Lesbók Morgunblaðsins - 08.05.2004, Page 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 8. MAÍ 2004 7
L
aust upp úr miðjum aprílmánuði
2004 kom út bókin Alþýðumenning
á Íslandi 1830–1930. Ritað mál,
menntun og félagshreyfingar.
Sagnfræðirannsóknir 18. Ritstjór-
ar Ingi Sigurðsson og Loftur Gutt-
ormsson (Reykjavík, 2003 (sic!)) á
vegum Sagnfræðistofnunar Há-
skóla Íslands. Ég hafði beðið eftir verkinu með
eftirvæntingu í nokkur ár þar sem mér var
kunnugt um að það hefði verið í smíðum frá
1996 og auk ritstjóranna kæmu að rannsókn-
inni margir öndvegishöfundar og fræðimenn í
stétt sagnfræðinga. Ástæðan fyrir eftirvænt-
ingu minni var einkum sú að ég hafði sjálfur
ritað doktorsritgerð sem bar nánast sama heiti
og ofangreind rannsókn og varið í hana þrem-
ur árum áður en rannsóknarverk-
efni þeirra Inga Sigurðssonar pró-
fessors við sagnfræðiskor Háskóla
Íslands og Lofts Guttormssonar
prófessors við Kennaraháskóla Ís-
lands fór af stað.1 Samtals hef ég rit-
að og gefið út efni á þessu fræðasviði
sem telur vel á þriðja þúsund blað-
síðna, á síðustu fimmtán árum, bæði
hér á landi og erlendis. Tel ég þá
ekki með umfjöllun mína um einsög-
una sem þó tengist sannarlega að-
ferðafræðilegum tilraunum til að
komast sem næst viðhorfum og
skoðunum alþýðufólks og heimilda-
útgáfur sem ég hef ritstýrt ásamt
öðrum. Í þessum rannsóknum mín-
um hef ég bæði fjallað um stöðu
þekkingarinnar á sviði alþýðumenn-
ingar auk þess að leggja fram sam-
felldar röksemdafærslur um áhrif
alþýðumenningar og læsis á hugar-
heim fólks á nítjándu og tuttugustu
öld sem byggðar eru á yfirgrips-
miklum athugunum á margvíslegum
efnisflokkum.
Ýmsir aðrir fræðimenn hafa einn-
ig látið mikið að sér kveða á vett-
vangi rannsókna um alþýðumenn-
ingu. Þar má nefna þá Davíð
Ólafsson sagnfræðing, Matthew J.
Driscoll bókmenntafræðing, Jürg
Glauser norrænufræðing, Jón Karl
Helgason bókmenntafræðing og
Viðar Hreinsson bókmenntafræð-
ing, en í fjölbreyttri útgáfusögu
þeirra er tekist með margvíslegum hætti á um
þau viðfangsefni sem efst eru á baugi hjá þeim
félögum Inga Sigurðssyni og Lofti Guttorms-
syni.
Viðfangsefni
Rannsóknarsviðin sem um ræðir og tengjast
ofangreindum viðfangsefnum mínum eru eft-
irfarandi:
(a) Hugmyndafræðileg þróun alþýðumenning-
ar í alþjóðlegu ljósi,
(b) áhrif bókmenningar á hugarheim barna og
ungs fólks,
(c) samspil vinnu, menntunar og tilfinningalífs
fyrir framgang alþýðumenningar í landinu,
(d) siðferðilegar fyrirmyndir í andlegu uppeldi
barna og unglinga,
(e) samtímaumræða um mennta-, skóla- og
menningarmál og mikilvægi hennar fyrir
framvindu alþýðumenningar,
(f) staða og virkni sjálfsprottinnar menningar-
viðleitni eins og hún birtist í gerð handrit-
aðra sveitablaða, í framleiðslu persónulegra
heimilda eins og dagbóka, bréfa og sjálfs-
ævisagna sem og í opinberri samtímaum-
ræðu í blöðum og tímaritum,
(g) könnun á tengslum útbreiðslu læsis við
formlegar og óformlegar miðlunaraðferðir
hugmynda,
(h) lagalegur rammi alþýðumenntunar og
-menningar í landinu,
(i) tengsl efnahagslegra stöðu fjölskyldna við
menntahugmyndir yfirvalda og einstakling-
anna sem áttu að njóta þeirra,
(j) staða og áhrif formlegra félagshreyfinga í
sambandi við framtíðarsýn alþýðunnar,
(k) framleiðsla og dreifing ritaðs máls og þýð-
ingu „óformlegra“ menningarstofnana fyr-
ir þá starfsemi,
(l) minnisrannsóknir og mikilvægi þeirra fyrir
ályktanir í sambandi við alþýðumenningu,
(m) aðferðafræðilegar tilraunir til að nálgast
hugarheim alþýðunnar með þróun hug-
myndafræði einsögunnar í tengslum við
vísindalega notkun persónulegra heimilda.
