Íslendingaþættir Tímans - 11.08.1971, Blaðsíða 32

Íslendingaþættir Tímans - 11.08.1971, Blaðsíða 32
ÁTTRÆÐUR: ÓLAFUR ÞORSTEINSSON BÓNDI, HLAÐHAMRI Öll eigum við ýmsar minningar frá bernskuárunum, misjafnlega ljósar þó, og oft er það svo, að vissa menn eða atburði munum við bezt. Einn af þeim mönnum, er ég man einna bezt frá bernsku minni, er Ólafur á Hlaðhamri. Hvers vegna?, mun ef til vill einhver spyrja, er hann þér ljósari en aðr- ir samtímamenn? Þeirri spurningu myndl ég svara á þessa leið. Það er vegna þess, að honum fylgdi alltaf hressandi blær og hann virt- ist búa yfir óvenjulegum lífsþrótti og lífsgleði, svo að af honum gneistaði. í raun og veru var hann í barnsminni mínu ímynd kjarks og karlmennsku, og er mér ekki grunlaust um, að hann hafi verkað þannig á fleiri. Eitt er víst, að oft var til hans leitað, ef eitthvað bar út af, t.d. vitja læknis, sækja meðul o.þ.h. og þá oftast í Búðar- dal. Getur maður því gert sér í hugarlund, að hann hafi oft þurft á þeim eiginleikum að halda, sem áður voru nefndir, því vafalaust hefur byr oft verið óhagstæður vegna veðurs, fanna og óbrúaðara vatnsfalla, og hafa verður það í huga, að mikil bylting í samgöngu- málum hefur orðið, síðan Ólafur á Hlaðhamri var ungur maður. Ég veit ekki tölu á þeim ferðum, sem Ólafur hefur farið í þesc,i skvni, en þær eru margar og, að ég held hafa þessar ferðir allar heppnazt áfallalaust, þó að stundum væri við mikla erfiðleika að etja. óiafur fæddist 23. júní 1891 á Fögrubrekku í Bæjarhreppi. For- eldrar hans voru Þorsteinn Þor- steinsson, er lengi bjó á Hlaðhamri í sömu sveit, og kona hans Ingi- björg Bjarnadóttir. Ólafur ólst upp í foreldrahúsum ásamt þremur bræðrum, en þar sem hann var þeirra elztur, kom það í hans hlut, að verða fyrstur til að leita atvinnu utan heimilis, m.a. til að afla heim- ilinu meiri tekna. Hann var marg- ar vertíðir syðra, oftast í Hafnar- firði og gat sér þar góðan orðstír fyrir dugnað Off karlmennsku. Ekki hlaut ólafur aðra menntun en barnauppfræðslu, eins og hún var algengust á þeim tíma. Árið 1915 kvæntist Ólafur Jónu Jónsdóttur, bónda á Valdasteihs- stöðum, Jónssonar, hinni ágætustu konu. Sama ár hóf hann búskap á Hlaðhamri, fyrst á móti föður sín- um, en fáum árum síðar, er faðir hans lét af búskap, tók Ólafur við jörðinni allri og hefur búið þar síðan, nú síðustu árin í sambýli við einn sona sinna, er reisti nýbýli í landi jarðarinnar. Þau Hlaðhamars hjón eignuðust sjö börn, se möll eru á lífi. og eru þrjú þeirra bú- sett. í sinni heimasveit. Hlaðham- arssystkinin eru í flestu lík for- eldrum sínum, enda hið mesta mánnkostafólk. Ég held, að þau Hlaðhamars- hjón hafi alltaf komizt sæmilega af, þrátt fyrir töluverða ómegð í fyrstu, og má þakka það dugnaði þeirra og framsýni. En ég býst við, að á frumbýlingsárunum hafi þau þurft að neita sér um margt, sem nú þætti ekki gott að vera án. Þá voru aðrir tímar, þá þekktust hvorki fjölskyldubætur né sjúkra- samlög og hvers konar aðstoð frá frá því opinbera til frumbýlinga var óþekkt fyrirbæri. Ólafur hefur endurbyggt öll hús jarðarinnar og aukið ræktun að miklum mun, og er jörðin í hans höndum orðin hið snotrasta býli. Ólafur hefur haft dágott bú, að vísu ekki neitt stórbú, en afburða gott. Það var honum mjög til bú- drýginda, þegar fiskur gekk í Hrútafjörð, hvað fast hann sótti sjóinn, enda var hann ágætur og aflasæll sjómaður. Oft varð hann að leggja mikið á sig, því langt gat verið að sækja, einkum er leið á haust og fiskur fór að dýpka á sér. Þegar börnin uxu upp varð allt auðveldara, þar sem þau voru öll samtaka um að styðja foreldra sína í starfi og báru heill heimil- isins mjög fyrir brjósti. Ólafur er prýðilega greindur maður, athugull, gætinn og sam- vizkusamur með afbrigðum. Hann er mikill félagshyggjumaður og hefur tekið virkan þátt í ýmsum félagsskap er varðar bandastétt- ina. Hann átti lengi sæti í stjórn Búnaðarfélags Bæjarhrepps og var fuiltrúi félagsins á ýmsum fund- um, er um búnaðarmál fjölluðu um áratuga skeið, þá átti hann sæti í hreppsnefnd um hríð, í stjórn Kaupfélags Hrútfirðinga var hann marga áratugi og formaður þess lengi, eða þar til hann sagði því starfi af sér fyrir fáum árum, þá hefur hann ennfremur verið formaður stjórnar Sparisjóðs Hrútfirðinga um langan tíma og gengt ýmsum fleiri trúnaðarstörf- um. Ég, sem þessar línur rita, hef unnið töluvert með Ólafi að félags málum og á um það samstarf marg ar góðar minningar. Hann var heill í starfi og einstakur drengskapa maður, tók á öllum málum með velvilja og skilningi. Hann var ótrauður að starfa að hvers konar framfaramálum og taldi ekki eftir sér ómak og umstang, sem því fylgdi. Hugstæðust munu honum þó hafa verið búnaðar- og sam- vinnumál. Þau Hlaðhamarshjón hafa verið Framliald á bls. 31 32 ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.