Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 31.10.1974, Qupperneq 6

Heimilistíminn - 31.10.1974, Qupperneq 6
Balzac klæddist munkakuflinum og hóf verkið. Osennilegt er að nokkur rit- höfundur, fyrr eða siðar hafi erfiðað svo. Það var ekki aðeins að afköstin væru mikil, heldur vann hann þannig. Eftir að hafa skrifað alla nóttina, fór hann i bað. Klukkan niu um morguninn kom sendill frá prentaranum með prófarkir og Balzac sat yfirleitt langt fram á siðdegið við leið- réttingar og endurbætur. Endurbætur á próförk kosta peninga og þess vegna breyta höfundar þeim eins litið og hægt er að komast af með. En Balzac notaði prófarkir sem grundvöll endurritunar bókarinnar, hann krotaði út hvern blett, sem auður var með hrafna sparki sinu, sem var flestum ólæsilegt. Prentarinn hafði sérstaka menn til að þýða rithönd hans, eftir að ljóst varð, að Balzac dugði ekki ein próförk og ekki heldur tvær eða þrjár. Þessum föstu starfsháttum hélt Balzac i hvorki meira né minna en tuttugu og eitt ár. Eina hvildin, sem hann tók yfir daginn var kvöldmatarhlé um sex-leytið og þá bauð hann gjarnan vinum sinum til sin og svo var mikið borðaö. Sagt er að eitt sinn hafi kunningjarnir horft á eftir hundrað ostrum, tólf kótelettum, önd, tylft af perum og fleira smávegis ofan i Balzac I einni máltið. Um átta-leytið fór risinn siðan i rúmið og svaf til miðnættis, en þá hófst hringurinn á ný. —• Ég er galeiðuþræll! kvartaði hann stundum. — Galeiðuþræll með penna i stað árar! Hann var það og það var að mestu honum sjálfum að kenna. En sögurnar fóru frá honum eins og á færibandi og peningarnar hefðu átt að streyma til hans með sama hraða. En þeir gerðu það ekki og það er ekkert undarlegt, þvi kostnaðurinn við endalausar leiðréttingar prófarka gleypti ágóðann og það sem hann liföi á, var það sem hann fékk fyrir blaðagreinar. Það mætti svo sem imynda sér, að Balzac heföi ekki haft tima til að eyða peningum með slikum vinnubrögðum, en hann gat það samt, án mikillar fyrir- hafnar. Stöku sinnum tók hann sér hlé, en gætti þess þó, að prentsmiöjan stöðvaðist ekki þess vegna. — Nú þarf ég að vinna f jórtán stundir án afláts til að bæta þetta upp, sagði hann eitt sinn við konu gestgjafa sins eftir mikla veizlu. Og þegar Balzac var að vinna, hvarf hann bókstaflega vikum saman og þá fór hann stundum alls ekkert i rúmið, heldur hélt sér vakandi og hressum á sardinum og smjöri. En þegar hann tók sér fri og fór út á lifið, gætti hann þess að það færi ekki fram hjá neinu meiri háttar fólki i Paris. Fyrstu bækurnar af „Hinum mannlega gleðileik” höfðu kynnt nafn hans viða um Frakklandi og frægðin steig honúm svo til höfuðs að hann tók að eyða peningum meira en nokkru sinni og barst mikið á. Hann átti brezkan vagn, sem hann lét mála fjólubláan og setja á hana skjaldar merki sitt og klæddi eklana i litskrúðuga búninga. Hann átti safn af gimsteinum settum göngustöfum, hann gekk i dýrum og mjög áberandi fötum og drakk kampavin i litratali. Og stöðugt var hann að hæla sjálfum sér af einhverju. — Þið verðið að smakka mitt eigið, sér- staka romm, sagði hann. — Það gerjaðist sérstaklega i geymum niðri á hafsbotni i þúsund ár. Eða hann lýsti teinu, sem hann fékk úr sérstökum garði I Klna, þar sem fagrar ungur stúlkur tindu laufið i dögun Framhald á bls. 38 Hann kvartaði stund- um viö vini sina yfir þvl að hann væri gal- eiðuþræll með penna I stað árar. 6

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.