Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.2003, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 18. OKTÓBER 2003 15
Næsta v ika
Laugardagur
Borgarleikhúsið kl. 15.15
Fyrstu 15:15 tónleikar vetr-
arins. Tónleikarnir eru sam-
starfsverkefni Voces Thules og
Hafdísar Bjarnadóttur.
Salurinn kl. 21 Sigrún
Hjálmtýsdóttir og Valgeir Guð-
jónsson fagna útkomu geisla-
plötunnar Fuglar tímans.
Selfosskirkja kl. 17 Samkór
Selfoss fagnar
30 ára afmæli
sínu. Stjórnandi
er Edit Molnár.
Með kórnum
koma fram Berg-
þór Pálsson og
Miklós Dalmay
píanóleikari,
Karlakór Hreppamanna, undir
stjórn Edit Molnár, Karlakórinn
Þrestir, stjórnandi Jón Kristinn
Cortes og Skagfirska söng-
sveitin, stjórnandi Björgvin Þ.
Valdimarsson ásamt einsöngv-
urum og undirleikurum.
Gallerí Skuggi, Hverf-
isgötu 39 kl. 14 Margrét
Jónsdóttir listmálari opnar
einkasýninguna: Misskilningur
er svo áhugaverður! Opið alla
daga nema mánudaga á kl.
13-17.
Listhúsið Laugardal kl. 16
Rósa Vestfjörð Guðmunds-
dóttir steinlistakona opnar sýn-
ingu á verkum sínum. Verk
Rósu eru steinar sem hún hefur
um árabil safnað á ferðum sín-
um um landið. Sýning stendur
til 1. nóvember. Opið daglega
kl. 11-18, laugardaga til kl.
14.
Benedikt S. Lafleur kynnir ný
glerverk sín kl. 13.30-17.30.
Gallerí Kúnst, Skólavörðu-
stíg 8 kl. 11 Teddi sýnir 23
trélistaverk sem öll eru til sölu.
Opið virka daga kl. 11-18,
laugardaga kl. 11-16.
Listasafn ASÍ v/ Freyju-
götu kl. 17 Ósk Vilhjálms-
dóttir og Anna Hallin bjóða
uppá samfélagslegt gæsaspil
á sýningunni: Inn og út um
gluggann. Opið alla daga,
nema mánudaga, kl. 13-17.
Aðgangur er ókeypis.
Kompan, Grófargili, Ak-
ureyri kl. 14 Guðný Þórunn
Kristmannsdóttir opnar sína
þriðju einkasýningu. Hún
stundaði nám í Myndlista- og
handíðaskóla Íslands og út-
skrifaðist úr málaradeild
1991. Sýningin stendur til 2.
nóvember. Opið kl. 14-17.
Langagerði 88 kl. 14 Jens
Kristleifsson heldur sýningu á
teikningum og trédýrum í nýj-
um sýningarsal. Opið miðviku-
dag til sunnudags kl. 13-18, til
9. nóvember.
Dramasmiðjan, Skúlatúni
4, kl. 15 Hlín Agnarsdóttir
heldur fyrirlestur er nefnist
Magnús og Snæfríður og er
þar vísað til tveggja af aðal-
persónum Íslandsklukku Hall-
dórs Laxness en í bók Hlínar,
Að láta lífið rætast – ást-
arsaga, koma þær persónur
við sögu.
Sunnudagur
Langholtskirkja kl. 17
Blómin úr garðinum: Söng-
kvartettinn Út í vorið flytur vin-
sæl kvartettlög fyrri ára í út-
setningum Carls Billich,
Magnúsar Ingimarssonar o.fl.
Svo og nýrri útsetningar fyrir
kvartettinn eftir Bjarna Þór Jón-
atansson. M.a. verða fluttar
nokkrar nýjar útsetningar á
lögum Jóns Múla Árnasonar.
