Heimilistíminn - 31.10.1974, Blaðsíða 12
Lena Zavaroni
NÝRRI barnastjörnu hefur skotið upp
á pop-himninum. Lena Zavaroni og
„Ma, He’s making Eyes at me” hafa
klifiB upp vinsældalistana i Bandarlkj-
unum og Evrópu meB methraBa. bessi
fyrsta plata hennar seldist geysilega
og i stórum upplögum, og allt bendir til
þess aö Lena litla veröi annaö og
meira en dægurfyrirbæri i poppinu.
Lena er aöeins tiu ára, en þegar
maöur hlustar á hana, hvarflar ekki aö
manni að þetta sé barn, sem syngur.
Hún hefur geysimikla rödd, stórt
tónsvið og syngur auk þess lög, sem
eiga ekki alveg heima i lagavali barns.
Hún syngur m.a. „Rock-a-bye your
baby with a Dixie Melody”, sem Judy
Garland geröi frægt á sinum tima, og
auk þess hefur hún gert sina eigin
útgáfu af „River deep, Mountain
high”, sem við þekkjum frá Ike & Tinu
Turner. Ekki nóg meö það. Hún
syngur lika „Help me make it through
the night”, sem Gladys Knight söng.
Þessi lög eru öll á fyrstu LP-plötu
Lenu, sem heitir „Ma, He’s making
eyes at me”.
Nýlega hélt Lena hljómleika i Kaup-
mannahöfn, og eftir þá sögðu gagn-
rýnendur, að það væri hvorki meira né
minna en hræðilegt aö sjá tilburöina
og hugsa sér, að þetta væri barn. Hún
hreyfði sig eins og Eartha Kitt eða ein-
hver álika þaulvön á sviðinu og röddin
væri engin barnsrödd.
Lenu er spáð mikilli framtið, en
hennar er vandlega gætt. Foreldrar
hennar kæra sig ekki um að hún
ofþreyti sig eða verði dekurbarn. En
Lena tekur þessu öllu með ró. Hún
elskar að syngja og segist aldrei verða
þreytt á þvi.
Lena Zavaroni fæddist 4. nóvember
1963 i Rothesay i Skotlandi. Eftirnafn
hennar hljómar ekki mjög skozkt, en
það er vegna þess að afi hennar var
Itali. Báðir foreldrar hennar eru
fæddir Skotar, og bæði eru þau elsk að
tónlist, en hafa haldið sig i hópi áhuga-
fólks til þessa.
Lena byrjaði að syngja opinberlega,
þegar hún var þriggja ára. Fljótlega
fréttist það um nágrenni heima-
bæjarins, að barnið hefði alveg
einstaka rödd, og hún dró fólk að, þar
sem eitthvað var um að vera. Fjöl-
skylduvinur kom henni i samband við
umboðsmanninn Philip Solomon, og
hann þurfti ekki að hlusta lengi á Lenu
til þess að vita, að þarna var ný barna-
stjarna á ferðinni. Við fáum þvi
áreiðanlega eitthvað að heyra frá
Lenu I framtiðinni.
12
v