Íslendingaþættir Tímans - 12.01.1980, Blaðsíða 14

Íslendingaþættir Tímans - 12.01.1980, Blaðsíða 14
Haukur Gröndal framkvæmdastjári Fæddui' 3. febrúar 1912. Dáinn 17. september 1979. Við vegamót llfs og dauða Ihugum við gjarnan, hvað við getum vitað rétt um til- gang lifsins. Hvað við eigum að meta mest I llfinu? Hverjar leiðir eru okkur sjálfum og öðrum til farsældar? „Njóttu I dag aö horfa á yndisleik alls sem þér er lánað, þar aö morgni getur verið, að þú leggir upp frá þvl og komir aldrei aftur”. Haukur Gröndal, sem hér er litillega minnst, var einn þeirra samferðamanna, sem með undraveröri gleði virtist fagna flestum dögum. Það tekur nokkrun tlma aö fallast á þá staðreynd, að maöurinn með fangið fullt af verkefnum og áhuga- málum skuli allt I einu vera horfinn af sjónarsviðinu fyrir aldur fram. Hér veröur aö sætta sig viö hið óumflýjanlega að „eitt sinn skal hver deyja”. Oss héðan klukkur kalla, svo kallar guð oss alla til sin úr heimi sér, Þá söfnuö hans vér sjáum og saman vera fáum i húsi, þvl sem eilift er. Vald. Briem. Haukur Gröndal var fæddur i Reykja- vik 3. febrúar 1912. Foreldrar hans voru Benedikt Þorvaldsson Gröndal bæjar- fógetaritari og skáld og Sigurlaug Guðmundsdóttir Gröndal. Börn þeirra voru auk Hauks: Valborg Elisabet, Sigurður veitingamaður og rithöfundur, Eirikur bifvélavirki, Ragnheiður, Þorvaldur rafvirki og Ingi hljómlista- kennari. Þrjú þessi systkini hafa látist með stuttu millibili og eftir lifa yngstu bræðurnir Þorvaldur og Ingi. Haukur stundaöi nám viö Verslunar- skólann I Reykjavik og lauk þaöan prófi ungur að árum 1930. Hann var einn af stofnendun Tónlistarfélagsins I Reykjavik og slöar Tónlistarskólans. Jafnframt var hann meö fyrstu nemendum hans og lagði stund á fiðlu- og lágfiöluleik. Arið 1934 kvæntist Haukur Sigríði Pálsdóttur, Páls Magnússonar járnsmiðs I Reykjavlk og konu hans Guöfinnu Einarsdóttur. Hún lést eftir barnsburð áriö 1940 aöeins 27 ára aö aldri. Börn þeirra eru tvö: Páll tónlistarmaður og skólastjóri Tónlistarskóla Hafnarfjaröar og Guðfinna húsmoðir I Reykjavlk. Aðeins 28 ára var Haukur orðinn ekkju- 14 maður með tvö ung börn. Móöir hans, Sigurlaug, kom honum þá til hjálpar og dvaldi siðan á heimili hans til æviloka árið 1960. Arið 1941 kvæntist Haukur öðru sinni Sigriði Hafsteinsdóttur Gunnars Hafstein bankastjóra I Færeyjum og siðar I Khf. og konu hans Nielsinu Hafstein. Sigrlður Hafstein og Haukur eignuöust þrjá syni: Benedikt bankamaður, Gunnar fulltrúi og Haukur framkvæmdastjóri. Sigrlöur lést árið 1975 eftir langvarandi veikindi. Barnabörn Hauks eru nú 11 og barna- barnabörnin 2. Þriðju konu sinni Súsönnu Halldórs- dóttur frá Vestmannaeyjum kvæntist Haukur I desember 1978. Þau höfðu að þvl leyti áþekka lifsreynslu að bæði höfðu misst lifsförunauta sina. Það fór þvi vel saman og nutu þess bæöi I rlku mæli, þó um allt of skamma stund væri. Söknuður Súsönnu er mikill, en ylur minninganna mildar. Hún var viö hlið hans er hann skyndilega kvaddi þetta llf hinn 17. september s.l. Hann var lagður til hinstu hvilu við hlið ástvina sinna 25. september s.l. og fáum dögum siðar við hlið hans litil sonardóttir. Haukur starfaöi að námi loknu við verslunarstörf, en réöst fljótlega til starfa við Smjörllkisgeröina Smára, fyrirtæki vinar slns Ragnars Jónssonar. Arið 1946 var Haukur gerður að framkvæmdastjóra Afgreiöslu Smjörlikisgerðanna I Reykja- vík og slöar Smjörllkis h/f og Sólar h/f. og starfaöi þar til dauðadags. Haukur var traustur I öllum viðskiptum og glöggur á meginatriði hvers máls. Hann fylgdi skoðunum slnum eftir meö festu og öryggi, en ávallt Ijúfmannlega. Hann var samvinnugóður og bar umhyggju fyrir starfsfólki slnu. Drengileg framkoma hans vann fyrirtækjunum álits og vin- sælda. Ahugamál Hauks voru mörg, þó hæst beri áhuga hans á tónlist. Til tónlistar- mála lagði hann fram mikiö og óeigin- gjarnt starf, sem margir njóta góðs af um ókomna framtiö. Til marks um hve mikils var metið framlag Hauks til tónlistarllfs I Reykjavik, er að Tónlistarfélagiö stóö fyrir tónleikum sem helgaðir voru minningu hans hinn 27. október s.l. Ferðalöngun var honum i blóð borin. Haukur naut þess I riku mæli aö ferðast, sjá og kynnast llfi, litum og listum og miöla öðrum af skemmtilegri reynslu sinni og þekkingu. Lifið kraföist þó mikils af honum og lagði á hann ungan þungar skyldur, „En á bjartan orðstfr aldrei fellur umgjörðin er góðra drengja hjörtu” Gr. Thomsen Klukkurnar hafa kallað Hauk Gröndal héðan til bjartari heima og kærkominna endurfunda þar sem hann fær notið unaðar hinnar miklu elifu hljómkviöu. Það er ljós yfir leiðum minninganna en söknuður nánustu ættingja hans er sár þegar slik leiðandi hönd er hrifin svo skyndilega frá þeim. En þaö er birta yfir veginum þvl Haukur Gröndal hefur meö llfi slnu og starfi látiö ættingjum, vinum og samstarfsmönnum sinum eftir traustan vegvlsi og óbrotgjarnan minnis- varða. Bj. Ólafsson. islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.