Gerðuberg kl. 17 Ljóða-
tónleikar með
Guðrúnu Jó-
hönnu Ólafs-
dóttur mezzó-
sópran og Inese
Klotiñu píanó-
leikara. Á efnis-
skránni eru ís-
lensk
einsöngslög,
verk eftir H. Wolf, Alban Berg
og Ljóðaflokkurinn Haugtussa
eftir Grieg.
Salurinn kl. 20 Liene Cir-
cene flytur Són-
ötu í G-dúr eftir
Schubert, Rondo
a capriccio eftir
Beethoven, Tón-
ar í nóttinni eftir
Vasks, Ballatan í
h-moll og Fen-
eyjar og Napólí
eftir Liszt.
Grófarhús, Tryggvagötu
15 kl. 14 Hausthátíð IBBY á
Íslandi. Tilkynnt verður hverjir
eru á heiðurslista IBBY samtak-
anna 2004. Barnaspítala
Hringsins verður afhent bóka-
gjöf. Sagt verður frá tilurð
bókarinnar Auga Óðins. Höf-
undar og myndskreytar segja
frá vinnu sinni við bókina.
Listasafn Reykjavíkur -
Hafnarhúsi kl. 15 Pétur H.
Ármannsson er með sýning-
arstjóraspjall um sýninguna:
Úr byggingarlistardeild.
Þriðjudagur
Listasafn Sigurjóns Ólafs-
sonar kl. 17 Listaverk Sig-
urjóns Ólafssonar í alfaraleið.
Fimmtán ár eru liðin frá því að
safnið var opnað almenningi í
endurbyggðri vinnustofu lista-
mannsins á Laugarnesi. Opið
laugardaga og sunnudaga kl.
14 og 17.
Listasafn Íslands kl.
12.10-12.40 Rakel Péturs-
dóttir verður með hádeg-
isleiðsögn um sýninguna: Vef-
ur lands og lita -Yfirlitssýning á
verkum Júlíönu Sveinsdóttur.
Goethe-Zentrum, Lauga-
vegi 18 kl. 20 Fulltrúi
Goethe-Zentrums var á bóka-
sýningunni í Frankfurt og kom
heim með 50 nýútkomnar
bækur frá þýskum, aust-
urrískum og svissneskum for-
lögum, einkum fagurbók-
menntir. Stutt yfirlit verður yfir
sýninguna og valdir titlar
kynntir. Bækurnar eru til út-
láns.
Miðvikudagur
Norræna húsið kl. 12.30
Háskóla-
tónleikar: Jóel
Pálsson og Sig-
urður Flosason
leika á saxófón,
klarínettu og
flautu. Inn-
blástur: Frum-
samin tónlist fyrir
tvo tréblásara í bland við
spuna.
Súfistinn, Laugavegi 18 kl.
20.30 Bókaforlagið Bjartur
fagnar nýútkominni bók Berg-
sveins Birgissonar, Landslag er
aldrei asnalegt.
Fimmtudagur
Háskólabíó kl. 19.30 Sin-
fóníuhljómsveit Íslands. Ein-
leikari og hljómsveitarstjóri er
Philippe Entremont píanóleik-
ari. Flutt verða verk eftir Wolf-
gang Amadeus Mozart Píanó-
konsert nr. 21 og eftir Sergej
Prokofiev Sinfónía nr. 5.
Bergþór
Pálsson
Liene Circene
Jóel Pálsson
Guðrún
Jóhanna
Morgunblaðið/Ásdís
Zbigniew Dubik og Sigrún Eðvaldsdóttir. Í sófanum eru
Helga Þórarinsdóttir og Sigurgeir Agnarsson.
SIGURGEIR Agn-arsson er ungursellóleikari nýkom-inn heim frá námi.
Hann hefur vakið athygli í
íslenskum tónlistarheimi
fyrir góðan sellóleik. Hann
leikur á öðrum tónleikum
Kammermúsíkklúbbsins í
Bústaða-
kirkju kl.
