Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.2003, Qupperneq 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 4. OKTÓBER 2003 13
STÓRSVEIT Reykjavíkur hefur nú sitt tólfta
starfsár og kennir ýmissa grasa í efnisvalinu í
vetur.
Fyrst ber að nefna einn fremsta jasstromp-
etleikara heimsins, Tim Hagans. Hann mun
stýra sveitinni 8. október á Kaffi Reykjavík.
Flutt verða verk eftir hann. Hagans hefur
leikið með mörgum kunnum stórsveitum, m.a.
Stan Kenton, Woody Herman, Thad Jones og
Ernie Wilkins. Hann hefur einnig leikið með
stórstjörnum nútímans s.s. saxófónleikaran-
um Joe Lovano. Hagans er listrænn stjórn-
andi Norrbotten stórsveitarinnar í Svíþjóð, en
hún er önnur tveggja atvinnustórsveita þar í
landi.
Hnotubrjóturinn í desember
Jazzhátíð Reykjavíkur verður í nóvember.
Þá leikur hinn kunni söngkvartett, New York
Voices, með Stórsveitinni. Tónleikarnir fara
fram í Austurbæ sunnudaginn 9. nóvember og
verður efnisskráin í swing stíl.
Stórsveitin stendur nú í fyrsta sinn fyrir
jólatónleikum og flytur Hnotubrjótinn eftir
Tsjajkovskíj í útsetningu Duke Ellington 5.
desember. Stjórnandi sveitarinnar verður
Vestur-Íslendingurinn Richard Gillis, en hann
er aðalstjórnandi The Winnepeg Jazz Orch-
estra. Einnig verða fluttar útsetningar á sí-
gildum bandarískum jóladægurlögum með
einum eða fleiri einsöngvurum.
Árleg Stórsveitarveisla
Hinn kunni sænski básúnuleikari Nils
Landgren verður gestur sveitarinnar í febr-
úar. Hann mun leika einleik og stjórna sveit-
inni. Landgren er fremstur básúnuleika í sínu
heimalandi og starfar mikið á meginlandi
Evrópu, meðal annars með Stórsveit norður-
þýska útvarpsins. Í mars fagnar stórsveitin
sextugsafmæli Þóris Baldurssonar. Þórir mun
útsetja og semja heila efnisskrá fyrir sveitina,
stjórna og koma fram sem einleikari á Ham-
mond B-3 orgelið sitt. Tónleikarnir fara fram
í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Í maí stendur Stórsveitin að vanda fyrir
Stórsveitarveislu í Ráðhúsi Reykjavíkur, en
undanfarin ár hefur sveitin leitt saman allar
starfandi stórsveitir landsins á þessum tón-
leikum. Þannig mætir æskublómi íslenskra
stórsveita hinum eldri og reyndar. Að jafnaði
koma 5–6 sveitir fram á þessum tónleikum.
Yngstu þátttakendurnir eru á tólfta ári en
hinn elsti fast að áttræðu.
FJÖLBREYTTUR VETUR
HJÁ STÓRSVEITINNI
Stórsveit Reykjavíkur í góðri sveiflu. Margt er framundan hjá henni í vetur.
MARGRÉT Sverrisdóttir leikkona var ein sex
Íslendinga sem útskrifuðust með B.A. próf í
leiklist frá Arts Educational Schools í Lund-
únum, eða ArtsEd eins og hann nefnist í dag-
legu tali, í lok september. Margrét segir hend-
ingu hafa ráðið því að hún sótti um í ArtsEd.
„Fyrir algjöra tilviljun rakst ég á pínulitla
frétt í Morgunblaðinu þar sem sagt var frá því
að útsendarar ArtsEd væru að koma hingað
til landsins til að halda prufu. Ég sá fréttina á
föstudegi og var þá stödd norður í landi, en
prufan átti að fara fram í Reykjavík á laug-
ardeginum. Við kærasti minn keyrðum því
suður um nóttina og ég mætti ósofin í prufuna.
Sem betur fer átti ég tilbúið efni til þess að
sýna. Ég tók þetta bara með trukki og komst
inn,“ segir Margrét og hlær við tilhugsunina.
