Lesbók Morgunblaðsins - 01.11.2003, Side 15
Sigurðsson.
Mánudagur
Listaháskóli Íslands, Laug-
arnesi kl. 12.30 Kristinn E.
Hrafnsson myndlistarmaður
flytur fyrirlestur um hugleið-
ingu sína um listaverkið
Áfanga eftir Richard Serra sem
er á Vesturey Viðeyjar. Kristinn
kynnir höfundinn og veltir
vöngum yfir merkingu verksins
og áhrifum á nánasta um-
hverfi. Richard Serra gaf þjóð-
inni Áfanga á listahátíð árið
1990.
Árnagarður, stofa 304, kl.
16 Martha
Brooks flytur op-
inberan fyrir-
lestur sem hún
nefnir „Spaces
Between the
Words: A Writ-
ing Life“ eða Á
milli orðanna:
ævi og starf rithöfundar.
Brooks mun ræða þá þætti
sem hafa haft áhrif á hana sem
skáldkonu. Fyrirlesturinn verð-
ur fluttur á ensku.
Fella-og Hólakirkja kl. 20
Arnar Jónsson, leikari flytur at-
riði úr leikgerð um Jobsbók
Gamla testamentisins.
Þriðjudagur
Norræna húsið kl. 20 Tuul-
ikki Lehtinen pí-
anótónleikari flyt-
ur Partitu í B-dúr
eftir J.S. Bach,
Sónötu eftir N.
Medtner, Són-
atínu eftir Ravel
og Carneval eftir
Schumann.
Miðvikudagur
Norræna húsið kl. 12.30
Háskólatónleikar: Valgerður
Guðrún Guðnadóttir og Hrólf-
ur Sæmundsson syngja verk
eftir Gabriel Fauré, Claude
Debussy og Camille Saint-
Saëns. Undirleikari á píanó er
Iwona Jagla.
Listaháskóli Íslands, Skip-
holti 1 kl. 12.30 Bandaríski
hönnuðurinn Georg Gottl
fjallar um hagspeki sálarinnar
og uppgang tilfinningatengdr-
ar hönnunar á markaðnum.
Laugardagur
Háskólabíó kl. 15 Gosp-
elkór Reykjavíkur ásamt hljóm-
sveit heldur tónleika til styrktar
Samhjálp sem á 30 ára afmæli
á þessu ári. Í kórnum eru 28
söngvarar með áralanga
reynslu af söng.
Borgarleikhúsið kl. 15.15
Á næstu tónleikum 15:15 tón-
leikasyrpunnar flytja Þórunn
Guðmundsdóttir, sópr-
ansöngkona og Hrefna Unnur
Eggertsdóttir, píanóleikari,
söngva eftir rússneska tón-
skáldið Modest Mussorgsky.
Einnig koma fram leikarar úr
leikfélaginu Hugleik.
Íslenska óperan kl. 20
Haustkvöld í Óperunni. Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Jóhann Friðgeir
Valdimarsson, Sesselja Krist-
jánsdóttir, Ólafur Kjartan Sig-
urðarson og Davíð Ólafsson.
Á píanó leikur Kurt Kopecky.
Hafnarborg kl. 15 Síðari
hluti afmælissýningar Hafn-
arborgar. Sýning í Aðalsal á
teikningum og málverkum Jóns
Baldurs Hlíðbergs og högg-
myndum Johns Th. Josefsen.
Opið alla daga nema þriðju-
daga kl. 11-17.
Gallerí Hlemmur kl. 17
Gústav Geir Bollason opnar
sýningu á verkum sínum. Opið
fimmtudaga til sunnudaga kl.
14-18. Aðgangur er ókeypis.
Kling og Bang gallerí, kl.
17 Bandaríski listamaðurinn
David Diviney opnar sýn-
inguna Foxfire. Opið fimmtu-
daga til sunnudaga kl. 14-18.
