Heimilistíminn - 31.10.1974, Blaðsíða 28

Heimilistíminn - 31.10.1974, Blaðsíða 28
— Mér fyndist gaman að sjá þig þar, hélthann áfram — en vinur þinn kærir sig kannski ekkert um það. Geturðu ekki bara tekið hann með? Janicke likaði ekki orðfærið „vinur þinn’. Hún vildi helzt að Pétur héldi hana alfrjálsa. En hvers vegna? Ja, að minnsta kosti var hún alls ekki bundin Róbert. — Heyrðu, sagði hún skyndilega. — Ég á fullan kassa af barnabókum heima. Eigum við ekki að taka lestina fyrr núna, svo þú getir komið með heim og sótt þær? Mér skilst að þú komir oft á barnaheimil- ið. Pétur var ekki mikið á móti þessu og þau flýttu sér af stað. Foreldrar hennar tóku vel á móti Pétri, þegar þau vissu erindi hans. Það varð mikill fögnuður, þegar móðir Janicke uppgötvaði, að hún hafði verið i skóla með frænku hans. En þegar Pétur var farinn, sagði móðirin: — Farðu varlega svo þú særir ekki Róbert, vina mín. — En mamma, ég er ekki trúlofuð Róbert, hann hefur alls ekki beðið min. — Það kemur. Móðirin brosti. — Þú veizt að honum þykir mjög vænt um þig. — Vænt um'. hrópaði Janicke reið.—Ef ég giftist einhverjum, þá á hann að elska mig og ég hann. — Það kemur lika, sagði móðirin sann- færandi. — Ástin vex smátt og smátt. — Smátt og smátt, iussaði Janicke. — Við höfum þekkzt siðan við vorum i vöggu. Ætti það kannski ekki að nægja? — Þú ert þó ekki að imynda þér, að þú sért ástfangin af þessum Pétri Brandt? Móðirin virtist gröm. — Ég imynda mér ekkert, sagði Jan- icke og roðnaði. — Það er heldur ekki nauðsynlegt að vera ástfanginn er það? — Farðu að minnsta kosti varlega. Þegar ég var ung, var Brandt-f jölskyldan satt að segja talin eitthvað skrytin. — Hvað áttu við með „skrýtin”? — Ja, ekkert sérstakt. En þau voru eitt- hvað öðruvísi, að minnsta kosti kærðu þau sig kollótt um hvað fólk sagði um þau. Janicke brosti. Veslings mamma. Hún var svo upptekin af finu vinunum sinum og öllu sem var „passandi”. Hún var fast- gróin i gömlum siðum. Móðirin lét dæluna ganga, en Janicke hlustaði aðeins með öðru eyranu, þvi hún var með hugann við annað. Móðirin sagði einhver ósköp um, hvað það væri öruggt að þekkja fjölskyldu piltsins, sem maður ætlaði að giftast og að vita, að hún væri sæmilega stödd fjárhagsiega. Auk þess yrði dóttirin að muna, að hún var einka- barn og að foreldrarnir vildu vita hana i öruggri höfn. Á föstudagskvöldiö leit Róbert inn. Jan- icke var nýbúin að þvo sér um hárið og sat á gólfinu við arininn með bækur á við og dreif I kring um sig. Foreldrar hennar voru ekki heima. — Komdu inn, hrópaði hún til dyranna, og ýtti til hliðar dálitlu af bókum, svo hann kæmist fyrir. — En Janicke þó. Þú getur ekki setið svona i keng á gólfinu og lesið. Hann beygði sig niður og færði bókastaflana enn betur til, sfðan rétti hann henni höndina og gerði sig liklegan til að hjálpa henni upp f stól. — Takk, sagði hún, — en mér finnst betra að vera á gólfinu. — En það er dragsúgur þar, þú gætir fengið kvef. Hún dæsti. — Þú ert nú meiri kveifin, Róbert. Þú ert liklega búinn að gleyma þvi að ég er ung og hraust. Hann yppti öxlum og lét fallast niður i hægindastól. — Ég á miða á „Aidu” á morgun. Getum við ekki farið og borðað einhvers staðar fyrir sýninguna. Ég sæki þig. Janicke dró djúpt andann. Nú varð hún að valda Róbert vonbrigðum i fyrsta sinn á ævinni. — Mér þykir það leitt sagði hún, — en ég er upptekin á morgun. — Upptekin. Hann varð svo skrýtinn á svipinn, að hana langaði mest til að hlægja. — Upptekin, segirðu. Og má ég spyrja, hvað það er sem er mikilvægara en að fara út með mér? — Já, þú mátt spyrja. Ég fer með strætisvagninum út i Bakkabæ og þar ætla ég að horfa á leiksýningu, sem skóla- börnin þar setja upp. Hann sveiflaði handleggjunum. — Það er áreiðanlega ekkert fyrir þig og áreið- anlega ekki of seint að segja að þú getir ekki komið. Ég fékk góð sæti i óperunni. — En ég vil ekki segja, að ég geti