20 annað
kvöld. Með
honum
leika Sig-
rún Eðvaldsdóttir á fiðlu,
Zbigniew Dubik á fiðlu og
Helga Þórarinsdóttir á
víólu. Flutt verða verk eftir
Erik Mogensen, Béla Bart-
ók og Ludwig van Beet-
hoven.
Kammermúsíkklúbb-
urinn á sér bráðum hálfrar
aldar gamla sögu. Hvernig
er það fyrir ungan lista-
mann að koma þar til leiks?
„Það hefur verið mjög
skemmtilegt og lærdóms-
ríkt að vinna með þessum
reyndu tónlistarmönnum.
Ég er alltaf að safna í sarp-
inn. Þegar ég var yngri fór
ég margsinnis á tónleika
hjá Kammermúsíkklúbbn-
um. Það hvarflaði ekki að
mér þá að ég ætti eftir að
vera fyrir framan áhorf-
endur. Það er spennandi að
fá tækifæri til að vera þeim
megin.“
Þið flytjið Strengjakvart-
ett nr. 2 eftir Erik Mogen-
sen, sem er útlærður gít-
arleikari. Gætir þess í
verkinu.
„Nei, það finnst mér ekki,
en verkið er nýtt fyrir mér,
félagar mínir fluttu það
fyrst árið 2001. Erik er mér
samt ekki alveg ókunnur.
Við bjuggum báðir í Boston
fyrir nokkrum árum, þá
flutti ég sólóverk fyrir selló
eftir Erik. Verkið sem við
flytjum nú semur Erik und-
ir sterkum áhrifum frá ís-
lenskri þjóðlagahefð og
styðst við Liljukvæðið eftir
Eystein Ásgrímsson munk.
Síðan leikum við Strengja-
kvartett nr. 6 eftir Bartók.
Þetta er síðasti kvartettinn
sem hann samdi og eitt af
þessum krefjandi stykkjum.
Þessi kvartett hefur ekki
oft verið fluttur hér á landi.
Ég hlakka mikið til að
reyna mig við verkið. Í
Kammermúsíkklúbbnum er
lögð áhersla á að vera með
ný og gömul verk í bland og
síðast á dagskránni er verk
eftir Ludwig van Beethov-
en, Strengjakvartett í B-dúr
op. 18 nr. 6.“
Þú hefur fengið góða
dóma fyrir leik þinn. Ert
nýráðinn við Sinfóníu-
hljómsveit Íslands og leikur
einleik með henni í janúar
nk. Hvernig áhrif hefur vel-
gengnin á þig?
„Ég er nú frekar jarð-
bundinn maður, reyni bara
að vanda mig og gera hlut-
ina vel. Ég er búinn að vera
í útlöndum sl. átta ár og það
er frábært að koma heim.
Ég er eiginlega að upp-
götva Ísland á nýjan leik og
það er tekið mjög vel á móti
mér eins og t.d. í Kamm-
ermúsíkklúbbnum. Það er
búið að vera feikinóg að
gera hjá mér. Já með Sinfó.
Það var hringt í mig
snemma í vetur og mér boð-
ið að leika einleik með sveit-
inni. Það var smárekistefna
um verkið og niðurstaðan
varð sú að ég flytti verk eft-
ir Joseph Haydn. Ég hef
einu sinni áður leikið ein-
leik með Sinfóníuhljóm-
sveitinni, það var þegar ég
útskrifaðist úr Tónlistar-
skóla Reykjavíkur árið
1995. Þegar ég leik í annað
sinn verða næstum upp á
dag níu ár á milli tón-
leikanna. Það er mikill heið-
ur fyrir mig að fá að starfa
með Sinfóníuhljómsveitinni.
Það er mikil samkeppni í
þessum geira og ekki sjálf-
gefið að fá vinnu. Í stað þess
að hlaða upp skuldum
hyggst ég nú snúa blaðinu
við og gjalda keisaranum
það sem keisarans er.“
Hvað er minnisstæðast
frá Þýskalandsdvölinni?