Íslenska óperan kl. 15 JPV
útgáfa fagnar útgáfu bók-
arinnar Ljóðtímabrot eftir Sig-
urð Pálsson. Dagskráin er í
samvinnu við HAF (Hrókur alls
fagnaðar) sem er einskonar
lista- og skemmtideild Skák-
félagsins Hróksins.
Kráin, Laugavegi 73 kl. 17
Stefán Berg opnar sýningu á
olíuverkum. Myndirnar eru all-
ar málaðar í ágústmánuði sl.
Sýningin stendur til 1. desem-
ber.
Sunnudagur
Borgarbókasafn,
Tryggvagötu 15 kl. 14
Kanadíski rithöfundurinn
Martha Brooks kynnir verk sín
og les úr bók sinni True Con-
fessions of a Heartless Girl sem
verið að þýða á fjölda tungu-
mála, m.a. dönsku, ítölsku,
þýsku og japönsku.
Hönnunarsafn Íslands kl.
15 Sýningin Sænsk bóka-
hönnun. Úrval prentgripa sem
gefnir hafa verið út eða fram-
leiddir í Svíþjóð á árinu 2002.
Opið alla daga nema,
mánudaga 12-18.
Seltjarnarneskirkja kl. 14
Lúðrasveit Æskunnar leikur
blandaða efnisskrá. Flutt verða
tvö tónverk eftir stjórnandann,
Tryggva M. Baldvinsson,
ásamt sígildum lúðrasveita-
perlum, lögum úr söngleikjum,
íslenskum dægurlögum frá 7
áratugnum og fleiru.
Grensáskirkja kl. 17
Kirkjukór Grensáskirkju heldur
tónleika í tilefni af 40 ára af-
mæli safnaðarins. Flutt verða
innlend og erlend lög m.a. eftir
Mozart, Fauré og tveir þættir
úr messu eftir Schubert. Ein-
söngvarar eru Ingibjörg Ólafs-
dóttir og Ingimar Sigurðsson.
Þá syngja tví- og þrísöng Ingi-
björg Ólafsdóttir, Hellen
Helgadóttir og Matthildur
Matthísdóttir.
Hjallakirkja kl. 17 Kór
Hjallakirkju og einsöngvarar
flytja m.a. Litlu orgelmessuna
eftir Joseph Haydn, þrjú verk til
minningar um Pál Ísólfssonm,
frumflutt verður ný þýðing á
Næturljóði eftir Evert Taube.
Undirleikari er Lenka Mát-
éová og söngstjóri Jón Ólafur
Súfistinn, Laugavegi 18 kl.
20.30 Bókaútgáfan Bjartur
fagnar útkomu bókarinnar
Borgir og eyðimerkur eftir Sig-
urjón Magnússon.
Fimmtudagur
Háskólabíó kl. 19.30 Sin-
fóníuhljómsveit Íslands. Kvik-
myndatónleikar. Hljómsveit-
arstjóri: Rick Benjamin.
Hátíðasýning á einni fyrstu
kvikmynd sögunnar, Lestar-
ráninu mikla eftir Edwin S.
Porter frá árinu 1903. Í ár er
liðin öld frá gerð hennar. Einn-
ig verður sýning á Hershöfð-
ingjanum eftir Buster Keaton
frá 1927, sem er ein af hans
allra frægustu myndum.
Norræna húsið kl. 20 Nor-
ræn leikskáld - dramatísk. Þor-
steinn Bachmann kynnir
norska leikskáldið Axel Halst-
enius og leikritið Erling sem
unnið er upp úr samnefndri
sögu Ingvars Ambjørnsens.
Leikararnir Stefán Jónsson og
Jón Gnarr sýna brot úr verk-
inu. Aðgangur er ókeypis.
Föstudagur
Hafnarborg kl. 19.30
Menningarkvöld Stofnunar
Dante Alighieri. Kristín R. Sig-
urðardóttir sópransöngkona
flytur sönglög og perlur úr
ítölskum óperum með nýstár-
legu móti við undirleik Hjörleifs
Valssonar fiðluleikara og
Þrastar Þorbjarnarsonar gít-
arleikara. Við píanóið verður
Bjargey Þ. Ingólfsdóttir. Gestur
er Sigurður Demetz.
