svo virðist sem misvel meðvituð hug- myndafræði mín hafi mótast snemma, en þegar ég fór að vinna Paradís? – Hvenær? þá var ég orðin fullkomlega meðvituð. Menn hafa talað um að rödd mín sé pólitísk, en frá mínum bæjardyrum séð taldi ég mig vera mjög ópólitíska þegar ég var yngri. Þá lagði ég að vísu annan skilning í orðið en núna, meira í takt við hvernig pólitík er rædd á Ís- landi. Í seinni tíð hef ég gert mér grein fyrir því að ég þarf ekkert að óttast það að skoð- anir mínar komi fram í verkunum. Hér heima hefur nefnilega verið ákveðinn ótti við að sýna skoðanir í myndlist, finnst mér, þótt það kunni að vera misskilningur. Að lokum steig ég þetta skref meðvitað – ég vildi vera fullkomlega meðvituð um að þetta væri há- pólitísk list.“ Getur verið að rekja megi þennan ótta sem þú nefnir til þess hversu listhefðin hér er stutt, að listamönnum hafi framan af fundist þeir þurfa að vinna tímalaus verk sem voru hafin yfir dægurþras? Í seinni tíð má finna að unga listamenn á Íslandi virðist langa til að taka þátt í orðræðu við samfélagið – þau eru óhrædd við að vera pólitísk. „Já, það er mjög ánægjulegt að sjá það. En stundum hefur mér fundist sem þessi vandi sem ég er að tala um hafi tengst ’68- tímanum. Þá komu hingað norrænar sýn- ingar með pólitískum verkum sem voru svo margtuggin. Þetta var ekki góð list og vera má að það hafi stuðað menn svo illa að þeir hafi forðast það eins og heitan eldinn að lenda í áþekkum pytti. Ég veit þó ekki hvort þetta er rétt skýring, en samfélag okkar er svo lítið og þröngt að það getur líka verið óþægilegt að láta í ljós pólitíska afstöðu.“ Viðhorfin afgreidd í eitt skipti fyrir öll Nú hefur þú sýnt mikið erlendis, finnst þér þú finna fyrir ólíkum viðbrögðum þar miðað við hér heima? „Mér finnst ég að jafnaði hafa fengið miklu jákvæðari viðbrögð erlendis og miklu sterk- ari, þótt auðvitað sé það einstaklingsbundið. Það er einnig til fólk á Íslandi sem er mjög meðvitað um strauma í myndlist og skynjar listina sterkt. En mér hefur samt fundist ég finna meira fyrir því erlendis. Ég hef til dæmis oft sagt frá því í gríni að þegar sam- keppnin var um verkið við Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar, þá var ég orðin svo hvekkt á því að það var alltaf talað við mig eins og vitleys- ing hérna heima. Á þessum tíma hafði ég unnið mikið erlendis og hafði til að mynda stofnað gallerí ásamt Kees Visser í Hollandi. Auk þess hafði ég verið í Kaupmannahöfn og stofnað þar til Experimental Environment- samstarfsins með norrænum listamönnum og tekið þátt í stofnun Nýlistasafnsins hér heima. Ég tók einnig þátt í sýningum erlend- is þar sem verk mín vöktu talsverða athygli, en upplifði samt þessa vanþekkingu gagnvart minni list hér heima. Ég hugsaði því með mér að ég skyldi nú bara sýna hvað ég gæti og gerði regnbogann – bara sem svona kynn- ingu á minni list. Það hvarflaði ekki að mér að verkið yrði valið þar sem það yrði vænt- anlega svo dýrt í framkvæmd. Það sem mér gekk til var að afgreiða viðhorfin í eitt skipti fyrir öll. Það kom mér því mikið á óvart þeg- ar það var hringt í mig og tilkynnt að verkið hefði verið verðlaunað.“ Nú er þetta líklega það myndlistarverk sem flestir Íslendingar þekkja. Rúrí játar því hlæjandi en segist þó ekki telja það sitt besta verk. „Ég er samt mjög sátt við það. Til að byrja með óttaðist ég að það yrði of frekt af því það er svo stórt og litríkt, en það reyndist ekkert vandamál. Þegar maður er að gera svona stórt verk sér maður það ekki fyrr en það rís. Vinnan við hönnun og smíði stóð yfir í nokkur ár, síðan lá verkið á hliðinni á meðan glerinu var rað- að í og fór ekki upp á endann fyrr en á loka- degi þegar það var reist með risastórum kranabílum. Og þá fyrst þegar verk er komið upp sést hvort það stendur undir vænt- ingum, sem getur verið erfitt fyrir taug- arnar.