Íslendingaþættir Tímans - 13.07.1971, Blaðsíða 32
70 ÁRA:
ÞÓRARINN JÓNSSON
TÓNSKÁLD
Hann fæddist að Kastala 1
Brekkuþorpi í Mjóafirði, 18. sept
ember 1900. Foreldrar hans, Jón
Jakobsson og Margrét Þórðardótt-
ir, voru bæði sunnlenzk en stað-
festust í Mjóafirði, þar sem Jón
stundaði sjómennsku aðallega.
Vandist Þórarinn við sjómennsku
með föður sínum og byrjaði innan
fermingaraldurs að stunda sjó-
róðra, eða frá 1912. Er unglings-
árum lauk var hann nokkra vetur
við sjóróðra í Vestmannaeyjum
eða til ársins 1923.
Snemma átti tónlistin hug hans
allan en ekki var um mikla mögu-
leika að velja til að afla sér kunn-
áttu eða menntunar á því sviði,
þar eð fjölskyldan var fátæk og
lífsbaráttan almennt krafðist þess
á þeim árum, að fólk kvikaði ekki
frá henni. Þó lærði hann að þekkja
nótur undir tilsögn Sigdórs V.
Brekkan, sem þá var kennari í
Mjóafirði og hefur það sennilega
orðið tónmennt íslendinga mikið
lán, þótt ekki kæmi í ljós fyrr en
löngu síðar, og er vart fullþakkað
enn.
Þeim, sem bezt þekktu til, duld-
ist ekki, að hjá Þórarni fór saman
tónlistaráhugi og tónlistarhæfni
og hvöttu hann því og studdu til
náms. Hóf hann því tónlistarnám
í Reykjavík árið 1922 hjá Þórarni
Guðmundssyni, Páli ísólfssyni og
Ernst Schacht, en fór árið 1924 til
Berlínar til framhaldsnáms og var
þar samfleytt til ársins 1950. Þar
varð aðalkennari hans prófessor
Friedrich A. Koch yfirkennari við
Tónlistarháskólann í Berlín. Síðar
stundaði Þórarinn lengi tónlistar-
kennslu þar í borg auk tónsmíða
og hafa tónverk hans verið flutt
víða í Þýzkalandi og Tleiri löndum,
m.a. í Bandaríkjunum. Til dæmis
voru tveir tónlei'kar með verkum
hans einvörðungu haldnir 1 Berlín
árin 1936 og 1941.
Eftir að Þórarinn kom heim til
íslands árið 1950, settist hann að
í Reykjavík og hefur búið þar síð-
an og unnið aö áhugamálum sín-
um. Einnig hefur hann unnið að
málefnum STEFs og var kjörinn
heiðursfélagi Tónskáldaféags ís-
lands 1961. Kennslu og orgelleik
hefur hann einnig stundað.
Þekktustu tónverk Þórarins eru:
Sönglög: Fjólan (Heiðbláa fjólan
mín fríða), Nótt, Ave Maria, Vöggu
vísa, Pastorale, Norður við heim-
skaut. Karlakórslög: Lákakvæði,
Ég heilsa þér ísland og Huldur.
Fyrir orgel hefur hann samið Són-
ötu og Sorgargöngulag. Eitt merk-
asta tónverk Þórarins mun þó vera
Forleikur og tvöföld fúga um nafn
ið BACH, sem hann samdi fyrir
einleiksfiðlu og hefur verið leikið
á hljómleikum víða um heim, þá
samdi hann Ólympíusöng fyrir
kór og hljómsveit auk margra ann
arra tónverka, sem ekki hafa ver-
ið flutt hér á landi. Mikið af tón-
verkum hans tapaðist af völdum
stríðsins í Þýzkalandi og verður
það tjón aldrei bætt.
Sagt er, að snemma beygist krók
urinn til þess er verða vill og má
það til sanns vegar færa um Þór-
arínn Jónsson. Krók hans átti að
beygja til starfa og strits á landi
og sjó, en þegar hlé varð á strit-
inu á sjónum, sáu hinir sjómenn-
irnir, að hann skrifaði nótur á ára
blöðin eða innan í bátinn og hvar
sem var. Var þá auðséð, að hér
voru hæfileikar að fara í aðra átt
en skyldi og munu Ólafur Gísla-
son, faðir Davíðs Ólafssonar banka
stjóra og þau hjónin Páll og Sig-
fríð Þormar hafa átt mestan þátt
í því, að hann dreif sig til tónlist-
arnámsins, áður en það var um
seinan. Það var ein gæfa íslenzkr-
ar tónlistar og væri betur, að Aust
firðingar þekktu gerr þennan son
austfirzkra fjarða og fjalla. í tón-
list hans birtist flug mannsandans
og sókn til hinna hæstu miða, leit
að fullkomnun og miskunnarlaus
krafa um vandvirkni.
Þótt segja megi, að tónlistin hafi
verið uppistaðan 1 lífi Þórarins, þá
er hann liðtækur á fleiri sviðum
og hefur m.a. lagt stund á stjörnu-
fræði og stærðfræði í frístundum
sínum.
Kona hans er Ingibjörg Jónsdótt
ir trésmiðs og bónda í Brúnavík
í Borgarfirði eystra, Bjarnasonar
ættleidd af móðurbróður sínum,
Stefáni Filippussyni, hinum al-
kunna ferðalang og fylgdarmanni
margra um hálendi og hrjóstur
íslands.
Vinir Þórarins óska þess, aS
hann megi enn um sinn auðga tón
ment íslendinga. Þjóðinni allri
og Áustfirðingum óska þeir þess,
að tónlist hans megi hljóma hjá
þeim, betur en hún hefur gert, að
hún megi bergmála þar sem hún
er upprunnin.
Austfirðingur.
32
Í8LENDINGAÞ/BTTIR