Íslendingaþættir Tímans - 11.08.1971, Blaðsíða 23
MINNING
LÁRUS GUÐMUNDSSON
SKIPSTJÓRI
Það voru regnskúrir íösludag-'
inn 2. júlí s.l., er séra Hjalti Guð-
mundsson hringdi til mín og til-
kynnti mér lát vinar míns og fé-
laga, Lárusar Guðmundssonar,
skipstjóra. Sannarlega var þetta
dapur dagur fyrir okkur íbúa
Breiðafjarðar, því nær 40 ár eru
liðin, síðan Lárus hóf ferðir á
„litla Baldri“ um fjörðinn og hef-
ur síðan þjónað þessu byggðarlagi
óslitið. Hann er því orðinn stór
hópurinn, sem Lárus hefur ferjað
með Baldri og öllum skilað heil-
um í höfn.
Lárus Guðmundsson fæddist í
Stykkishólmi 26. ágúst 1919, sonur
hjónanna Guðrúnar Einarsdóttur
og Guðmundar Jónssonar frá Narf
eyri. Móður sína missti Lárus mjög
ungur, en faðir hans kvæntist
aftur, Kristínu Vigfúsdóttur, og
reyndist hún börnunum sem hin
bezta móðir. Lárus stundaði nám
við hérðasskólann á Laugarvatni
og skaraði þar mjög fram úr í
íþróttum og þó einkum í sundi.
Setti hann þá mörg skólamet í
þeirri grein, sem stóðu lengi.
Eins og áður er sagt, hneigðist
hugur Lárusar snemma að sjónum
og um 10 ára aldur hóf liann störf
á „litla Baldri“ hjá föður sínum,
að Sandprýði til Guðbjargar og
Þorkels, og mat hún þau mikils.
Hún var svo lánsöm að leiðir
hennar og Jóns Einarssonar lágu
saman. Þau eignuðust eina dóttur,
Ásbjörgu, sem var þeirra mikla
aðstoð við heimilið. Sesselja var
rnjög barngóð og voru oft börn
hjá henni tíma og tíma, og er ekki
of sagt, að varla var hægt að láta
þeim líða betur en hjá henni. Ég
vil þakka það, sem hún hefur
hjálpað mér, en það verður aldrei
full þakkað. Hún lézt í Sjúkrahúsi
Vestmannaeyja 25. maí s.l.
Blessuð sé minning hennar.
Vinkona.
sem var skipstjóri. Veturinn 1941—
1942 var hann á skipstjóranám-
skeiði á Siglufirði og lauk þaðan
prófi um vorið. Tók hann þá strax
við skipstjórn á Baldri.
Lárus var farsæll skipstjóri og
öll þau ár, sem hann stóð á stjórn-
palli Baldurs í misjöfnum veðrum
milli skerjanna á Breiðafirði, þá
kom hanu alltaf skipi og skips-
höfn farsællega heilum í höfn. Það
var því mikið lán fyrir alla Breiða-
fjarðarbyggð að hafa haft á flóa-
bát sínum slíkan skipstjóra sem
Lárus Guðmundsson, en hann
gegndi því starfi til dauðadags.
Auk þess að vera skipstjóri, var
Lárus nú síðustu árin framkvæmda
stjóri útgerðar Baldurs. Hann
gegndi ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir Stykkishólm: sat í hrepps-
nefnd, hafnarnefnd, stjórn Báta-
tryggingar Breiðafjarðar o.m.fl.
Lárus tók virkan þátt í stjórn-
málum og barðist ætíð fyrir hug-
sjón jafnaðarstefnunnar í Alþýðu-
fiokknum. Hann átti sæti á lista
flokksins bæði í sveitarstjórnar-
og alþingiskosningum og nú síðast
í vor.
Lárus var hlýr og einlægur mað-
ur í öllu viðmóti og mátti aldrei
vamm sitt vita í neinu í viðskipt-
um sínum við aðra, hvort heldur
þeir voru honum kunnugir eða
ekki. Allt varð að vera hreint og
Ijóst og engu skyldi leynt, þar
mátti ekki vera misskilningur eða
misklíð. í öllu sínu starfi hugsaði
hann fyrst og fremst um, að allt
færi sem bezt úr hendi.
Lárus var mikill trúmaður eins
og títt er um þá, sem stunda sjó-
inn. Þótt hann hafi ekki oft sótt
kirkjur, hygg ég, að trú hans hafi
ekki verið minni fyrir það, enda
hafði hann oft orð á því, hvað hin
æðri máttarvöld hefðu oft leið-
beint sér á erfiðum stundum. Þar
sem Lárus Guðmundsson fór, þar
fór góður drengur.
Hann var skemmtilegur maður
og ræðinn, átti gott með að eign-
ast vini og kunningja, þrátt fyrir
hæverzku og hlédrægni, enda var
hann vinfastur maður.
Árið 1945 kvæntist Lárus eftir-
lifandi konu sinm, Björgu Þórðar-
dóttur Benjamínssonar bónda ur
Hergilsey, og voru þau hjón mjög
samhent. Þau hafa búið allan sinn
búskap hér í Stykkishólmi. Þeirn
vai'ð 5 barna auðið, sem öll eru á
lífi og 2 yngstu dæturnar innan
við fermingu. Börnin eru: Guð-
mundud, Sigríður, Kristín Guðrún,
Bryndís og Nanna.
Stjórn flóabátsins Baldurs þakk
ar honurn langt og gott starf i þágu
félagsins og byggðarlagsins og vott
ar fjölskyldu hans sína dýpstu
samúð.
Um leið og ég kveð góðan vin
og samstarfsmann, sendi ég og
fjölskylda min, konu hans og börn
um, okkar innilegustu samúðar-
kveðjur og biðjum algóðan guð að
blessa þau og veita þeini styrk.
Asgeir P. Ágústsson.
f
Burtu var kvaddur
í broddi lífsins,
Lárus Guðmundsson,
lýðum kunnur.
Baldri er stýrði
um Breiðafjörðinn
lengi og vel
við lofstýr góðan.
Ungur að árum
ást hann festi,
djúpa við rán
og dætur hennar.
Báru þær hann
á brjóstum sínum,
dilluðu honum
daga og nætur.
Brattar eru bárur
^Breiðafjarðar,
sker og eyjar
og skarpir strsKuiar .
ÍSLENDINGAÞÆTTIR
23