Lesbók Morgunblaðsins - 06.12.2003, Síða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 06.12.2003, Síða 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 6. DESEMBER 2003 A fmælissýning Nýlistasafns- ins, sem opnuð verður í dag, nefnist „1978-2003: Samtímalist í aldarfjórð- ung“ og er henni ætlað að veita yfirlit yfir starfsemi safnsins síðustu tuttugu og fimm ár, en Nýlista- safnið var stofnað 5. janúar 1978. Spurður um aðdraganda stofnunarinnar svarar Gunnar J. Árnason, listfræðingur og sýningarstjóri af- mælissýningarinnar, því til að árið 1978 hafi ríkt allt annars konar umhverfi í listaheim- inum en í dag. „Á þeim tíma voru t.d. mögu- leikar til sýningahalds fyrir ungt listafólk miklu færri. Nýlistasafnið var stofnað vegna óánægju ungra og framsækinna myndlistar- manna með hlutskipti sitt í íslensku myndlist- arlífi. Þessi hópur benti á að inn í heildareign þeirra listasafna sem voru að safna myndlist- arverkum vantaði síðasta 15-20 ára tímabilið í íslenskri myndlist. Menn óttuðust að ef ekk- ert yrði að gert myndi þetta tímabil hreinlega gleymast í tímans rás. Í framhaldinu varð til félagsskapur sem hafði það að markmiði sér- staklega að varðveita bæði verk og heimildir um þennan þátt í íslensku myndlistarlífi,“ segir Gunnar. Viðkvæm verk liggja undir skemmdum Frá upphafi var markmið félaga Nýlista- safnsins að safna verkum og heimildum, auk þess að efla tengslin við erlenda listamenn og listfræðinga bæði með því að sýna verk er- lendra listamanna hérlendis en einnig skiptast á sýningum við erlend söfn. „Enda hefur safnið í gegnum tíðina alltaf haft al- þjóðlegt yfirbragð, verið nokkurs konar al- þjóðlegur suðupottur. Til þess að koma upp safni listaverka var í stofnskrá Nýlistasafns- ins gert ráð fyrir því að nýir meðlimir í félag- inu legðu fram tvö verk í safnið og bættu að jafnaði við verki á fimm ára fresti. Safneign Nýlistasafnsins saman stendur nú af rúmlega sex hundruð verkum eftir tæplega tvö hundr- uð höfunda, jafnt íslenska sem erlenda.“ Gunnar segir safneign Nýlistasafnsins afar mikilvæga. „Það má sjá meðal annars af því að stóru söfnin, s.s. Listasafn Íslands og Listasafn Reykjavíkur, hafa sótt í safneign Nýlistasafnsins þegar settar hafa verið upp yfirlitssýningar yfir ákveðin tímabil í íslenskri myndlistarsögu. Ágætis dæmi um það er sýn- ingin Raunsæi og veruleiki: Íslensk myndlist 1960-80 sem sýnd er í Listasafni Íslands um þessar mundir. Þannig hefur það markmið að einhverju leyti náðst hjá félagsskapnum að staðfesta stöðu sína í íslensku myndlistarlífi og varðveita verk sem mönnum þykja merki- leg núna í samhengi við íslenska myndlist- arsögu. Samt sem áður er ýmislegt sem knýr á um að hugsanlega þurfi að endurskoða starfsemi safnsins og eðli félagsskaparins á næstu miss- erum. Eitt af því sem er t.d. umhugsunarvert er hve erfiðlega hefur gengið að bæta verkum eftir yngri listamenn við safneignina. Sam- kvæmt mínum rannsóknum eiga eldri félagar um 90% verkanna í safneigninni, en nýrri fé- lagar aðeins um 10%. Ein aðalástæða þessa er hversu óviðunandi geymslan fyrir safn- eignina er og má segja að mörg verk, einkum þau viðkvæmari, liggi beinlínis undir skemmdum. Þannig hefur það varla þótt rétt- lætanlegt, síðustu ár, að taka við nýjum fram- lögum.“ Safneignin hornsteinn Nýlistasafnsins Aðspurður um ástæðu þess hve óviðunandi geymslan er segir Gunnar að safneignin hafi í raun verið á hrakhólum á undanförnum árum. „Rekstur Nýlistasafnsins er svo lítill að það er varla að það standi undir allri þessari starfsemi, þannig að það er í raun enginn grundvöllur fyrir því að sinna safneigninni á þann hátt sem mönnum þykir eðlilegt nú til dags. Megin hluti starfsemi Nýlistasafnsins hefur á síðustu árum farið í sýningarstarf og safneignin hefur þar af leiðandi setið svolítið á hakanum, sérstaklega upp á síðkastið. Kannski má segja að tengslin við safneignina hafi að sumu leyti rofnað, sérstaklega eftir að menn hættu að ganga eftir því að félagar ánöfnuðu safninu verk eftir sig.