Íslendingaþættir Tímans - 14.01.1970, Blaðsíða 24

Íslendingaþættir Tímans - 14.01.1970, Blaðsíða 24
snjallar gáfur, sem gerðu honum einkar létt a<5 skilja og leysa stærð fræðileg úrlausnarefni. Honum var einnig einkar sýnt um að útskýra fyrir bekkjarsystkinum sinum tor- ræð viðfangsefni. Varð ósjaldan meira gagn að slíkri stund með Guðmundi í frímínútum heldur en heilli kennslustund, sem á und- an hafði fariðr Þannig var það skólaárin öll. Auk ágæts námsárangurs almennt var Guðmundur í fremstu röð bekkjarsystkina sinna í lausn stærðfræði og eðlisfræðiviðfangs- efna. Allir væntu honum frama á þessu sviði, hvernig sem hann mundi nota hæfileika sína í lífs- starfi. Guðmundur var menntaskólaár- in í handknattleiksdeild ÍR.. og var um tíma í hópi okkar fremstu handknattleiksmanna. Á keppnis velli var hann leikinn og fylginn sér, en alltaf drengilegur, þó hart væri barM. Um það má ég dæma, því marga snerruna háðum við sem mótherjar. Guðmundur var mikill skák- og bridgemaður. Hann var um tíma keppnismaður í skák. Guðmundur giftist góðri konu, Valborgu Sigurðardóttur. Hann valdi sér kennarastarfið að ævi- starfi. Á því sviði nýttust þeir ágætu hæfileikar hans, sem áður er vikið að. Hann starfaði sem kennari við Gagnfræðaskólann að Brúalandi til ársins 1965, að hann flutti að Skóg um undir Eyjafjöllum til sömu starfa. Það mun vera samdóma niður- staða þeirra, sem gerzt þekkja, að Guðmundur hafi náð miklum árangri í kennarastarfi sinu óg að annars staðar á landinu hafi nem- endur sama kennslustigs ekki kom izt til meiri þroska en undir hand- leiðslu hans. Guðmundir voru falin mörg trúnaðarstörf í Mosfellssveit. Hann vann einnig að félagsmálum eftir að hann fluttist að Skógum. Guðmundur naut vinsælda allra, sem kynntust honum. Ef að er gáð, er furðu margt líkt um lif og starf þessara stúd entsbræðra. Báðir eru bornir Reykvíkingar og sátu þar ungir við menntalind- ir. Þeir giftust góðum konum. Eign uðust mörg og mannvænleg börn. Ðáðir hurfu þeir til starfa útí 1 dreifbýlinu og unnu þar allan sinn starfsdag, sem lauk nær samtimis. Störf þeirra voru um margt ó- fík, en skyld í því, að báðir unnu mannræktarstörf. Báðir urðu mikiilvirkir ræktun- armenn, sem sáðu fræjum mennt- unar og mannkærleika. Akurlönd þeirra urðu stór og þeir urðu þeirrar gleði aðnjótandi, að sjá ríkulega uppskeru erfiðis síns og lengi eftir að þeir eru allir. mun sjá verka þeirra stað. Báðir voru glaðsinna og eftir sóttir félagar á mannfundum. Meðal okkar bekkjarsystkin- anna voru þeir jafnan í þeim hópi, sem mest lagði fram til að gera sam verustundirnar glaðar og eftir- minnilegar. Á síðari árum, þegar sameigin- legar stundir okkar urðu færri, voru þeir jafnan, þegar við hitt umst, þar í hópnum, sem einlægast var hlegið og glaðast sungið. Við höfum mikils að sakna og fyrir hönd okkar alira kveð ég þá með þökk og virðingu. Okkur mun jafnan hlýna um hjartað, þegar við minnumst þeirra. Hvílið í friði, stúdentsbræður. Sveinbjörn Dagfinnsson. f Að áliðnu hádegi hinn 34. des- ember s.l. voru mér flutt þau dap- urlegu tíðindi, að vinur mmn, Guð mundur G. Magnússos, kennari að Skógum, hefði orðið bráðkvadd ur að heimili sinu þá um nóttina. Komu dauðans er alltaf jafnerfitt að sætta sig við, enda þótt hann sé hin eina vissa, sem i vændum er, og kalli hans verði hver og einn að hlýða. Aldrej er það þó eins erfitt og þegar ungir menn, í blóma lífsins á miðjum starfsaidri, eru skyndilega kailaðir á braut. En enginn ræður sínum nætur stað. Guðmundur Gísli, en svo hét hann fullu nafni, var fæddur í Reykjavík 30. september 1827. Hann var einkabarn hjónanna Magnúsar J. Einarssonar, er um árabil starfaði við Timburverzl. Völund, og konu hans, Valgerðar Gissurardóttur. Eru þau látin fyr- ir nokkrum árum. Hugur Guðmundar hneigðist til mennta, enda hæfileikarnir góðir. Stúdentsprófi úr stærðfræðideild M.R. lauk hann 1947 og prófi í forspjallsvísindum frá Háskólan- um ári seinna. Þá um haustið gerð ist hann kennari við unglingaskól- ann að Brúarlandi í Mosfellssveit og gegndi því starfi til ársins 1965. Þar var sameiginlegt starfssvið okkar í rúman áratug og er mér á kveðjustund bæði ljúft og skylt að þakka fyrir það samstarf, er við áttum þar, og aldrei har skugga á. Guðmundur var, að minni hyggju, afburða kennari og virtust flestar kennslugreinar liggja jafn vel fyrir honum. Því tí! sönnunar má benda á, að um árabil kenndi hann flestar námsgreinar gagn fræðastigs og landsprófs við Brúarlandsskóla, og er það ekki á færi nema hæfustu manna. Ár- angur starfsins varð og mikill, svo að eftir varð tekið. Þó veit ég, að stærðfræði og eðlisfræði áttu öðr um greinum fremur hug hans, enda var hann stærðfræðingur góður. Guðmundur þótti strangur og kröfuharður kennari og vildi aga nemendur sína. Hann gerði sér Ijósa þá staðreynd, að góður agi í skóla er e itt frumskilyrði iá- kvæðs árangurs. Hann var og manna gleggstur á hæfileika nem- enda sinna. Þeim, sem góða hæfi- leika höfðu, en nýttu þá ekki sem skyldi, gat á stundum fundizt hann kaldhæðinn, en þeir mátu hann e.t.v. síðar mest og bezt, vit andi það, að á bak við þær kröf- ur, er hann setti, var umhyggja fyrir velferð þeirra á námsbraut- lnni. Hinum, sem verr voru stadd- ir, reyndist hann ljúfur og mild ur leiðbeinandi, er hann gerði sér Ijóst, að samvizkusemi og góður vilji voru fyrir hendi. Varð hann oft barnslega glaður og einlægur, þegar óvæntur árangur náðist fvr ir góðan vilja. Gamlir nemendur héldu líka margir tryggð við hann, enda var Guðmundur ævinlega reiðubúinn að rétta þeim hjálpar- hönd, er þeir leituðu til hans, og hirti þá lítf um laun sín. Minnast þeir nú á kveðjustund hollra ráða hans og leiðsagnar. Samhliða kennslu við Brúarlandsskóla starf aði Guðmundur um nokkurra ára skeið við iðnskóla, sem starfrækt- ur var við Vinnuheimilið að Reykja lundi, og reyndist þar sem annars staðar hinn nýtasti starfskraftur. Luku nokkrir gamlir nemendur hans frá Brld. þar iðnskólanámi 24 ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.