Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 01.06.1974, Qupperneq 12

Íslendingaþættir Tímans - 01.06.1974, Qupperneq 12
af glaðrl lund, mannlegri hlýju og góð- vild. i návist hans var ætið gott að vera og gaman að ræða við hann. Hann var ekki margorður, en sagði vel og skemmtilega frá og yljaði frásögnina góðlátlegri kimni. Barngóður var hann, enda hafði hann þannig viðmót, að öll börn, sem urðu á vegi hans hlutu að hænast að honum. Hann skildi vel viðkvæman hug barns og unglings og var i senn vinur og umhyggjusamur leiðbeinandi. Föðurlegrar umhyggju hans nutu ekki einungis hans eigin börn og barnabörn, heldur einnig leik- fólagar þeirra og þá ekki siður frænd- systkini konu hans, stór og smá. Sverrir sóttist ekki eftir veraldlegum efnum. og lifsþægindakapphlaup nú- timans dsamt hraðahringiðu þess var honum framandi. Auðlegð hans, sem þó vissulega var mikil, fólst i öðrum gildari sjóðum, heilsteyptri skapgerð og manngæzku. Við kynni af slikum mönnum eykst manni trú á hið góða i veröldinni. Ég minnist Sverris ólafssonar með söknuði og þakklæti fyrir góðvild hans til min og fjölskyldu minnar frá fyrstu kynnum. Kristin Jónsdóttir. f Sverrir Ólafsson svili minn og ára- tuga gamall vinur er i dag borinn til hinztu hvildar. Hann lézt eftir stutta spitalavist sl. laugardag. bað er dapurlegt að sjá á bak góð- um vini, jafnvel þótt fyrir mætti sjá, að hverju stefndi. Hins ber að minnast, að enginn sannur vinur óskar öðrum lengra lifs, ef lifið er orðið honum þraut. Dauðinn er oft iiknsamasta lausnin. Það var i sama mund og við hjónin kynntumst, að kynni okkar Sverris hófust, en siðan er rösklega aldar- fjórðungur. Við vorum svilar að tengd- um, en með árunum urðum við nánir vinir og á þann vinskap bar aldrei skugga. Var það einkum skapferli Sverris, sem þvi réð, en glaðlegt við- mót hans fékk mig ósjálfrátt til þess að lita ávallt á bjartari hliðar lifsins. Hann hafði mannbætandi áhrif á um- hverfi sitt. Þó var hann i eðli sinu hlédrægur og reyndi alltaf áð láta sem minnst fyrir sér fara. Slik var prúð- mennska hans og góðvild, sem mér verður minnisstæð. Það er rétt eins og að missa hlekk úr styrkri keðju tveggja samrýmdra fjöl- skyldna að vita Sverri horfinn fyrir fulltog allt. En það myndi gleðja hann, að sama órofa tryggðin héldist eftir Aðalheiður Kædd 5. nóvember 1921 I)áin :!(). janúar 1974 Brotið er blað birta dvin reikar árroði ris ekki sól. Verður svo veröld i vina augum þá harmþrungnir horfa að hinzta beði. J.J. Þær manneskjur eru til, sem öðrum fremur eiga svo mikið af gleði og ham- ingju i æsku sinni — að sú birta sem frá þeim stafar dvin aldrei meðan sam- ferðin stendur yfir — stundum stutt — stundum löng. En það syrtir lika að þegar slikar manneskjur hverfa úr hópnum fyrir fullt og allt. Áhrifin frá þeim eru samt svo sterk, að við finnum og endurlifum hamingju liðinna æsku- daga er við rifjum upp samverustund- ir með þeim. Þetta var mér efst i huga er ég frétti lát æskuvinkonu minnar Aðalheiðar Sigurgeirsdóttur. Og ég veit að svo hefur fleiri farið, sem þekktu hana á þeim árum. Aðalheiður var gædd persónutöfr- um, ásamt fegurð og góðum gáfum. Enga vinkonu átti ég betri þau ár, sem leiðir okkar lágu saman hér i Reykja- vík. Við mættumst fyrst — langt inn- an við tvitugt — i bókmenntatimum i Námsflokkunum. Þótt okkur flestum yrði i fyrstu starsýnt á hana sökum glæsileika — reyndist hún lika frábær i námi, — gædd miklu listfengi og skarpri dómgreind. Koreldrar hennar þau Halldóra Guð- jónsdóttir og Sigurgeir Halldórsson voru sérstaKi sæmdarfólk, sem tóku opnum örmum vinum barna sinna og hans dag, eins og meðan hann var á meðal okkar. Sverrir var meðalmaður á vöxt, léttur i hreyfingum og sikátur, þó svo nokkur veikindi stcðjuðu að hin siðari árin. Gegnum árin reyndi ég hann bæði að miklum drengskap og háttvisi, sem mér verður minnisstætt um ókomin ár. Þvi nána sambandi sem var á milli heimila okkar alla tið, verður ekki með orðum lýst. En vist er um það, að við hjón og börnin okkar söknum vinar i stað. Sigurgeirsdóttir gerðu betur við þá en almennt gerðist. Á heimili þeirra að Þórsgötu 10 var stór og glaðvær systkinahópur, þar sem söngur, tónlist og gleði voru i há- vegum höfð. Þetta var sá jarðvegur, sem Aðalheiður óx upp úr og mótaði æskuárin. En það unga fólk, sem þá hélt hópinn fullt af gleði og vonum — hélt út i lií- ið og leiðir skildu. Tækifærin til að hitt- ast og deila geði urðu æ færri — samt voru þau alltaf mikils virði. Ég veit ég mæli fyrir munn okkar allra i þessum hóp — þegar ég að leið- arlokum Aðalheiðar þakka henni sam- veruna á æskuárunum og sendi ein- lægar samúðarkveðjur börnum henn- ar — tengdadætrum, öldruðum föður, systkinum — og siðast en ekki sist eig- inmanni hennar Vilhjálmi Vilhjálms- syni, sem var einnig i hinum æsku- glaða hópi og skipar sama sess i hug- um okkar og hún. Blcssuð veri minning hennar. Sverrir var á 76. aidursári þegar hann lézt, og voru lifskraftar mjög á þrotum. Hann hélt þó reisn sinni og naut seinustu árin umgengni við börn sin og barnabörn, sem voru öll mjög að honum hænd. Hjá okkur, sem eftir stöndum, skilur hann eftir hugljúfar minningar, sem seint fyrnist yfir. Við hjónin og börn okkar vottum Soffiu mágkonu minni, börnum þeirra hjóna og tengdabörnum, samúð okkar. Kristján B.G. Jónsson. islendingaþættir Jenna Jensdóttir. 12

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.