Ég hygg að ekki sé ofsögum sagt að ég hafi
nánast einbeitt mér undanfarin einn og hálfan
áratug að þessum rannsóknarsviðum með ein-
um eða öðrum hætti í sjálfstæðum rannsókn-
um, með kennslu í háskólum hér á landi og í
Bandaríkjunum, með tilsjón tæplega fjörutíu
B.A.-ritgerða, M.A.-ritgerða, einstaklings-
verkefna og nýsköpunarverkefna, með rit-
stjórn ritgerðasafna eins og bókarinnar Ein-
sagan – ólíkar leiðir, með fyrirlestrahaldi í
háskólasamfélaginu og hjá félagasamtökum og
með útgáfu frumheimilda sem birtst hafa í sex
bókum í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðu-
menningar (þrjár bækur eru væntanlegar í
þeirri ritröð á næstu mánuðum). Þetta rann-
sóknarsvið – alþýðumenning – hefur því sann-
arlega verið mitt hjartans mál.
Einkennileg vísindi
Nú bregður svo við að þegar hin nýja bók
háskólaprófessoranna, Inga Sigurðssonar og
Lofts Guttormssonar, er opnuð þá blasir við að
lítið sem ekkert er minnst á rannsóknir mínar
þó að þær séu nákvæmlega á því sviði sem
bókin fjallar um. Það er ekki nóg með að um
verk mín sé að mestu þagað heldur er því jafn-
vel haldið fram að sáralítið hafi verið rann-
sakað á þessu sviði hér á landi. „Fram að
þessu“, segir í inngangskafla þeirra Inga og
Lofts, „hefur lítt verið fengist við athugun á
því að hvaða marki lestrar- og bókmenning
breyttist á 19. öld, ekki aðeins hvað varðar efn-
isinntak (trúarlegt/veraldlegt efni), heldur
lestrarháttinn, frá upplestri til lesturs í ein-
rúmi.“2 Í framhaldinu ræða þeir um mikilvægi
rannsókna á viðtökum lestrarefnis og hvernig
lesturinn orkaði á hugarheim lesandans. Ég
fullyrði að þetta hefur einmitt verið stór hluti
af rannsóknarefnum mínum eins og sjá má í
bókinni Menntun, ást og sorg og fjölda ann-
arra bóka og greina sem ég hef birt á und-
anförnum árum.3 Það undarlega er að þeir Ingi
Sigurðsson og Loftur Guttormsson veita til
dæmis athygli bókinni Íslensk þjóðfélagsþró-
un, sem gefin var út árið 1993, og lýsa í örfáum
orðum megininnihaldi þessa ritgerðasafns án
þess að gera að umtalsefni greiningu mína á al-
þýðumenningu á tímabilinu 1850–1940. Í stað
þess komast þeir að eftirfarandi niðurstöðu
um efnistök ritgerðasafnsins: „Hér var þó lítill
gaumur gefinn að menningarbreytingum á
tímabilinu – þeim sem enski fræðimaðurinn
Raymond Williams kenndi við „langvinnu bylt-
inguna“ – einkum þeim sem birtust í stór-
auknu vægi handritaðs og prentaðs máls í
samskiptum manna og félagslegri starfsemi
yfirleitt.“4 Ekki er gott að segja hvað hafi ráðið
því að prófessorarnir kusu að sniðganga fimm-
tíu og fimm blaðsíðna grein mína sem ber hið
lýsandi (og kunnuglega) nafn „Alþýðumenning
á Íslandi“ – láta sem hún hafi aldrei verið birt í
umræddri bók!5
Afskiptir fræðimenn
Fræðimennirnir sem að framan voru nefnd-
ir, þeir Davíð Ólafsson, Matthew J. Driscoll,
Jürg Glauser, Jón Karl Helgason og Viðar
Hreinsson, eru einnig undir sömu sök seldir.
Til okkar flestra er vísað í framhjáhlaupi í
bókinni – í atriði sem oftast tengjast lítið sem
ekkert meginþáttum rannsóknanna – auk þess
sem Viðar, Jón Karl og Glauser liggja algjör-
lega óbættir hjá garði.