„Það var er ég lék einleik
með sinfóníuhljómsveitinni
í Bochum í Þýskalandi fyrir
tveimur árum. Þá voru tón-
leikar til heiðurs Soffiu
Gubaidulinu, en hún er eitt
af allra stærstu nöfnum í
nútímatónlistinni. Bærinn
var að heiðra hana í tilefni
af 70 ára afmæli hennar.
Þar lék ég í verki fyrir selló
og rússneska harmonikku,
bajan, og strengjasveit.
Soffia var sjálf á tónleik-
unum og það verður mér
ógleymanlegt.“
Glímuskjálfti
sellóleikarans
STIKLA
Kammermús-
íkklúbburinn í
Bústaðakirkju
MYNDLIST
Gallerí Hlemmur: Jon
Brunberg. Til 26. okt.
Gallerí Kling og Bang,
Laugavegi 23: Birgir Andr-
ésson, Sigurður Sveinn Hall-
dórsson og Hlynur Sig-
urbergsson. Til 26. okt.
Gallerí Skuggi, Hverf-
isgötu: Margrét Jónsdóttir.
Til 2. nóv.
Gerðarsafn: Úr einkasafni
Þorvaldar Guðmundssonar
og Ingibjargar Guðmunds-
dóttur. Guðrún Gunn-
arsdóttir. Hulda Stefánsdóttir.
Til 2. nóv.
Gerðuberg: Yfirlitssýning á
verkum Koggu sl. 30 ár. Til
16. nóv.
Hafnarborg: Pétur Hall-
dórsson. Sigríður Erla Guð-
mundsdóttir. Til 28. okt.
Hallgrímskirkja: Gunnar
Örn. Til 1. des.
Hús málaranna, Eið-
istorgi: Björn Birnir. Til 19.
okt.
Hönnunarsafn Íslands,
Garðatorgi: Nýsköp-
unarverk grunnskólabarna.
Til 29. okt.
i8, Klapparstíg 33: Guð-
rún Einarsdóttir. Undir stig-
anum: Tomas Lemarquis. Til
1. nóv.
Íslensk grafík, Hafn-
arhúsi: Alan James. Til 2.
nóv.
Listasafn Akureyrar: Þjóð
í mótun. Vestursalur: Erla S.
Haraldsdóttir og Bo Melin. Til
2. nóv.
Listasafn ASÍ: Ósk Vil-
hjálmsdóttir og Anna Hallin.
Til 2. nóv.
Listasafn Borgarness: Jó-
hannes Arason. Til 5. nóv.
Listasafn Einars Jóns-
sonar: Opið laugardaga og
sunnudaga kl. 14-17.
Listasafn Íslands: Júlíana
Sveinsdóttir. Sara Björnsdóttir
og Spessi. Til 26. okt.
Listasafn Reykjanes-
bæjar: Stefán Geir Karlsson.
Til 19. okt.
Listasafn Reykjavíkur -
Ásmundarsafn: Ásmundur
Sveinsson - Nútímamað-
urinn. Til 20. maí.
Listasafn Reykjavíkur -
Hafnarhúsi: Erró - stríð.
Til 3.1. Samsýning alþýðu-
listar og samtímalistar, í sam-
starfi við Safnasafnið. Úr
byggingarlistasafni. Innsetn-
ing Bryndísar Snæbjörns-
dóttur og Marks Wilsons. Til
2. nóv.
Listasafn Reykjavíkur -
Kjarvalsstaðir: List án
landamæra: Sex myndlist-
armenn. 26. okt.
Listasafn Sigurjóns Ólafs-
sonar: Listaverk Sigurjóns
Ólafssonar í alfaraleið. Til
30. nóv.
Listhús Ófeigs, Skóla-
vörðustíg: Ásgeir Lárusson.
Til 30. okt.
Ljósmyndasafn Reykja-
víkur: Magnús Ólafsson
ljósmyndari. Til 1. des.
