Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.2004, Qupperneq 7

Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.2004, Qupperneq 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 15. MAÍ 2004 7 L listahátíð í Reykjavík hóf rúmlega tveggja vikna göngu sína í gær með setningarathöfn í Listasafni Ís- lands. Þetta árið leggur hátíðin sér- staka áherslu á sviðslistir, og eru því leiklistarhópar og dansflokkar sérstaklega margir og frambæri- legir á hátíðinni í ár. En einnig eru hingað komin þó nokkur stór nöfn úr tónlist- arheiminum og dýrmæt myndlist prýðir sali í öllum landshlutum. Óhætt er þó að segja að sviðslistahópar eigi afar stóran þátt í fyrri viku Listahátíðar. Rustavelli-leikhúsið, sem er þjóðarleikhús Georgíu, reið á vaðið í gærkvöldi með sýningu sinni á Þrettándakvöldi Shakespeares í Þjóð- leikhúsinu, sem verður endurflutt í kvöld. Þetta klassíska stykki er sagt vera tekið frum- legum tökum í leikstjórn Roberts Sturua, sem hefur verið valinn einn af fremstu Shake- speare-leikstjórum allra tíma. Litríkur laugardagur Í dag verður svo litríkur laugardagur í mið- borg Reykjavíkur, þar sem barnaleikhúshá- tíðin Austan við sól og vestan við mána hefur göngu sína með skrúðgöngu risanauts og 180 skólabarna, kennara þeirra og foreldra. Loft- fimleikaflokkur Vesturports og Artbox sýna línudans milli bygginga í borginni og örtón- leikaröð stendur frá kl. 13 til 16.30 í Hljóm- skálanum, þar sem flutt verður tónlist frá öll- um heimshornum. Einnig opnar útskriftarsýning nema í Listaháskóla Íslands í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, og grunn- og listskólanemar ásamt arkitektum draga upp aðrar víddir af Laugaveginum, meðal annars í formi veggspjalda. Myndlist um allt land Verðhæstu listaverk sem hafa komið hingað til lands eru nú til sýnis í Listasafni Íslands og ber sýningin heitið Í nærmynd, en verkin eru úr smiðju nokkurra af þekktustu myndlistar- mönnum samtímans. Í dag verða jafnframt opnaðar nokkrar aðrar verðmætar myndlist- arsýningar á Íslandi. Kaþarsis er heiti sýn- ingar Gabríelu Friðriksdóttur í i8, en myndin sem prýðir kynningarefni Listahátíðar í ár er einmitt úr hennar smiðju, og Kenjarnar eftir Francisco Goya verða sýndar í Listasafni Ak- ureyrar. Í Listasafni ASÍ munu Ragnar Kjart- ansson og Magnús Sigurðarson vera með inn- setningu og uppákomu sem nefnist Trúnaður. Karlakór St. Basil dómkirkjunnar – turna- kirkjunnar á Rauða torginu í Moskvu – syngur í Hallgrímskirkju tvívegis í dag, kl. 17 og á miðnæturtónleikum kl. 23. Kórinn heldur jafn- framt tónleika í Reykholti á morgun. Kórinn skipa langskólamenntaðir tónlistarmenn og einsöngvarar sem hafa helgað líf sitt rúss- nesku rétttrúnaðarkirkjunni, en þeirra á með- al er ein vinsælasta poppstjarna Rússlands og ungur drengur með mikla og tæra sópranrödd. Hamelin storkar náttúrulögmálum Píanóleikarinn Marc-André Hamelin heldur einleikstónleika í Háskólabíói í dag og á morg- un. Hamelin er fjölmörgum íslenskum tónlist- arunnendum að góðu kunnur, enda sagður storka náttúrulögmálunum með snilli sinni á flygilinn. Á morgun verður opnuð finnsk ljósmynda- sýning í Ljósmyndasafni Reykjavíkur og ber hún heitið Nýir veruleikar. Nafnið vísar til þess að hluti viðfangsefnisins er tengdur hin- um pólitíska og félagslega raunveruleika sem ríkti í Finnlandi eftir fall Sovétríkjanna, sem og aðildar Finnlands að Evrópubandalaginu. Annað kvöld verður svo