Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.2003, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.2003, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 8. NÓVEMBER 2003 15 Laugardagur Borgarleikhúsið kl. 15.15 15:15 tónleikasyrpan: Camer- arctica flytur Kvartett fyrir enda- lok tímans eftir Olivier Messia- en. Þeim til fulltingis er Örn Magnússon píanóleikari. Breiðfirðingabúð kl. 21 Söngfélagið Vorboðinn úr Búð- ardal heldur tónleika. Gerðarsafn kl. 15 Í Vestursal safnsins verður opnuð sýning Sigríðar Jóhannsdóttur og Leifs Breiðfjörð á veflistaverkum. Listasafn Akureyrar kl. 15 Í austur- og miðsal sýnir Eggert Pétursson málverk undir heitinu Blómróf. Í vestursal hefur kan- adíski listamaðurinn Aaron Michel komið fyrir innsetningu á skúlptúrum og teikningum. Opið virka daga kl. 12–17. Klefinn, mátunarklefi Nonnabúðar, Laugavegi 11 kl. 16 Myndlistarmaðurinn Hafsteinn Michael opnar sýn- ingu á dvergum í nýju sýning- arrými Nonnabúðar. Þetta er sjötta einkasýning Hafsteins en hann útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1999. Sýningin stendur til 3. desember. Auglýsingastofan Greind, Grensásvegi 7 kl. 20 Graf- íski hönnuðurinn Georg Hilm- arsson heldur sýningu á verkum sínum. Laugavegur 25, 3. hæð, kl. 18 Opin vinnustofa sjö mynd- listarmanna: Melkorka Huldu- dóttir, Baldur Geir Bragason, Sigríður Dóra Jóhannsdóttir, Markús Þór Andrésson, Arn- finnur Amazeen, Þuríður Sig- urðardóttir og Þórdís Claessen. Opið kl. 14–19 virka daga fram á næsta laugardag. Mariella, Skólavörðustíg 12 Sýning á fjórum grunnteg- undum af ræktuðum perlum sem heita Tahitiperlur, Suð- urhafsperlur, Akoyaperlur og ferskvatnsperlur. Opið þriðju- daga til föstudaga kl. 11–18, laugardaga kl. 11–16, út nóv- ember. Þjóðmenningarhús kl. 14 Á fjórðu Sögustund les Axel Gunnlaugsson upp úr bók sinni Eldgos í garðinum. Axel er í hópi níu höfunda sem gefa út barnabók fyrir þessi jól. Edinborgarhúsið á Ísafirði kl. 19.30 Arabískt kvöld. Það er Menningarmiðstöðin Ed- inborg, Fjölmenningarsetur, Rætur (samtök um félag áhuga- fólks um menningar fjölbreytni) og Ísafjarðardeild Rauða kross- ins sem standa að skemmt- uninni. Amal Tamimi flytur er- indi um Palestínu. Sunnudagur Dómkirkjan kl. 17 Tónlist- ardagar Dómkirkjunnar. Ung- lingakór Bústaðakirkju og Ung- lingakór Dómkirkjunnar. Stjórnendur eru Jóhanna Þór- hallsdóttir og Kristín Valsdóttir. Seltjarnarneskirkja kl. 17 Sinfóníuhljómsveit áhuga- manna leikur Brandenborg- arkonsert nr. 3 eftir Johann Seb- astian Bach, fagottkonsert í C-dúr eftir Vivaldi og Sinfóníu nr. 35 (KV 385), Haffners- infóníuna, eftir Mozart. Stjórn- andi: Ingvar Jónasson. Einleik- ari á fagott er Sigríður Kristjánsdóttir. Salurinn kl. 20 KaSa hóp- urinn (Kamm- erhópur Sal- arins) heldur tónleika til heið- urs Jóni Ás- geirssyni 75 ára. Flutt verður tónlist Jóns fyrir leikhús og kvik- myndir; kaflar úr hornkonsert og víólukonsert ásamt Laxness- syrpu fyrir strengjakvartett, flautu og píanó og tónlist úr óp- erunni Galdra-Lofti. Jón tekur virkan þátt í hátíðinni. Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir kl. 15 Sýn- ingarstjóraspjall Eiríks Þorláks- sonar um afmælissýningu Kjar- valsstaða, Myndlistarhúsið á Miklatúni – Kjarvalsstaðir í 30 ár. Borgarleikhúsið, forsalur, kl. 19 Á undan sýningunni um Púntila og Matta mun Hlín Agnars- dóttir, rithöfundur og leikstjóri, spjalla um óðals- bóndann Púntila og hans áfeng- isfíkn í tengslum við sama umfjöll- unarefni í nýútkominni bók sinni, Að láta lífið rætast, ást- arsaga aðstandanda. Mánudagur Listaháskóli Íslands, Laug- arnesi kl. 12.30 Ilmur Stef- ánsdóttir myndlistarkona fjallar um verk sín. Um er að ræða myndbandsverk, skúlptúra, ljósmyndir og leiksýningar, en í verkum sínum fjallar Ilmur oftast um hversdagslega hluti sem hún setur í nýtt samhengi. Þriðjudagur Listasafn Íslands kl. 20 Kammersveit Reykjavíkur flytur verk eftir Hjálmar H. Ragnarsson: Movement fyrir strengjakvartett, Tengsl fyrir alt- rödd og strengja- kvartett, Vocalise fyrir mezzósópr- an, fiðlu og píanó, Sex lög við ljóð Stefáns Harðar Grímssonar fyrir bariton, flautu, selló og pí- anó og Adadigo fyrir strengja- sextett. Einsöngvarar eru Marta Hrafnsdóttir, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Ólafur Kjartan Sigurðarson. Dómkirkjan kl. 20 Tónlist- ardagar Dómkirkjunnar: Ljóða- kvöld í safnaðarheimilinu í umsjá Hjálmars Jónssonar. Ljóðskáld lesa úr verkum sínum. Ragnheiður Haraldsdóttir, Ólöf Sesselja Óskarsdóttir og Mar- teinn H. Friðriksson flytja bar- okktónlist milli þátta. Landakotskirkja kl. 20 Sönghópurinn Hljómeyki flytur kórtónlist eftir Óliver Kentish. Verkin voru frumflutt á sum- artónleikum í Skálholti í sumar. Stjórnandi er Bernharður Wilk- inson. Miðvikudagur Listaháskóli Íslands kl. 12.30 Guðmundur Oddur Magnússon, prófessor við hönnunardeild LHÍ, segir frá og sýnir myndir frá rússnesku hönnunarsýningunni Modulor 2003 í Sankti Pétursborg sem opnuð var um síðustu mán- aðamót. Fyrirlesturinn er öllum opinn. Iðnó kl. 20.30 „Mitt fólk hefur aldrei átt skíði“ er yfirskrift dag- skrár í tali og tónum sem haldin verður í minningu Einars Krist- jáns Ein- arssonar gít- arleikara, sem lést 8. maí 2002. Fjöl- margir lista- menn, úr stórum hópi vina og sam- starfsmanna Einars, munu koma fram á tónleikunum. Fimmtudagur Laugardalshöll kl. 19.30 Sinfón- íuhljómsveit Ís- lands og Todmobile. Hljómsveit- arstjóri er Bern- harður Wilk- inson. Einleikari Lukáš Vondrácìk flyt- ur Píanókonsert nr. 2 eftir Serg- ej Rakhmanínov. Einnig verða flutt öll þekktustu lög tríósins úr Todmobile, þeirra Þorvaldar Bjarna, Andreu Gylfa og Ey- þórs Arnalds, en þau koma nú öll þrjú saman aftur þessa einu kvöldstund til þess að end- urvekja hljómsveitina. Seltjarnarneskirkja kl. 20 Hjörturinn eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson. Flytjendur eru: Kammerkórinn Vox academica, Rússíbanarnir, Sigrún Hjálmtýs- dóttir og Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari. Verkið samdi Hróð- mar sérstaklega fyrir hópinn og var það flutt á sl. vori. Auk þess verður m.a. flutt klezmertónlist, íslensk þjóðlög og napólítanskir söngvar. Stjórnandi er Hákon Leifsson. Andrea Gylfadóttir Hlín Agnarsdóttir Einar Kristján Einarsson Jón Ásgeirsson Hjálmar H. Ragnarsson MYNDLIST Borgarbókasafn, Tryggvagötu: Passion. Það nýjasta í gerð teiknimynda- sagna í Svíþjóð. Til 30. nóv. Gallerí Skuggi, Hverf- isgötu 39: Ágústa Odds- dóttir og Margrét O. Leó- poldsdóttir. Til 23. nóv. Gallerí Veggur, Síðumúla 22: Leifur Breiðfjörð. Til 3. des. Gerðarsafn: Sigríður Jó- hannsdóttir og Leifur Breið- fjörð. Til 7. des. Úr einkasafni Þorvaldar Guðmundssonar og Ingibjargar Guðmunds- dóttur. Hulda Stefánsdóttir. Til 15. nóv. Gerðuberg: Kogga sl. 30 ár. Til 16. nóv. Hafnarborg: Jón Baldur Hlíðberg og John Th. Josef- sen. Til 24. nóv. Afmælissýn- ing Hafnarborgar. Til 22. des. Hallgrímskirkja: Gunnar Örn. Til 1. des. Hús málaranna, Eiðistorgi: Kristinn G. Jóhannsson. Til 