Lesbók Morgunblaðsins - 01.11.2003, Side 2
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 1. NÓVEMBER 2003
BANDARÍSKI rithöfundurinn
Toni Morrison, sem eflaust er
hvað þekktust fyrir bók sína
Ástkær, sendi
á dögunum
frá sér nýja
skáldsögu,
Love, eða Ást
eins og heiti
hennar gæti
útlagst á ís-
lensku. Love
nær að mati
gagnrýnanda New York Times
ekki sömu heillandi samtvinnun
töfra og hins goðumlíka sem
finna mátti í Ástkær og telur
gagnrýnandinn í raun Love
með síðri bókum Morrison.
Love fjallar um samskipti
tveggja kvenna sem hafa
þekkst frá því í barnæsku. Líkt
og í nokkrum fyrri verka rit-
höfundarins þá má þar finna
fyrir erfiðar fjölskyldu-
aðstæður, en öll helstu þemu
Morrison er einnig að finna í
bókinni m.a. tapað sakleysi,
hald fortíðar á nútíðinni, þján-
ingar blökkukvenna af hendi
blökkumanna, sem og þau áhrif
sem þjóðfélagsbreytingar og
breytt viðhorf geta haft á smá-
bæjarsamfélag.
Dauði af völdum
Hollywood
Þáttagerðarstjórnandinn Stev-
en Bochco sem á að baki vin-
sæla sjónvarpsþætti á borð við
Hill Street
Blues, LA
Law og
NYPD Blue
sendi nýlega
frá sér sína
fyrstu skáld-
sögu. Líkt og
í þáttunum
sem hann á
heiðurinn að
þá er það spennusagan sem
orðið hefur fyrir valinu hjá
Bochco, en Death by Holly-
wood eða Dauði af völdum
Hollywood segir frá skuggaleg-
um viðburðum í kvikmynda-
borginni. Söguhetjan er rann-
sóknarlögreglumaðurinn
Dennis Farantino sem rann-
sakar morð á leikara þar sem
aðalvitnið, Bobby Newman,
handritshöfundur á niðurleið,
kemur á fót meðferðarpró-
grammi sem byggist á málinu
sem hann er flæktur í. Að mati
breska dagblaðsins The Guardi-
an er hér á ferðinni bæði
hnyttin og snúin spennusaga.
Eins og lokuð bók
LEIKARINN Alec Guinness er
viðfangsefni Piers Paul Read í
nýjustu bók hans Alec Guinn-
ess: the Auth-
orised Bio-
graphy, en
Read var vin-
ur leikarans
á meðan hann
var á lífi.
Bókin þykir
bæta litlu við
fyrri ævisög-
ur sem skrifaðar hafa verið um
Guinness sem, ólíkt flestum
stjörnum hvíta tjaldsins í dag,
gætti þess vandlega að halda
einkalífi sínu útaf fyrir sig. Í
bókinni má þó finna allar hefð-
bundnar upplýsingar um
Guinness sem átti erfitt með að
sætta sig við samkynhneigð
sína og var gagntekinn af því
að halda öllu sléttu og felldu á
yfirborðinu og átti það sinn
þátt í erfiðu heimilislífi fjöl-
skyldunnar. Persónan Alec
Guinness reynist því sem fyrr
líkt og lokuð bók þar sem
einkalífi leikarans er haldið ut-
an sjóndeildarhrings lesandans.
ERLENDAR
BÆKUR
Ást Morrison
Alec Guinness
Toni Morrison
Steven Bochco
Á
MÁNUDAGSKVÖLDIÐ, á
sama augnabliki og lista-
kokkurinn smámælti, Jamie
Oliver, sneri aftur á Stöð
tvö með sína snilldarlegu
takta, hófst frönsk heimild-
armynd í Ríkissjónvarpinu.
Myndin bar þann kléna titil
Á valdi lystarstols og var þar fylgst með ungri
stúlku í Marseilles sem þjáist af lystarstoli og
lotugræðgi. Myndin var mjög áhrifarík, stúlk-
unni Chloé er umhugað um að heimsbyggðin
öll fái innsýn í hvernig það er að vera haldin
þessum hræðilega sjúkdómi og hleypti því
tökuvélunum að sínu einkalífi í því skyni að
draga upp sem átakanlegasta og sannasta
mynd. Áhorfendur fylgdust m.a. með Chloé í
græðgislegu átkasti sem breyttist í grátkast
og loks í uppköst. Sjálfsmynd Chloé er stór-
lega brengluð, henni finnst hún vera feit þótt
beinin standi út í strengda húðina og angist
hennar felst ekki síst í því að finnast hún ást-
laus og alein í baráttunni „við þennan ógeðs-
lega mat“. Fram kom í myndinni að fjöldi
fólks er haldinn þessum hræðilega sjúkdómi
og franska heilbrigðiskerfið er greinilega ekk-
ert úrræðabetra en það íslenska; læknishjálp,
sjúkrarúm og fagleg aðhlynning fyrir þessa
sjúklinga eru af skornum skammti. Myndinni
lauk á því að hin alltof mjóa Kló sat kapp-
klædd á strönd, áhorfandi að áhyggjulausu lífi
fólks í sandi og sól, og beið þess að eitt af átta
plássum losnaði á sjúkrastofnun fyrir anor-
exíur. Annars beið hennar ekkert nema dauð-
inn.
