Íslendingaþættir Tímans - 01.06.1974, Page 10
Þuríður Káradóttir
Frú Þuríöur Káradóttir lézt i
Reykjavik hinn 18. febrúar siðastliöinn
eftir nærfellt ævilangan heilsubrest og
þungbær veikindi hin siðustu ár. Hún
var jarðsungin að Lágafelli i Mosfells-
sveit hinn 23. febrúar að viðstöddu
fjölmenni, en þar óskaði hún sjálf eftir
að fá aö hljóta hinztu hvilu.
Þuriður fæddist hinn 16. desember
árið 1892 að Lágafelli. Foreldrar henn-
ar voru Kári Loftsson bóndi. ættaöur
úr B árðardal, og kona hans, Steinsa
Pálina Þórðardóttir, ættuð frá Hrúts-
holti i Hnappadalssýslu.
Kári, faðir frú Þuriðar. var fóstur-
bróðir séra Jóhanns Þorkelssonar,
sem. um. skeiö var prestur að Lágafelli,
en siðar i Reykjavik.
Um tim.a dvöldust hjónin Kári og
Steinsa Pálina að Lágafeili með séra
Jóhanni, og þar fæddist þeim dóttirin
Þuriður, Sfðan íluttust þau hjón
aö Eiði i Mosfellssveit, en bjuggu þar
skamma hrið. Þd fluttust þau að
Lam.bhaga i sömu svp.it og bjuggu þar
siðan. unz þau fóru til Reykjavikur
árið 1918. Þau hjón eignuðust
þrjár dætur auk Þuriöar: Guðriði.
Kristinu og Karólinu. Var Þuriður elzt
þeirra systra, sem nú eru allar dánar
nema Kristfn. húsfreyja hér i borg.
Þuriður dvaldist með foreldrum sfn-
um i Lambhaga, unz hún giftist fyrra
manni sinum. Stefáni Stefánssyni
kennara og kunnum feröaleiðsögu-
maðurinn með. Slikar minningar hygg
ég aö Einar læknir skilji eftir i rikum
mæli hjá þeim, er þekktu hann og nutu
vináttu hans og starfskrafta sem lækn-
is.
Sem ijómi litskrúð
yfir ljósu hafi
eftir röðul runninn
svo skin á hugar
himni björtum
minning góðra manna.
Frú ölmu Tynes,börnum hennar og
öðrum ástvinum, er svo mikið hafa
misst, sendum við hjónin okkar inni-
iegustu samúðarkveðjur, og biðjum
þeim alirar blessunar á ókomnum ár-
um.
Reykjavik 20-5-1974
Jón G.Jónsson, Stórholti 12
manni, áriö 1911. Þau Þuriöur og
Stefán eignuöust eina dóttur barna.
Hún hlaut nafnið Sunna og er hús-
freyja i Reykjavik. Þau Þuriður og
Stefán slitu samvistum eftir fárra ára
sambúð.
Eftir það Starfaði Þuriður i Hús-
stjórnarskólanum um nokkur ár, en
dvaldist þó tima og tima með foreldr-
um sinum i Lambhaga.
A þessum tima kynntist Þuriöur
ungum menntamanni, Páli Sveins-
syni, sem þá var nýkominn frá mál-
fræðinámi i Kaupmannahöfn og ger-
ist nú kennari i ýmsum skólum
i Reykjavik, en starfaöi lengst
sem kennari og siöan yfirkennari
við Menntaskólann i Reykjavik,
svo sem alþjóð er kunnugt. l>au
Þuriður og Páil Sveinsson giftust
arið 1921 og eignuöust tvo sym, Svein,
sem nú er kennari i Sviss og séra Pál,
sem nú um sinn starfar i Rikisendur-
skoðun. - -
Páll Sveinson andaðist hinn 5. janú-
ar áriö 1951. Siðan átti Þuriður heimili
i skjóli séra Páls. sonar sins, og hafa
þau hin siðari ár átt heima að Kvist-
haga 11. Einn sona Sveins, bróður séra
Páls, Kári Pétur, ólst upp á heimili
þeirra Þuriðarog séra Páls, alll til tvi-
tugs aldurs, er hann hvarf til foreldra
sinna i Sviss.
Þegar á unga aldri þótti Þuriður
hinn ágætasti kvenkostur. Hún gat sér
ágætt orð fyrir húsmóöurstörf, svo
sem þegar kom fram, er hún starfaði i
Ilússtjórnarskólanum. Einnig þótti
hún bera af öörum konum að glæsileik.
Frú Þuriður unni heimili sinu og ást-
vinum af heilum hug, undi naumast
stundinni lengur utan heimilis sins. —
Af þeim sökum var hún aðeins örfáa
daga i sjúkrahúsi, þótt elli og sjúkleiki
gerðu henni lifið erfitt hin siðustu ár.
Heima vildi hún vera. Til annars mátti
hún naumast hugsa. Og viljinn til lifs
og starfs var alveg óbugandi.
F’rú Þuriöur hafði yndi af söng og
hljóðfæraslætti. Sjálf lék hún bæöi á
pianó og orgel og mun hafa verið
organleikari i kirkju um allmargra
mánaða skeið.
Trygg var Þuriður og vinföst og
rækti forna vináttu'við þá, er á annaö
borð höfðu kynnzt heimili hennar og
fjölskyldu. Þaö hef ég oft reynt hin
siðari ár, eftir aö Páll Sveinsson,
siðari maður hennar var allur. En ég
átti þvi láni að fagna aö njóta vináttu
hans um langt skeiö og mikillar gest-
risni d heimili þeirra hjóna,
En engum hygg ég. aö Þuriður hafi
unnað jafn heitt og séra Páli, syni sin-
um. Það duldist mér ekki. er viö Þu-
ribur áttum tal saman, þótt oftast væri
aðeins stutt simtal. — Sú ást. sem hún
lagði við þennan son sinn, var og
meira en verðskulduö, þvi að lifi sinu
hefur hann lifaö fyrst og fremst fyrir
hana. siðan faðir hans dó, er hann var
enn kornungur maður. — t þessu sam-
bandi eiga vel við orð Einars
Benediktssonar:
,,Þitt verðmæti gegnum lifið er fórnin
en til þess veit eilifðin alein rök.
Það er gott til þess að vita. að séra
Páll er nú kvæntur ungri og glæsilegri
konu. Eddu Carlsdóttur. er stóð með
mikilli prýði við hlið manns sins, er
hann stóð við dánarbeð móður sinnar.
Viö andlát frú Þuriðar er okkur vin-
um hennar i senn þakklæti og söknuð-
ur ihuga. Guðblessi hana og minningu
hennar.
Magnús Kinnbogason.
10
islendingaþættir