Í þessu viðfangi má vísa sérstaklega í grein
okkar Davíðs Ólafssonar sem fjallar um sam-
hengi ólíkra röksemdafærslna í rannsóknum á
sviði alþýðumenningar á Íslandi og birtist í
evrópsku greinasafni sem ber heitið Writing
Peasants.6 Í þessari grein kynnum við líka til
sögunnar hugmynd um mikilvægi alþýðufræ-
ðimanna fyrir samfellu íslenskrar alþýðu-
menningar, sem nokkurs konar óformlegra
menningarstofnana sem dældu út lesefni til
áhugasamrar alþýðu. Til þessarar greinar er
ekki vísað í umræddri bók jafnvel þó Loftur
Guttormsson ræði lauslega þýðingu skrifar-
anna í íslensku nítjándu samfélagi og að sjálf-
sögðu án þess að setja þá í það samhengi sem
við Davíð gerðum eða taka afstöðu til hug-
mynda okkar.7 Davíð hefur að auki verið sér-
lega virkur fræðimaður frá því að hann lauk
meistaraprófsritgerð sinni frá Háskóla Íslands
árið 1999, sem fjallaði um þróun dagbókaskrifa
hér á landi. Rannsóknir hans hafa brotið í blað
á umræddu sviði og opnað fræðimönnum nýja
sýn að mögulegri notkun persónulegra heim-
ilda við rannsóknir á alþýðumenningu.
Margar greinar Viðars Hreinssonar á sviði
alþýðumenningar svo og ævisöguritun hans
um Stephan G. Stephansson skáld marka djúp
spor í sögu umrædds rannsóknarsviðs.8 Rann-
sóknin á högum Stephans G. fjallar einmitt um
hvernig hin íslenska alþýðumenning nýttist
ungum manni sem hélt út í heim í glímu hans
við alþjóðlega menningarstrauma. Rannsóknir
Viðars eru sérlega athyglisverðar og bregða
nýju ljósi á stöðu alþýðumenningar í landinu –
dæmi um frumlega nálgun á erfitt viðfangs-
efni. Af framangreindum þremur fræðimönn-
um hafa prófessorarnir flest orð um Matthew
J. Driscoll þar sem sagt er að skilin milli hand-
rita og bóka séu óljós „[…] eins og rannsóknir
Matthews J. Driscolls hafa nýlega birt skýr
dæmi um.“ Tilvísun er síðan í hið vandaða rit
Driscolls sem nefnist The Unwashed Children
of Eve sem ætla mætti að mikilvægt hefði ver-
ið að gera fyllri skil.9
Ýmis verk svissneska prófessorsins Jürg
Glauser eru á sviði alþýðumenningar síðari
alda. Hann ritaði til dæmis síðari doktorsrit-
gerð sína (habilitation-ritgerð) um efni á sviði
handritamenningar og prentaðra alþýðurita
(Folkebøger) en hún ber nafnið Ausgrenzung
und Disziplinierung. Þá ritaði Glauser athygl-
isverða grein í rit sem er vel þekkt á Íslandi
sem nefnist „The End of the Saga: Text,
Tradition and Transmission in Nine-
teenth- and Early Twentieth-Cent-
ury Iceland.“10 Loks má geta þess að
Jón Karl Helgason, sem er meðal
annars höfundur bókarinnar Hetjan
og höfundurinn, hefur fjallað um
viðtökusögu íslenskrar alþýðumenn-
ingar; hvernig Íslendingasögurnar
voru lesnar og nýttar af alþýðu
landsins á síðari hluta nítjándu aldar
og í upphafi þeirrar tuttugustu.11
Rannsóknir hans hafa vakið athygli
enda opnar hann nýja og spennandi
leið að margbrotnu rannsóknarsviði.
Rannsókna Jóns Karls og Glausers
er að engu getið í bók þeirra Inga
Sigurðssonar og Lofts Guttorms-
sonar og ekki er gott að sjá að fræði-
legar ástæður liggi þar að baki,
fremur en í tilvikum okkar hinna.
Það sem við, fræðimannahópur-
inn sem að ofan er talinn, eigum allir
sameiginlegt er að hafa fjallað um
alþýðumenningu með margvíslegu
móti, lagt fram heildstæðar kenn-
ingar um framvindu hennar hér á
landi og binda þá umræðu saman við
fræðilegar hræringar úti í heimi.
Fræðimennirnir í þessum hópi hafa
allir gert tilraun til að brjóta upp
rannsóknarsviðið og nálgast mikil-
vægar spurningar sem því tengjast
á nýjan og óvæntan hátt.