frumsýnd mynd um svissneska myndlistarmanninn og „tengdason Íslands“ Dieter Roth í Háskólabíói. Tónlistartorg Kringlunnar hefur göngu sína á mánudag, en þar verður á hverjum degi kl. 17 leikin tónlist, flutt af ólíkum tónlistarmönn- um. Þann dag fundar Marc-André Hamelin með íslenskum píanókennurum í sal Tónlistar- skólans í Reykjavík, en fundurinn er öllum op- inn. Leiklestur á frönskum og belgískum verk- um fer fram í Borgarleikhúsinu 18. og 19. maí, en þar verða lesin verk eftir Catherine Anne, Jean-Marie Piemme, Jean Louvet og Noëlle Renaude. Verkin eru lesin í íslenskri þýðingu. Þriðjudaginn 18. maí heldur Guðný Guð- mundsdóttir, konsertmeistari Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands, jafnframt uppá 30 ára starfs- afmæli sitt með tónleikum í Íslensku óperunni. Fegursta rödd samtímans Hibiki heitir danssýning þekktasta sviðs- listahóps Japana, Sankai Juku, sem sýnd verð- ur í Þjóðleikhúsinu 19. og 20. maí. Um er að ræða sex krúnurakaða karlmenn, risavaxnar glerlinsur og nokkur tonn af hvítum sandi, en hreyfingar mannanna hafa verið skilgreindar sem millistig milli Tae Kwon Do og balletts. Þó byggist aðferð hópsins á hinni japönsku Buto- danshefð, og er umfjöllunarefni sýningarinnar arfleifð hörmunganna í Hiroshima. Hin rússneska Olga Borodina – fegursta rödd samtímans samkvæmt The New York Times – stígur á svið Háskólabíós ásamt Sin- fóníuhljómsveit Íslands 19. maí og aftur 22. maí. Á efnisskránni eru óperuaríur, þar á með- al Seguedilla úr Carmen sem Borodina hefur þótt túlka afar vel, og tónaljóðið Phaéton eftir Saint-Saëns. Líkamar í Borgarleikhúsinu Á Kjarvalsstöðum verða opnaðar tvær myndlistarsýningar 20. maí, Ný verk úr fórum Francesco Clemente og ljósmyndasýningin Her, Her, Her and Her eftir Roni Horn. Næstkomandi föstudag koma svo fram í fyrra skipti bæði Tómas R. og Jagúar á Nasa, þar sem leikin verður tónlist Tómasar í útsetn- ingu Samúels J. Samúelssonar, og Körper eða Líkamar, víðfræg sýning eins fjögurra leik- stjóra Schaubühne-leikhússins í Berlín, Söshu Waltz. Í Körper er brellum og sjónhverfingum beitt, sem sagðar eru eiga engan sinn líka, en sýningin byggist á áhrifum þeim sem Waltz varð fyrir þegar hún skoðaði gyðingasafnið í Berlín. Báðar sýningar verða endurteknar laugardaginn 22. maí. DAGSKRÁ LISTAHÁTÍÐAR 17.–21. MAÍ ingamaria@mbl.is Morgunblaðið/Ásdís Tónleikar í tilefni 30 ára starfsafmælis Guðnýjar Guðmundsdóttur, konsertmeistara Sinfóníu- hljómsveitar Íslands,verða haldnir þriðjudaginn 18. maí í Íslensku óperunni. Kanadíski píanóleikarinn Marc-André Hamel- in leikur í Háskólabíói í dag og á morgun. St. Basil karlakórinn frá Moskvu heldur þrenna tónleika á Listahátíð, í Hallgrímskirkju kl. 17 í dag, miðnæturtónleika á sama stað í kvöld kl. 23 og í Reykholtskirkju 16. maí. Olga Borodina þykir hafa eina fegurstu rödd samtímans. Hún syngur með Sinfóníuhljóm- sveit Íslands í Háskólabíói 19. og 22. maí. Hljómsveitin Jagúar heldur tónleika með verkum Tómasar R. Einarssonar í útsetningum Sam- úels J. Samúelssonar á Nasa næstkomandi föstudag og laugardag. Morgunblaðið/Golli Hibiki er heiti danssýningar þekktasta sviðslistahóps Japana, Sankai Juku, sem sýnd verður í Þjóðleikhúsinu 19. og 20. maí. Í sýningunni, sem fjallar um hörmungarnar í Hiroshima, koma sex krúnurakaðir karlmenn, risavaxnar glerlinsur og nokkur tonn af hvítum sandi við sögu.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.