Kvöldið eftir voru umræður um lystarstol í
Kastljósi. Þrjár myndarkonur voru í viðtali,
tvær höfðu persónulega reynslu af sjúkdómn-
um en ein var geðlæknir. Þar kom ýmislegt
upp úr kafinu. Varpað var fram þeirri fullyrð-
ingu að metnaðarfullum, duglegum og sam-
viskusömum stúlkum væri hættara en öðrum
að verða lystarstoli að bráð. Þykir vafalaust
einhverjum sem þarna sé veruleg göfgun á af-
ar ógeðfelldum sjúkdómi og minnir á gömlu
goðsögnina um að ofurgreindum einstakling-
um hætti frekar til geðveiki en öðrum. Þá kom
í ljós að karlmenn geta einnig þjáðst af anor-
exíu. Enginn piltur var reyndar til viðræðu
um það mál en talað var við skelegga stúlku,
aðstandanda ungs manns með lystarstol á háu
stigi. Í viðtalinu kom fram að sjúkdómurinn er
ekki aðeins erfiður að því leyti að fólk tærist
upp heldur hefur hann líka í för með sér
sjálfsmyndarkreppu, persónuleikabreytingar
og ranghugmyndir.
Það er bæði þarft og gott framtak hjá fjöl-
miðlum að taka á svo erfiðu og viðkvæmu efni
sem lystarstol og lotugræðgi eru, ekki síst
vegna þess að oft er þeim legið á hálsi fyrir að
hafa búið til ímynd hinnar tággrönnu fyr-
irsætu og ýta þar með undir anorexíutilhneig-
ingar unglingsstúlkna. Fyrir ekki alllöngu
birtist grein í einu glanstímaritanna um líf og
dauða íslenskrar stúlku sem varð lystarstoli
að bráð og á dögunum fjallaði Sirrý um át-
röskun í þætti sínum Fólki á Skjá einum.
Fleira mætti gera til að halda umræðunni vak-
andi en alltof lengi hafa lystarstol og lotu-
græðgi verið sveipuð þagnarhulu enda þótt
bæði ófínir og blygðunarfullir sjúkdómar. En
fjölmiðlaumræða er oftast yfirborðskennd,
einhliða og í æsifréttastíl; enda aðallega ætlað
að auka áhorf og selja auglýsingar og fljótlega
mun áhuginn beinast að einhverju öðru, arð-
bærara og söluvænna. Það getum við hugleitt
þegar við horfum á nýja myndbandið með
Robbie Williams, Sexed up, þar sem anorex-
íuútlit leikkonunnar er svo kirfilega undir-
strikað að jafnvel Chloé hlypi fram að gubba.
Og á meðan flokka og telja litlu börnin okkar
kaloríurnar sínar og líma inn í Orkubók Lata-
bæjar – anorexíusjúklingar framtíðarinnar?
FJÖLMIÐLAR
Áhorfendur fylgdust m.a.
með Chloé í græðgislegu
átkasti sem breyttist í
grátkast og loks í uppköst.
S T E I N U N N I N G A Ó T TA R S D Ó T T I R
ÁTKÖST, GRÁTKÖST, UPPKÖST
IJæja, enn flóð. Það er satt að segja eins og saganendurtaki sig. Var ekki talað um eilífa end-
urkomu hins sama? Eða var þá verið að tala um
eitthvað allt annað en fólst í orðanna hljóðan?
Hver man það? Það er að minnsta kosti ekki hægt
að halda öðru fram en að náttúra menningar-
innar sé hringrásareðlis eins og önnur náttúra þeg-
ar þetta flóð heldur áfram að bresta á svona ár eft-
ir ár.
IIJá, bækur hellast yfir, hvolfast yfir. Að vísu ekki íeins miklum mæli nú og oft áður, að því er virð-
ist. En það eru samt margar góðar bækur. Og
margt tilhlökkunarefnið. Í Lesbók í dag er rætt við
skáld á tímamótum. Sigurður Pálsson hefur lokið
þríleikjafernu sinni með bókinni Ljóðtímavagn.
Þar með er orðinn til ljóðabókabálkur sem á sér
fáa líka, tólf bækur sem ortar hafa verið á tuttugu
og átta árum, eins konar ljóðskúlptúr sem á köflum
hefur virst einkennilega vísindalegur að gerð en
þess á milli ögrað sjálfum sér og ásjáendum.
IIIÍ Lesbók verður rætt við fleiri skáld og rithöf-unda á næstu vikum eins og tíðkast hefur und-
anfarin ár. Fleiri ljóðskáld koma þar við sögu ef að
líkum lætur og einnig skáldsagnahöfundar sem
virðast vera með hugann við samtíma sinn meira
en oft áður. Og kannski ekki síst pólitíska fleti hans
eða hugmyndafræðilega þótt það hugtak sé erfitt að
nota í sömu málsgrein og minnst er á pólitík nú til
dags. Og kannski er það einmitt hlédrægni hug-
myndanna sem höfundar vilja glíma við nú.