Norræna húsið: Skart-
gripir norsku listakonunnar
Liv Blåvarp. Til 19. okt.
Safn - Laugavegi 37: Op-
ið mið -sun, kl. 14-18. Til sýn-
is á þremur hæðum íslensk
og alþjóðleg samtíma-
listaverk.
Þjóðmenningarhúsið:
Handritin. Skáld mánaðarins
- Matthías Johannessen.
Þjóðarbókhlaða: Humar
eða frægð: Smekkleysa í 16
ár. Til 23. nóv.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Ríkarður
þriðji, fim. Allir á svið, lau.
Dýrin í Hálsaskógi, sun. Veisl-
an, lau., mið. Pabbastrákur,
lau. Með fulla vasa af grjóti,
sun.
Borgarleikhúsið: Lína
Langsokkur, lau., sun. Öfug-
um megin upp í, fös. Puntila
og Matti, sun. Kvetch, lau.,
fös. Hættuleg kynni, frums.
sun. Grease, mán., þrið.,
mið., fim.
Íslenski dansflokkurinn:
Þrjú dansverk: The Match,
Symbiosis, Party, lau.
Loftkastalinn: Erling, sun.,
þrið.
Hafnarfjarðarleikhúsið:
Vinur minn heimsendir, fös.
Iðnó: Sellófon, sun., fim. Ten-
órinn, lau., fös. Ólafía, mið.
Gamla bíó: Plómur í New
York, fös.
Möguleikhúsið: Tveir
menn og kassi, sun.
Listasafn Reykjavíkur -
Hafnarhúsi Fjöllistasýn-
ingin: Hvenær er kven/
maður frjáls? frums. fös.
Leikhúsið Mosfellsbæ:
Hobbitinn, sun.
MARGRÉT Jónsdóttir list-
málari opnar einkasýningu í
Galleríi Skugga, Hverf-
isgötu 39 kl. 14 í dag. Sýn-
ingin ber titilinn Misskiln-
ingur er svo áhugaverður!
Verkin eru unnin með egg-
temperu á pappír og segir
Margrét m.a. um verkin:
„Ég vinn í myndröðum og
fæst við rannsóknir, til-
raunir, uppbrot og nýjar leiðir … fer undir yf-
irborðið. Verkin hafa alltaf verið tjáning til-
finninga minna og því mjög persónuleg,
samtengd lífsþrautum mínum.“ Margrét hlaut
starfslaun til eins árs á
síðasta ári og dvaldi mest
af þeim tíma í París og er
sýningin afrakstur frá þeim
tíma. Margrét sýndi síðast
í Listasafni ASÍ árið 2001.
Hún hefur verið starfandi
myndlistarmaður í 30 ár.
Margrét hefur starfað í Par-
ís síðastliðin sex sumur og
hefur vinnustofur á Íslandi
og í Frakklandi.
Gallerí Skuggi er opið alla daga, nema
mánudaga, kl. 13–17. Sýningin stendur til 2.
nóvember. Aðgangur er ókeypis.
Persónuleg verk tengd lífsþrautum
Verk eftir Margréti Jónsdóttur.
BÖRNUM gefst nú færi á að hlýða
á barnabókahöfunda lesa úr nýj-
ustu verkum sínum í Þjóðmenning-
arhúsinu alla laugardaga til 13.
desember
Frú Vigdís Finnbogadóttir er
verndari Sögustunda. Hún ýtir átak-
inu úr vör kl. 14 í dag með lestri á
kafla úr eftirlætis barnabók sinni.
Þá les Embla Ýr Bárudóttir upp
úr bók sinni Blóðregn – Sögur úr
Njálu. Myndasaga byggð á loka-
þætti Njálssögu. Í bókinni lifna
þekktar persónur við á nýjan hátt
og þúsund ára gömul átök eru færð
í mál og myndir nýrra tíma.
Börn og sögustundir
Vigdís
Finnbogadóttir