“ Að mati Gunnars er safneignin samt horn- steinn Nýlistasafnsins. „Hún hefur verið kjöl- festa í starfseminni gegnum tíðina þannig að Nýlistasafnið er í erfiðri stöðu. Félagsskap- urinn sem stendur að Nýlistasafninu er í raun skuldbundinn þessu safni á ákveðinn hátt en á sama tíma er hún líka nánast orðinn ákveð- inn baggi á starfseminni. Það eru einmitt miklar umræður í gangi innan Nýlistasafns- ins um það hvaða stefnu skuli taka varðandi bæði safneignina og öll húsnæðismálin. Á sama tíma hafa einnig farið fram umræður um það á hvaða hátt félagar ættu að vera virkir í starfsemi safnsins,“ segir Gunnar og bendir á að hollt sé að slíkar umræður fari fram. „Starfsemin hér er auðvitað þess eðlis að menn eru að vinna við nýsköpun og ákveðna framsækna hluti sem valda nátt- úrlega deilum og menn eru eðlilega ósammála um hvað sé gott og hvað sé misheppnað í þessum efnum.“ Nýju félagarnir munu bera uppi starfsemina í framtíðinni Spurður hvað Gunnar hafi haft til hlið- sjónar þegar hann setti saman yfirlitssýn- inguna núna segir hann að upprunalega hug- myndin hafi verið sú að velja verk úr safneigninni sem endurspeglaði þann hóp listamanna sem stendur að Nýlistasafninu. „Það hefur raunar verið gert nokkrum sinn- um áður, þannig að mig langaði til að leggja fremur áherslu á verk eftir nýrri félaga, þá sem hafa bæst við félagsskapinn á síðustu 5- 10 árum. Þegar ég fór að athuga málið komst ég hins vegar að því hve lítið er til af verkum eftir nýrri félaga í safneigninni og þurfti því að leita beint til listamannanna. Ástæða þess að ég vildi leggja áherslu á þessa nýrri full- trúa er að þegar horft er til framtíðar er ljóst að það eru þessir nýju meðlimir sem eiga eft- ir að bera uppi starfsemi félagsins og safnsins á komandi árum.“ Sýningin verður, að sögn Gunnars, tvískipt. Á efri hæð safnsins sýna verk sín þau Alda Sigurðardóttir, Bjargey Ólafsdóttir, Eirún Sigurðardóttir, Erling Þ. V. Klingenberg, Eygló Harðardóttir, Helgi Hjaltalín Eyjólfs- son, Jón Sæmundur Auðarson, Markús Andr- ésson, Ragnar Kjartansson, Særún Stefáns- dóttir og Þóroddur Bjarnason. Á neðri hæðinni má hins vegar finna ýmsar heimildir sem endurspegla starfsemi listasafnsins, bæði t.d. ljósmyndir og myndband sem sýni starf- semi safnsins á liðnum árum. „Að undanförnu höfum við verið að safna heimildum, m.a. ljós- myndum, sem nýtast munu við gerð árbókar sem er í smíðum og kemur út snemma á næsta ári. Ljósmyndir eru einmitt mjög mik- ilvægur þáttur í starfsemi safnsins enda fela þær í sér mikil menningarleg verðmæti. Mig langar til að nota tækifærið og auglýsa eftir ljósmyndum af sýningum og opnunum síðustu ára sem gætu leynst heima í skúffu hjá fólki. Því miður vill brenna við að þessar verðmætu heimildir glatast í tímans rás, sérstaklega þegar svona langt er um liðið. En það er hins vegar mjög mikilvægt að passa vel upp á þessar heimildir.“ Afmælissýningin verður opnuð í dag kl. 17 í Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3. Sýningin stendur til 20. desember og er aðgangur ókeypis. „Dollý“ eftir Eirúnu Sigurðardóttur frá árinu 1999. Morgunblaðið/Þorkell Gunnar J. Árnason, sýningarstjóri afmælissýningarinnar, veltir fyrir sér hluta af verki eftir Helga Hjaltalín Eyjólfsson ásamt þeim Baldri Geir Bragasyni og Bjarna Þór Sigurbjörnssyni. „Án titils (út úr baðherberginu, inn bakvið sökkulinn og svo út í bílskúrnum)“ eftir Þórodd Bjarnason frá árinu 2003 er myndbandsverk sem sjá má á sýningunni í Nýlistasafninu. ALÞJÓÐLEGUR SUÐUPOTTUR Nýlistasafnið heldur upp á 25 ára starfsaf- mæli með sýningu sem opnuð verður í safninu í dag kl. 17. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR ræddi við Gunnar J. Árnason sýningarstjóra um stöðu safnsins og safneignarinnar. silja@mbl.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.