Heimilistíminn - 31.10.1974, Blaðsíða 29

Heimilistíminn - 31.10.1974, Blaðsíða 29
Sigurður Draumland: Roðagull Snjóar Súlnafjalla bleikrauöir af morgunsól minna augaö á segulmyndir af minningum um hina björtu engla á veginum. Hugljúfur litblær himins og jaröar eyöa skuggamyndum þess Jehóva sem paufar i mannshjartanu eins og lilli-lltill Kölski meöan vottar hans þykjast þvo glugga. Og paufi á giuggum lltur fjölmennan söfnuö vonanna sitja I kirkju morgunsins þótt nú sé haust en sjálfur er hann I fölskum hjúpi. Fölrauöur bjarminn mun aldrei slokkna þvi aö kveikur hans á rót I guödómi en ckki auöshyggju veraldar sem tinir eineyringa og tleyringa upp af götunni. — Snjóar Súlnafjalla! Bjartur hreinleiki þeirra dregur að sér helgan litblæ og hugi alla. Þannig verða þeir stefnuvottar að vatnandi mannheimi þó að kýrnar hafi vængi yfir grasgaröinum. Dagurinn liöur og nóttin kemur snemma. Roöavangar fjallanna veröa fölbláir eins og sorgin á Sturlungaöld og hverfa inn I myrkrið i leit aö næstu morgunsól. Sá, sem hefur á röngu aö standa og lætur undan, er vitur, cn sá, sem hefur á réttu aö standa og lætur samt undan, hlýtur að vera kvæntur. Mér finnst karlmenn eiga að vera eins og karlmenn, sterkir og barnalegir. Ef ekki væru til hundar, færi sumt fólk aldrei i gönguferðir. Hvað sem veöriö er slæmt er það alltaf bctra en ekkert veöur Ornitolog er manneskja sem hlustar á fugla gegn um kiki. Astfanginn maður hagar sér alitaf eins og hann hafi fundiö upp ástina. Engin kona lifir nógu lengi til at ríyna allar þær uppskriftir, sem hún klippir út úr blöðum. Maður getur sagt konunni sinni allt, hún er þétt sem sigti! Enginn er eins einmana og kona, sem kemur i veizlu á réttum tima. Kona teygir sig ósjálfrátt I stól, þegar siminn hringir. Sá, sem sér hlutina cins og þcir ættu aö vera, er hamingjusamari en sá, sem sér þá eins og þeir eru. 4 ■ fagr 4 Svartsýnismaður fagnar alltaf slæm- um fréttum. Miklu flciri myndu iöka útifþróttir, ef hægt væri að iðka þær innan dyra. \ 29 I

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.