9. nóv. Hönnunarsafn Íslands: Sænsk bókahönnun 2002. Til 15. nóv. Íslensk grafík, Hafn- arhúsi: Anna Snædís Sig- marsdóttir. Til 23. nóv. Listasafn Akureyrar: Egg- ert Pétursson. Aaron Michel. Til 14. des. Listasafn ASÍ: Guðný Guð- mundsdóttir. Til 23. nóv. Ar- instofa: Úr eigu safnsins. Til 4. des. Listhús Ófeigs: Dagný Guð- mundsdóttir. Til 19. nóv. Kling og Bang, Laugavegi 23: David Diviney. Til 23. nóv. Listasafn Einars Jóns- sonar: Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14–17. Listasafn Reykjanes- bæjar: Kristinn Pálmason. Til 7. des. Listasafn Reykjavíkur - Ásmundarsafn: Nútíma- maðurinn. Til 20. maí. Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhúsi: Erró-stríð. Til 3.1. Listasafn Reykjavíkur - Kjarvalsstaðir: List án landamæra: Karl Guðmunds- son og Rósa Kristín Júl- íusdóttur. Til 9. nóv. Ferða- fuða. Myndlistarhúsið á Miklatúni. Til 25. jan. Listasafn Sigurjóns Ólafs- sonar: Verk Sigurjóns í al- faraleið. Til 30. nóv. Listasetrið Kirkjuhvoli, Akranesi: Myndverk eftir Valgerði Briem. Til 16. nóv. Ljósmyndasafn Reykja- víkur: Magnús Ólafsson ljós- myndari. Til 1. des. Skaftfell, Seyðisfirði: Garðar Eymundsson. Til 23. nóv. Skálholtsskóli: Stað- arlistamenn - Jóhanna Þórð- ardóttir. Jón Reykdal. Til 1. febrúar. Norræna húsið: Afmæl- issýning Meistara Jakobs. Til 16. nóv. Safn - Laugavegi 37: Opið mið.-sun. kl. 14–18. Íslensk og alþjóðleg samtíma- listaverk. Breski listamaðurinn Adam Barker-Mill. Til 1. mars. Lawrence Weiner: Fimm nýjar teiknimyndir. Til 1. mars. Þjóðmenningarhúsið: Handritin. Skáld mánaðarins - Matthías Johannessen. Þjóðarbókhlaða: Smekk- leysa í 16 ár. Til 23. nóv. LEIKLIST Þjóðleikhúsið: Ríkarður þriðji, lau. Dýrin í Hálsaskógi, lau., sun. Veislan, sun. Með fulla vasa af grjóti, fim., fös. Pabbastrákur, fös. Með fulla vasa af grjóti, lau., fös. Græna landið, sun., fim., fös. Borgarleikhúsið: Lína lang- sokkur, lau., sun. Puntila og Matti, sun. Kvetch, lau., fös. Öfugu megin uppí, lau., fös. Grease, mið., fim. Common- nonsense, sun., mið., fim. Íslenski dansflokkurinn: Þrjú dansverk: The Match, Symbiosis, Party, sun. Iðnó: Sellófon, lau. Tenórinn, lau., sun. Loftkastalinn: Erling, lau., fös. Tónlistarhúsið Ýmir: 100% hitt, lau., fös. Hafnarfjarðarleikhúsið. Leikfélag Hafnarfjarðar: Níu íslensk stuttverk, lau. Möguleikhúsið: Fjóla á ströndinni, mið. Bæjarleikhúsið Mos- fellsbæ: Hobbitinn, sun. Leikfélag Akureyrar: Ást- arbréf í Ketilhúsinu, lau. sjálfu og svo hafa þau svo mikinn hljóm. Námið er mjög umfangsmikið og víðtækt og maður lærir allt mögulegt, kórstjórn, söng og jafnvel semballeik. En maður gefur sér þó tíma til að hitta fólk, fara í bíó, á tónleika og þess háttar. Ég hef spilað á nokkuð mörg orgel í Reykjavík, en ekki mikið á tónleikum. Ég lék ein á tónleikum í Reykholtskirkju árið 2001 en þetta er í fyrsta sinn sem ég held svona stóra tónleika. Ég lærði á orgelið í Dómkirkjunni hjá Marteini H. Friðrikssyni og það er skrítin tilfinning að standa alger- lega á eigin fótum og taka alla ábyrgðina sjálfur.