Knýjandi spurningar
Nú er spurt: Hvernig er hægt að
réttlæta starfsaðferðir af þessu tagi í verki
sem unnið er af og undir forystu tveggja há-
skólaprófessora með margra ára samfelldum
styrk úr þremur virðulegum vísindasjóðum – í
rannsókn sem teygir sig yfir heil níu ár – og
gefið er út af stofnun innan Háskóla Íslands?
Hvers virði eru fræði sem leggjast svo lágt að
sniðganga áralangar rannsóknir fræðimanna á
sama fræðasviði? Samkvæmt mínum skilningi
brjóta vinnubrögð af þessu tagi í bága við allar
heiðarlegar aðferðir í akademíunni og er dap-
ur vitnisburður um óvönduð fræði sem nauð-
synlegt er að fordæma.
Neðanmálsgreinar:
1 Sigurður Gylfi Magnússon, The Continuity of Eve-
ryday Life: Popular Culture in Iceland 1850–1940. Dokt-
orsritgerð frá Carnegie Mellon háskólanum í Bandaríkj-
unum, 1993.
2 Ingi Sigurðsson og Loftur Guttormsson, „Inngangur.“
Alþýðumenning á Íslandi, bls. 27.
3 Sjá Sigurður Gylfi Magnússon, Menntun, ást og sorg.
Einsögurannsókn á íslensku sveitasamfélagi á 19. og 20.
öld. Sagnfræðirannsóknir 13 (Reykjavík, 1997).
4 Ingi Sigurðsson og Loftur Guttormsson, „Inngangur“,
bls. 10. Fræðimaðurinn sem vísað er til, Raymond Willi-
ams, ritaði sína bók The Long Revolution árið 1961!
5 Sigurður Gylfi Magnússon, „Alþýðumenning á Íslandi
1850–1940.“ Íslensk þjóðfélagsþróun 1880–1990. Ritgerð-
ir. Ritstjórar Guðmundur Hálfdanarson og Svanur Krist-
jánsson (Reykjavík, 1993), bls. 265–320.
6 Sjá „Barefoot Historians: Education in Iceland in the
Modern Period.“ Writing Peasants. Studies on Peasant
Literacy in Early Modern Northern Europe. Ritstjórar
Klaus-Joachim Lorenzen-Schmidt og Bjørn Poulsen.
Landbohistorisk Selskab (Århus 2002), bls. 175–209.
7 Loftur Guttormsson, „Framleiðsla og dreifing ritaðs
máls“, bls. 59–60.
8 Sjá Viðar Hreinsson, Landneminn mikli. Ævisaga
Stephans G. Stephanssonar. Fyrra bindi (Reykjavík,
2002); Andvökuskáld. Ævisaga Stephans G. Stephansson-
ar. Síðara bindi (Reykjavík, 2003).
9 Matthew J. Driscoll, The Unwashed Children of Eve.
The Production, Dissemination and Reception of Popular
Literature in Post-Reformation Iceland (London, 1997).
Sjá Ingi Sigurðsson og Loftur Guttormsson, „Inngangur“,
bls. 25. Einnig er vísað örstutt í Driscoll í meginmáli á bls.
60.
10 Jürg Glauser, „The End of the Saga: Text, Tradition
and Transmission in Nineteenth- and Early Twentieth-
Century Iceland.“ Northen Antiquity. The Post-Medieval
Reception of Edda and Saga. Ritstjóri Andrew Wawn
(London, 1994). Þetta rit er fullt af efni sem tengist rann-
sóknum á alþýðumenningu.
11 Jón Karl Helgason, Hetjan og höfundurinn. Brot úr
íslenskri menningarsögu (Reykjavík, 1998).
ÁDREPA UM ALÞÝÐUMENNINGU
Höfundur er doktor í sagnfræði og fræðimaður
í ReykjavíkurAkademíunni.
E F T I R S I G U R Ð G Y L FA M A G N Ú S S O N
Hvers virði eru fræði sem leggjast svo lágt að snið-
ganga áralangar rannsóknir fræðimanna á sama
fræðasviði? er spurt í þessari grein sem fjallar um ný-
útkomna bók, Alþýðumenning á Íslandi 1830–1930,
sem höfundur telur vitnisburð um óvönduð fræði sem
nauðsynlegt er að fordæma.
Morgunblaðið/Ásdís
Nokkrar þeirra bóka sem greinarhöfundur telur litið fram hjá í riti Inga Sigurðssonar og Lofts Guttormssonar.