Norræna húsið kl. 20
Sænsk menningarvika: Djass-
tónleikar - Kvartett Jonas Kull-
hammars frá Svíþjóð. Jonas
Kullhammar tenórsaxófón,
Torbjörn Gulz píanó, Torbjörn
Zetterberg bassi og Daniel
Fredriksson trommur. Aðgang-
ur kr. 1.200.
Martha
Brooks
Tuulikki
Lehtinen
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 1. NÓVEMBER 2003 15
MYNDLIST
Gallerí Skuggi, Hverf-
isgötu: Margrét Jónsdóttir.
Til 2. nóv.
Gallerí Veggur, Síðu-
múla 22: Leifur Breiðfjörð.
Til 3. des.
Gerðarsafn: Úr einkasafni
Þorvaldar Guðmundssonar
og Ingibjargar Guðmunds-
dóttur. Guðrún Gunn-
arsdóttir. Hulda Stefánsdóttir.
Til 2. nóv.
Gerðuberg: Kogga sl. 30
ár. Til 16. nóv.
Hafnarborg: Jón Baldur
Hlíðberg og John Th. Jo-
sefse. Til 24. nóv. Afmæl-
issýning Hafnarborgar. Til
22. des.
Hallgrímskirkja: Gunnar
Örn. Til 1. des.
Hús málaranna, Eið-
istorgi: Kristinn G. Jó-
hannsson. Til 9. nóv.
Hönnunarsafn Íslands:
Sænsk bókahönnun 2002.
Til 15. nóv.
i8, Klapparstíg 33: Guð-
rún Einarsdóttir. Undir stig-
anum: Tomas Lemarquis. Til
1. nóv.
Íslensk grafík, Hafn-
arhúsi: Alan James. Til 2.
nóv.
Listhús Ófeigs: Dagný
Guðmundsdóttir. Til 19. nóv.
Kling og Bang, Lauga-
vegi 23: David Diviney. Til
23. nóv.
Listasafn Akureyrar: Þjóð
í mótun. Vestursalur: Erla S.
Haraldsdóttir og Bo Melin.
Til 2. nóv.
Listasafn ASÍ: Ósk Vil-
hjálmsdóttir og Anna Hallin.
Til 2. nóv.
Listasafn Borgarness: Jó-
hannes Arason. Til 5. nóv.
Listasafn Einars Jóns-
sonar: Opið laugardaga
og sunnudaga kl. 14–17.
Listasafn Íslands: Júlíana
Sveinsdóttir. Sara Björns-
dóttir og Spessi. Til 2. nóv.
Listasafn Reykjanes-
bæjar: Kristinn Pálmason.
Til 7. des.
Listasafn Reykjavíkur –
Ásmundarsafn: Nútíma-
maðurinn. Til 20. maí.
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhúsi: Erró-stríð. Til
3.1. Samsýning alþýðulistar
og samtímalistar. Úr bygg-
ingarlistasafni. Bryndís Snæ-
björnsdóttir og Marks Wil-
sons. Til 2. nóv.
Listasafn Reykjavíkur –
Kjarvalsstaðir: List án
landamæra: Karl Guð-
mundsson og Rósa Kristín
Júlíusdóttur. Til 9. nóv.
Ferðafuða. Myndlistarhúsið
á Miklatúni. Til 25. jan.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar: Verk Sigurjóns
í alfaraleið. Til 30. nóv.
Listasetrið Kirkjuhvoli,
Akranesi: Myndverk eftir
Valgerði Briem. Til 16. nóv.
Ljósmyndasafn Reykja-
víkur: Magnús Ólafsson
ljósmyndari. Til 1. des.
Skaftfell, Seyðisfirði:
Garðar Eymundsson. Til 23.
nóv.
