Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.2004, Side 9

Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.2004, Side 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 15. MAÍ 2004 9 art) þar sem líkami listamannsins er efniviður hans. Hann hóf snemma að nota vídeóvél til að skrásetja gjörninga sína en fór síðan að nota vélina sem tjáningarmiðil. Hann hefur annars tileinkað sér alla hugsanlega listmiðla, unnið með objekta jafnt sem texta, tákn jafnt sem arkitektúr, hvað svo sem þjónar hugmyndum hans. Nauman er algerlega sér á báti í myndlist- arheiminum og nýtur ómældrar virðingar þar. Hann virðist alltaf vera með í myndlistarum- ræðunni, tekst að endurnýja sig í sífellu og hefur verið frjór í þau fjörutíu ár sem hann hefur starfað að listsköpun. Þess má geta að Bruce Nauman verður næsti og síðasti lista- maðurinn (í bili a.m.k.) til að setja upp verk í túrbínusal Tate Modern í London, þar sem Ólafur „okkar“ Elíasson sýndi veðurverkefnið fræga. Charles Ray (f. 1953) og Robert Gober (f. 1954) Charles Ray fetaði ungur í fótspor kons- eptlistamanna og tvítugur að aldri gerði hann „Plank piece“ sem er m.a. til sýnis í listasafn- inu og minnir á margt sem Bruce Nauman, William Wegman og jafnvel Sigurður Guð- mundsson voru að gera í þá daga. Síðari verk Rays bera sterk einkenni popplistar. Kímni er aldrei langt undan og líkaminn er í fyrirrúmi, en þá sem form og ímynd en ekki áþreifanlegt eða lífrænt fyrirbæri. Robert Gober skapar aftur á móti mjög áþreifanlega skúlptúra. Hann stendur eilítið út úr þessum hópi af listamönnum póstmódern- ismans. Sækir í aðrar skúlptúrhefðir en sam- tímamenn hans á sýningunni, sem eiga rætur að rekja til Louise Bourgeouis og súrrealisma frekar en Andys Warhols og popplistar. Verk Gobers byggjast á æskuminningum hans, eru endurgerðar æskuminningar. Oft eru hvers- dagslegir hlutir, s.s. vaskur og rúm, ætlaðir sem myndlíkingar. Þetta eru samt ekki til- búnir hlutir, heldur vinnur hann þá frá grunni svo þeir verða „líkamlegri“. Felix Gonzalez-Torres (f. 1957, d. 1996) Felix Gonzalez-Torres er aðallega kunnur fyrir listaverk sem virkja þátttöku sýning- argesta sem/og safna. Helst eru það verk sem samanstanda af sælgætismolum sem gestir geta borðað og plakötum sem gestir mega taka með sér heim. Safnið þarf síðan að passa að þyngd listaverkanna sé ávallt sú sama með því að kaupa meira sælgæti og prenta fleiri plaköt. Með þessu móti er listamaðurinn að ýkja hlut- verk þeirra, þ.e. forvörslu safnsins og (list) neyslu sýningargestsins. Torres sér söfn og gallerí sem athafnarými og hefur m.a. gert verk fyrir gallerí þar sem kaupandinn fær reglulega sendan böggul frá galleríinu. Bögg- ullinn er tómur og sjálft listaverkið er í raun póstsendingin, eða athöfnin. Þessi verk Torres eiga ýmsar samstæður í flúxus- og konseptlist. En líkt og Gober tengir hann verkin eigin lífi á mjög persónulegan hátt. Þyngd sælgætis- verksins í Listasafni Íslands er t.d. 130 kg og miðast við samanlagða þyngd Torres og sam- býlismanns árið 1991 þegar verkið var fyrst sýnt. Sá síðarnefndi lést það ár úr eyðni eins og Torres gerði svo fimm árum síðar. Hafa margir því viljað tengja hverfandi molana og plakötin við tæringu líkamans af völdum sjúk- dómsins. Cindy Sherman (f. 1954) Undir lok níunda áratugarins kom ljósmynd- in eins og sprengja inn í myndlistarheiminn og hlaut loks almenna viðurkenningu sem gjald- gengur listmiðill. Þar stóð hvað hæst listakon- an Cindy Sherman sem kalla má súperstjörnu í myndlistarheiminum, ekki síður en Jeff Ko- ons. Sherman var sambýliskona Roberts Lon- gos, myndlistar- og kvikmyndagerðarmanns, snemma á níunda áratugnum. Segist hún ávallt hafa fallið í skugga hans, verið bara kærasta Longos, og að ekki hafi verið tekið eftir sér í myndlistarheiminum fyrr en þau slitu sambúð. Fyrstu verkin sem vöktu athygli á listakonunni voru svokallaðar „United film stills“, sem eru sviðsettar ljósmyndir í líkingu við kyrrmyndir úr gömlum kvikmyndum án þess þó að þær vísi til sérstakra kvikmynda. Þetta eru ljós- myndir af listakonunni sjálfri sem ólíkar ko- nuímyndir og varð Sherman því fljótlega tákn- gervingur feminisma