Íslendingaþættir Tímans - 01.06.1974, Síða 3

Íslendingaþættir Tímans - 01.06.1974, Síða 3
sagði svo vel frá, að hann vantaði ekki annað en setjast niður og skrifa til þess að vera góður rithöfundur og það sem hann hefur skrifað, sem er ekki mikið, ber lika vitni um það. Hann var einn af þeim ólærðu alþýðumönnum, sem geymt hafa tunguna i „timans straumi” um aldir og kunni góð skil á þvi, að það eru ekki siður smáatriði sem gera söguna að sögu. Nú þegar Sigurður er allur minnist ég hans með þakklæti og hlýjum huga. Við vorum nágrannar um langa ævi og ég naut þess alltaf að blanda geði við hann, auk þess sem hann var hjálp- samur og góður nágranni. Fjölmargar minningar á ég um samskipti okkar, en nefni hér fátt eitt. A árunum eftir 1930 fór ég oft i göng- ur á Hofsafrétt með þeim Villinganes- mönnum. Það mun hafa verið haustið 1933 að við Sigurður urðum samferða i göngur og náttstaður var frammi á Lambatungum, en svo heitir svæði innst i Vesturdal vestan Hofsár. Veður var yndislegt, hlýtt og bjart. Við byrjuðum að drekka landa á Flata- gerði, en þá var ekkert annað vin til, nema gutl frá Spáni. Við lifgaðan sálaryl héldum við svo fram Vestur- dal. Fegurð fjallanna, skemmtilegar samræður og ilmurinn af fölnandi fjallagróðri rann saman i eitt. Þó liðin séu 40 ár skynja ég enn þá ljómann af þessum fagra siðsumarsdegi. Sigurður var góður gangnastjóri, aðgætinn, raunsær og ósérhlifinn, var sjálfur þar sem erfiðast var. A Lambatungum eru mikil klettagil, Hraunþimgil og fleiri, sem erfitt er að ná fé úr. Sigurður var djarfur að ganga um kletta, og sögðu sumir, að hann sæist ekki fyrir og færi óvarlega, en aldrei kom það að sök. Minnisstætt er mér það, þegar Sigurður fór búferlum frá Stapa að Borgarfelli vorið 1952. Hann var kominn með ærnar og var einn að passa þær um sauðburðinn, þvi fólk hans var enn i Stapa. Þá skeði það 26. mai, að stórhrið gerði og feikna fönn á einni nóttu, svo fé fennti viða til dauðs. Vanhöld urðu minni hjá Sigurði en flestum öðrum, og var þó aðstaða hans bágborin i mesta máta. Engin hús voru til nema fjárhúskofi, sem hann byggði haustið áður. Ég undraðist þol- gæði og umburðarlyndi Sigurðar i þessum erfiðleikum. Hann vakti yfir fénu, fór ekki úr fötum, og það kom sér vel, að ha'nn var nærfarinn við skepnur og hafði hneigð til dýra- lækninga. F’yrsta minning min um Sigurð Eiriksson er sú, að við vorum að fara til kirkju á sumardegi með fleira fólki. Ég mun hafa verið 8 til 10 ára, en hann 6 árum eldri. Þá voru til góðir reið- islendingaþættir hestar á hverjum bæ, enda mikið með þá að gera. Sigurður sat á hesti, sem hann átti sjálfur, ljósum að lit. Svo var það á Goðdalagrundum, að hann hleypti hestinum eða missti hann og varð langt á undan öllum öðrum. Mér fannst það stórkostlegt, að unglings- piltur skyldi eiga slikan gæðing. Eins og áður hefur Sigurður nú hleypt gæðingi sinum og orðið á undan mér til kirkjunnar, en innan tiðar munu leiðir okkar liggja saman. Við munum hittast „austur af sól og suður af mána”. En ekki munum við „strengja klóna” eins og Stjáni blái. Við munum sitja á hestum, sem hafa grænt gras undir fótum. Björn Egilsson f „En dauðinn á eftir að koma. Hann veit hvar ég bý”. Þessar spaklegu ljóðlinur Hannesar Péturssonar komu mér i hug, er mér barst fregnin um að Sigurður á Borgarfelli væri látinn. Hann andaðist i Sjúkrahúsi Skagfirðinga á Sauðár- króki hinn 25. jan. sl. Kynni okkar höfðu staðið lengi, og vil ég nú festa á blað fáein orð til minningar um hann. Sigurður Eiriksson var fæddur að Breiðagerði i Tungusveit hinn 12. ágúst 1899, sonur hjónanna Eiriks