Norræna húsið: Afmæl-
issýning Meistara Jakobs. Til
16. nóv.
Safn – Laugavegi 37: Op-
ið mið.–sun., kl. 14–18. Ís-
lensk og alþjóðleg samtíma-
listaverk. Breski
listamaðurinn Adam Barker-
Mill. Til 1. mars. Lawrence
Weiner: Fimm nýjar teikni-
myndir. Til 1. mars.
Þjóðmenningarhúsið:
Handritin. Skáld mánaðar-
ins – Matthías Johannessen.
Þjóðarbókhlaða: Smekk-
leysa í 16 ár. Til 23. nóv.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Ríkarður
þriðji, fim. Allir á svið, fös.
Dýrin í Hálsaskógi, lau., sun.
Veislan, sun., fös. Pabba-
strákur, fös. Með fulla vasa
af grjóti, lau. Græna landið,
lau., mið. Leiklestur, Nóttin
er móðir dagsins, lau.
Borgarleikhúsið: Lína
langsokkur, lau., sun. Puntila
og Matti, lau. Kvetch, sun.,
fös. Hættuleg kynni, lau.
Grease, mið., fim. Common-
nonsense, frums. fim.
Íslenski dansflokkurinn:
Þrjú dansverk: The Match,
Symbiosis, Party, sun., fös.
Iðnó: Sellófon, fös. Ten-
órinn, sun.
Gamla bíó: Plómur, fös.
Tjarnarbíó: Stúdentaleik-
húsið sýnir 1984 ástarsaga,
sun.
Leikfélag Mosfellsbæjar:
Hobbitinn, sun., fös.
Leikfélag Akureyrar: Er-
ling, lau.
heyrðust margar af hefðbundnu fiðlu-
og píanósónötunum í Austurbæj-
arbíói, jafnt með innlendum og er-
lendum tónlistarmönnum. Okkur
Helgu Bryndísi langaði að bæta að-
eins úr þessu.
Gjarnan þegar tónlistarmenn halda
tónleika flytja þeir oft meist-
ararastykki. Á fiðlutónleikum eru oft-
ast á efnisskránni verk sem reynir
mikið á getu og tækni flytjandans. Að
spila Sónötur byggir á samvinnu. Þær
eru kammermúsík en ekki einleikari
(fiðlan) með tæknilega flugeldasýn-
ingu ásamt undirleikara (píanóið).
Bæði Mozart og Brahms voru miklir
sónötumenn, Mozart skrifaði 42
fiðlusónötur en Brahms samdi þrjár.
Við leikum næst síðustu sónötuna sem
Mozart semur, KV 562 og sónötuna
op. 100 eftir Brahms. Báðar són-
öturnar eftir Mozart og Brahms eru í
A-dúr en þær eru auðvitað mjög ólík-
ar. Báðar eru reyndar í þremur köfl-
um en Brahms leikur sér svolítið að
forminu því miðjukaflinn er lag-
skiptur. Hann fléttar meistaralega
hröðum dansi eða scherzo-stefi inn í
annars mjög rólegri, já eiginlega
himneskri laglínu. Sónatan er ákaf-
lega ljóðræn, það er eins og hún sé
gegnum gangandi söngur með af-
skaplega yndislegum laglínum. Són-
ata Mozarts er líka falleg en á allt
annan hátt. Hann semur hana seint á
lífsferlinum og er meira að leika sér
með stefin. Þau ganga jafnt milli fiðl-
FIÐLUSÓNÖTUR Mozarts heyr-ast ekki oft á tónleikum hér álandi, en nú gefur að heyraeina þeirra, auk þess verður
fluttur sónötukafli (Sonatensatz) og
sónata eftir Brahms. Á næstu Tíbrár-
tónleikum Salarins í annaðkvöld kl.
20, bjóða Greta Guðnadóttir fiðlu-
leikari og Helga Bryndís Magn-
úsdóttir píanóleikari upp á Són-
ötukvöld.
