Íslendingaþættir Tímans - 23.10.1976, Síða 3

Íslendingaþættir Tímans - 23.10.1976, Síða 3
Einar B. Björnsson Katrín Einarsdóttir ,,Cti er aö renna æviskeiö ekki skal þó kvartaö. Vona og óska aö visi leið vinan meö góða hjartaö.” (E.B.B. 1975) Aö morgni hvitasunnudags 6. júni s.l. lézt i Landakotsspitalanum i Hvik, Einar B. Björnsson, f. bóndi i Eyjum i Breiðdal, en nú siöustu árin til heimilis á Breiödalsvik. Otför hans var gerö frá Eydalskirkju laugardaginn 12. jiini aö viöstöddu fjölmenni. Einar haföi alla ævi átt við góöa heilsu aö búa, þar til á s.l. vetri, aö hún létþað undan siga, aöekki var úrbætt. En vissulega mátti segja „að staöiö var meöan stætt var”, þvi hann var á sjötta árinu yfir áttrætt, er hann féll i valinn, teinréttur og kempulegurmeö andlega heilsu I góðu lagi. Einar var fæddur 11. nóv. 1890 að Melrakkanesi i Alftafiröi I Suöur- Múlasýslu. Foreldrar hans voru hjónin Björn B jörnsson af Melrakkanesætt og Ragnheiöur Einarsdóttir, afkomandi Hjörleifs sterka i Borgarfiröi eystra. Einar var yngstur fjögurra systkina: Elztur var Sigurbjörn, en lézt af slys- fwum á bezta aldri aö Skriöustekic I Breiðdal, þá systurnar Björg og Ragn- heiöur. 1 fróölegri ritgerö um Hofspresta i Alf tafirði i ársriti Múlaþings 1976 eftir Guömund Eyjólfsson á Þvottá telur hann Einar i Eyjum meöal afkomenda hjónanna séra Þorleifs Björnssonar er Prestur var á Hofi 1742-1778, og konu hans frú Ingibjargar Sigurðardóttur Prests Högnasonar aö Einholti á Mýr- um. Einar var meö hærri mönnum vexti og svaraöi sér vel, rjóöur i kinn- um með skoilitt hár og hin myndar- 'egasti i sjón, augun móbrún og festu- leg. Svipurinn glaölegur og vingjarn- *egur hvernig sem á stóð. Hann var hægur i framgöngu svo nærri stappaöi hlédrægni,' en þó ágætlega greindur og skáldmæltur þó ekki geröi hann mikiö” af þvi aö yrkja. 1 þaö minnsta var hon- um ekki um þaö gefið, aö visum hans v*ri á lofti haldið. Þær voru þó ekki þess eölis, aö honum væri vansi aö. Ég hef aldrei heyrt ljóta visu eftir hann, en gaman er aö þessari iþrótt, þvi mikill skáldskapur og mikil andagift getur falizt i einni litilli visu. Af kynnum minum af Einari, gæti ég þó trúaö aö hann heföi gert meira af þvi að rima skoöanir sinar af ýmsu til- efni en marga grunaöi.t.d. á hestbaki ofurlitið hýr af vini, og á stjórnmála- fundum sem voru „stórir dagar” i þá tiö, er hann var upp á sitt bezta. Einar á, eins og fleiri austfirzkir hagyröing- ar, sýnishorn af kveöskap sinum I bók- inni „Aldrei gleymist Austurland”. Þaö er aö visu ekki mikið aö vöxtum, en sýnir þó, svo ekki verður um villzt, lifsskoöun hans og trúaröryggi, svo sem þessar ljóölinur bera með sér An efa hefur þessi óbrotna lifs- skoðun og trúarvissa á ahndleiöslu æröi máttar, sem hann geröi aldrei neina tilraun til aö vefja hugrænum flækjum átt rikastan þáttinn i þvi ró- lyndi og æðruleysi sem ööru fremur einkenndi hann gegnum lifiö, er vissu- lega var þó ekki alltaf „dans á rós- um.” Mér er ekki svo kunnur æskuferill Einars Björnssonar, aö hann verði rakinn hér til nokkurrar hlýtar, enda skiptir þaö ekki megin máli. Foreldrar hans munu hafa verið fátæk og faðir hans drukknaöi er hann var innan við 10 ára aldur og átti þá heima i Ham- arsmynni við Djúpavog. Hann varö þvi snemma aö bjargast á eigin rammleik, eins og hlutskipti margra fátækra barna og unglinga var á þeim árum. En hann þroskaðist vel til sálar og li'kama, þrátt fyrir hin harðleiknu lifskjör þeirra tima, eins og fram kem- ur I þessari visu hans. „Þaö er barni þyngsta raun aö þræla alla daga upp aö skera litil laun en löngum svangan maga.” En Einar haföi lániö meö sér. Um fermingaraldur er hann kominn aö Staf afelli i Lóni, hinu kunna höfuðbóli, til séra Jóns prófasts Jónssonar. Var 3 íslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.