ekki komið og þér skjátlast, þegar þú segir, að þetta sé ekkert fyrir mig. Þú veizt, að mér þykir vænt um börn og ágóðinn af sýning- unni rennur til kaupa á bókum handa barnaheimilinu. — Gott málefni, áð sjálfsögðu, sagði hann og dró upp peningaveskið. — Sjáðu til, þú getur fengið peninga til-að gefa þeim, en ég sé enga ástæðu til að þú farir þangað.... Janicke gramdist meira og meira, hversu öruggur hann var með sig. — Eigðu peningana þina sjálfur. Ég er búin að lofa góðum vini minum að koma. — Ertu viss um að þetta sé almennileg manneskja? Hvað heitir hún? Það var helzt á honum að heyra, ab Janicke væri eign hans, og reiðin spratt upp i henni. — Hann heitir Pétur Brandt og ég kynntist honum á brautarpallinum um daginn, svo þú vitir það. — Á brautarpallinum! Róbert missti næstum málið. —- Þú ert þó ekki að segja mér, að þú látir karlmenn kynnast þér á brautarpallinum. Nei, þú ferð ekki með svoleiðis mönnum eitt einasta skref. Slikt skai taka enda áður en við giftum okkur. Nú var komið að henni að verða hissa. — Þú hefur engan rétt til að segja svona hluti. Við erum alls ekki trúlofuð og mun- um aldrei giftast. Að minnsta kosti ekki hvort öðru. Það er ekki einu sinni vist að ég gifti mig nokkurn tima. Það þarf alveg sérstakan karlmann til að ég fórni frelsi minu hans vegna og það er alveg áreiðan- legt. Róbert varð áhyggjufullur. — En ég hélt.... ég á við.... ég hef alltaf haldið.... — Já, og það hafa vist allir aðrir gert lika, en það hefur bara gleymzt að spyrja mig. Ég giftist engum af skynsemi. Ef ég gifti mig, verður það manni, sem þarfnast min og sem ég elska.... Hún þagnaði snögglega og Róbert leit út eins og litill drengur, sem hefur verið skammaður. öll reiði hennar hvarf á and- artaki og hún mjakaði sér eftir gólfinu, að stólnum til hans og tók um báðar hendur hans. — Sjáðu nú til Róbert. Hugsaðu þig um. Við erum góðir vinir og ég vona að við verðum það alltaf. En það er alls ekki það sama og að elska hvort annað. Við höfum þekkzt frá þvi við vorum smábörn og auð- vitað þykir okkur vænt hvoru um annað, en það er ekki nóg. Vertu nú sanngjarn og horfstu i augu við staðreyndirnar. Hún brosti uppörvandi. Hægt og rólega kveikti hann sér I sigarettu og andaði reyknum djúpt að sér. — Ef til vill hefurðu rétt fyrir þér, Jan- icke, sagði hann eftir dágóða stund. — Ef til vill er ég lika fæddur piparsveinn. En mér... mér þykir vænt um þig, það skaltu vita og ég er svo vanur þér, vanur að vera með þér. Þú mátt ekki kasta mér frá þér. — Ég var að segja, að vonandi verðum við alltaf vinir. Hún brosti til hans, svolft- ið ihugandi á svip. — Taktu þessa peninga, vina min og gefðu munaðarlausu börnunum þá. Hann tróð bunka af seðlum i hönd henni og rauk siðan til dyranna. Aldrei hafði Janicke kunnað jafn vel að meta Róbert og á þess- ari stundu. Henni fannst hún næstum geta grátið. Það var kalt og hráslagalegt á laugar- dagskvöldinu og byrjað að snjóa, þegar Janicke kom til skólans og settist langt frammi i sal. Litla sviðið var fallega skreytt með greinum og gerviblómum i öllum regnbogans litum. Meðal áhorfenda voru margar fjöl- skyldur i sinum beztu fötum.... og þarna voru börnin á heimilinu, en án fjöl- skyldna. Janicke fór að hugsa um ham- ingjusamlega æsku sina. Hún hafði verið umkringd öllum sinum ættingjum og var það raunar enn og þó að stundum hvini i, þótti öllum i fjölskyldunni innilega vænt hverju um annað, og öryggi var ætið rikj- andi. Þá tók hún skyndilega ákvörðun. Hún ætlaði að segja upp vinnunni á trygginga- skrifstofunni. Hvorki hún sjálf né fyrir- tækið myndu tapa neinu á þvi. Pétur hafði sagt henni hversu erfitt væri að fá hjálp á barnaheimilinu. Hún skyldi hafa sam- band við forstöðukonuna strax á morgun og athuga, hvort hún gæti ekki orðið að liði. Siðar, þegar hún hefði svo lokið námi Framhald á bls. 118 28

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.