Íslendingaþættir Tímans - 14.01.1970, Blaðsíða 11

Íslendingaþættir Tímans - 14.01.1970, Blaðsíða 11
í MINNING MAGNÚS JÓNASSON, BIFREIÐASTJÓRI, BORGARNESI. Laugardaginn, 18. des. s.l. fór fram fná Borgarneskirkju útför iMagnúsar Jónassonar, bifreiða- Stjóra í BorgarnesL Fj'ölmenni var. Utförin fór virðulega fram, svo ■ sem venja er, um prestverk þau er pröfasturinn sr. Leó Júlíusson 6 Borg framkvæmir. Magnús Jón- flsson varð bráðkvaddur að heim- 111 sínu að morgni dags hinn 5. þessa mánaðar. Með Magnúsi Jónassyni er hnig in-n til foldar mikill dugnaðar- Og atorkumaður. Maður, sem ekld Var borinn til erfðar, en hlaut í Vöggugjöf óvenjumikla starfsorku, bjartsýni og hreysti, og varð virk- iur þátttakandi í mesta framfara- skeiði hóraðs síns og þjóðar og skapaði sér og sínum farsæla lífs daga. Magnús Jónasson fæddist 2. maí 1894 að Galtarhöfða í Norðárdal í Mýrasýslu. Foreldrar hans voru hjónin Ingibjörg Loftsdóttir og Jónas Jónasson, smiður og bóndi þar og síðar að Litla-Skarði í Staf- holtstungum. Börn þeirra Ingi bjargar og Jónasar voru 7, af þeim eru þrjú á lifi. , Magnús Jónasson var þegar á Unga aldri atorkumaður. Hann , Vann að búi föður síns, þegar hann , Var bundinn við smíðar að heim- , an og einnig i vinnumennsku hjá borgfirzkum bændum. Árið 1916 fer Magnús til Reykja- Víkur til náms í húsgagnasmiði hjá Jónatan Þorsteinssyni. Þar i kynntist hann bifreið fyrst. Jóna- tah flutti þær til landsins þá. Magn ús Jónasson hafði þau hyggindi til að bera, að gera sér grein fyrir frví, að bifreiðin væri tæki, sem tandsmenn mundu taka í þjónustu ®ina í ríknm mæli. Þó vegi skorti H í landinu á árunum 1916—1918 Þá dró þa« «>Vki kjark úr honum. ^ar réði bíartsýni hans og áræði hieira um. Fljótlega upp úr áramótum 1918 fór hann að læra á bíl hjá fSLEND!NGAÞÆTTIR Jóni Ólafssyni, er síðar var for- stjóri bifreiðaeftulits riksjns, og þann 20. febr. 1918 fékk Magnús útgefið ökuskírteini sér til handa, skírteini nr. 1. Það var íyrsta öku- skírteinið, er út var gefið af sýslu- manni Mýra og Borgarfjarðar- sýslu, þar með var lífsstarf hans ráðið. Keypti hann sér bil í fram- haldi af prófinu. Hlaut sá bíll ein kennisstafina M.B 1. og síðar eign- aðist hann M.B. 2. Og nú, er hann er allur, á fjölskylda hans M1 og M-2. Það hefði verið fjarlægt skap- höfn Magnúsar, ef þessi happanúm er hefðu gengið úr eigu hans, enda hefði engum, er Magnús þekktu komið til hugar að leita eftir þeim. Saga Magnúsar Jónassonar, sem bifreiðastjóra. er ekki venjuleg. Hún er saga brautryðjanda, sem varð að brjótast áfram um lélega vegi og torfærur á bílum sem nú væru ekki taldir til þess hæfir. Hún er saga hins úrræðagóða og duglega manns, sem sá leið þar sem aðrir sáu ófærur einar, en er þó fyrst og fremst saga hins hyggna og aðgætna farsæla bif- reiðastjóra, er sat undir stýri í meira en hálfa öld, og ekkert óhapp henti. Segir það meira en allt annað, hver Magnús Jónasson var. Það má með sanni segja, að Magnús hafi notið þess trausts í atvinnurekstri sínum, sem hann var verður. Sem dæmi um það má geta þess, að hann og félagar hans í Bifreiðastöð Borgarness, en þá stöð stofnaði hann ásamt Friðriki Þórðarsyni árið 1926, voru fengnir til að flytja Kristján konung X og fylgdarlið Alþingishátíðarsum- arið 1930 úr Hvalfirði að Norðurá. Allar torfærur á leið hans, þá sem endranær ,urðu að þoka fyrir úr- ræðum hans. Traustinu var hann verðugur. Dugnaður Magnúsar kom fram víðar en í atvinnurekstri hans. Ár- ið 1919 byggði hann sér hús við aðalgötu Borgarness. Hús, sem er byggt af framsýni og reisn, er sóm . ir sér með prýði, þótt hálfa öld eigi < það að baki, enda hefur viðhald ■ þess og lóðarinnar alla tíð verið í fullu samræmi við reisn þess og myndarskap. Ekki hvað sízt er dugnaður Magnúsar lofsverður, þegar það er haft í huga, að hann ] gekk aldrei heill til skógar, þar sem báðir fætumir voru honum ekki jafn heilir. Árið 1933 kvæntist Magnús eft- irlifandi konu sinni, önnu Agnes- dóttur, er ættuð er úr Austur Húnavatnssýslu. Frú Anna er mikil myndarkona í sjón og raun. Heimili þeirra hjóna var I alla staði mjög til fyr irmyndar um umgengni og gest- risni. Verk húsmóðurinnar, hvort sem eru á sviði hússtjórnar eða handavinnu, eru mjög rómuð, og í dugnaði og forsjálni voru þau hjónin mjög samhent. Tvö börn áttu þau Ánna og Magnús, Skiöld bifreiðastjóra, og Ingibjörgu, gifta Vigni Norðdahl, flugmanni, búsett i Reykjavík. Auk barna þeirra hjónanna, ólst sonur Önnu, Reyn- ir, upp hjá þeim ásamt tveim barnabörnum þeirra, er báru nafn H

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.