Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 23.10.1976, Qupperneq 12

Íslendingaþættir Tímans - 23.10.1976, Qupperneq 12
Sigurgeir Karlsson Bjargi Mér veröur um hjarta svo heitt og kalt i hvamminum, þar sem urðin valt. Hér d velur min sál, hér dreymir mig allt, sem drottinn oss gaf — til að unna. E. Ben. Nýlega fór fram að Melstað i HUna- vatnssýslu jarðarför Sigurgeirs Karls- sonar, Bjargi i Miðfirði. Hann var fæddur þ. 29. marz 1908 — dáinn 4. okt. 1976, eftir löng og erfiö veikindi, er hann átti við að striða hin slöustu árin. Með burtför þessa manns má sveit hans sjá á bak einum af sinum beztu sonum, er búinn var þeim kostum, er garð hennar mátti prýða og reist haföi hús sitt um þjóðbraut þvera, svo sem áður höföu gert foreldrar hans. Heimili hans var opið fyrir gest og gangandi og enginn hlutur hans of góður fyrir hann, er þurfti með. A maður þakklæti til forsjónarinnar fyrir þá blessun hennar til að leiöa mann til kynna við slika konu sem Sigriður var. Ég veit að ég tala fyrir munn f jölmargra nemenda Sjómanna- skólans, er ég segi aö sú stofnun hafi orðið fátækari er þau hjónin létu af störfum. Sjómannaskólinn er og verður sú menningarstofnun, sem hefur skilaö og á eftir að skila þeim sonum þjóðarinnar sem standa undir þeim efnahagslegu skilyrðum sem þessi þjóö býr við. Vona ég að skólinn hafi ávallt gott og vandað fólk eins og Sigriði og Viiberg i sinni þjónustu þjóðinni til heilla. Sigriður min, ég veit að ég hef ekki gert ævistarfi þinu tæmandi skil, en þessi grein er eingöngu ætluð til að þakka þér samfylgdina og óska þér blessunar á þeirri litiökönnuðu leið sem biöur okkar allra þegar kallið kemur. Dætrum þinum, tengdasonum, barnabörnum, eftirlifandi systkinum þinum og öðru skyldfólki og vinum bið égblessunarogþér Villi minn, óska ég að þú eigir góðar stundir á ævi- kvöldinu á Dvalarheimili aldraðra sjómanna, með gömlu skipsfélögunum og guðsblessun þér til handa. AsgeirPétursson þann hátt var hugur hans, örlæti og höfðingslund. Eðliskostum sinum þjónaði hann með ósérplægni. Ösætti eða erjur þoldi hann ekki, sérlyndi gat hann ekki hýst. Hann var manna- sættir, sem i góðum hópi dró að sér glaðværö og góðan félagsskap, enda þá tiðum tekiö lagið, þvi söngelskur var hann og góður söngmaöur og einn af máttarstólpum Karlakórs Miðfirö- inga, er hélt uppi sönglifi I sveitinni um margra ára skeiö. Þvi er mér nú tregt tungu að hræra, þvi ég trega hann sem einn hinna beztu manna, sem ég hef kynnzt, og get tekiö mér I munn orð góðskáldsins: „Þar sem góðir menn ganga, þar eru Guðs vegir” Sigurgeir var góðum hæfileikum gæddur út i lifið. Hann var alinn upp I glaðværu, menningarriku heimili, meöal ástsælla systkina. Naut hann nokkurra mennta i æsku, útskrifaðist frá bændaskólanum á Hvanneyri ungur að árum og hóf siöan i samvinnu viö eldri bróður sinn búnaðar- og ræktunarstörf á fööurleifö sinni, sem þeir siðar skiptu sin i milli eftir aö foreldrar þeirra voru hættir búsýslu og fjölskyldur þeirra stækkuðu og umsvif urðu meiri. Þrátt fyrir þaö mun aldrei hafa slitnaö sá þráður, er tengdi þá saman um afkomu hvors annars og hag. Þegar Sigurgeir stofnaöi sitt eigiö heimili, hafði hann fest ráð sitt og gengið að eiga frænku sina, önnu Axelsdóttur, sem alla tiö hefur reynzt honum vel, styrk stoð og nærfærin, einkum i hans langa og erfiða veik- indastriði, enda mat hann hana mikils. Þau Anna eignuðust fjögur börn, sem öll eru uppkomin: Karl Asgeir, verzlunarstjóra á Hvammstanga, Axel, sem veitir forstööu búinu á Bjargi, Elinborgu, tónlistarkennara, og Arinbjörn, vélvirkja. Eftirlifandi systkini Sigurgeirs eru þau Margrét búsett I Reykjavik og Páll á Bjargi. Eftir að þau Sigurgeir og Anna hófu búskap á Bjargi, þar sem þau bjuggu allan sinn búskap, hafa þau byggt upp öllhús, framkvæmt stórfellda ræktun, þar sem áður voru holt og mýrar, en eru nú stórir töðuvellir og land allt girt. Er hér veröugt ævistarf, sem aö baki er og eftir skiliö komandi kynslóð. Þó er ekki hægt að skiljast svo við þennan þátt, án þess að minnast um leið samstarfs þeirra bræðra, þvi þótt Páll, bróðir hans, hafi áður byggt yfir sig og sina fjölskyldu i sama túni, þá var það samt svo og fram eftir árum, aö full samvinna var meö þeim um ræktun og bústörf, og það, sem var velgengni annars, var hagur hins. Þessi sterku ættarbönd, er ávallt voru á milli þeirra systkinanna, hafa mér fundizt bera vitni góðum jarðvegi, sem þau eru vaxin úr, göfgi og manndómi. Heimilið á Bjargi hefur um langa tið verið rómað fyrir gestrisni og höfðingsbrag. Þangaö sóttu menn um langan veg til samfélags og góöra funda, og mætti svo verða enn um sinn. Að endingu, nú við leiðarlok vil ég kveðja þennan mág minn meö inni- legri þökk fyrir allt það góða, er ég og min fjölskylda nutum hjá honum heima og aö heiman. Nú siðustu tim- ana eftir að veikindi hans ágerðust dvaldi hann oft á heimili minu i hinni vonlausú bið. Þá undraðist ég æðru- leysi hans og sálarró og hversu létt var að fá fram gleöiglampa á andlitið og ljúflegt andsvar ofar striöi og þraut. Biessuð sé minning hans. öllum ástvinum hans, eiginkonu og börnum, bróður og systur, sem sjá á bak kærum vini, sendi ég djúpa sam- úöarkveöju. Drottinn gaf og Drottinn tók, lofað veri nafn Drottins. Arinbjörn Arnason. 12 íslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.