IVAnnað sem vekur athygli í bókaflóði ársins erfjöldi ævisagna. Rætt hefur verið við ævi-
söguritara Stephans G. Stephanssonar í Lesbók og
fjallað hefur verið um deilur sem risið hafa vegna
ritunar ævisögu Halldórs Laxness. Hvað sem henni
líður verður að vona að viðkomandi ævisaga
standi undir allri athyglinni sem hún hefur fengið.
Ævisaga Vilhjálms Stefánssonar vekur einnig eft-
irtekt og fleiri mætti nefna. Og sjálfsævisagan held-
ur áfram að nema hin myrku meginlönd. Þar vek-
ur sérstaka athygli bók Jóns Kalmans Stefánssonar,
Snarkið í stjörnunum, en Jón Kalman hefur á und-
anförnum árum skrifað nokkrar bækur á mörkum
skáldsögu og sjálfsævisögu.
VÞað er orðin málvenja að tala um bókaflóð áhaustin. Flóðið skellur á okkur og kaffærir,
enginn fær við neitt ráðið. Og þetta flóð er ekki
bara bækur heldur auglýsingar um bækur, fréttir
um bækur, viðtöl um bækur, ritdómar um bækur.
Allt hellist þetta yfir okkur af þvílíkum jötunmóð
að um stund er eins og allt annað standi í stað,
það sé ekkert annað líf, enginn annar tími – að-
eins þessi bókatími.
Bókaútgáfan er orðin ein af höfuðskepnum
landsins, náttúruafl sem við berum óttablandna
virðingu fyrir. Samt vildum við ekki vera án þess,
frekar en óblíðrar veðráttunnar eða eldsins í iðrum
jarðar, því að það er þetta sem gerir okkur að Ís-
lendingum, það er glíman við höfuðskepnurnar
sem hefur gert okkur jafnharðdræg og raun ber
vitni – við erum Íslendingar vegna þess að við
kunnum að lifa af eld og ís – og bækur. Að lifa af
bækur. Á því byggist lífið í landinu. Lesturinn er
veruháttur Íslendingsins. Að lesa er að vera. Lífs-
barátta Íslendingsins fer fram í bókunum, í bók-
menntunum. Tilvera hans byggist á því að hann
hafi sogið í sig merginn úr arfinum og skilað hon-
um frá sér í nýju formi, í nýju efni, með nýju inn-
taki – nýtt á gömlum merg, það er Ísland, land í sí-
felldri endurnýjun, líf æxlast af lífi, orð af orðum,
bækur af bókum.
NEÐANMÁLS
KRAFTAVERK lífsins er að finna í
þessu augnabliki. Að lifa augnablik-
ið til fulls færir okkur vissuna um
frelsi okkar. Þar finnum við tækifær-
ið leika við hörund okkar og gefa
okkur fullt færi á sér. Frelsið er okkar
til að taka á móti, hafna eða grípa
hið fengna tækifæri. Þegar við telj-
um okkur finna fyrir þungum
trommuslætti lífsins og okkur verkjar
undan er gott að leita í kyrrð augna-
bliksins. Ef betur er að gáð eru þær
þrautir sem þjá okkur gluggi sem
snýr að sálu okkar. Í þrautunum er
okkur gefið tækifæri til að skyggnast
inn í djúp sálarinnar og snúa aftur
með aukinn sjálfsskilning. Því hraðar
sem við hlaupum burt frá þjáning-
unum því þungbærari verða þær.
Því oftar sem við flýjum þrautirnar
því erfiðara verður að snúa við,
mæta þeim og leyfa þeim að dreifa
fræjum sjálfsskilningsins í brjóst okk-
ar. Í augnablikinu er allur heimurinn
falinn því í augnablikinu er tækifær-
ið til að segja já við því sem lífið
býður okkur uppá hér og nú!
www.spamadur.is
Óræðir draumar
Flest eigum við okkur drauma.
Suma dreymir um að finna einhvern
til að elska og fjölga mannkyninu.
Aðra dreymir um að öðlast virðingu
og ná árangri í leik eða starfi. Oftar
en ekki eru það þó við sjálf sem
stöndum í vegi fyrir að þessir
draumar rætist. Ástæðan er sú að
við erum sjaldnast tilbúin til að fá
það sem við viljum. Það krefst hug-
rekkis að horfast í augu við þarfir
sínar og langanir. Með því að op-
inbera þær erum við að gefa á okk-
ur höggstað. Því reynum við að búa
þannig um hnútana að draumar
okkar geti ekki ræst. Við höfum þá
almenna og óskýra. Við bindum þá
skilyrðum sem er erfitt að uppfylla.
Við horfum á hismið fremur en að
virða fyrir okkur kjarna málsins. Við
veljum að vera ófullnægð og örugg
frekar en að fá það sem við viljum
og eiga svo á hættu að missa það.
Við tökum eymdina fram yfir óviss-
una.
www.spamadur.is
Morgunblaðið/Jim Smart
Þrír plús fimm plús ein bugða og einn óljós.
LÍFSSPEKI
NETVERJA