Íslendingaþættir Tímans - 23.10.1976, Side 11

Íslendingaþættir Tímans - 23.10.1976, Side 11
Sigríður Tómasdóttir f. 25/11 1902 d. 3/5 1976 Að morgni hins 3. mai, þegar landið og þjóðin voru að vakna ilr vetrardval- anum, lézt heiðurs- og merkiskonan Sigrlður Tómasdóttir fyrrum hiis- varðarfrú i Sjómannaskóla Islands, eftir skamma legu á Landakoti. HUn varð fyrir þeirri hörmulegu reynslu I októbermánuði 1974 að fá slag og upp Ur þvi var hUn lömuð að mestu og allt að þvi mállaus til dauðadags. Það er sárara en tárum taki, er slik byrði er lögð á herðar hvers einstaklings, sem fyrir þeim örlögum verða. Ég sem kynntist Sigriöi árið 1961, er þau hjónin tóku við hUsvörzlu Sjómannaskóla íslands, en starfið er mikið og erlil- samtog krefst dugnaðar og samvizku- semi og þau hjónin sinntu þvi af stakri prýði i um 10 ára skeið. Eftir að þau fluttu að Jökulgrunni, sem eru ibUðir I tengslum við Hrafnistu, dvalarheimili aldraðra sjómanna, til að njóta ævi- kvöldsins, þá hafði Sigrfður áfram hreingerningastarf við skólann á meðan kraftar entust. A því Sjómannaskólinn þeim hjónum mikið að þakka, þvi að honum voru siðustu æviárin helguð. Ég á þeim sérlega mikið að þakka, þvi aö þau ásamt vini minum og skipsfélaga Emil Valtýs- syni, hvöttu mig til að fara i Stýri- mannaskólann og þeim þrem árum sem ég var við nám, gleymi ég aldrei Við félagarnir urðum eins og synir þeirra.Góðvildþeirra i okkar garð var einstök. Hvern einasta morgun beiö eftir okkur kaffi, smurt brauö og hressandi rabb um dagleg mál, ekki hvað sizt um drauma.Ég minnistþess að hUn var sérlega berdreymin og fyrirboða mannskaðaslysa var hUn bUin að segja mér fyrir. Sigriður var greind kona og grandvör i tali og hennar sérkenni var umburöarlyndi. HUn hafði einstakt lag á þvi að telja I okkur kjark og með bjartsýni sinni fékk hUn okkur til að ganga vongóöa I erfið próf. HUn hafði erindi sem erfiöi, það voru glöð hjón, sem óskuðu okkur til hamingju er við Utskrifuðumst sem farmenn, Emil 1963, ég 1965 og LUðvIk K. Friöriksson 1967, en hann var einn af skipsfélögum okkar af Jökulfellinu gamla, hann varð einnig mikill vinur í s lendin ga þættir þeirra hjóna. Þó að ég tali aðeins um okkur þrjá sem sérstaka vini þeirra, þá áttu þau marga og góða vini, bæði af nemendum skólans og kennurum ásamt fjölmörgum Ur sjómannastétt og sambýlisfólki I gegn um 23 ár á Njálsgötu 77. Þar kom ég fyrst sem kornabarn, en Svava eldri dóttir þeirra gæti min um nokkurra mánaða skeið. Kunningsskapur með foreldrum minum og Sigriði og Vilberg urðu með þeim hætti, að faðir minn og Vilberg voru saman um nokkurra ára skeið á togaranum Tryggva gamla og urðu þeir góðir vinir. Sigriður var fædd hinn 25. nóvember 1902 á Sómastaðgerði við Reyðar- fjörð, stað sem hUn minntist oft á og átti bjartar æskuminningar frá. 1 bernsku kom strax fram næmleiki hennar fyrir ljóðum og góöbók- menntum. Hún var söngelsk og spilaði á orgel viö mörg tækifæri, sér og öðrum til gleði. Foreldrar hennar voru hjónin Þorgerður Jónsdóttir fædd 19. mars 1880, látin 1954, og Tómas Nikulásson fæddur 12. ágUst 1880, látinn 