Íslendingaþættir Tímans - 13.01.1982, Síða 1
ÍSLENDINGAÞATTIR
Miðvikudagur 13. janúar 1982 - 2. tbl. TÍNIANS
Helgi Rafn Traustason
kaupfélagsstjóri
Fæddur 18. april 1937
Dáinn 21. desember 1981
Kveðja fra framkvæmdastjórn Sam-
bandsins
Ein er sú stétt manna á íslandi, sem
gegnir óvenjulega þýðingar-og ábyrgðar-
miklum störfum, en það eru kaupfélags-
stjórar landsins. Þeirra hlutskipti er að
stjórna umfangsmiklum atvinnurekstri,
sem i flestum tilfellum er burðarás við-
komandi byggðarlags. í umróti verð-
bólguþjóðfélagsins hér á landi er það ef til
vill vandasamara verk en flest annað, að
stýra kaupfélögunum þannig, að rekstur-
inn komist klakklaust i gegnum brim og
boðaföll efnahagslifsins. Starfsálag kaup-
félagsstjóranna er þvi oftast mjög mikið.
E n það er mikið i húfi að þessi rekstur
gangi áfallalaust. Atvinnuöryggi ótrúlega
margraer i húfi. Heill byggðarlags getur
oltið á þvi, að starfsemi kaupfélags geti
gengið án áfalla.
Stétt kaupfélagsstjóra telur 41 mann,
eða réttara sagt taldi, þar til 21 desember
s.l., þegar einn úr hópnum var skyndilega
kallaður burt i blóma lifsins. Harma-
fregnin um lát Helga Rafns Traustasonar
kom til okkar vina hans og félaga eins og
reiðarslag. Hið dimma skammdegi
myrkvaðist enn og dökkan skugga bar
fyrir jólaljósin sem viða höfðu verið
tendruð.
Helgi Rafn Traustason var i forystu-
sveit islenskra samvinnusamtaka. Hann
hafði helgað þeim alla starfskrafta sina.
Ungur fór hann i Samvinnuskólann, og út-
skrifaðist þaðan 18 ára gamall, en sem
unglingur hafði hann starfað hjá kaup-
félaginu á Patreksfirði og hjá Samband-
inu meðan á námi stóð. Að loknu námi lá
leiðin i Samvinnutryggingar og þaðan
réöst Helgi sem kaupfélagsstjon Ui Sam-
vinnufélags Fljótamanna i Haganesvik,
þá 23 ára. t>vi starfi gegndi hann um fjög-
urra ára skeið en réðst þá sem fulltrúi
kaupfélagsstjóraa Kaupfélags Skagfirð-
inga á Sauðárkróki. Arið 1972 var Helgi
svo ráðinn kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Skagfirðinga, sem hann gegndi til dauða-
dags.
Auk þess að stýra einu af stærri kaup-
félögum landsins, gegndi Helgi mörgum
öðrum trúnaðarstörfum i samvinnuhreyf-
ingunni. Hann var kjörinn varamaður i
stjórn Sambandsins 1975. Hann átti sæti i
stjórn Félags kaupfélagsstjóra, i
Markaðsráði samvinnufélaganna, i stjórn
Tryggingarsjóðs Innlánsdeilda og var
varamaður i stjórn Osta- og smjörsöl-
unnar. Auk þess gegndi Helgi ýmsum
trúnaðarstörfum i samstarfs- og dóttur-
félögum Kf. Skagfirðinga og einnig i
bændasamtökunum. Þegar Helgi lést, að-
eins 44 ára, átti hann að baki langt og
mikið starf i samvinnuhreyfingunni.
Helgi Rafn hafði i lifi sinu brennandi
áhuga fyrir starfsemi samvinnufélag-
anna. Sjálfur var maðurinn fullur af at-
orku og hlifði sér litt i störfum. Hann var
mikill félagsmálamaöur og skörulegur i
ræðustól. En áhugamál Helga voru einnig
á andlegu sviði, enda trúmál honum hug-
stæð. Kom það m.a. fram i þvi, að hann
var formaður sóknarnefndar Sauðár-
krókssóknar og sat kirkjuþing frá 1976.
Það var gæfa Helga Rafns að eiga góða
konu. Tvitugur kvæntist hann Ingu Val-
disi Tómasdóttur úr Reykjavik. Inga
skipaði vel sitt sæti á heimilinu, sem hún
hafði búið manni sinum og börnum af
miklum myndarskap. Þangað komu
margir og þar var gott að dvelja. Þau
Inga og Helgi Rafn eignuöust fimm börn.
Nú er skarð íyrir skildi i kaupfélags-
stjórastétt og samvinnuhreyfingin
hefur misst einn af forystumönnum
sinum. Mestur er þó missir Ingu og barn-
anna sem nú verða að þola þung örlög.
Margir hugsa til þeirra i djúpri samúð.
Um leið og viö i framkvæmdastjórn
Sambandsins syrgjum góðan vin og sam-
starfsmann og vottum honum virðingu
okkar og þökk fyrir samstarfið á liðnum
árum, sendum við Ingu, börnunum og
öðrum ástvinum innilegar samúðar-
kveðjur. Við erum þess vissir, að góður
orðstir Helga af gifturikum störfum hans
fyrir samvinnuhreyfinguna og Skaga-
fjarðarbyggðir muni lengi lifa. Það er
huggun harmi gegn. Blessuð sé minning
hans.
Erlendur Einarsson
t
Þriðjudaginn 5. jan. var til moldar
borinn á Sauðárkróki Helgi RafnTrausta-
son, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skag-
firðinga. Hann varð bráðkvaddur þar i bæ
mánudaginn 21. desember 1981, en hann
fæddistþann 18. april 1937 og var þvi að-
eins 44 áía gamall, þegar hann lést. For-
eldrar Helga Rafns voru þau Trausti Jó-
elsson vélstjóri á Patreksfirði og kona
hans Rannveig Lilja Jónsdóttir. Trausti
var fæddur 19. mai 1909, dáinn 6. mai 1951,
en Rannveig var fædd 17. janúar 1910 og
dó 17. desember 1950. Helgi Rafn missti