Heimilistíminn - 31.10.1974, Qupperneq 3
Hæ, Alvitur!
Mig langar til að spyrja þig
nokkurra spurninga.
1. Hvernig á að skrifa þættinum „Tiu á
toppnum?"
2. Hvernig á að skrifa til Utlanda og
biðja um pennavini gegnum blað?
Nefndu eitthvcrt blað.
2. Þegar maður skrifar lögum unga
fólksins, er þá valið úr bréfunum?
4. Heldurðu, að það verði rigning I
næstu viku?
Hanna
Svar: 1. Þú skrif'ar númer þriggja
beztu laganna, að þinu áliti, og sendir
til „Tiu á toppnum, Rikisútvarpinu,
Reykjavik. 2. Þú skrifar og biður um
pennavin, segir frá aldri þinum og
áhugamálum, og það þýöir Iitið að
skrifa það á islenzku. Reyndu að skrifa
til „S.O.S. DET NYE, Sörkpdalsveien
10 a, Oslo 3, Norge” á norsku eða
ensku.
3. Það er að minnsta kosti vist, að
aldrei er rúm fyrir öll bíefin i þætt-
inum.
4. Já, það verður áreiðanlega rigning
einhvern tima i næstu viku.
Alvitur.
Alvitur minn.
Viltu nú ekki reyna að komast að þvi
hvers vegna eyðublöðin ágætu fyrir
simnotendur voru fjarlægð úr sima-
skránni og hvort við fáum þau ekki
aftur.
Flakkari.
Svar: Hafsteinn Þorsteinsson, ritstjóri
Simaskrárinnar, tjáði mér, að
eyðublöðin hefðu orðið að falla niður
við prentun núverandi skrár vegna
timaskorts fyrir prentaraverkfallið,
en þau muni koma aftur næst.
Alvitur.
Kæri Alvitur.
Getur þú sagt mér hvernig á að fara
að þvi að slétta dralon-peysur sem
krumpast hafa i þvotti? Svo er ég lika
illa haldin af fílapenslum, sem ég næ
ekki af mér nema með andlitsvatni, en
húðin þolir það bara ekki, ég verð öll
eitt fleiður I framan. Hvað á ég að
gera?
NSH.
Svar: Ef þú þværð dralonpeysur i
þvottavél, þá láttu hana fyrir alla
muni ekki vinda þær. Breiddu peysuna
blauta og slétta á handklæði, rúllaðu
þvi upp og kreistu vatnið úr og láttu
svo peysuna þorna útbreidda á þurru
handklæði. En sé skaðinnskeður, þá
geturðu reynt að pressa peysuna létt á
röngunni með rennblautu stykki á
milli og láta hana svo jafna sig út-
breidda.
Varðandi filapensa og viðkvæma
húð, skaltu reyna að halla þér yfir pott
eða skál með sjóðandi vatni og breiða
handklæði yfir höfuð þér, og pottinn
lika, svo gufan fari ekkert nema
framan i þig. Með þessu móti opnast
allar svitaholur, og ekki á að þurfa að
kreista, aðeins ýta óhreinindunum
varlega út. Á eftir skaltu svo baða
andlitið upp úr isköldu vatni til að loka
holunum aftur. Loks skaltu bera gott
krem á andlitið, en ekki feitt.
Alvitur
AAeðal efnis
í þessu blaði
Odauðlegi snillingurinn.................bls 4
Þegar trökkkarlinn lærði................bls 7
Hvaðveiztu?.............................bls 9
Eldhúskrókurinn........................ bls 10
Pop— Lena Zavaroni .....................bls 11
ur gömlum blöðum — Þorgils gjallandi .... bls 12
Föndurhornið............................bls 15
Maður kemur i heimsókn, smásaga.........bls 16
Regnhlíf in, velmegunartákn.............bls 17
Spé-speki................................. bls 17
Vetrarhúf urnar.........................bls20
í leiðinni .............................bls23
Fyrstu sex mánuðirnir...................bis 24
Snjókorni glerkúlu, smásaga............... bls 26
Ljóð....................................bls 29
Heittbrauð..............................bls30
Eru þær eins?...........................bls 31
Börnin teikna...........................bls 31
Sjónvarpsvélin sá meira en augu.........bls 32
Kötturinn Bastian, frh. saga............bls33
Ókunnur eiginmaður, f rh.saga...........bls 35
Ennfremur krossgáta, pennavinir, skrítlur o.fl.
3