Guðnasonar bónda þar og konu hans, Guðrúnar Þorláksdóttur. Hann fluttist með foreldrum sinum að Villinganesi tveggja ára að aldri. Móður sinnar naut hann ekki lengi, þvi að hún dó þegar hann var aðeins 6 ára gamall. Hann ólst upp með föður sinum i Villinganesi, og þar hóf hann búskap á hluta af jörðinni árið 1933, en bjó þar aðeins i 3 ár. Hin næstu ár bjó hann á þremur stöðum hér i sveit, lengst i Teigakoti 12 ár. Ekki fékk hann jarð- næði, er honum likaði til frambúðar. Árið 1952 fluttist Sigurður með fjöl- skyldu sina að nýbýlinu Borgarfelli og bjó þar siðan, hið siðari ár i félagi við Eystein son sinn, og var þá nokkra vetur i vinnu á Suðurnesjum. Að litlu var a<} hverfa er flutt var að Borgarfelii. Ræktun mjög stutt á veg komin, og ekkert hús risið af grunni nema bráðabirgðaskýli, er nota átti fyrir búpening næsta vetur og var nú tjaldað innan. Flutti fólkið þar inn og hafðist þar við þar til i október um haustið, að flutt var i nýtt ibúðarhús. Vorið 1952 var hart, og varð það til að gera starf landnemanna eríiðara en ella. Með öruggri aðstoð konu sinnar, Helgu Sveinbjörnsdóttur, og barna þeirra varsigraztá öllum erfiðleikum, og að fáum árum liðnum var rekið þarna blómlegt bú. Sigurður á Borgarfelli var að mörgu leyti góður bóndi. Hann var duglegur verkmaður, fyrirhyggjumaður og kunni góð skil á þvi hvað mestu varð- aði um góða afkomu. Ágætur heyskaparmaður bæði á gamla og nýja vlsu. Oft fyrstur að koma áburði niður i túnið og þá að sjálfsögðu fyrst- ur eða með þeim fyrstu að hefja slátt. Jafnan var hann birgur af heyjum. Þegar harðæri og kal lagði túnið i auðn að kalla, var ekki gefizt upp, heldur voru hin gömlu og öruggu verkfæri, sem voru geymd en ekki gleymd tekin fram, ljárinn sleginn i orfið og heyja aflað á fjarlægum slóðum, þar sem vélum varð ekki við komið. Sigurður á Borgarfelli var gætinn i fjármálum, og það var gildur þáttur i eðli hans að treysta á eigin dugnað og vera óháður öðrum á sem flestum sviðum. Góður ferðafélagi var hann og traustur ferðamaður sem hafði tals- vert gildi, meðan hestar voru notaðir til allra aðdrátta. Og hvort heldur hann visaði veginn til náttstaðar i stór- hrið á öræfum eða fylgdi ferðamönn- um, er vildu stytta sér leið yfir Héraðsvötn á Strákavaði, fylgdi lán leiðsögn hans. Sigurður hafði fengið góða greind i vöggugjöf. Um skólagöngu var hins vegar ekki að ræða né fræðslu umfram það, sem börnum var skylt að læra fyrir fermingu. Snar þáttur þeirrar uppfræðslu var kennsla i kristnum fræðum. Þá var enn i fullu gildi og mikils metin ábending Einars Bene- diktssonar frá þvi um aldamótin: „Hver þjóð, sem i gæfu og gengi vill búa, á guö sinn og land sitt skal trúa”. Þótt Sigurður Eiriksson væri jafnan fáorður um eigin hgg og innstu hug- renningar, veit ég að hann trúði á æðri máttarvöld og lif að loknu þessu. Hann var gestrisinn og góður heim að sækja, skemmtilegt við hann að ræða, ljóða- vinur og kunni margt i þeim fræðum, sjálfur vel hagorður, en iðkaði það i hófi, kunni góð skil á mönnum og mál- efnum fyrri tiðar hér i sveit og viðar, hafði gott minni og sagði ágætlega frá, ef þvi var að skipta. Þó innst inni væri hann alvörumaður, var hann jafnan glaður og reifur og hafði létta kimni á reiðum höndum, ef svo bar undir. Nú þegar hann er horfinn sjónum er mér söknuður i huga, er ég á ekki lengur kost á að njóta návistar hans mér til uppörvunar og hugarléttis. Hann var góður nágranni minn um áratuga- skeið, og á ég um hann margar hug- þekkar minningar, þótt hér verði ekki raktar. Framhald á 14. siðu. 3

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.