Íslendingaþættir Tímans - 14.01.1970, Side 7

Íslendingaþættir Tímans - 14.01.1970, Side 7
í EINAR GRÍMSSON, bóndi í Gröf í Laugardal. r Fæddur 1.9.1902. Dálnn 11.11.1969. Foreldrar Einars voru merkis. hjónln Guðrún Eyjólfsdóttir frá taugarvatni og Grímur Eiríksson Srá Gjábakka. Þau hófu búskap \ ►fcálholti 1884, en fluttu að Gröl 901 og bjuggu þar allan sinn búskap upp frá þvi, til ársins 1931. Heimill þeirra var eitt at þessum gömlu afbragðsheimilum. trrímur var mikill dugnaðar- og úhugamaður, leiftrandi af fjöri og úhuga fram á elliár. Hann var mik- Ul hestamaður, og man ég hann jþað illa kominn líkamlega, að hann gat ekki setið á hesti nema óinvega. Þá lagði hann söðul á feiðhestinn sinn og þeysti svo um fullum feturn. Guðrún var rómuð fifbragðshúsmóðir og gæðakona, eins og hún átti kyn til. Þegar ég Var innan við og um fermingu, átti úg leið um hlaðið í Gröf einu sinni í viku allan sláttinn í 3—4 sumur Við rjómaflutning í Apárrjómabúið. í*á kom ég þar oft inn, misjafn- íega fyrir kallaður, og naut hinnar ftlkunnu gestrisni. Þær áttu það lfka stundum til, þessar gömlu konur, að gefa unglingum „bita i lófann“, ef ekki var tími til að koma í bæinn. Þau hjón áttu 14 börn, og eru Uú sjö þeirra á lífi, Laufey, Guð- ríin (í Kanada), Eiríkur, Ingunn, Guðfinna, Eyjólfur og Guðmund- úr.Mikið hafa Biskupstungur misst þegar þessi fjölskylda flytti það ftn, annað eins traustleika og sóma- íólk, sem þessi systkin hafa öll Peynzt. Bræðurnír Einar og Eyjólf- úr tóku við búi af foreldrum sín úm 1931, og dvöldu þau hjá þeim til æviloka. Eyjólfur byggði ný- býlið Lækjarhvamm á hlaðinu í Gröf, en Einar bjó alla tíð í gamla bænum. Einar átti heima í Gröf alla ^vi og unni þeim stað mjög. Það- ftn fór hann eikkert til dvalar nema 8jÖ vertfóir, er hann stundaði sjó- mennsku, þrjár i Herdísarvík og fjórar á togara. Mun liann hafa verið mjög vel hlutgengur við þau störf eins og annað, sem hann lagði fyrir sig. Fyrst og fremst mun það hafa verið bóndastarfið, sem átti hug hans allan. Hann hugsaði vel um sinn búfénað, vildi vera öruggur með fóður og allan aðbúnað. Hesta maður var hann eins og faðir hans, og ekki mun langt síðan hann tamdi sér reiðhest, eins og ungur maður væri. Hann kvæntist ekki og var því oft einn, nema hvað hann hafði drengi sér til hjálpar á sumrin, og hef ég heyrt tekið til þess, hvað þeir dáðu hann mjög. Einar var dulur maður og hafði sig lítið í frammi að fyrra bragði, orðvar og hæglátur, en mjög ræð inn og skemmtilegur í félagsskap. Sérstaklega var hann ábyggilegur og öruggur bæði til orðs og æðis, sannkallað prúðmenni í hvívetna. Ég á í hugskoti mínu 50 ára gamla minningu. Það var haustið 1919. Við Einar í Gröf, hann 17 ára, og ég 15 ára, fórum af HlöðuvöMum snemma morguns, fundum fljótlega för eftir tvö lÖmb, röktum þau um kletta klungur, gil og gljúfur, fram undlr myrkur og fundum þau um dimmu mótin. Það voru glaðir og ánægð- lr drengir, sem komu með sitt lambið hvor fyrir framan sig í bygggð kvöldið það. Þetta er ekki nein hreysti- eða hetjusaga, og okk- ur datt víst hvorugum i hug þá, að hún yrði skráð, en hún leitar saant á hugann. Þeim fækkar nú svo ótrúlega ört, sem muna þessa > daga með manni. Það voru miklu fleiri ferðir, sem ! við Einar áttum samleið. Hann var alltaf sami trausti, ljúfi og góði félaginn. Fundum okkar bar sjald an saman, eftir að ég fluttist úr Laugardalnum, en mér þótti aMtaf jafn ánægjulegt að hitta hann og taldi hann einn af mínum trygg- ustu og beztu vinum. Systkinum hans og öðrum aðstandendum votta ég mína innilegustu samúð. Bless- uð sé minning hans. Drottinn minn > gefi dauðum ró, en hinum líkn, er lifa. Gýgjarhólskoti, 20. nóv. 1969. Karl Jónsson. t Einar Grímsson varð fyrir slysi, hann féll á hálku á göngu yfir gamla brú, hlaut h öfuðhögg og hefur fallið meðvitundarlaus út í vatnsfall. Einar var einn á ferð og varð nokkur leit að honuan. Éin- ar var fæddur í Gröf, ólzt þar upp og átti þar heima aMa sína ævi. Móðir Einars var Guðrún Eyjólfs- dóttir frá Laugarvatni, hálfsystir Ingunnar konu Böðvars Magnús- sonar, faðir hans var Grímur Ei ríksson Grímssonar frá Nesjavöll- um í Grafningi. Eiríkur bjó á Gjá- bakka í Þingvallasveit, þar fæddist Grímur og ólst þar upp. Foreldr ar Einars, Guðrún og Grímur hófu búskap í Skálholti 1883 og bjuggu og þar I seytján ár. Aldamótaárið fluttu þau hjónin búferlum að Gröf fSLENDINGAÞÆTTIR 7

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.