Að sögn Margrétar var þetta í fyrsta og
eina sinn sem ArtsEd hefur haldið prufu hér-
lendis. „Þeir voru það hrifnir af Íslending-
unum að þeir buðu sjö af þeim tuttugu sem
komu í prufuna að koma út og hefja nám við
skólann. Þetta átti að vera diplómanám í leik-
list en meðan ég var úti við nám var því breytt
í B.A. nám. Ég kvarta ekkert, enda ótvíræður
kostur að hafa fengið nánast B.A. prófið í
kaupbæti.“
Augljóst er að Margréti hefur gengið af-
skaplega vel í náminu því hún útskrifaðist
með hæstu einkunn. „Í fyrra var bara einn
sem fékk hæstu einkunn, en í ár erum við fjög-
ur af tæplega þrjátíu manna bekk. Einkunnin
byggist að stærstum hluta á frammistöðu okk-
ar á leiksviðinu í einni af þeim stóru leiksýn-
ingum sem við tökum þátt í á lokaárinu, en
auk þess er tekið mið af lokaritgerð sem við
urðum að skila. Ég valdi að vinna ritgerðina
mína í tengslum við uppsetninguna á Frúnni
frá hafinu eftir Henrik Ibsen sem ég lék í og
skrifaði ritgerðina í formi nokkurs konar æf-
ingadagbókar þar sem ég skrifaði um allt sem
ég var að prófa og skoða í tengslum við hlut-
verkið.“
Leikhúsið alltaf heillað
Aðspurð segir Margrét leikhúsið alltaf hafa
heillað sig, þó hún hafi að sögn verið of feimin
til þess að sækjast eftir hlutverki hjá Leik-
félagi Húsavíkur, þar sem hún er borin og
barnfædd. „Mig langaði alltaf en þorði ekki að
spyrja hvort ég mætti leika. Þegar ég var
sautján ára var ég síðan spurð hvort ég vildi
leika og ég sagði strax já og hef verið að síðan.
Ég vissi reyndar alltaf að ég myndi enda sem
einhvers konar listamaður. Þannig var ég
bæði að fikta við ljósmyndun og teikningu
þegar ég var yngri, en leiklistin var einfald-
lega sú listgrein sem heillaði mig mest. Í flest-
um öðrum listgreinum finnst mér listamað-
urinn of einangraður í listsköpun sinni. Ég er
bara svo mikil hópmanneskja og finnst gaman
að leika mér með öðru fólki.
Margrét hefur hlaupið í flest þau störf sem
vinna þarf fyrir eina sýningu hvort sem það
tengist leikmyndinni, búningum, aðstoðarleik-
stjórn eða umsjón leikmuna. „Mér finnst ein-
faldlega bara gaman að vinna í leikhúsinu, þó
mér finnist auðvitað skemmtilegast að leika.
Um þessar mundir er að ég æfa nýtt leikrit,
Dagbók Önnu, eftir Kristján Hreinsson sem
Inga Bjarnason leikstýrir. Þetta er einþátt-
ungur skrifaður fyrir tvær konur sem við
Bryndís Petra Bragadóttir leikum, en verkið
fjallar um stelpu sem þjáist af lystarstoli. Auk
þess er ég að vinna í Borgarleikhúsinu þar
sem ég hef umsjón með leikmununum í Línu
langsokk. Aðaláskorunin þar felst í því að
standa upprétt á hringsviðinu, því ég þarf að
stökkva inn og út í skiptingum meðan sviðið
snýst og er alltaf með báðar hendur fullar.“
Að sögn Margrétar er hún komin heim til að
vera, þó vissulega hafi það heillað hana að
vera áfram úti. „Ég vildi samt miklu frekar
koma heim og skapa mér mín eigin tækifæri
hér, gera eitthvað sem mér finnst gaman frek-
ar en að vera í harkinu úti. Auk þess var ég
orðin leið á að vera útlendingur.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Margrét Sverrisdóttir leikkona.
„GAMAN AÐ LEIKA
MÉR MEÐ ÖÐRUM“
silja@mbl.is
PÍANÓLEIKARARNIR Ástríður Alda Sig-
urðardóttir, Birna Helgadóttir og Víkingur
Heiðar Ólafsson hlutu 500 þús. kr. styrk hver úr
Minningarsjóði um Birgi Einarson apótekara.