1968. Ég kynntist Tómasi og fannst mikið til hans koma. Hann var greindur vel, snyrtilegur og fágaður i allri fram- komu. Hann kom viða við i okkar atvinnulifi. Á Austurlandi vann hann, sem sjómaðurog bUðarmaður, en eftir aö þau hjónin fluttu til Reykjavikur 1929, vann hann að bilamálun hjá Agli Vilhjálmssyni, þar til hann lét af störfum 75 ára að aldri. Attu þau auk Sigriðar, Jón f. 1904 d. 1964 Arthur f. 1906, Jens f. 1916 og Astu f. 1922, auk þeirra fæddust þeim tveir drengir, er létust sem kornabörn. Sigriður giftist hinn 27/11 1922 tvitug að aldri Asgeiri Bjarnasyni ættuöum frá Reyðarfirði, en hann lézt úr berkl- um hinn 27. janúar 1924. Þau eignuðust einn son, Tómas Bjarna, f. 15. febrúar 1923, en hann lézt hinn 25/3 1926 úr barnaveiki. Þessi ár hafa verið erfið, svo ung sem Sigriður var, en meö hjálp foreldra og systkina hefur þessu sorgaréli slotað og bjartari timar verið framundan. Sigriður giftist 14. nóvember 1928 eftirlifandi manni sinum Vilbergi Péturssyni ættuöum af Héraði f. 6. ágúst 1904. Hann var sjómaður á bátum og siðan togurum frá 14 ára aldri eöa i um 43 ár, þar til hann tók við húsvörzlu I Sjómanna- skólanum 1961. Siglingar á striös- timum eru hörmulegar þeim sem þær reyna, ekki hvað slzt sjómannskonum sem biða komu skipanna að landi. Eins og kunnugt er, reyndist síðari heimsstyrjöldin okkur mannskæð. Ekki var minnzt á þesi ár að fyrra bragði hjá þessari sjómannsfjölskyldu frekarenöðrum,þvi allir vilja gleyma hörmungunum og horfa tilbetri tima, I ósk um það að næstu kynslóöum auðnist að sleppa við siglingar á slikum timum. Sigriður og Vilberg eignuðust tvær dætur, Svövu f. 12. júni 1931, gift Njáli Simonarsyni framkvæmdastjóra hjá Úlfari Jacobsen og eiga þau þrjár dætur, Ednu Sigriði f. 1952 gift Oöni Jónssyni húsasmiðameistara og eiga þau eina dóttur Svövu Rut. Berglind Margrét f. 1961 og Astu Vilborgu. Margrét f. 14. nóvember 1946 gift Bjarna Ragnarssyni tæknifræðingi hjá verkfræðistofnuninni Hönnun og eiga þau eina dóttur önnu Valbjörgu f. 1965. Ég minnist þess ekki að Sigriöi félli verk Ur hendi, enda var hUn vinsæll starfskraftur. Til merkis um það var hUn hjá dugnaðarmanninum Jó- hannesi á Hótel Borg við framreiðslu- störf til fjölda ára, og vann þau störf einnig i einkasamkvæmum og naut almennra vinsælda viö þau störf. Frá árunum á Hótel Borg átti Sigriður marga góöa vini og minntist hún oft á þá, og komu sumir þeirra í heimsókn I Sjómannaskólann eins og afabróðir minn Guðmundur Pétursson útgerðar- maður frá Akureyri. Rifjuðu þau oft upp margar skemmtilegar stundir frá liðnum árum. Nú aö leiðarlokum i þessum jarð- neska heimi, erSigriöurhefur lagt upp i sina hinztu ferð, og viöhin sitjum eftir og rifjum upp liðnar samverustundir, þá er efst i huga þakkiæti fyrir að hafa átt þess kost að kynnast svo góðri konu, sem hafði mannbætandi áhrif á okkuröll sem umgengust hana. Maður gerir sér ekki ætið grein fyrir þvl I umgengni viö sumt fólk hversu djúp áhrif það hefur á mótun manns, fyrr en maður litur til baka, þá fyllist 11

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.