Íslendingaþættir Tímans - 13.07.1971, Page 16
MINNING
HELGI BENEDIKTSSON,
KAUPMAÐUR, VESTMANNAEYJUM
Helgi Benediktsson, kaupmað-
ur og útgerðarmaður í Vestmanna
eyjum, var starfandi kraftur í at-
vinnulífi Vestmannaeyinga um
hálfrar aldar skeið. Hann hóf hinn
margþætta atvinnurekstur sinn í
Eyjum árið 1920 og hélt áfram
sumum þáttum hans til aldurtila-
stundar. Þetta tímabil er hið mark
verðasta í þróunarsögu kaupstaðar
ins, — atvinnu — og menningar-
sögu hans. Af miklum kjarki,
dugnaði og framtakshug margra
atvinnurekenda þar, sjómanna og
Eyjabúa í heild, þróast og dafnar
atvinnuvegur, sem þjóðarheildin
nýtur góðs af, svo að marka má
í búskap þjóðarinnar og vekur at-
hygli um land allt. í þessari fram-
sækni og hagkvæmu þróun bland-
ast saman afl einstaklingshyggj-
unnar og orka samtakanna, — sam
vinnunnar, — svo að til fyrirmynd
ar má telja. Þar sem skynsamlegra
þykir og heillavænlegra að beita
félagsbúskap, þá er það gert.
Þessu til sönnunar vil ég nefna til
dæmis Lifrarsamlag Vestmanna-
eyja, Netagerð Vestmannaeyja,
Olíusamlag Vestmannaeyja, Fisk-
sölusamlagið og samtök útvegs-
bænda til að reka hraðfrystihús,
þar sem tugir bátaeigenda og út-
vegsmanna standa að og hafa hags
muna að gæta.
Með mörgum öðrum hyggnum
og atorkusömum atvinnurekend-
um í Eyjum stóð Helgi Benedikts-
son um tugi ára í fararbroddi allra
þessara samtaka.
Þá var hann einnig starfandi afl
í búnaðarsamtökum bænda og ann
arra jarðræktarmanna i Eyjum og
mjólkurframleiðenda, enda um
skeið einn stærsti bóndinn í kaup-
staðnum, — átti og rak eitt stærsta
kúabúið þar. Þá var hann einnig
formaður Búnaðarfélags Vest-
mannaeyja um skeið. í Búnaðarfé-
lagssamtökunum beitti hann sér
fyrir því, að jarðræktarmennirnir
og mjólkurframleiðendurnir næðu
í sameiningu hinum hagkvæmustu
kaupum á ýmsum búnaðarvörum,
svo sem áburði og fóðurvörum.
Þar var þá sem sé ríkjandi annað
sjónarmið en hagsmunasjónarmið
einstaklingsins, þótt kaupmaður
væri. Þannig var því einmitt var-
ið um Helga Benediktsson á mörg
um öðrum sviðum. Öðrum þræði
hafði hann mikla ánægju, og full-
nægingu á vissan hátt, af því að
beita viti sínu og starfsorku til efl
ingar hag og hagsæld meðbræðra
sinna, ekki sízt hinna máttarminni
efnalega séð.
Hin hallkvæma þróun í at-
vinnulífi Eyjabúa og allri lífsaf-
komu var Helga Benediktssyni
ríkt hugaðarmál. Ef til vill hafa
fáir kynnzt betur þessum hugðar-
málum hans en ég, sem þessar lín
ur skrifa, þar sem við störfuðum
saman í stjórn Sparisjóðs Vest-
mannaeyja um árabil, og Sparisjóð
urinn hefur jafnan verið sú stofn-
un, sem hinir efnaminni leita til
um hjálp og hald, er á bjátar urn
daglegt brauð, ef ég mætti kom-
ast þannig að orði, — og þegar
hugað er til framkvæmda um bætt
húsakynni og mennilegri lífskjör,
þá beitti Helgi Benediktsson oft
ráðum og dáð, svo að tök yrðu á
að koma til móts við lánbeiðend-
ur án þess að stofnunin ætti nokk-
uð á hættu um lán fjárins. Þau
störf hans sanna ef til vill betur
en ýmislegt annað einn þáttinn í
sálarlífi þessa mikilhæfa manns,
sem Helgi Benediktsson var. Fleiri
en ég reyndu hann jafnan fúsan
til að stýðja góð málefni og leggja
þeim' lið á sem flestum sviðum í
bæjarfélaginu, bæði í atvinnu —
og menningarlífi fólksins. Þannig
reyndist hann t.d. í átökunum
miklu um byggingu Gagnfræða-
skólahússins þar á sínum tíma. Og
skólann sjáifan vildi hann efla og
gerði með ráðum og dáð, gaf hon-
um bækur og fleiri nyteama hluti.
Þá gerði hann sitt til að efla Byg'gð
arsafn kaupstaðarins með gjöfum
muna o.fl. Fleiri menningarstofn-
anir studdi hann af velvild og
skilningi, ekki sízt þegar hann var
valdamkill bæjarfulltrúi. Þá
neytti hann jafnan aðstöðu sinnar
til þess að leggja lið þessum fram-
faramálum öllum. Hann var
forseti bæjarstjómar Vestmanna-
eyja á kjörtímabilinu 1950—1954.
Þá er skylt að geta þess, að um
20 ára bil var Helgi Benediktsson
öðrum þræði brautryðjandi um
byggingu fiskiskipa hér á landi.
Fimm fiskiskip voru smíðuð í
skipasmíðastöð hans í Eyjum að
stærð 15—200 smálesta. Á síðustu
kreppuárunum lét hann byggja
stærsta fiskiskip, sem til þess tíma
hafði verið byggt hór á landi. Það
var Helgi VE 333, 120 smálestir
að stærð. Það má athylgi vekja, að
þessa mikilvægu framkvæmd og
markverða brautryðjendastarf
innti hann af hendi á krepputím-
um, þegar flestir höfðu dregið sig
inn í skelina sökum fjárhagslegra
erfiðleika og kjarkleysis, — efna-
legrar lömunar.
Vitaskuld fór töluvert fyrir
manni eins og Helga Benedikts-
syni. Víða átti hann í útistöðum,
— en hvað er að fást um það?
Hið jákvæða starf í þágu lands og
þjóðar vegur þar þyngst, og ávaxt
anna af því starfi njóta komandi
kynslóðir. Minnin um þau störf
skulu í heiðri höfð. Þá verða þau
framhvöt.
Helgi Benediktsson átti innra
með sér festu og styrk. Og fyrir
þeim sálarlífseinkennum hjá öðr-
um beygði hann sig jafnan, ef
bent ýar þar með rökum á stað-
reyndir.
Árið 1928 kvæntist Helgi Bene-
diktsson eftirlifandi konu sinni,
frú Guðrúnu Stefánsdóttur útgerð
armanns og skipstjóra Björnssonar
frá Skuld í Eyjum, og konu hans
frú Margrétar Jónsdóttur, sem enn
er á lífi í hárri elli.
'6
ÍSLENDINGAÞÆTTIR