Hvað eru sónötur, Greta?
„Sónata er ákveðið tónsmíðarform
sem varð til á klassíska tímabilinu fyr-
ir eitt eða fleiri hljóðfæri. Það sam-
anstendur yfirleitt af nokkrum köflum
og var til að byrja með þrír en tón-
skáld fóru svo fljótlega að leika sér
með að bæta fjórða kaflanum við
(menuett eða scherzo). Rómantísku
tónskáldin útvíkk-
uðu líka tón-
málið, og undir
lok róman tíska
tímans var són-
atan farin að taka þeim tónkerf-
isbreytingum sem átti við um alla
aðra hljóðfæratónlist. Dúrar og moll-
ar voru þandir til hins ýtrasta og tón-
málið varð „expressívara“ og meira
ögrandi.“
Hvers vegna völduð þið að flytja són-
ötur?
„Undanfarin ár hafa fiðlusónötur lítið
verið fluttar hér á landi, þær hafa að
nokkru leiti legið í dvala. Þegar Tón-
listarfélag Reykjavíkur var og hét
unnar og píanósins í einskonar pólý-
fóníu. Mozart fléttar þeim skemmti-
lega saman og af mikilli kunnáttu.
Við brjótum upp báðar sónöturnar
með þessum Sonatensatz eða staka
sónötukaflanum í c-moll eftir Brahms.
Hann átti að vera hluti af samvinnu
þriggja tónskálda: Brahms, R. Schu-
mann og A. Dietrich í fiðlu og píanó
sónötu í a-moll. Ekki er vitað hvort
hinir tveir skrifuðu nokkurntímann
sína kafla en eftir stendur frábært
scherzo eftir Brahms nokkurs konar
stuðmúsík. Allavega er meiri háttar
gaman að spila þetta.“
Brahms og Mozart voru uppi hvor á
sinni öldinni. Breyttist sónötuformið á
þessum tíma?
„Sónötuformið sem slíkt breyttist ekki
að ráði. Breytingin er aðallega í tón-
málinu og í stærðinni. Það blæs út ef
svo má að orði komast.“
Sónötukvöld með Gretu og Helgu Bryndísi
Morgunblaðið/Jim Smart
Þær stöllur Greta Guðnadóttir og Helga Bryndís Magnúsdóttir í Salnum.
STIKLA
Sónötukvöld í
Salnum
Næsta vika
LEIKRITIÐ Nóttin er móðir dagsins eftir
Lars Norén verður flutt í sviðsettum leik-
lestri á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins
í kvöld kl. 20. Leiklesturinn markar upp-
haf sænskrar menningarviku, og er um
að ræða frumflutning á Íslandi.
Lars Norén er eitt fremsta leikskáld
Norðurlandanna og hafa leikrit hans
verið flutt víða um heim. Fyrsta verk
hans var sett á svið árið 1973 en hann
sló í gegn sem leikskáld með Nóttin er
móðir dagsins árið 1982. Eftir hann liggur á
sjötta tug leikrita. Hann hefur einnig starfað sem
leikstjóri, og var um nokkurra ára skeið listrænn
stjórnandi Riksteatern í Stokkhólmi. Lars
Norén hefur hlotið ýmsar viðurkenn-
ingar og verðlaun fyrir ritstörf sín. Nú
síðast veitti sænska akademían honum
Norrænu verðlaunin 2003. Meðal leik-
rita hans sem sýnd hafa verið á Íslandi
eru Hræðileg hamingja, Bros úr djúpinu,
Seiður skugganna og Laufin í Toscana,
en tvö þau síðarnefndu voru flutt í Þjóð-
leikhúsinu.
Leikendur eru Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir,
Hjalti Rögnvaldsson, Atli Rafn Sigurðarson og
Baldur Trausti Hreinsson. Leikstjóri er Viðar Egg-
ertsson og þýðandi Birgir Sigurðsson.
Nóttin er móðir dagsins á Smíðaverkstæðinu
Lars Norén