í póstmódernismanum. Í öllum myndum listakonunnar er hún sjálf fyr- irsætan. Eru myndirnar sjálfsmyndir listakon- unnar sem ímyndir eða önnur sjálf (alter egos) sem hún sækir úr kvikmyndum, auglýsingum o.fl. Richard Prince (f. 1949) Richard Prince er þekktur fyrir yfirtökulist (appropriation art), en hana má rekja aftur til dada-stefnunnar þegar Marcel Duchamp gerði fyrstu tilbúnu (ready made) listaverkin árið 1913 og svo popplistar (neo dada) sjötta ára- tugarins, s.s. Brillókassa Andys Warhols, sem eru handmálaðir en líta út nákvæmlega eins og venjulegir brillókassar. Hugmyndin um yfirtö- kulist kemur út frá áðurnefndum hugmyndum Baudrillards um veruleika og ofurveruleika og miðast við þegar listamaður tekur sér mynd- efni sem tilheyrir einhverju öðru og gerir að sínu. Með slíkum hætti notar Jeff Koons t.d. fjöldaframleiddar kitsch-styttur, en list Koons telst einmitt til yfirtökulistar. Yfirtökulist Richards Prince felst í því að endurgera myndir úr tímaritum, teikna upp brandara og sögur og taka ljósmyndir úr blöð- um og stækka upp. Þetta eru jafnan sam- félagslega gagnrýnar myndir sem sýna viðhorf og ímyndir, s.s. hinn frjálsa „macho“ kúreka og mótorhjólatöffara. Louise Lawler (f. 1947) og Sherry Levine (f. 1947) Listin sjálf er oft viðfangsefni yfirtökulista- manna, eins og verk Louise Lawler og Sherry Levine eru dæmi um. Í rúm tuttugu ár hefur Louise Lawler tekið ljósmyndir af listaverkum við misjafnar að- stæður, s.s í galleríum, í heimahúsum, á upp- boðum og í geymslu safna. Lawler rannsakar þannig hvernig breyttar aðstæður hafa áhrif á listina og viðhorf okkar til listaverka. Rannsóknir Sherry Levine hafa hins vegar snúist um frumleika og höfundarrétt. Hún vakti fyrst alþjóðlega athygli og umræðu á ní- unda áratugnum fyrir að sýna ljósmyndir af þekktum ljósmyndum eftir bandaríska ljós- myndarann Walker Evans, sem hún þá nefndi „Eftir Walker Evans“. Myndir Evans voru upphaflega teknar á kreppuárunum til að sýna og skrásetja visst ástand. Myndir Levine skrá- setja aftur á móti sjálft listaverkið og hafa því mjög skýra tilvísun í hugmyndir Baudrillards. Sjónrænn munur á myndum Levine og Evans er enginn, aðeins nálgun listamannanna er ólík. Tími skiptir þarna sköpum og fyrir liggur spurning um frummynd og eftirmynd, veru- leika og ofurveruleika. Tákn síns tíma Það er forvitnilegt að sjá hvernig tíminn breytir listaverkum og hvernig umræða hvers- dagsins hefur áhrif á þau. Ímynd Michaels Jacksons, sem nú situr undir ásökunum og ákærum um níðingsskap, er t.d. allt önnur í dag en fyrir 26 árum þegar Jeff Koons gerði styttuna umtöluðu. Af þeim sökum hefur „skurðgoðið“ allt annað gildi, alveg eins og þegar íþróttamyndir Andys Warhols voru sýndar í Galleríi Fold í fyrra, og mynd af O.J. Simpson hékk á meðal mynda af Pele og Mu- hammed Ali. Við skoðum styttuna af Jackson líka öðruvísi þegar við vitum hve mikið trygg- ingarverðmæti hennar er. Ekki má svo gleyma Bubbles sem er löngu horfinn eftir að Jackson fékk leið á honum. Styttan er þannig séð tákn- mynd liðins tíma en að sama skapi lifir hún sjálfstæðu lífi í tíma. Ryksugurnar sem Jeff Koons notar í verkinu „New hoover convert- ibles“ eru nú gamaldags og eflaust ófáanlegar í dag. Þetta voru hins vegar ódýrar ryksugur sem hægt var að kaupa í öllum heimilisvöru- verslunum þegar þær voru sýndar fyrst. Und- irritaður sá líka Made in heaven-sýninguna þegar hún kom til Amsterdam á sínum tíma og var þvílík röð fyrir utan og æsingur áhuga- samra svo mikill að annað eins hafði ekki sést. Í dag er enginn æsingur yfir þessum verkum, þau eru skrásett menningarverðmæti og hluti af vestrænni menningarsögu. Umræðan um yf- irtökur er líka liðin. Hún hefur verið skrásett sem póstmódernísk umræða á níunda og tí- unda áratugnum og er sennilega síðasta skil- greiningin á einhverju sem kalla má stefnu eða viðhorf í samtímalistum sem hefur fest sig í sessi. Umræðan náði þó ekki hingað til lands nema í afar litlum mæli. OFURVERULEIKINN Michael Jackson og Bubbles, yfirgengilegt skurðgoð eftir Jeff Koons frá árinu 1988. lutverki Madonnu. Höfundur er gagnrýnandi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.