“ Listamaður eins og þú – sem upplifir hug- myndina á undan hinni efnislegu útfærslu – lendir þú aldrei í átökum við efnið þegar hið afstæða verður að áþreifanlegum veruleika? „Ja, stundum óska ég þess einmitt að ég þyrfti ekki svona mikið efni! En ég geri auð- vitað ekki verk sem ég er ekki sátt við og hætti aldrei fyrr en ég finn rétta lausn. Ég hef meira að segja geymt hugmyndir í mörg ár af því ég var ekki búin að finna góða lausn á framkvæmdinni.“ Óttinn við þekkingarleysið Nú hefur þú, eins og áður sagði, verið mjög virk meðal myndlistarmanna og verið í forsvari fyrir ýmsum mikilvægum verkefn- um. Finnst þér myndlistarlíf á Íslandi hafa breyst á því tímabili sem þú hefur verið við- riðin þetta starfsumhverfi? „Ætli ástandið sé ekki ósköp svipað því sem það var, það hefur ekki mikið breyst. Það er mjög erfitt að vera starfandi lista- maður á Íslandi. Markaðurinn er svo lítill og takmarkaður, auk þess sem lítill áhugi er á samtímalist. Jafnvel þeir sem safna myndlist hafa ekki kynnt sér samtímalistina eins og hún gerist í dag, þótt auðvitað séu til aðdá- unarverðar undantekningar í því sambandi. Maður hefði gjarnan viljað sjá meiri kjark hjá stofnunum og fyrirtækjum þegar verið er að kaupa eða setja upp verk. Ef þessir aðilar telja sig ekki hafa faglegt vit á myndlist er ekkert einfaldara en að leita til fagmanna, nákvæmlega eins og ég leita til fagmanna til þess að leggja rafmagn í verkið mitt. Ég skammast mín ekkert fyrir að láta einhvern sem hefur vit á rafmagni segja mér hvernig það á að vera. Mér finnst stundum eins og fólk geri of mikið úr óttanum við þekking- arleysi sitt þegar myndlistin er annars vegar – að fólk sé of hrætt við að leita til fagmanna eins og það sé einhver minnkun í því. Samt má finna fyrir framförum, menn hafa til dæmis verið að vinna að því að byggja þátttökuna í Feneyjum upp undanfarið. Margt fólk hefur unnið gott starf í því sam- bandi, en að mínu mati þarf að setja ein- hverja stofnun yfir þessa framkvæmd eins og gert hefur verið meðal annarra þjóða. Af hálfu ráðuneytisins hefur aldrei verið lagt meira í þátttökuna en núna og Laufey Helgadóttir hefur unnið sleitulaust að kynn- ingarmálum svo við séum í einhverjum takti við það sem aðrar þjóðir eru að gera þrátt fyrir að hafa ekki sömu aðstöðu og þær. Í því sambandi skiptir miklu að nýta fjármagnið eins vel og hægt er og vonandi hefur þessi vinna áhrif til framtíðar.“ Smámyndir af hluta þeirra fossa sem eru í verkinu á tvíæringnum. Alls eru í verkinu ljósmyndir á filmu af 52 fossum sem komið er fyrir á milli glerja á rennibrautum sem rennt er inn í hirslu. „Vatn er að verða mál málanna á al- heimsvísu eða á mælikvarða jarð- arinnar. Við hljótum að þurfa að taka á því á ábyrgan hátt. Við höfum lifað við allsnægtir af vatni – okkur hefur þótt það svo sjálfsagt – að kannski kunnum við ekki að meta það. Ekki síst hér þar sem er svo mikið af því. Þessir fossar hafa alltaf verið til og fólki finnst kannski að þar af leiðandi hljóti þeir alltaf að verða til, eða þá að eitthvað geti komið í þeirra stað. En nátt- úran er ekki þannig að það sé alltaf hægt að setja eitthvað í staðinn.“ fbi@mbl.is Verkið „Paradís? – Hvenær?“ frá árinu 1998, er gott dæmi um heimildasöfnun þá sem Rúrí hefur notað í list sinni, en nýja verkið í Feneyjum byggir einnig á skrásetningarþörf hennar. Verk Rúríar, „Archive – endangered waters“, byggir á gagnvirkri fjöltækni, en áhorfandinn getur dregið myndir af fossum út úr rekkanum og hlustað á nið þeirra um leið. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 14. JÚNÍ 2003 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.