“ GUÐNÝ Einarsdóttirtekur sér frí fránámi í Danmörkutil að leika á orgel Dómkirkjunnar kl. 17 í dag. Hún stundar nú nám við Kon- unglega tónlistarskólann í Kaupmannahöfn. Guðný er ekki nema 24 ára gömul, en það er fremur fátítt að svo ungt fólk sé svo langt komið í orgelnámi. Guðný hlaut í janúar sl. styrk úr Minning- arsjóði Karls J. Sighvatssonar og er nú sérstakur gestur Tón- listardaga Dómkirkjunnar sem þar standa yfir. Hvað var það við orgelið sem vakti áhuga þinn? „Ég var 17 ára þegar ég byrjaði að læra á orgel. Mér fannst orgelið forvitnilegt og heillandi hljóðfæri. Þegar ég var yngri fannst mér org- anistar mjög virðulegir og yf- irnáttúrlegt að geta spilað með höndum og fótum. Smátt og smátt vatt þessi for- vitni upp á sig og nú er ég komin á þriðja ár í fram- haldsnámi. Það eru til svo mörg mismunandi orgel og mikil breidd í hljóðfærinu Hvað fá áheyrendur að heyra í dag? „Verkin sem ég leik ættu að höfða til flestra en ég reyndi líka að velja verkin með hlið- sjón af hljóðfærinu og kirkj- unni. Ég ætla flytja sex verk, fyrst Prelúdíu í e-moll eftir Nicolaus Bruhns (1665– 1697). Hann var mjög hæfi- leikaríkur en það liggja ekki nema sex orgelverk eftir hann, því hann dó mjög ung- ur. Næst leik ég ennþá eldra verk sem er tilbrigði við lagið Undir græna linditrénu, Onder een Linde groen, eftir hollenska tónskáldið Jan Piet- erszoon Sweelinck (1562– 1621) og Passacaglia í d-moll Bux WV 161 eftir Dietrich Buxtehude (1637– 1707). Tvö verk eftir Bach O Lamm Gottes unschuldig BWV 656 og Triosonata í e- moll BWV 528. Síðasta verk- ið er rómantískt verk eftir Fel- ix Mendelssohn, Sonata í B-dúr op. 65 nr. 4.“ Þú kemur úr mikilli tónlistar- ætt, m.a. er Þorkell Sig- urbjörnsson föðurbróðir þinn. Hefur það haft áhrif á tónlistaráhuga þinn? „Ég er oft spurð að þessu. En ég tel að áhrifin utan frá skipti ekki miklu máli, áhug- inn verður að koma innan frá. Margir hafa hæfileika en skortir áhugann en það þarf að næra hæfileikana til að þroska þá.“ Orgeltónleikar hafa verið áberandi undanfarin misseri. Kanntu skýringu á því? „Margir af yngri orgelleik- urunum eru nýkomnir heim frá námi. Til dæmis komu Guðmundur Sigurðsson, Steingrímur Þórhallsson og Eyþór Ingi Jónsson heim á svipuðum tíma. Þegar org- anistasamfélagið er lítið þá er það algjör vítamínsprauta að fá þrjá frábæra organista í flóruna.“ Þau hafa svo mikinn hljóm Morgunblaðið/Ásdís Guðný Einarsdóttir við orgel Dómkirkjunnar í Reykjavík. STIKLA Tónlist- ardagar Dómkirkj- unnar helgag@mbl.is Næsta vika RICHARD Wagner- félagið á Íslandi gengst fyrir dagskrá um sænsku söngkonuna Birgit Nilsson í Nor- ræna húsinu kl. 14 í dag. Birgit Nilsson varð 85 ára á þessu ári, en hún er fædd á Skáni í Suður-Svíþjóð hinn 17. maí árið 1918. Á af- mælisárinu hefur ferils hennar víða verið minnst, ekki síst sem Wag- ner-söngkonu. Árni G. Stefánsson, fv. lektor, rekur æviferil söng- konunnar og rifjar upp minningar frá námsárum sínum í Svíþjóð er hann upplifði söngkonuna í ná- vígi á fjölum Stokkhólms- óperunnar. Júlíus Ein- arsson sýnir af myndbandi og DVD valin brot með söng hennar. Birgit Nilsson Birgit Nilsson hjá Wagnerfélaginu ANNA Snædís Sigmarsdóttir grafíker opnar einka- sýninguna Undirheimar heimilisins í sýningarsal Ís- lenskrar grafíkur, Hafnarhúsi, kl. 16 í dag. Sýningin samanstendur af olíuþrykkum sem unnin eru á harðvið. Anna Snædís vinnur með hluti heimilisins sem eru sýnilegir en umbreytir þeim í hina huldu veröld. „Hlutir eins brauðkarfa, þrifbrúsi eða þvottagrind eru til staðar á hverju heimili og gerir það tilfinninguna fyrir því að færa þessa algengu og einföldu hluti inn í nýja vídd stórkostlega,“ segir Anna Snædís. „Fyrir mér eru þessir hlutir í raun ekki einfaldir og sjálfsagðir. Þeir geta þegar betur er að gáð ver- ið eitt stórbrotið listaverk.“ Sýningin stendur til 23. nóvember. Opin fimmmtudaga til sunnnudags kl. 14-18. Umbreyting hins sýnilega Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.