Þetta er í fimmta sinn sem styrkur er veittur úr
þessum sjóði. Styrkþegarnir nú hafa áður feng-
ið styrk úr sjóðnum, en í ljósi framúrskarandi
árangurs í námi og glæsilegs tónleikahalds
ákvað stjórn sjóðsins að veita þeim viðbótar-
styrk til frekara náms.
Ástríður Alda Sigurðardóttir hefur nýlega
lokið prófi frá Bloomington-tónlistarháskólan-
um í Bandaríkjunum og hyggur nú á framhalds-
nám í Evrópu. Hún þreytti nýlega frumraun
sína í píanóleik í Salnum í Kópavogi. Fyrir
nokkru lék Birna Helgadóttir píanóhlutverkið á
tónleikum Gorky Park-tríósins. Þar voru flutt
tríó eftir rússnesk og armensk nútímatónskáld.
Hún er nú í framhaldsnámi við Sibeliusar Aka-
demíuna í Helsinki og lýkur í vor mastersprófi.
Víkingur Heiðar Ólafsson þreytti frumraun
sína með Sinfóníuhljómsveit Íslands fyrir
nokkrum dögum, þar sem hann lék Píanókons-
ert Jóns Nordal og Píanókonsert nr. 1 eftir
Prokovjev. Hann stundar nú framhaldsnám í pí-
anóleik hjá Jerome Lowenthal við Juilliard-tón-
listarháskólann í New York.
Minningarsjóður um Birgi Einarson apótek-
ara var stofnaður árið 1995 að frumkvæði eig-
inkonu hans, Önnu Egilsdóttur Einarson. For-
maður sjóðsins er dóttir Birgis og Önnu,
Ingibjörg Ásta Hafstein.
Meðstjórnendur eru bróðir hennar, Magnús
B. Einarson og Anna Þorgrímsdóttir, Halldór
Haraldsson, Ólafur Vignir Albertsson og Snorri
Sigfús Birgisson.Píanóleikararnir Víkingur Heiðar Ólafsson, Ástríður Alda Sigurðardóttir og Birna Helgadóttir.
ÞRÍR PÍANÓLEIKARAR
FÁ VIÐBÓTARSTYRK
ENDURMENNTUN HÍ og Þjóðleik-
húsið standa nú í október fyrir nám-
skeiði í tengslum við sýningu leikhúss-
ins á Ríkarði þriðja eftir William
Shakespeare. Námskeiðið er í fjórum
hlutum, frá 14. til 28. október.
Leikstjóri verksins er Rimas Tum-
inas, sem þekktur er fyrir persónulega
og frumlega nálgun við klassískar leik-
bókmenntir.
Á námskeiðinu kynna þátttakendur
sér leikverkið vel og hlýða á fyrirlestra
áður en þeir sjá sýningu Þjóðleikhúss-
ins á verkinu. Námskeiðinu lýkur með
umræðum með þátttöku aðstoðarleik-
stjóra og leikara úr sýningunni, þar
sem meðal annars verður gerð grein
fyrir hugmyndum og aðferðum leik-
stjóra við sýninguna. Einnig verður
þátttakendum boðið upp á skoðunar-
ferð um leikhúsið og veitt innsýn í
starfsemi þess.
Breski leikstjórinn og leiklistarkenn-
arinn Mark Griffin fjallar um sýning-
arsögu Ríkarðs þriðja í samhengi við
sýningarsögu leikrita Shakespeares í
heimalandi skáldsins. Mark Griffin hef-
ur lagt sérstaka áherslu á leikrit
Shakespeares í störfum sínum við leik-
hús, en hann hefur meðal annars leik-
stýrt og kennt við háskóla í Bretlandi,
auk þess sem hann hefur starfað í
Rússlandi og á Ítalíu.
Umsjón með námskeiðinu hefur
Melkorka Tekla Ólafsdóttir, leiklistar-
ráðunautur Þjóðleikhússins. Skráning
fer fram hjá Endurmenntun Háskóla
Íslands.
NÁMSKEIÐ
UM RÍKARÐ
ÞRIÐJA